Morgunblaðið - 23.03.2020, Blaðsíða 4
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR4
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2020
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Þeim sem sýktir eru af kórónuveiru
hefur fjölgað ört undanfarna daga og
hafa aldrei fleiri greinst sýktir en á
laugardag, þegar 95 smit voru stað-
fest. Þannig hefur greindum smitum
fjölgað um 318 síðustu fjóra daga en
þrátt fyrir það hefur sýnatökum
fækkað talsvert síðustu daga.
„Þetta þarf í sjálfu sér ekki að
koma á óvart vegna þess að við vit-
um að faraldurinn er í uppsveiflu,“
sagði Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir
á 22. blaðamannafundi almanna-
varna sem fram fór í gámi fyrir utan
björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð í
gær. Sagði hann enn vera gert ráð
fyrir því að faraldurinn næði há-
marki um miðjan apríl.
Einhver skortur er á sýnatöku-
pinnum sem notaðir eru til þess að
taka próf vegna kórónuveiru á
heimsvísu.
Töf hefur orðið á sendingu af pinn-
um til landsins en hún hefur einnig
verið minnkuð úr 5.000 í 2.000. Von
er á sendingunni í vikunni en það
gæti breyst, að sögn Þórólfs.
Til þess að setja fjölda pinnanna í
samhengi hafa nú þegar 10.118 sýni
verið tekin hérlendis.
Þórólfur sagði að allra leiða væri
leitað til að nálgast pinna en skort-
urinn gæti leitt til þess að strangari
skilyrði yrðu sett fyrir sýnatökum.
Ekki væri komið að slíku og það yrði
auglýst sérstaklega ef til þess kæmi.
Pinnarnir munu ekki klárast
Um 2.000 pinnar voru til á föstu-
dag en Þórólfur vissi ekki hversu
mikið þeim hefði fækkað yfir
helgina. Hann fullvissaði þó fólk um
að pinnarnir myndu ekki klárast.
Staðfest smit kórónuveirunnar
voru 568 þegar Morgunblaðið fór í
prentun í gær. 532 voru í einangrun,
14 á sjúkrahúsi, 36 var batnað, 6.340
voru í sóttkví og höfðu 1.066 lokið
sóttkví.
Fyrir helgi kynnti hópur vísinda-
manna frá Háskóla Íslands, Emb-
ætti Landlæknis og Landspítala spá-
líkan um líklega þróun faraldursins
hérlendis. Tvær meginspár voru
settar fram þar, líkleg spá og svart-
sýn spá.
Nýjar smittölur færa Ísland nær
svartsýnu spánni, að sögn Þórólfs.
„Við eigum eftir að sjá líkanið og
tölur milli daga geta breytt líkaninu
töluvert. Eins og tölurnar eru núna
virðumst við vera frekar að stefna í
svartsýnu spána en það getur bara
margt breyst og línurnar á þessu
stigi málsins liggja bara mjög ná-
lægt hvor annarri. Svo það þarf ekki
mikið til að hreyfa spána í aðra átt.“
Víðir Reynisson, yfirlögreglu-
þjónn hjá ríkislögreglustjóra, stað-
festi á fundinum að heil vakt hjá
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
væri komin í sóttkví til viðbótar við
þá 16 slökkviliðsmenn sem höfðu
þegar verið settir í sóttkví. Víðir
sagði þó að slökkviliðsstjóri höfuð-
borgarsvæðisins hefði fullvissað
hann um að vegna öflugra viðbragðs-
áætlana slökkviliðsins myndi þetta
ekki hafa áhrif á sjúkraflutninga.
Afreksfólk í erfiðri stöðu
Reiknilíkan vísindamanna hjá
miðstöð lýðheilsuvísinda í Háskóla
Íslands leiðir í ljós að nýgreindum
smitum hefur fjölgað einna minnst
hérlendis samanborið við önnur
Evrópulönd.
Þórólfur vakti athygli á því á fund-
inum. „Það er ágætis vitnisburður
um það að þær aðgerðir sem við höf-
um verið að grípa til hafi skilað ár-
angri.“
Lárus Blöndal, forseti Íþrótta- og
ólympíusambands Íslands, var einn-
ig til svara á fundinum, en eins og áð-
ur hefur komið fram hefur öllu
skipulögðu íþróttastarfi verið aflýst
á meðan á samkomubanni stendur.
„Það er auðvitað mjög sorglegt
fyrir íþróttahreyfinguna að horfa til
þess,“ sagði Lárus.
„Við verðum bara að líta svo á að
við erum komin í annað verkefni sem
er mjög mikilvægt verkefni og það
er að kveða niður þessa veiru.“
Lárus lýsti sérstaklega yfir
áhyggjum af afreksfólki í íþróttum.
