Morgunblaðið - 23.03.2020, Síða 2
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR2
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2020
BROTINN
SKJÁR?
Við gerum við
allar tegundir
síma, spjaldtölva,
og Apple tölva
Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Mikið samstarf er á milli einkarekna
heilbrigðiskerfisins og þess opin-
bera vegna útbreiðslu kórónuveir-
unnar sem leiðir til sjúkdómsins
COVID-19, að sögn Ölmu D. Möller
landlæknis.
Hún segir að allir þurfi að leggja
hönd á plóg og bæði einkareikna
kerfið og hið opinbera séu tilbúin til
þess. „Það eru allir boðnir og búnir
að vinna saman,“ segir Alma.
„Sem dæmi um samvinnu og sam-
hug hefur fjöldi svæfinga- og gjör-
gæslulækna sem vinna á einkarekn-
um stöðvum skráð sig til leiks til að
sinna gjörgæslusjúklingum á Land-
spítala ef á þarf að halda.“
Verið er að skoða húsnæði sem
gæti tekið við sjúklingum ef til þess
kemur að heilbrigðisstofnanir ráði
ekki við fjölda sjúklinga.
Alma segir möguleika á því að
einkarekna kerfið verði beðið um að
framkvæma brýnar skurðaðgerðir
sé það opinbera heilbrigðiskerfinu
um megn vegna fjölda sjúklinga. Til
þessa hefur ekki verið þörf á því en
nú hefur öllum valkvæðum skurð-
aðgerðum verið hætt, bæði í einka-
rekna og opinbera heilbrigðiskerf-
inu.
„Við erum búin að vera í miklu
samstarfi um að efla fjarheilbrigð-
isþjónustu og síðan hefur komið boð
frá sérfræðilæknum um að til dæmis
hjálpa til með göngudeildarþjón-
ustu,“ segir Alma.
„Við erum ekki komin þangað
núna en auðvitað getur komið til
þess að við þurf-
um að fá ein-
hverjar af einka-
reknu skurð-
stofunum til að
hjálpa okkur með
bráðar aðgerðir.
Það er mikið
samtal í gangi við
mjög marga að-
ila.“
Eins og áður segir er til skoðunar
að taka í gagnið frekara húsnæði
undir heilbrigðisþjónustu ef pláss-
leysi skyldi verða vandamál. Alma
segir of snemmt að segja hvaða hús-
næði sé um að ræða en það fari eftir
því hvaða sjúklingar eigi að dvelja
þar hversu vel húsnæðið þurfi að
vera búið sérfræðibúnaði. Spurð
hvort það sé ekki skortur á
mannafla sem geti sett strik í reikn-
inginn frekar en skortur á rými
segir Alma:
„Það getur bara verið hvoru
tveggja. Þess vegna erum við búin
að setja upp bakvarðasveit heil-
brigðisstarfsfólks en svo getur líka
þurft að virkja Rauða krossinn og
fleiri aðila.“
Á Englandi hefur allt einkarekna
heilbrigðiskerfið verið virkjað til
þess að sinna sjúklingum sem veikir
eru af kórónuveirunni og öðrum
verkefnum sem opinbera heilbrigð-
iskerfið hefur ekki burði til að sinna.
Stjórnvöld í Bretlandi skrifuðu und-
ir samkomulag þess efnis síðastlið-
inn laugardag en það verður til þess
að heilbrigðisstarfsfólki sem sinnir
framangreindum verkefnum fjölgar
um 20.000.
Einkarekna kerfið tekur þátt
Útlit fyrir að einkarekna heilbrigðiskerfið létti undir með því opinbera „Allir boðnir og búnir að
vinna saman,“ segir landlæknir Til skoðunar er að fá frekara húsnæði undir heilbrigðisþjónustu
Alma Möller
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Víðtækar aðgerðir stjórnvalda til
stuðnings fólki og fyrirtækjum
vegna samdráttar í efnahagslífinu af
völdum kórónuveirunnar lofa góðu.
Þetta segir Sigurður Hannesson,
framkvæmdastjóri Samtaka iðnað-
arins. Eins og fram kom á blaða-
mannafundi ríkisstjórnarinnar á
laugardaginn mun ríkissjóður greiða
allt að 75% launa fólks næstu mán-
uði. Ríkisábyrgð verður á brúar-
lánum til fyrirtækja sem hafa misst
hið minnsta 40% af tekjum.
Alls er umfang aðgerðanna virt á
um 230 milljarða króna. Þar er í
pakkanum að farið verður í sérstakt
20 milljarða kr. fjárfestingarátak á
þessu ári, en inntak þess er sam-
göngubætur, fasteignaframkvæmd-
ir, upplýsingatækni, nýsköpun og
menning. Er þá fátt eitt talið.
Framgangan er afgerandi
„Þetta eru nauðsynlegar aðgerðir
á erfiðum tímum og framganga
stjórnvalda er
bæði skýr og af-
gerandi, segir
Sigurður
Hannesson. „Við
fögnum þessum
umfangsmiklu
aðgerðum og ég
get tekið undir
með fjármálaráð-
herra að við þess-
ar aðstæður
borgar sig að aðgerðir séu umfangs-
meiri en hitt að upp á vanti. Hér eru
stjórnvöld að hjálpa almenningi og
fyrirtækjum að taka réttar ákvarð-
anir við mikla óvissu. Fyrirtæki fá
líflínu svo þau geti greitt starfsfólki
sínu laun og þannig verður lífi haldið
í heimilunum í landinu. Fyrirtækin
geta með stuðningi líka haldið sjó og
þannig myndað viðspyrnu fyrr en
ella, þegar veiran er gengin yfir og
aðstæður orðnar betri. Þannig er
flýtt fyrir efnahagsbata.“
Sigurður Hannesson segist hafa
verið í sambandi við umbjóðendur
sína í Samtökum iðnaðarins á síðustu
dögum – og segist greina að fólk beri
kvíðboga gagnvart næstu mánuðum.
