Morgunblaðið - 23.03.2020, Side 10
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Unnið hefur verið hörðum höndum
að þróun vöru sem til þess er fallin að
draga úr veirusmiti, þar á meðal kór-
ónuveirusmiti, og er talið líklegt að
varan, sem unnin er úr lýsi, komi á
markað á Íslandi í
þessari viku.
Hefur verk-
efnið snúið að því
að finna leiðir til
þess að hagnýta
eiginleika frírra
fitusýra sem er að
finna í lýsi, en
fitusýrurnar eyði-
leggja hjúpaðar
veirur og hefur
þessi eiginleiki
verið þekktur um nokkurt skeið, að
sögn Einars Stefánssonar, prófess-
ors í læknisfræði við Háskóla Ís-
lands, sem hefur leitt þróunarverk-
efnið. Hann segir ákveðna þekkingu
hafa verið til staðar í gömlum hús-
ráðum. „Ömmur okkar allra vissu
það að taki maður lýsi losnar maður
við pestir og kvef.“
Hófst fyrir áratugum
Einar segir að það hafi verið Hall-
dór Þormar, fyrrverandi prófessor
við Háskóla Íslands, sem hóf rann-
sóknir á fitusýrunum fyrir um þrjátíu
árum auk samstarfsmanna hans hér
á landi og í Bandaríkjunum. Niður-
staða þeirra rannsókna var að sýkla-
drepandi áhrif lýsis byggðust á fríum
fitusýrum.
„Venjulegt lýsi og venjulegar fitur
eru þríglýseríð, þar sem er ein glýse-
rólsameind og þrjár fitusýrur. En ef
þú klýfur þær upp þannig að fitusýr-
urnar verða fríar drepa þær bæði
ýmsar bakteríur og ýmsar veirur.
Þetta var rækilega sýnt fram á af
Halldóri Þormar og samstarfs-
mönnum hans, þannig að það hefur
legið fyrir í mörg ár að fríar fitusýrur
eyðileggja svokallaðar hjúpaðar
veirur, það eru veirur sem eru með
fituhimnuhjúp í kringum sig. Til
dæmis herpesveirur, RS-veirur og
kórónuveirur,“ útskýrir Einar.
Hann segir hins vegar að áhrifin
hafi ekki verið rannsökuð með bein-
um hætti á kórónuveirur, en að áhrif-
in á RS-veirur og herpesveirur gefi
til kynna yfirgnæfandi líkur á að þær
hafi einnig áhrif á kórónuveirur
vegna þess að kórónuveirur eru einn-
ig hjúpaðar. Og tekur Einar sérstak-
lega fram að um sé að ræða kenn-
ingar á grundvelli fyrirliggjandi
rannsókna og að ekki hafi verið fram-
kvæmdar klínískar lyfjarannsóknir
til þess að sanna kenninguna. „En
þessi hugmynd er innan við tveggja
vikna gömul,“ segir hann og bætir við
að hugmyndin hafi komið til á meðan
hann sjálfur hefur verið í sóttkví
vegna kórónuveirufaraldursins.
Fjölbreytt vörn
„Þorsteinn Loftsson, prófessor í
lyfjafræði, og ég höfum verið að
vinna saman að lyfjaþróun um ára-
tugaskeið, þar á meðal að vinna með
þessar fríu fitusýrur. Við vissum
mjög vel af þessum eiginleikum. Við
vissum sem sagt að þessar fitusýrur
drepa hjúpaðar veirur og þar með
væntanlega líka kórónuveirur og fór-
um að velta fyrir okkur hvernig við
getum notað það.
Þá kemur spurningin hvernig
þessar veirur smitast og þær smitast
þannig að við fáum þær inn um
munn, nef eða augu og þær setjast
að, til þess að byrja með, í efri hluta
öndunarvegs. Í slímhúðinni í kokinu
og þar í kring. Þannig að þessi hugs-
un varð til; ef við gætum með ein-
hverju móti komið þessum fríu fitu-
sýrum á þessar slímhúðir gætu þær
vonandi eyðilagt þessar veirur á
þessu stigi, það er að segja þegar
þær eru rétt að berast upp í munninn
og kokið. Við vitum líka að þessi með-
göngutími sjúkdómsins, þrír til sjö
dagar sem líða frá smiti þar til fólk
verður veikt, er þegar veiran er að
búa um sig einmitt í kokinu. Þannig
að hugsun okkar er sú að það megi ná
að eyðileggja hana á því stigi,“ út-
skýrir Einar.
