Morgunblaðið - 23.03.2020, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.03.2020, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2020 „ÞETTA ER FÍNT, TAKK. ÞAÐ ER SVO ERFITT AÐ FÁ SUMT FÓLK TIL AÐ OPNA, ÞAÐ HEFUR BITIÐ Í SIG AÐ TANNLÆKNAR SÉU ILLMENNI.” „Í UMSÓKNINNI ÞINNI STENDUR AÐ ÞÚ VILJIR VERA Í SAMSKIPTUM VIÐ ALMENNING.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... flotti gæinn þinn. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann VILTU RÆÐA ÞETTA? EF ÞÚ GÆTIR VERIÐ HVAÐA DÝR SEM ER, HVAÐA DÝR MYNDIR ÞÚ VERA OG HVERS VEGNA? UM HEIMSENDI? NEI TAKK! MAUR! ÉG VISSI AÐ ÞÚ VÆRIR FURÐUFUGL! VEGNA ÞESS AÐ ÞEIR HAFA EKKI EYRU! Hrefnu, f. 2012 og Brynju, f. 2015; 3) Lilja Sólveig Kro, f. 4.11. 1989, hag- fræðingur við Seðlabanka Íslands, Maður hennar er Hannes Ellert Reynisson, byggingaverkfræðingur við Verkfræðistofuna Eflu. Dóttir þeirra er Hekla Sól, f. 2018. Arvid á dótturina Sonju Kro, æskulýðsfull- trúa á Akureyri, f. 1973. Maður henn- ar er Stefán Hallsson stálsmiður. Börn Sonju eru Birgitta Björk, f. 1995, nemandi við HÍ, Anna María, f. 2005 og Hallur Hólm, f. 2007. Systur Valgerðar: Sigríður Sverrisdóttir, f. 31.5. 1948, kennari, búsett á Grenivík, og Guðný Sverris- dóttir, f. 15.9. 1952, fv. sveitarstjóri á Grenivík, búsett þar. Foreldrar Valgerðar voru hjónin Sverrir Guðmundsson, f. 10.8. 1912, d. 6.1. 1992, bóndi og oddviti á Lóma- tjörn, og Jórlaug Guðrún Guðna- dóttir, f. 9.5. 1910, d. 15.4. 1960, hús- freyja. Valgerður Sverrisdóttir Guðrún Jóhannsdóttir húsfreyja í Reykjavík Guðmundur Jónsson verkamaður í Rvík Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík Guðni Eyjólfsson póstfulltrúi í Rvík Jórlaug Guðrún Guðnadóttir húsfreyja á Lómatjörn Helga Guðmundsdóttir húsfreyja á Apavatni Eyjólfur Árnason bóndi á Apavatni í Grímsnesi Ingunn Jensdóttir leikstjóri Ingunn Eyjólfsdóttir húsfr. á Laugarvatni Sæmundur Sæmundsson hákarlaskipstj., k.h. Sigríður, var systir Valgerðar, k. Guðmundar Sigurbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Hléskógum í Grýtubakkahreppi Hlíf Böðvarsdóttir húsfr. á Reykjum í Hrútaf. og Rvík Valgarður Egilsson yfirlæknir og rithöfundur Sigríður Thorlacius söngkona Guðrún Guðmundsdóttir verslunarmaður í Rvík Ragnheiður Guðmundsdóttir húsfreyja á Laugarvatni Ásdís Kristinsd. kennari Edda Guðmundsdóttir fyrrverandi forsætisráðherrafrú Ingileif Sæmundsd. húsfreyja á Blönduósi Guðrún Hallgrímsdóttir húsfreyja á Kussungsstöðum Jóhannes Jónsson Reykjalín bóndi á Kussungsstöðum í Fjörðum Valgerður Jóhannesdóttir húsfreyja á Lómatjörn Guðmundur Sæmundsson bóndi á Lómatjörn Ingileif Jónsdóttir húsfreyja í Gröf Sæmundur Jónasson bóndi í Gröf í Kaupangssveit, Eyj. Úr frændgarði Valgerðar Sverrisdóttur Sverrir Guðmundsson bóndi á Lómatjórn í Grýtubakkahreppi Davíð Hjálmar í Davíðshaga yrk-ir um „ástina á dögum veir- unnar“ á Leir: Þau hittust fyrst, Habba og Ossi, í hópferð að Aldeyjarfossi og saman þau kættust uns sálirnar mættust í eldheitum olnbogakossi. Pétur Stefánsson yrkir: Við COVID-veiru hugur hrýs, hræðast margir vandann og söngvakeppnin sett á ís, síst það gleður landann. Skírnir Garðarsson svaraði og sagði: „Séu menn gaufandi heima við af ótta við COVID, þá er hér verkefni að spreyta sig á“: Að mér setur soldinn ugg, sápa og spritt er urið, Og spurði síðan: „Óleysanlegt? Kolbeinn á klettasnös telur svo vera. Ég held það sveimérþá. Botnið ef þið getið!“ Guðmundur B. Guðmundsson læknir brást skjótt við þeirri áskor- un: Kætist lund ef landabrugg er látið út í Spurið. Ólafur Stefánsson bætti við: Þegar mörgu fjöri er fargað flykkist þjóð í veirudans, langhelst yrði lífi bjargað, með landagerð til sjós og lands. Á Boðnarmiði birtir Anna Dóra Gunnarsdóttir mynd af útsýninu úr stofunni hjá sér og yrkir: Undir fótum marrar mjöll, merlar jörðin öll og skín. Lít ég hérna fögur fjöll fannar bera klæðin sín. Ekkert verður af Eurovision þetta árið og út af því segir köttur- inn Jósefína Meulengracht Diet- rich: „Þetta staðfestir það sem ég hef alltaf sagt að fjórflokkurinn er öldungis ófær um að leysa Euro- vision-vanda samfélagsins“: Tregt er mér nú tungu að hræra og tárin streyma. Þjökuð er af þessum fjanda og þjóðin öll í miklum vanda. Philip Vogler svaraði að bragði: Jesús, hvað er Jósefína jarðbundin og flott. Í stað er sagt að kisa í Kína kjöt má verða í pott. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Enn um COVID- veiruna, sápu og spritt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.