Morgunblaðið - 23.03.2020, Page 12

Morgunblaðið - 23.03.2020, Page 12
BAKSVIÐ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Kórónuveirufaraldurinn hefur rask- að aðfangakeðjum um allan heim en áhrifin koma ekki fram að fullu fyrr en á næstu mánuðum eða misserum. Fari allt á besta veg mun veirufar- aldurinn draga úr framleiðslu og hægja á flutningum í skamman tíma og alþjóðahagkerfið síðan komast smám saman aftur á réttan kjöl, en í versta falli gætu afleiðingarnar orðið langvarandi og kostnaðarsamar truflanir á framleiðslu og vöruflutn- ingum, samhliða viðvarandi sam- drætti í eftirspurn. Þetta er meðal þess sem kemur fram í greiningu ráðgjafarfyrir- tækisins McKinsey & Company á efnahagslegum áhrifum kórónuveir- unnar. Þar leggur McKinsey m.a. áherslu á að fyrirtæki þurfi að bregð- ast rétt við, s.s. með því að vernda starfsmenn sína og hughreysta, styrkja aðfangakeðjur sínar, eiga í góðum samskiptum við viðskiptavini og greina hvort og hvernig megi tak- ast á við fjárhagslegar afleiðingar faraldursins. Að mati McKinsey getur faraldur- inn þróast á tvo vegu, nú þegar útlit er fyrir að takist hafi að hægja á tíðni nýsmita í þeim Asíulöndum þar sem veiran blossaði fyrst upp: Annars vegar gæti útbreiðsla haldið áfram í Mið-Austurlöndum, Evrópu og Bandaríkjunum fram á miðjan ann- an ársfjórðung þegar hægja tekur á smitum bæði vegna aðgerða heil- brigðisyfirvalda og vegna breyttra veðurskilyrða sem valda því að veir- an þrífst síður. Hins vegar gæti út- breiðsla veirunnar haldið áfram með svipuðum hraða og ekki hægt ferðina með vorinu, með tilheyrandi álagi á heilbrigðiskerfi og hagkerfi þjóða um allan heim, og með samdrætti í eftirspurn sem myndi vara allt fram á annan ársfjórðung 2021. Í fyrra tilvikinu myndu efnahags- leg áhrif faraldursins m.a. vera sam- dráttur í neysluútgjöldum og fjár- festingu á þessu ári, en í seinna tilvikinu gætu smit blossað upp að nýju í Kína og Austur-Asíu og raskað framleiðslu þar að nýju, hætta væri á djúpri efnahagslægð og ekki von á viðsnúningi fyrr en á fyrsta ársfjórð- ungi 2021. Gott að vera ungur í heitu landi Athygli vekur að McKinsey spáir því að Suður- og Suðaustur-Asía, Afríka og Rómanska Ameríka muni sleppa tiltölulega vel frá faraldrin- um, bæði vegna hlýrra loftslags sem veiran þolir illa og eins vegna þess að þar er meðalaldur lágur. Eins og víða hefur komið fram virðist kórónuveir- an yfirleitt valda vægum eða jafnvel engum einkennum hjá ungu fólki og eru dauðsföll af völdum kórónuvei- rusmits sárasjaldgæf hjá fólki undir sextugu. Er t.d. meðalaldur Brasilíu- búa tæplega 33 ár, meðalaldurinn í Mexíkó rösklega 28 ár, 30,5 ár í Víet- nam og tæplega 38 ár í Taílandi svo nokkur dæmi séu nefnd, en til sam- anburðar er meðalaldur Þjóðverja rúmlega 47 ár og meðal-Ítalinn 45,5 ára gamall. Í þeim löndum þar sem hlutfall ungs fólks er hærra ætti veirufaraldurinn að valda hlutfalls- lega minna álagi á heilbrigðiskerfið og minni röskun á starfsgetu vinnu- afls, en rétt er að nefna í því sam- bandi að meðalaldur á Íslandi er nokkuð lágur, eða 36,5 ár, og aðeins í fjórum OECD-ríkjum (Ísrael, Síle, Tyrklandi og Mexíkó) er aldurs- hópurinn 65 ára og eldri minni í hlut- falli við heildarfjölda íbúa. Ef tekst að hægja á faraldrinum á komandi mánuðum reiknar McKin- sey með að neikvæð efnahagsáhrif kórónuveirunnar vari fram á þriðja fjórðung þessa árs en viðsnúningur hefjist á fjórða ársfjórðungi. Hægi faraldurinn ekki ferðina með sumr- inu væntir McKinsey samdráttar í