Þá sé einnig horft til þess að fríu
fitusýrurnar geti dregið úr smit-
hættu þess sem er sýktur. Með öðr-
um orðum geti þær gagnast með
þrennum hætti. „Í fyrsta lagi verður
veira sem berst inn í munn og kok
síður lífvænleg, þar sem hún getur
lent á fitusýru sem myndi eyðileggja
hana. Í öðru lagi; ef maður er kominn
á þann stað að maður sé með ein-
hvern vöxt af þessum veirum í slím-
húðinni myndu fríu fitusýrurnar
eyðileggja hann. Og í þriðja lagi ef
maður er sýktur og smitandi, maður
hóstar eða hnerrar veirunum á næsta
mann, og maður tekur eitthvað með
fríum fitusýrum sem eyðileggja veir-
urnar þá yrði minni smitun.“
Prófuðu á sér sjálfum
Einar segir að hann hafi ásamt
Þorsteini unnið í samstarfi við Lýsi
hf. að verkefnum er tengist fríum
fitusýrum um margra ára skeið og að
þeir hafi haft samband við fyrirtækið
þegar hugmyndin vaknaði. „Við
bjuggum til á rannsóknastofu Lýsis
nokkrar formúlur með fríum fitusýr-
um í þorskalýsi. Við prófuðum 1%,
2%, 5% og 10%. Prófuðum þetta á
okkur sjálfum, bæði með tilliti til
bragðs og hvort þetta væri ertandi og
svo framvegis. Það kom bara vel út
og við ákváðum að 2% af fríum fitu-
sýrum í lýsi væri góð formúla. Það
má nefna að þegar Halldór Þormar
var að prófa þetta í músum notaði
hann 0,5%, þannig að við erum vel yf-
ir þeim styrk,“ segir Einar og bendir
á að í lýsi sé náttúrulegur styrkur um
0,2%.
„Hugsunin er að maður taki eina
teskeið af lýsinu með fríum fitusýr-
unum og leyfi þessu að skolast um
munninn, svolítið eins og munn- eða
hálsskoli. Reyni að láta þetta þekja
slímhúðina í munni og koki tvisvar til
fjórum sinnum á dag í fyrirbyggjandi
skyni,“ segir hann.
Megum engan tíma missa
Spurður hvort til standi að fara í
frekari rannsóknir til þess að sann-
reyna kenninguna að baki vörunni
segir Einar svo vera. „Við erum búin
að semja við rannsóknastofu í Banda-
ríkjunum um að gera veiruræktanir
og prófa efnið á kórónuveirunni; sú
rannsókn er í gangi. Síðan viljum við
gera klínískar tilraunir en þær taka
verulegan tíma og eru dýrar.
Þetta eru mjög óvenjulegir tímar
og ástæða þess að við hrindum þessu
af stað strax er að það er farsótt í
gangi. Þannig að okkar hugsun er að
þarna er vonandi eitthvað sem kemur
að gagni. Það virðast allir sammála
um að þetta sé tilraunarinnar virði og
þá horfum við á það þannig að við
megum engan tíma missa.“
Eyðileggja veirur með fitusýru
Lýsi inniheldur frjálsar fitusýrur sem eyðileggja hjúpaðar veirur Kórónuveirur eru hjúpaðar
Vara sem inniheldur fitusýrurnar í auknum mæli væntanleg á markað á næstu dögum
Veiruhamlandi Varan
er væntanleg á næstu
dögum og inniheldur
fríar fitusýrur sem
eyðileggja hjúpaðar
veirur. Talið er að það
muni því einnig hafa
áhrif á kórónuveirur.
Einar
Stefánsson
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2020
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ
Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.
Í tilefni af 100 ára afmæli Veður-
stofu Íslands hefur verið gerð heim-
ildarmynd, Á vaktinni í 100 ár, og
verður hún frumsýnd á RÚV í
kvöld, á alþjóðlega veðurathugunar-
deginum.
Kvikmyndagerðin var í höndum
Valdimars Leifssonar kvikmynda-
gerðarmanns en margir fleiri lögðu
hönd á plóg, að því er fram kemur í
tilkynningu frá Lífsmynd.
Vegna tímamótanna hjá Veður-
stofunni var ákveðið að ráðast í gerð
þessarar myndar, til að gefa fólki
innsýn í starfið sem þar fer fram.
Starfsfólki Veðurstofunnar var
fylgt eftir um eins árs skeið, frá
hausti 2018 og fram í janúar 2020,
þar sem það sýnir og segir sjálft frá
því sem í starfi þess felst. Árni
Snorrason veðurstofustjóri sagði í
viðtali við Morgunblaðið um helgina
að starfsemin spannaði nú veru-
legan hluta af jarðeðlisfræðilegum
hluta náttúrunnar. Þar væru því
vísindin á vakt.
Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson
Veðurmælingar Starfsmenn Veðurstofunnar slaka á í Grímsvatnaskála.
Veðurstofan á
vaktinni í hundrað ár
Ný heimildarmynd á RÚV í kvöld