Morgunblaðið - 26.03.2020, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020
Café
Komdu í kaffi
AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG • LAUGAVEGI • AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Hér á landi eru nú allar fjölda-
samkomur þar sem fleiri en 20
manns koma saman óheimilar. Á
þetta jafnt við
hvort sem fólk
kemur saman í
opinberum rým-
um eða einka-
rýmum. Vegna
þessa og annarra
takmarkana sem
settar hafa verið
til að sporna gegn
mikillar út-
breiðslu kórónu-
veiru í samfélag-
inu halda fjölmargir sig nú heima.
Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræð-
ingur og prófessor í félagsfræði við
Háskóla Íslands, segir það verða
áhugavert næstu daga og vikur að
fylgjast með hvort þessi breytta
hegðun fólks hafi einnig áhrif á
hegðun afbrotamanna. Bendir hann
t.a.m. á að nýverið hafi lögregluemb-
ætti sent frá sér tilkynningu þar sem
biðlað var til afbrotamanna um að
láta af afbrotum um stundarsakir
hið minnsta vegna útbreiðslu
kórónuveiru.
„Það er nú alltaf spurning hvaða
áhrif svona hefur en þetta eru nú
samt ákveðin skilaboð til alls sam-
félagsins um að standa saman á
þessum tímum,“ segir Helgi og
bendir á að ljóst sé að erfiðlega muni
ganga að brjótast inn á heimili fólks
nú þegar margir eyða þar deginum.
„Ég held það sé ljóst að innbrot á
heimili eru ekki jafn vænlegur kost-
ur nú og þegar fólk var meira og
minna að heiman. Að sama skapi
geta sum fyrirtæki orðið berskjald-
aðri en áður fyrir innbrotum,“ segir
Helgi og bætir við að breytingar í
umhverfi, líkt og í tækni, geti þannig
hæglega haft áhrif á brotastarfsemi.
Af götunni og inn á heimilin
Helgi segir þó ekki hægt að slá því
föstu að þær samfélagsbreytingar
sem Íslendingar upplifi nú muni
breyta afbrotamynstri. Nefnir hann
sem dæmi að í kjölfar bankahruns-
ins árið 2008 hafi m.a. lögregla búist
við mikilli aukningu í auðgunar- og
ofbeldisbrotum. Áhrif hrunsins urðu
þó óveruleg, að sögn Helga.
Þær hömlur sem settar hafa verið
á íslenskt samfélag nú eru þó þess
eðlis að neysla áfengis og jafnvel
beiting ofbeldis fer af götum borg-
arinnar og inn á heimilin.
„Flest ofbeldismál tengjast opin-
berum vettvangi, til dæmis á
skemmtistöðum. Þetta mun vafa-
laust snarminnka enda minna um
mannamót og fylleríssamkomur nú.
Þá vaknar sú spurning hvort þetta
færist ekki bara inn á heimilin. Og
líklega mun það gerast í einhverjum
mæli,“ segir hann og bætir við að
heimilisofbeldi gæti aukist.
Bönn og veira gætu
breytt afbrotahegðun
Munu skúrkar herja á fyrirtæki vegna heimaveru fólks?
Morgunblaðið/Eggert
Ölvun Ólæti í miðbæ hafa minnkað.
Helgi
Gunnlaugsson
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Augljóst er að samkomubann og
vera í sóttkví hefur breytt lífs-
mynstri margra síðustu daga.
Margir vinna að heiman og aðrir
sækja í ýmiss konar afþreyingu.
Notkun farsíma hefur tvöfaldast í
mínútum talið séu gögn skoðuð fyr-
ir og eftir samkomubann sam-
kvæmt upplýsingum frá Símanum.
Gagnamagn heimatenginga hefur
sömuleiðis aukist umtalsvert, símtöl
í gamla heimasímanum hafa aukist
um 30% og sjónvarpsáhorf hefur
farið í hæstu hæðir.
„Í raun hefur öll notkun aukist,
sama hvert við horfum nema hjá
erlendum ferðamönnum, sú umferð
er nær horfin, en aðeins í bili von-
andi. Við slógum met í fjölda spil-
ana núna í síðustu viku í Sjónvarpi
Símans. Þá var 1,1 milljón spilana,
sem er ágætis bæting frá fyrra
meti. Vikan var eins og jóla- eða
páskafrí og við búumst við því að
þessi vika gæti orðið enn stærri,“
segir Bryndís Þóra Þórðardóttir,
vörustjóri hjá Símanum.
Bryndís segir jafnframt að mikil
aukning hafi orðið yfir daginn hjá
Sjónvarpi Símans, um 40%. „Það
hefur rokið upp yfir daginn. Svo er
áhugavert að fólk hættir streyminu
klukkan 14 og stillir á beina útsend-
ingu frá blaðamannafundi Almanna-
varna,“ segir Bryndís og bætir við
að efnisúrval hafi verið stóraukið í
Sjónvarpi Símans í kjölfar heims-
faraldurs. „Við flýttum innsetningu
á fjölbreyttu efni til að vera til stað-
ar í þessu ástandi.“ Þá hafi megin-
þorri þjóðarinnar stillt á tónleika
með Helga Björns um liðna helgi
og verði þeir endurteknir um næstu
helgi.
Svipaða sögu er að segja frá fjar-
skiptafyrirtækinu Vodafone. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Lilju
Birgisdóttur, samskiptastjóra
Sýnar, hefur hefðbundin netnotkun
á heimatengingum aukist um 20-
30% að undanförnu.
