Morgunblaðið - 23.03.2020, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2020
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Rúmlega milljarður Indverja býr við
útgöngubann vegna stríðsins gegn
kórónuveirunni, sem smitað hefur
rúmlega 300.000 manns um heims-
byggðina alla og valdið 13.000 dauðs-
föllum. Að minnsta kosti 93.000
manns eru hins vegar aftur komnir til
fullrar heilsu eftir smit. Yfirvöld í
Langbarðalandi á Ítalíu hafa hert enn
frekar á ráðstöfunum til að stöðva
framrás veirunnar. Algjört útgöngu-
bann ríkir og eru heilsubótaræfingar
utanhúss bannaðar.
Metfjöldi dauðsfalla var tilkynntur
á Spáni í gær, 394 manns, en þá hafa
1.720 dauðsföll vegna kórónu-
veirunnar átt sér stað þar í landi.
Myndin er svipuð frá öðrum svæðum.
Í Íran fjölgar smitum og dauðsföllum,
en landið er meðal þeirra sem verst
hafa orðið úti. Hið sama er að segja
um Þýskaland og fjölda Asíuríkja.
Ráðstefnuhöll að spítala
Í gær var búið að útbúa ráðstefnu-
miðstöð í Madríd sem bráðabirgða-
sjúkrahús og með sínum 5.500 rúm-
um er það stærsta aðstaða sinnar
tegundar í Evrópu.
Ýmiss konar starfsemi lamaðist í
Ástralíu þar sem tilkynnt var um lok-
un ónauðsynlegrar þjónustu, svo sem
kráa, veitingahúsa, líkamsræktar-
stöðva, kvikmyndahúsa, kirkna og
annarra bænahúsa. Í Pakistan hefur
útgöngubanni verið lýst í héraðinu
Sindh næstu tvær vikurnar, en þar er
m.a. stærsta borg landsins, Karachi.
Íbúar mega aðeins fara af heimili sínu
í lífsnauðsynlegum erindum, svo sem
til að sækja sér lyf.
Stigmögnun í Bretlandi
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, varaði í gær við „stig-
magnandi hröðun“ útbreiðslu veir-
unnar og sagði að fólki bæri að forð-
ast samgöngur og samskipti við
annað fólk. Í Lundúnaborg og ná-
grenni hefur lystigörðum verið lokað
í þágu baráttunnar gegn kórónuveir-
unni.
Tíu dauðsföll hafa orðið í Skotlandi
og boðaði Nicola Sturgeon, forsætis-
ráðherra skosku heimastjórnarinnar,
harðari aðgerðir en til þessa til að
halda fólki innandyra á heimilum
sínum. Smit eru orðin samtals 416 og
fjölgaði um 43 á laugardag. Sturgeon
sagði að talið væri að smitaðir væru í
raun miklu fleiri. Hvatti hún m.a. til
þess að hjónavígslum yrði frestað til
að koma í veg fyrir of mikla nánd
fólks. Þá skoraði hún á hótel og gisti-
staði að loka um sinn. Skoskir kráar-
eigendur hafa þverskallast við að loka
og sagði Sturgeon að gripið yrði til
ákvæða neyðarlaga til að loka ef eig-
endurnir virtu ekki tilmæli yfirvalda.
Ný sjúkdómseinkenni
Frönsk heilbrigðisyfirvöld segja
hugsanlega ný sjúkdómseinkenni
hafa komið fram hjá sjúklingum sem
veiktust af kórónuveirunni. Lýsa þau
sér í glötuðu lyktarskyni, sem þekkt
er sem anosmia. Yfirmaður frönsku
heilbrigðisþjónustunnar segir að
lyktarskynið hafi horfið skyndilega í
sjúklingum sem voru að öðru leyti
ekki með stíflað eða rennandi nef.
Hann sagði bragðskyn einnig hafa
horfið en í minni mæli. Hvort tveggja
hefði fyrst og fremst komið fram í
sýktu ungu fólki.
Árla í gærmorgun samþykkti
franska þingið neyðarlög sem veita
ríkisstjórninni sérstök völd í barátt-
unni við kórónuveirufaraldurinn.
Með þeim er hægt að takmarka enn
frekar athafnir almennings og taka
yfirvöld undir beina stjórn sína vissar
vörur og þjónustu næstu tvo mánuð-
ina. Í fyrradag létust 112 manns í
Frakklandi af völdum veirunnar, sem
er metfjöldi á einum degi. Alls eru
látnir 562 og 14.459 sýkingartilfelli
staðfest.
Læknir galt fyrir með lífinu
Læknir á bráðadeild sjúkrahússins
í bænum Compiegne suður af París,
sem verið hafði í framvarðarsveit bar-
áttunnar gegn kórónuveirunnar, lést
um helgina eftir að hafa smitast við
störf á spítalanum. Mun hann vera
fyrsti heilbrigðisstarfsmaðurinn sem
veiran leggur að velli í Frakklandi.
Milljarður manna í einangrun
AFP
Lokað á landamærum Bandarískir landamæraverðir við gæslu á landamærum Bandaríkjanna og Kanada, sem eru nú lokuð vegna faraldursins.
Stjórnvöld á Indlandi setja á útgöngubann Rúmlega 300.000 manns hafa smitast af kórónuveirunni
Tilfellum fjölgar mjög í Evrópu Metfjöldi dauðsfalla á einum degi vegna faraldursins á Spáni
Öflugur jarðskjálfti reið yfir Króatíu
í gærmorgun og hlaust mikið tjón af
á mannvirkjum í höfuðborginni
Zagreb og víðar. Þá greip um sig
skelfing meðal fólks. Í upphafi var
talið að einn hefði týnt lífi, 15 ára
stúlka er var inni í byggingu sem
hrundi, en hún þurfti mikla aðhlynn-
ingu. Talsvert var um meiðsl á fólki.
Skjálftinn átti sér stað klukkan
6.23 að staðartíma í gærmorgun,
5.23 að íslenskum tíma. Að sögn evr-
ópsku jarðskjálftastofnunarinnar
(EMSC) var skjálftamiðjan sjö kíló-
metra norður af Zagreb og upptökin
á 10 km dýpi. Mældist hann 5,3 stig.
Byggingar skemmdust margar,
veggir sprungu eða hrundu og þök
skemmdust í höfuðborginni. Steypu-
stykki hrundu niður á bíla og götur
og strompar niður á lóðir húsa.
Dómkirkja Zagreb laskaðist einn-
ig og hrundi ein af turnspírum
hennar. Kirkjan hefur áður verið
endurbyggð, en hún hrundi í jarð-
skjálfta árið 1880.
Rafmagn fór af húsum og kvikn-
uðu víða eldar í borginni. Íbúar rufu
útivistarbann vegna kórónuveirunn-
ar og þustu út á götur og í garða.
Rétt á eftir riðu tveir eftirskjálftar
yfir. agas@mbl.is
AFP
Skjálfti Algeng sjón frá Zagreb í Króatíu eftir jarðskjálftana í gærmorgun.
Heilu og hálfu veggirnir og húsþök hrundu og eyðilögðu það sem fyrir varð.
Jörð skalf í Króatíu
Mikið tjón á mannvirkjum í Zagreb