Morgunblaðið - 23.03.2020, Side 6

Morgunblaðið - 23.03.2020, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2020 Dolorin Hita- og verkjastillandi paracetamól Á HAGSTÆÐUVERÐI! Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is Lesiðvandlegaupplýsingarnaráumbúðumogfylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til lækniseða lyfjafræðingsséþörfá frekari upplýsingumumáhættuogaukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is Nýjar umbúðir Dolorin500mg paracetamól töflur - 20stkog30stk Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Skólastarfið þessa vikuna hefur gengið ótrúlega vel – og kennarar jafnt sem nemendur verið ótrúlega fljótir að aðlagast breyttu starfs- umhverfi,“ segir Steinn Jóhannsson, rektor Menntaskólans við Hamra- hlíð. Í yfirstandandi samkomubanni liggur hefðbundið starf framhalds- skóla niðri og nú stunda nemendur heima- og sjálfsnám með stuðningi kennara. Les- og kennsluefni er miðlað stafrænt og kennarar eru á vaktinni sem í kennslustofu væri skv. stundarskrá og eiga þannig í gagnvirkum samskiptum við nem- endur. Námsráðgjafar fylgast með „Skipan um samgöngubann var gefin út föstudaginn 13. mars og fólk hafði því aðeins helgina til að búa sig undir gjörbreytta kennsluhætti. Reyndar þekktum við mörg tæki, tól sem og aðferðir sem þurfti að nota svo að þetta gekk upp og reynslan er fín. Þorri nemenda sest við tölvuna sína, fylgist með leiðsögn kennarans og skilar inn verkefnum,“ segir Steinn og heldur áfram: „Sumir hafa á orði að virkni nem- enda og innlegg í umræðum, sem annars myndu halda sig til hlés, sé betri í þessu starfsumhverfi en í hefðbundnum tímum í kennslustofu. Slíkt er jákvætt. Svo reyna náms- ráðgjafar líka að fylgjast sérstaklega með nemendum sem eru í brott- hvarfshættu og eru í sambandi við þá.“ Steinn segir að í velflestum grein- um sé kennsla yfir netið vel fram- kvæmanleg og gangi vel. Vandkvæði séu helst í raungreinum þar sem gerðar séu verklegar æfingar, svo sem í eðlis-, jarð-, líf- og efnafræði. Þegar samkomubanni lýkur verði hugað að því – og hvort skerpa þurfi á einhverju í skólastarfinu fyrir síð- ustu kennsluvikur yfirstandandi annar og svo vorprófin. „Starfið gengur vel við gjörbreytt- ar aðstæður. Hér í Hamrahlíð eru 1.067 nemendur á vorönn og mikil viðbrigði fyrir alla að hér sé ekki ið- andi mannlíf. En af þessum breyttu aðstæðum munum við öll læra. Samt er ekkert sem kemur í stað gagn- virkra samskipta milli kennara og nemenda í kennslustofu og skóla- starf verður í meginatriðum með því móti,“ segir rektor MH. Kennarar eru útsjónarsamir Hildur Ingvarsdóttir, skólameist- ari Tækniskólans, segir að þar hafi tekist vonum framar að aðlaga skóla- starfið nýjum aðstæðum. Áður en skipun um samkomubann var gefin út hafi verið ljóst að hverju fór og byrjað hafi verið að undirbúa að kennsla í skólanum gæti farið fram yfir netið. Þegar á reyndi hafi það verið vandkvæðalítið. Í gegnum for- ritið Microsoft Teams séu hópar tengdir saman í kennslustund sem sé oftast samkvæmt stundatöflu. Utan hennar eru kennarar, námsráðgjafar og aðrir starfsmenn í gegnum síma, tölvupóst og Teams tilbúnir til svara og að sinna þjónustu við nemendur Tækniskólans, sem eru um 2.700. „Í bóklegu námsgreinum, tölvu- greinum og fleira er í reynd hægt að fara alfarið yfir í fjarkennslu. En í verklegu fögunum er þetta snúnara. Í sumum verklegum áföngum var markvisst lögð meiri áhersla á verk- lega þáttinn vikuna áður en sam- komubann var sett á og er því hægt að leggja meiri áherslu á bóklega þáttinn núna,“ segir Hildur Ingvars- dóttir og að lokum: „Í sumum tilvik- um gengur samt sem áður að kenna verklegt yfir netið og kennarar hafa verið ótrúlega útsjónarsamir við að breyta og aðlaga svo það sé hægt. Þarna gæti ég til dæmis nefnt náms- áfanga í gull- og silfursmíði. Hér er allt kapp lagt á að halda nemendum í skóla og svo þeir tefjist sem minnst í námi. Satt að segja hefur skólastarf- ið hér farið í gegnum byltingu á örfá- um dögum, þar sem nemendur og kennara hafa lagst á eitt í ömur- legum aðstæðum.