„Síðan erum við í þeirri stöðu að
afreksfólkið okkar sem er að reyna
að komast inn á heimsmeistaramót
og Ólympíuleika er í mjög erfiðri
stöðu. Það þarf að tryggja að þessir
einstaklingar geti haldið sér í
keppnisformi og komist á úrtökumót
þegar þar að kemur.“
Fjöldi eftir landshlutum
Óstaðsett 8 64
Útlönd 0 4
Austurland 0 77
Höfuðborgarsvæði 464 4.171
Suðurnes 27 268
Norðurland vestra 5 364
Norðurland eystra 5 299
Suðurland 56 707
Vestfirðir 1 176
Vesturland 2 210
Smit
Sóttkví
Uppruni smits
Innanlands Erlendis
Óþekktur
35%36%
30%
10.118 sýni hafa verið tekin
36 einstaklingar hafa náð bata
1.066 hafa lokið sóttkví
14 einstaklingar eru á sjúkrahúsi
532 manns eru í einangrun
Fjöldi staðfestra smita frá 28. febrúar
28.2. 29.2. 1.3. 2.3. 3.3. 4.3. 5.3. 6.3. 7.3. 8.3. 9.3. 10.3. 11.3. 12.3 13.3. 14.3. 15.3. 16.3. 17.3. 18.3. 19.3. 20.3. 21.3.
Upplýsingar eru fengnar af
568 smit voru staðfest
í gær kl. 11.00
6.340 hafa verið settir í sóttkví
600
500
400
300
200
100
568
Stefnum í dekkstu spána
Aldrei fleiri smit staðfest en á laugardag Skortur á sýnatökupinnum á heimsvísu Nýgreindum
smitum hefur þó fjölgað minnst hérlendis miðað við Evrópu Heil vakt slökkviliðsmanna í sóttkví
Ljósmynd/Júlíus Sigurjónsson
Fundur Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ.
Í Húnaþingi
vestra mega
mest koma
saman fimm
aðilar og í
Vestmanna-
eyjum mest tíu.
Er það vegna
útbreiðslu kór-
ónuveirunnar,
en fimm stað-
fest smit eru í
Húnaþingi vestra og eru allir íbú-
ar sveitarfélagsins í úrvinnslu-
sóttkví vegna grunsemda um víð-
tækt smit. Einungis einn af
hverju heimili getur í hvert sinn
yfirgefið heimilið til að afla að-
fanga.
Í Vestmannaeyjum eru 27 smit
staðfest en Íris Róbertsdóttir,
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum,
segir mikilvægt að fólk taki
höndum saman vegna þessa.
„Höldum ró okkar og sýnum
þann samtakamátt og samhug
sem einkennir okkar góða og
kraftmikla samfélag“, skrifaði
Íris í færslu á Facebook-síðu
sinni um helgina.
„Við lifum nú ástand sem er
ólíkt öllu sem við höfum áður
þekkt. Af því leiðir að við getum
ekki nema að takmörkuðu leyti
notfært okkur fyrri reynslu til að
takast á við þetta; hún er ekki
fyrir hendi. Þetta hefur ekki
gerst áður. Ekki svona.“
397 íbúar Vestmannaeyja eru í
sóttkví en einum þeirra smituðu
hrakaði á laugardag og var hann
fluttur með sjúkraflugi á Land-
spítalann.
Fimm og
tíu manna
bann
Íris
Róbertsdóttir
„Fyrstu viðbrögð mín við aðgerðum
eru jákvæð, að grípa fljótt til að-
gerða við þessar alvarlegu aðstæður
skiptir miklu máli. Einnig er mikil-
vægt að stjórnvöld séu tilbúin að
breyta aðgerðaáætlun og bregðast
við því hvernig ástandið þróast,“
segir Kristján Þórður Snæbjarnar-
son, formaður Rafiðnaðarsambands
Íslands og 2. varaforseti ASÍ.
Í efnahagspakka þeim sem ríkis-
stjórnin kynnti um helgina eru ýmis
atriði er lúta að heimilunum og
launafólki. Tryggðar eru greiðslur til
fólks í sóttkví og þegar starfshlutfall
er minnkað að frumkvæði vinnuveit-
anda um minnst 20% vegna sam-
dráttar í starfsemi. Gert er þá skil-
yrði að launþegi haldi að lágmarki
25% starfshlutfalli hjá vinnuveit-
anda.
Einnig verður veitt heimild til að
taka út séreignarsparnað og endur-
greiðslur á vsk. vegna viðhaldsvinnu
við heimili og frístundahúsnæði
hækkaðar í úr 60% í 100%.
„Ég hefði viljað sjá iðnaðarmenn
betur tryggða hvað varðar tekjur í
hlutastörfum og greiðslum ríkisins
við þær aðstæður. Við gerum okkur
hins vegar grein fyrir að núverandi
ástand varir ekki lengi svo þetta ætti
að sleppa. Þá er jákvætt að stjórn-
völd tóku vel í tillögu okkar að
breyta verkefninu Allir vinna þannig
að allur virðisaukaskattur af vinnu
við endurbætur verður endurgreidd-
ur líkt og gert var eftir efnahags-
hrunið. Þá verður að grípa til að-
gerða vegna verðtryggðra fasteigna-
lána og í því sambandi hefur frysting
verðtryggingar verið nefnd. Við
þurfum síðan þegar við komumst
fyrir veiruna að tryggja að manna-
flsfrekar framkvæmdir fari af stað
til að skapa störf,“ segir formaður
RSÍ. sbs@mbl.is
Framkvæmdir skapi störf
Brugðist verði
við vegna fast-
eignalánanna
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Launafólk Núverandi ástand varir
ekki lengi, segir Kristján Þórður.