Morgunblaðið - 18.03.2020, Page 32

Morgunblaðið - 18.03.2020, Page 32
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 78. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Rögnvaldur Hreiðarsson varð síðasta föstudagskvöld fyrsti Íslendingurinn til að dæma tvö þúsund körfu- boltaleiki í mótum á vegum Körfuknattleikssambands Íslands þegar hann dæmdi leik Keflavíkur og Þórs frá Þorlákshöfn í úrvalsdeild karla. Rögnvaldur segir í ít- arlegu viðtali í blaðinu í dag að körfuboltaíþróttin hafi mikið breyst á þeim 25 árum sem liðin eru frá því hann hóf dómaraferlinn. „Það hefur hreinlega orðið stökk- breyting á íþróttinni frá því ég byrjaði hvað varðar stjórnun og umgjörð og svo er leikurinn sjálfur allt öðruvísi. Þetta er nánast allt önnur íþrótt.“ »26 Þetta er nánast allt önnur íþrótt ÍÞRÓTTIR MENNING Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100 Opið: Mán-fös: 11-18 lau: 11-15 VOR 2020 síðuna haraldarhus.is og byrjaði að hlaða inn myndum. Fékk síðan nán- ari upplýsingar um hverjir voru á myndunum, tilefnið og svo fram- vegis, og þannig óx þetta að magni og gæðum.“ Í tilefni 100 ára afmælis Ung- mennafélagsins 23. janúar 2010 setti Haraldur upp sýninguna „Íþróttir í 100 ár“ í lok árs 2009 og stóð hún í um tvö ár. Hann segir að þá hafi margir komið færandi hendi með myndir sem annars hefði verið fleygt. „Fyrir vikið stækkaði sýn- ingin um helming áður en yfir lauk,“ segir hann og leggur áherslu á að Jón Gunnlaugsson, liðsfélagi hans í ÍA, hafi í 40 ár tekið saman töl- fræðilegt yfirlit í sambandi við leiki meistaraflokks karla og hafi hann reynst sér vel. Eins tekur hann fram að Helgi Daníelsson og synir hans, Friðþjófur og Steinn Mar, Björn Ingi Finsen og Eyþór Óli Frímanns- son hafi lagt sitt af mörkum. „Maður- inn einn er ei nema hálfur, með öðr- um er hann meira en hann sjálfur,“ segir hann. Haraldur safnar ekki aðeins myndum af keppnisfólki og þjálf- urum heldur af sem flestum sem hlut eiga að máli. „Ég reyni að gera mörgum skil,“ segir hann og bendir á að Einar Sörensen, sem keyrði sem- ent til Reykjavíkur, hafi fylgt meist- araflokksliðinu í alla leiki, þegar hans kynslóð var og hét. „Hann mætti uppáklæddur og aðstoðaði okkur og eitt spjaldið ber þess merki.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Skagamaðurinn Haraldur Sturlaugs- son hefur um árabil unnið að því að safna saman myndum úr íþróttasögu Akraness, skrá upplýsingar um þær, stækka og laga í samvinnu við Frið- þjóf Helgason ljósmyndara. „Það er saga á bak við hverja mynd og stefn- an er að setja upp varanlega sýningu í Akraneshöllinni fljótlega eftir að samgöngubanninu verður aflétt, í vor eða sumar,“ segir hann. Knattspyrnusagan er þunga- miðjan í safninu, þar sem eru meðal annars myndir af öllum um 100 Ís- lands- og bikarmeistaraliðum karla og kvenna í öllum flokkum ÍA. „Elstu myndirnar eru oft þær bestu. Árni Böðvarsson var með stúdíó í Georgshúsi og þangað komu leik- menn fullklæddir í myndatökur.“ Löng saga Íþróttasagan hefst 1882 með stofnun Æfingafélagsins, sem var reyndar eins konar bæjarstjórn og beitti sér fyrir ýmsum mikilvægum málum. „Þetta var fyrsta félagið sem var stofnað á Akranesi og var fyrsti vísir að íþróttalífi í bænum,“ segir Haraldur, en hann hefur útbúið 14 söguspjöld, 50x140 cm að stærð, þar sem hann varpar ljósi á söguna auk annarra spjalda. Ungmennafélagið á Akranesi var stofnað 1910 og þá komst fyrst skipulag á íþróttastarfsemina. „Hall- grímur Jónsson prófastssonur var sá eini sem átti fótbolta og er því gjarn- an sagt að hann hafi verið fyrsti fót- boltamaðurinn hérna,“ rifjar Har- aldur upp. Knattspyrnufélagið Kári var stofnað 1922 og tók við af ung- mennafélaginu, en Knattspyrnufélag Akraness, KA, var stofnað 1924. Reyndar stofnaði Ungmennafélagið Hörð Hólmverja 1919 en strákarnir gengu síðan í Kára og KA. „Ég rek söguna í máli og myndum og er kom- inn með ríflega 200 álspjöld. Ég hef verið 15 ár að þessu og stöðugt bæt- ist í safnið þannig að erfitt er að hætta.“ Haraldur hefur alla tíð tengst fót- boltanum, bæði sem leikmaður og forystumaður, og þegar hann hætti að vinna ákvað hann að einbeita sér að því að halda sögunni til haga með því að safna saman myndum og skrá söguna á bak við þær. „Ég setti upp Saga á bak við myndirnar  Varanleg sögusýning í myndum og máli í Akraneshöll Spjald Hallgrímur Jónsson var einn af fyrstu fótboltamönnum á Akranesi. Hið fjölhæfa ASA tríó, sem hefur verið starfrækt frá 2005 og sent frá sér nokkra diska með djasstónlist, kemur fram í Jazzklúbbnum Múlanum í Flóa í Hörpu í kvöld klukkan 20. Tríóið skipa Agnar Már Magnússon á Hammond orgel, Andrés Þór á gítar og Scott McLe- more á trommur. Með þeim kemur fram saxófónleik- arinn Jóel Pálsson og munu þeir leika glænýtt efni eft- ir þá fjóra. Tónleikar Múlans eru venjulega á Björtu- loftum Hörpu en verða nú fluttir í Flóa, sem tekur allt að 95 gesti og verður gætt að mátulegri fjarlægð milli gesta og ýtrasta hreinlætis, samkvæmt fyrirmælum. ASA tríó leikur í Múlanum í kvöld

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.