“ Gjörbreytt kennsla sem gengur vel  Fjarnám í framhaldsskólum í samkomubanni  Stundaskrá er fylgt og nemendur eru virkir í tímum og umræðum  Vandi í raungreinum  Ná að kenna verklegt á netinu  Bylting gerð á örfáum dögum Hildur Ingvarsdóttir Steinn Jóhannsson Klínísk rannsókn á virkni lyfja- blöndu gegn COVID-19 sjúkdómn- um gefur góð fyrirheit í baráttunni gegn sjúkdómnum sem er nú orðinn útbreiddur um allan heim. Rann- sóknin, sem fór fram í Frakklandi, sýnir að blanda af malaríulyfinu Chloroquine og sýklalyfinu Azithromycin (einnig þekkt sem Zithromax) virk- ar vel gegn veiru- sýkingunni. Rannsóknin var ekki stór í sniðum og tók einungis til 36 einstaklinga en Róbert Wessman, forstjóri Alvogen, segir hana nægilega stóra til að „gefa mjög sterka vísbendingu um að þessi blanda virki“. Alvogen hefur sótt um leyfi til að hefja klínískar rannsóknir á lyfjablöndunni sem og öðrum lyfja- blöndum. Þær rannsóknir myndu verða töluvert stærri og myndu ná til 200 einstaklinga í hverju tilviki. „Miðað við 36 manna rannsókn lít- ur þetta mjög vel út. Það er mjög erf- itt að ætla að koma með ný lyf inn á markað núna því það tekur miklu lengri tíma að þróa ný lyf. Það er til mikið af lyfjum sem virka á veirur, bæði ofnæmislyf og önnur veirulyf, og það er því miklu auðveldara að finna ný not fyrir eldri lyf en að þróa ný lyf,“ segir Róbert um frönsku rannsóknina í samtali við Morgun- blaðið. Chloroquine var fyrst þróað árið 1934 og hefur því verið þekkt lengi. Hann segir góðu fréttirnar vera þær að virkni lyfjanna sé góð og auk þess séu bæði lyf samþykkt, fram- leidd af mörgum fyrirtækjum og séu á mörkuðum víða. Slæmu fréttirnar séu hins vegar þær að eftirspurn eft- ir lyfjunum muni aukast gríðarlega á næstu vikum og hætta sé á því að þau seljist upp. Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans, greindi frá því í samtali við mbl.is um helgina að lyfjablandan væri nú þeg- ar komin í notkun hér á landi sem meðferð gegn kórónuveirunni. Sagði hann að samanlögð áhrif lyfjanna drægju úr lífvænleika veirunnar í lungnafrumum og minnkuðu ofnæmissvar gegn veirunni í lung- unum. Það væri þó ekki vitað með fullvissu hvernig lyfið virkaði á veir- una. Tók hann þó fram að fæstir þyrftu á þessari lyfjameðferð að halda enda fengi þorri einstaklinga með sjúk- dóminn mild einkenni. thor@mbl.is Virkni gegn veir- unni vekur von  Samblanda malaríulyfs og sýklalyfs Róbert Wessman Ófögur sjón blasti við gestum og gangandi í vesturhluta Elliðaár- dals í morgun. Dauðar kanínur lágu eins og hráviði neðan við vestasta húsið næst Reykjanes- braut. Af myndum að dæma virð- ast sumar þeirra hafa legið þar um allnokkra hríð. Þóra Jónasdóttir aðstoðaryfir- lögregluþjónn segir ekki vitað hvernig þær drápust en að málið verði þó ekki rannsakað sérstak- lega. Borgaryfirvöld voru látin vita og stuttu síðar staðfesti Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar, að hræin hefðu verið fjarlægð. Segir hann líklegt að tíðin hafi leikið dýrin svo grátt með miklum umhleypingum og fæðuskorti. alexander@mbl.is Dauðar kanínur í Elliðaárdal  Fjöldi hræja í vesturhluta dalsins  Ekki vitað hvernig þær drápust  Borgarstarfsmenn fjarlægðu hræin í gær Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson Kanína Ófögur sjón blasti við þeim sem lögðu leið sína í Elliðaárdal. „Lömbin eru vorboði, þó að hér sé enn kalt og langt í sumarið,“ segir Guðfinna Benediktsdóttir í Volaseli í Lóni. Þar á bæ báru tvær ær um helgina; sú fyrri á laugardag og var einlembd. Hin ærin bar í gær, sunnu- dag, og var með tveimur lömbum; hrút og gimbur. „Hér í sveitinni eru frjálsar ástir, hrúturinn hefur sam- kvæmt þessu verið á stjái síðast í október. Sauðburður- inn fer hins vegar ekki af stað af neinum krafti fyrr en í maí, samanber að tilhleypingarnar eru í desember. Allt segir þetta okkur að lífið streymir fram, þrátt fyrir allt,“ segir Guðfinna, sem býr með á sjötta hundrað fjár og ærnar sem bera í vor eru um 460. sbs@mbl.is Ljósmynd/Svandís Perla Snæbjörnsdóttir Lömbin koma með vorið í Volaseli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.