Morgunblaðið - 26.03.2020, Síða 4

Morgunblaðið - 26.03.2020, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020 Vertu með í páskaleik Góu á goa is!. KÓRÓNUVEIRUFARALDUR Helgi Bjarnason Freyr Bjarnason Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Mun færri munu greinast með kór- ónuveiruna hér á landi, samkvæmt nýju spálíkani vísindamanna Há- skóla Íslands, en áður hefur verið reiknað með. Sömuleiðis mun álag á heilbrigðisþjónustu verða mun minna en áður var spáð. Ástæðan er sú að færri smit hafa greinst síðustu daga en gert var ráð fyrir. Fimmtán manns lágu á Landspít- alanum í gær með kórónuveikina. Tveir þeirra eru á gjörgæsludeild og einn í öndunarvél. Kom þetta fram hjá Þórólfi Guðnasyni sóttvarna- lækni á blaðamannafundi í samræm- ingarmiðstöð almannavarna í gær. Alls höfðu 737 greinst með kórónuveiruna hér á landi í gær og hafði þeim fjölgað um 89 á einum sól- arhring. Fram kom hjá Þórólfi að faraldurinn væri enn að færast í aukana. 1.500 greinast á Íslandi Í samantekt um niðurstöður spá- líkansins sem birtar voru síðdegis í gær kemur fram að gert er ráð fyrir að 1.500 manns muni greinast á Ís- landi en talan gæti náð 2.300 manns samkvæmt svartsýnustu spá. Spá sem gerð var miðað við stöðu mála sl. sunnudag gerði ráð fyrir að 2.500 til 6.000 myndu greinast. Gert er ráð fyrir að faraldurinn nái hámarki í fyrstu viku aprílmánaðar. Samkvæmt spánni munu rúmlega 100 manns þarfnast innlagnar á sjúkrahús en hátt í 160 samkvæmt svartsýnustu spá. Í síðustu spá var gert ráð fyrir að 170 til 400 myndu þurfa innlögn á sjúkrahús. Mest álag á heilbrigðisþjónustuna verður fyrir miðjan apríl, en þá er búist við að 60 sjúklingar geti verið á sjúkrahúsi á sama tíma eða 80 samkvæmt svart- sýnustu spá. Eru þetta mun skap- legri tölur en í fyrri spá, sem gerði ráð fyrir 90 til 200 manns á sjúkra- húsum um miðjan apríl. Þá er gert ráð fyrir að 13 einstak- lingar veikist alvarlega og þurfi þjónustu gjörgæslu en hugsanlega allt að 23. Mest álag á gjörgæslu- deildir gæti orðið í annarri viku apríl þegar 5 til 11 manns gætu legið þar inni. Smitskömmina burt „Það eina sem er öruggt með páskafríið er að veiran mun ekki taka sér frí,“ sagði Víðir Reynisson, yf- irlögregluþjónn hjá almannavarna- deild Ríkislögreglustjóra, á blaða- mannafundinum þegar hann var spurður út í áframhaldandi samko- mubann. Sagði að fólk ætti að fara að huga að því að halda páskana heima og nefndi að þeir sem færu í sum- arbústað í sóttkví ættu ekki að haga sér neitt öðruvísi en heima hjá sér. Alma Möller landlæknir vakti máls á orðinu „smitskömm“. „Ég legg til að við hendum því orði. Það getur enginn gert að því að smitast eða smita aðra,“ sagði Alma en bætti því við að fólk ætti að fylgja reglum um einangrun og sóttkví. „Mér finnst að við eigum að hætta að agnúast út í aðra vegna þessa og snúa bökum saman og láta ekki þessa veiru kom- ast upp á milli okkar. Nóg er nú samt.“ Fleiri veikir á spítölum Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkra- húsprestur á Landspítalanum, segir að á sjúkrahúsum sé margt fólk að fást við önnur veikindi en kórónu- veikina. Í sumum tilvikum snúist veikindin um líf eða dauða. „Þetta hefur einangrandi áhrif á fólk og við finnum til með fjölskyldum sem hafa takmarkaðan aðgang að sínum nánustu,“ sagði Vigfús Bjarni á blaðamannafundi almannavarna. Hann ræddi einnig um útfarir og sagði þær hafa breyst mikið vegna ástandsins. „Við erum að vinna með það áfram hvernig við getum mætt fólki í þessum aðstæðum,“ sagði hann enda vildi fólk kveðja sína nánustu. Börnin í skóla Landlæknir og sóttvarnalæknir vilja árétta mikilvægi þess að nem- endur í leik- og grunnskólum haldi áfram að sækja skóla þrátt fyrir tak- markanir á skólahaldi. Kemur þetta fram í bréfi sem sent hefur verið til skólastjórnenda, kennara, skóla- stjórnenda og foreldra. Þar kemur fram að heilbrigð börn ættu að halda áfram að sækja skóla því námið sé mikilvægt sem og sú virkni og það aðhald sem því fylgir. Fjöldi eftir landshlutum Óstaðsett 6 1.211 Útlönd 0 3 Austurland 2 123 Höfuðborgarsvæði 578 4.804 Suðurnes 34 422 Norðurland vestra 16 405 Norðurland eystra 11 369 Suðurland 84 1.178 Vestfirðir 1 215 Vesturland 5 283 Smit Sóttkví Uppruni smits Innanlands Erlendis Óþekktur 44%26% 30% 11.727 sýni hafa verið tekin 68 einstaklingar hafa náð bata 2.096 hafa lokið sóttkví 15 eru á sjúkrahúsi 2 einstaklingar eru látnir 2 á gjör-gæslu 669 manns eru í einangrun Fjöldi staðfestra smita frá 28. febrúar 28.2.29.2. 