öllum helstu hagkerfum heims og að hægfara bati hefjist ekki fyrr en á öðrum fjórðungi 2021. Eiga sérfræð- ingar ráðgjafarfyrirtækisins ekki von á að faraldurinn valdi meirihátt- ar fjármálakreppu enda bankar nokkuð vel í stakk búnir til að takast á við skellinn. Til að komast sem best út úr erfið- leikaskeiðinu fram undan ráðleggur McKinsey fyrirtækjum að setja á laggirnar n.k. „stjórnstöð“ til að tryggja skjótar og réttar aðgerðir enda geti hefðbundnir greiningar- og ákvarðanatökuferlar verið of hæg- virkir við þessar kringumstæður. Þarf m.a. að skoða með hvaða hætti má draga úr hættunni á að smit ber- ist á milli fólks við dagleg störf, skerpa á reglum og vinnubrögðum er varða fjarvinnu og viðveru, greina með hvaða hætti veikindi eða heima- sóttkví kann að raska kjarnastarf- semi fyrirtækisins, og vinna að því með samstarfsaðilum að aðfanga- keðjur raskist sem minnst. Ræðst á komandi mánuðum AFP Stopp Mynd af aðalumferðaræð Tírana fyrr í mánuðinum. Víða um heim er atvinnulífið hálflamað eins og stendur.  Ef ekki tekst að ná stjórn á kórónuveirufaraldrinum með sumrinu gæti það leitt til efnahagslægðar sem varir fram á annan ársfjórðung 2021  Áhrifin minnst í Suður-Asíu og Rómönsku Ameríku 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2020 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma Twitter. Qatar Airways, ríkisflug- félag Katar, tilkynnti á laugardag að þar yrði flugferðum fækkað um 75% og þá hætti Royal Jordanian farþegaflugi um helgina. LOT Pol- ish Airlines ákvað þann 15. mars að hætta öllu flugi frá bæði Pól- landi og Ungverjalandi a.m.k. fram til 28. mars. Air Malta hætti öllu flugi á föstu- dag, í kjölfar þess að stjórnvöld Möltu bönnuðu allar flug- samgöngur til og frá eyjunni. Sömu sögu er að segja um Copa Airlines, sem kyrrsetti flota sinn á sunnudag í kjölfar flugbanns rík- isstjórnar Panama. South African Airlines tilkynnti á laugardag að öllum ferðum félagsins yrði aflýst a.m.k. fram til 31. mars. Þá hyggj- ast Ryanair og EasyJet bæði leggja flestum þotum sínum frá og með þriðjudeginum, að því er fréttavef- urinn Simple Flying greinir frá. Bandaríska flugfélagið South- west upplýsti á föstudag að það ætlaði að minnka flugframboð sitt um fjórðung fram í miðjan apríl. Loks ætlar United Airlines ekki að fljúga til Evrópu eftir 25. mars og hætta flugi til Asíu og Afríku 28. mars. ai@mbl.is Emirates, ríkisflugfélag Samein- uðu arabísku furstadæmanna, til- kynnti á sunnudag að félagið myndi hætta öllu farþegaflugi frá og með 25. mars. Flugfélagið, sem er það fjórða stærsta í heimi mælt í seldum sætiskílómetrum, segir þetta gert til að vernda reksturinn og forðast niðurskurð. Syst- urfélagið Emirates SkyCargo, sem annast fragtflutning, mun starfa með óbreyttum hætti, að því er fram kom í tilkynningu félagsins á Fleiri flugfélög aflýsa ferðum  EasyJet leggur flestum vélum sínum AFP Bið Ryanair hættir flugi á þriðjudag. 23. mars 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 139.36 140.02 139.69 Sterlingspund 164.29 165.09 164.69 Kanadadalur 97.73 98.31 98.02 Dönsk króna 20.01 20.128 20.069 Norsk króna 12.82 12.896 12.858 Sænsk króna 13.532 13.612 13.572 Svissn. franki 141.92 142.72 142.32 Japanskt jen 1.2677 1.2751 1.2714 SDR 188.17 189.29 188.73 Evra 149.55 150.39 149.97 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 184.4393 Hrávöruverð Gull 1504.45 ($/únsa) Ál 1580.0 ($/tonn) LME Hráolía 28.1 ($/fatið) Brent

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.