„Umframaukning yfir netið er
fyrst og fremst yfir dagtíma og
skýrist líklega af fjarvinnu, fjar-
kennslu, sóttkví og samkomubanni.
Það er þó enn meiri traffík á kvöld-
in en á daginn, það er að segja að
þrátt fyrir þessa aukningu hefur
álagið á háannatíma ekki aukist
svona mikið.
Símtölum í farsímakerfinu hefur
fjölgað um 50% svo það er eins og
fólk sé að tala meira saman núna,“
segir Lilja. Ekki fengust upplýs-
ingar um áhorfstölur í sjónvarps-
þjónustu fyrirtækisins.
Stefán Hjörleifsson, fram-
kvæmdastjóri Storytel á Íslandi,
segir að mikil aukning hafi verið í
nýskráningum og hlustun á hljóð-
bækur síðustu daga og því taki for-
svarsmenn fyrirtækisins af auð-
mýkt.
„Frá því að samkomubann var
sett á hafa skráningar verið tvöfald-
ar á við það sem gerist í venjulegu
árferði og hlustunin í samræmi við
það. Árið fór svakalega vel af stað
hjá okkur með Sönnum íslenskum
sakamálum. Þá fjölgaði áskrif-
endum verulega en nú erum við
komin vel yfir þær tölur. Fólk er
bara heima að hlusta.“
Hann segir að það hafi frá upp-
hafi verið yfirlýst stefna Storytel að
fylla heiminn af góðum sögum til að
efla samkennd þannig að allir gætu
notið hvar og hvenær sem er. Það
eigi vel við núna. „Við teljum
ástæðu aukningarinnar þá að fólk
leiti markvisst í sögur til að komast
aðeins úr þessum veruleika sem við
lifum í og sækja sér í leiðinni aukna
þekkingu og afþreyingu.“
Aukið gagnamagn og
tvöföld farsímanotkun
Unnið að heiman og sótt í afþreyingu í samkomubanni
Morgunblaðið/Hari
Afþreying Margir vinna nú að heiman og aðrir finna sér afþreyingu.
Samkomubann
» Símtöl í heimasímum hafa
aukist um 30% hjá Símanum.
» Símtölum í farsímakerfi
Vodafone hefur fjölgað um
50%.
» Tvöfalt fleiri skráningar hafa
verið hjá Storytel eftir að
samkomubann var sett á.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Hröð útbreiðsla kórónuveiru hér á
landi hefur hrint af stað ýmsum
breytingum í hegðun fólks. Þannig
hefur t.a.m. komið fram í Morgun-
blaðinu að mikill samdráttur hefur
orðið á umferð á höfuðborgarsvæð-
inu síðastliðnar vikur, eða rúm 15%
þar sem mest er. Albert Heimisson,
deildarstjóri útideildar hjá Bíla-
stæðasjóði, segir gríðarlegan sam-
drátt hafa orðið í notkun bílastæða
í miðborg Reykjavíkur.
„Nýting á bílastæðum og bíla-
stæðahúsum hefur dregist mikið
saman, við höfum aldrei séð neitt
þessu líkt áður,“ segir Albert í sam-
tali við Morgunblaðið og bendir á
að innkoma í stöðumæla hafi dreg-
ist saman um 70-80% á milli mán-
aða. Er Albert þá að styðjast við töl-
ur Bílastæðasjóðs frá 24. mars
síðastliðnum og er um að ræða
gjaldsvæði í miðborginni, við Land-
spítala og Háskóla Íslands.
„Fyrir mánuði var nýting bíla-
stæðahúsa um 92 prósent en notkun
er nú komin niður í um 50 prósent,“
segir Albert og bendir á að bíla-
stæðahúsin hafi að líkindum ekki
fallið jafn hratt sökum þess hve
margir kaupmenn og aðrir starfs-
menn nýti sér þau. Loki aftur á
móti fleiri fyrirtæki í miðborginni
vegna útbreiðslu kórónuveiru og
samkomubanns stjórnvalda má
fastlega gera ráð fyrir því að nýt-
ing húsanna falli enn frekar.
Spurður út í sektir bílastæða-
varða þetta sama tímabil segir Al-
bert þær hafa dregist saman um
34%. „Þó að bílum hafi fækkað virð-
ast fleiri sleppa því að greiða í
stæði,“ segir hann.
Ekki var í gær hægt að meta
tekjutap vegna minnkandi eft-
irspurnar í bílastæði og hús.
Fékk sekt í heimasóttkví
Morgunblaðið hefur heimildir
fyrir því að starfsfólk Bílastæða-
sjóðs hafi nýverið sektað ein-
stakling á meðan hann var í sóttkví
en umrætt ökutæki stóð þá fyrir ut-
an heimili viðkomandi.
Albert segir Bílastæðasjóð nú
starfa að mestu í óbreyttri mynd
þrátt fyrir ástandið í samfélaginu.
Ekki sé gefinn slaki á athæfi sem
talið var brot fyrir veirufaraldur. „Í
gildi eru sömu reglur og hafa alltaf
verið,“ segir hann.
Morgunblaðið/Eggert
Viðsnúningur Umferð var engin á Laugavegi um miðjan þriðjudag.
Algert hrun í
nýtingu bílastæða
Stöðumælar farið niður um 70-80%