1.3. 2.3. 3.3. 4.3. 5.3. 6.3. 7.3. 8.3. 9.3. 10.3. 11.3. 12.3 13.3. 14.3. 15.3. 16.3. 17.3. 18.3. 19.3. 20.3. 21.3. 22.3.23.3. 24.3. Upplýsingar eru fengnar af covid.is og landspitali.is 737 smit voru staðfest í gær kl. 13.00 9.013 hafa verið settir í sóttkví 700 600 500 400 300 200 100 737 Spá því að mun færri veikist  Kórónuveirufaraldurinn er enn að vaxa  Einn sjúklingur er í öndunarvél á Landspítalanum  Álag á heilbrigðiskerfið verður þó ekki eins mikið og fyrra spálíkan Háskólans gerði ráð fyrir Ljósmynd/Lögreglan Skógarhlíð Vigfús Bjarni Albertsson sat fyrir svörum með Þórólfi Guðnasyni, Ölmu D. Möller og Víði Reynissyni. Tvö þúsund nýir sýna- tökupinnar komu til landsins í gær og voru því alls til í landinu 3.200 pinn- ar. Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir sagði í gær að ekki yrði skortur á þeim á næstunni. Von er á fleiri pinnum. Sýnatökupinnarnir sem Öss- ur útvegaði og Íslensk erfða- greining taldi ónothæfa voru prófaðir á tveimur heilsugæslu- stöðvum í gær. Tekin voru sýni úr sömu sjúklingunum með báðum gerðum pinna og verða niðurstöðurnar bornar saman. Karl G. Kristinsson, yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild Land- spítalans, sagði í gær að eftir væri að koma í ljós hvort hægt yrði að nota þá. Pinnarnir sem Össur útvegaði eru um 20 þúsund. Fyrirtækið hafði keypt þá vegna fram- leiðslu sinnar og bauðst til að láta þá í sýnatökuna vegna kór- ónuveirunnar. Karl sagði að fullyrðing Ís- lenskrar erfðagreiningar hefði líklega verið byggð á misskiln- ingi. „Þessar niðurstöður sem komu í gær voru ekki eins og við vildum hafa þær en það geta verið góðar skýringar á því,“ sagði Karl og bætti því við að ekki væri útilokað að hægt yrði að nota pinnana. Bættist í pinnabirgðir SÝNATAKA TRYGGÐ Rannsókn Unnið á veirufræðideild. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Mikið álag hefur verið á heilsugæsl- unni í Vestmannaeyjum síðustu daga. Fjöldi bæjarbúa hefur smitast af kórónuveirunni, alls 47 sam- kvæmt nýjustu tölum, en 554 eru í sóttkví. Meðal smitaðra eru tveir starfsmenn heilsugæslunnar og hafa nokkrir aðrir þurft að fara í sóttkví. Sjö starfsmenn heilsugæslunnar hafa verið í einangrun eða sóttkví undanfarna daga og auk þess fimm starfsmenn af öðrum einingum, svo sem af skrifstofu, móttöku og ræst- ingu. „Það hefur gengið ágætlega að anna þessu álagi. Við höfum fengið auka mannskap,“ segir Davíð Egils- son, yfirlæknir á heilsugæslunni í Eyjum. Hann segir að læknir af Landspítalanum hafi verið fenginn nú í vikunni og þá hafi tveir hjúkr- unarfræðingar og sjúkraliði bæst í hópinn af Heilbrigðisstofnun Suður- lands. Von er á flestum til baka úr sóttkví á næstu dögum. Margir hafa hjálpað til við úthringingar og annað tilfallandi að heiman. „Við höfum getað sinnt því vel sem við höfum verið að gera, sýna- tökum og úrvinnslu úr þeim. Önnur starfsemi hefur verið í lágmarki og það hefur sem betur fer ekki verið mikið um alvarleg veikindi. Fólk hef- ur farið eftir tilmælum um að leita ekki til okkar nema þegar virkileg nauðsyn er á,“ segir Davíð. „Það má taka fram að bæjarbúar, skjólstæð- ingar okkar og aðstandendur þeirra hafa verið mjög skilningsríkir á að- stæðum og allir boðnir og búnir að taka þátt í þessu verkefni sem við stöndum frammi fyrir.“ Hann segir að ekki sé nema rúm vika síðan fyrsta jákvæða sýnið greindist í Eyjum. Áhersla hafi verið lögð á að finna þá sem eru smitaðir og greina þá. Smitrakningarteymi hafi rakið ferðir viðkomandi svo hægt væri að koma þeim í sóttkví sem á þurftu að halda. „Menn duttu strax í annan gír eftir að fyrsta til- fellið kom. Hugsunarhátturinn breyttist. Við ákváðum að reyna að hafa góða mönnun á heilsugæslunni meðan við værum að átta okkur á stöðu mála. Við höfum verið að taka þetta dag frá degi. Við vitum af þess- ari bakvarðasveit og höfum hana í huga ef við þurfum að fá auka að- stoð.“ Fengu liðsauka til Eyja  Mikil álag á heilsugæslu  Sex ný smit hafa verið greind

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.