Í flestum fyrirtækjum og í öllum at-
vinnugreinum megi merkja sam-
drátt og eftirspurn hafi minnkað. Í
því efni hafi mál þróast mjög hratt
síðustu dagana.
Framleiðsla sé stöðug
„Í ýmsum greinum, svo sem mat-
vælaiðnaði, er mikilvægt að starf-
semi haldist gangandi og framleiðsla
sé stöðug. Þá er stóriðjan viðkvæm
fyrir truflunum í rekstri. Áður en
þessi skæði faraldur gekk í garð var
byggingaiðnaðurinn mjög farinn að
kólna og því er fagnaðarefni að nú
eigi að gefa í með auknum fram-
kvæmdum – hvort sem er vegagerð,
nýbyggingar eða endurgreiðsla á
virðisaukaskatti í gegnum átakið All-
ir vinna, sem nú verður endurvakið.
Já, almennt tel ég ríkisstjórnina
bregðast rétt við aðstæðum, sem eru
þó erfiðar og breytast hratt. Eins og
þau bentu á verður meira gert ef
þarf. Það eru mikilvæg skilaboð til
landsmanna allra,“ segir Sigurður.
Fyrirtækin fá líflínu og
geta myndað viðspyrnu
Aðgerðir lofa góðu Flýti batanum Víða er samdráttur
Morgunblaðið/Eggert
Aðgerðir Frá blaðamannafundi stjórnarinnar um helgina þar sem mótleikir vegna kórónuveirunnar voru kynntir.
Sigurður
Hannesson
Embætti landlæknis hefur átt í
samstarfi við Læknafélag
Reykjavíkur vegna aðkomu
einkageirans.
„Það er mikilvægt að fólk fái
þá heilbrigðisþjónustu sem er
nauðsynleg og við munum að
sjálfsögðu reyna að hjálpa til
með það og veita sem öruggasta
þjónustu með ýmsum aðgerðum
inni á stofunum hjá okkur, m.a.
með fjarlækningum,“ segir Þór-
arinn Guðnason, formaður
Læknafélags Reykjavíkur.
Einkageirinn
MIKILVÆG ÞJÓNUSTA
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Jóhannes Þór Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, segir fyrirhugaða ávísun á
ferðalög munu leiða til aukinnar
eftirspurnar. Rætt sé um 5 þúsund
króna stafræna ávísun á hvern
landsmann sem hluta af aðgerðum til
að örva hagkerfið í niðursveiflunni.
„Við eigum eftir að fara í gegnum
það með ráðuneytinu hvernig þetta
verður útfært gagnvart fyrirtækjun-
um, þ.e.a.s. með hvaða hætti fyrir-
tækin koma þá til móts við þetta
framlag ríkisins. Það er hægt að
gera það á ýmsan máta svo að þetta
verði samvinnuverkefni. Þá fá allir
eitthvað fyrir sinn snúð. Fyrirtækin
fá mögulega fleiri viðskiptavini en
ella og ferðamenn fá meira fyrir pen-
ingana,“ segir Jóhannes Þór.
Afsláttarverð kemur til greina
Áðurnefnd upphæð samsvarar 20
þúsund krónum á fjögurra manna
fjölskyldu. Spurður hvort fyrirtækin
muni á móti bjóða afslátt, til dæmis 2
fyrir 1, segir Jóhannes Þór engar
ákvarðanir liggja fyrir. Slíkt verði
skoðað á næstunni. Reikna megi með
því að Íslendingar muni geta ferðast
innanlands áður
en hægt verði að
ferðast erlendis.
Á þessu aðlögun-
artímabili muni
safnast upp
ferðaóþreyja hjá
heimafólki sem
muni vilja
ferðast innan-
lands en ferða-
viljinn til útlanda
verði skertur.
Vel sé hugsanlegt að fram undan
sé tímabil þar sem nær eingöngu
innlendir ferðamenn verði í viðskipt-
um við ferðaþjónustuna.
Þungt hljóð í mönnum
Greining KPMG árið 2018 benti til
versnandi afkomu ferðaþjónustu-
fyrirtækja. Styrking krónu og
kostnaðarhækkanir áttu þátt í lakari
afkomu. Síðan fór WOW air í þrot,
Icelandair lenti í vanda með Boeing
Max-þotur og loks kom kórónuveiru-
faraldur. Jóhannes Þór segir að-
spurður nokkuð ljóst að mörg fyrir-
tækin muni ekki standa af sér
storminn. „Það er þungt hljóð í
öllum. Töluverður fjöldi fyrirtækja
verður í verulegum vanda að komast
í gegnum þennan skafl,“ segir hann.
Ferðaávísun muni
örva ferðaviljann
SAF telur gjaldþrot óumflýjanleg
Jóhannes Þór
Skúlason