Morgunblaðið - 26.03.2020, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020
Mörkin 6 - 108 Rvk.
s:781-5100
FRÍ HEIMSENDING!
Opið: Mán-fös: 14-18
lau: 11-15
VOR
2020
Ma ra
G ibbucc i
Sendum frítt um land allt
Náttfata-
dagar
20-50%
afsláttur
af öllum
náttfatasettum
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is
Selena undirfataverslun • Næg bílastæði
Nýr
opnunartími:
Virka daga frá 12-17
Laugardaga
frá 12-15
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fylgið okkur á facebook
FISLÉTTIR DÚN
OG VATTJAKKAR
MARGIR LITIR
FRÁ KR.
19.900
Persónuleg Símaþjónusta
FRÍ HEIMSENDING
hjá Laxdal gætum við
fyllsta öryggis
OPIÐ 12-17
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Alltaf eitthvað nýtt og spennandi
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Dýrafjarðargöng Til stóð að hefja
malbikun í byrjun maí.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Kórónuveirufaraldurinn setur strik
í reikninginn hjá verktökum við
Dýrafjarðargöng. Slóvakarnir og
Tékkarnir sem vinna fyrir tékk-
neska verktakann Metrostav voru
kallaðir heim, samkvæmt tilmælum
frá þarlendum yfirvöldum. Fjórir
yfirmenn urðu þó eftir og ráðnir
hafa verið undirverktakar frá Ísa-
firði og víðar að til að ljúka þeim
verkefnum sem Slóvakarnir og
Tékkarnir unnu að.
„Þetta er áskorun en hún er ekki
sú erfiðasta hjá okkur. Veðrið í vet-
ur hefur haft meiri áhrif á vinnuna,“
segir Karl St. Garðarsson, staðar-
stjóri Suðurverks við gerð Dýra-
fjarðarganga. Starfsmenn Metro-
stav unnu að því að steypusprauta
vatnsklæðningar ganganna. Þarf að
ljúka þeirri vinnu áður en önnur
eftirvinna í göngunum hefst, svo
sem að keyra inn burðarlag og
leggja vatnsleiðslur. Ætlunin var að
hefja malbikun í byrjun maí en ljóst
er að það næst ekki.
Veðrið hefur verið leiðinlegt al-
veg frá því í byrjun desember.
Þannig hefur vinna fallið alveg nið-
ur í nokkra sólarhringa. Starfs-
mennirnir hafa verið lokaðir inni í
vinnubúðum og ekki getað hreyft
sig.
Óvíst með verklok
Ljúka á Dýrafjarðargöngum í
september næstkomandi. Fram-
kvæmdir gengu vel framan af og var
verkið á undan áætlun. Karl segir of
snemmt að segja til um það hvort
tafirnar í vetur setji skilin úr skorð-
um. Eins og staðan er nú telur hann
ólíklegt að tímasetningar standist.
Framkvæmdir við Dýrafjarðar-
göng hófust á árinu 2017.
Erlendir starfsmenn kallaðir heim
Tafir á framkvæmdum við Dýrafjarðargöng vegna veðurs og kórónuveiru
Óásættanlegt er
með öllu að
kröfuhafar geti
nýtt sér þá neyð
sem blasir við
mörgum heim-
ilum við núver-
andi aðstæður
vegna faraldurs
kórónu-
veirunnar. Öllu
máli skiptir nú að tryggja öryggi af-
komu heimila þannig að öllum sé
kleift að setja eigin heilsu og ann-
arra í forgang.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá
ASÍ í gær. Í henni segir að farald-
urinn hafi nú áhrif á atvinnu og af-
komu fjölmargra heimila. Sam-
bandið leggi ríka áherslu á að stjórn-
völd, fjármálastofnanir og aðrir
kröfuhafar komi til móts við fólk í
þessum erfiðu aðstæðum. Liður í
þessu sé að opinberir aðilar, sveitar-
félög, fjármálastofnanir, leigufélög,
lífeyrissjóðir og aðrir kröfuhafar
sýni sanngirni og sveigjanleika
varðandi greiðslufresti.
Dreifi greiðslum
Mikilvægt sé að innheimtukostn-
aður og dráttarvextir verði ekki
lagðir á vanskil og fólki gefist tæki-
færi til að dreifa greiðslum og
lengja í lánum svo greiðslubyrði fari
ekki úr hófi fram, að því er fram
kemur í yfirlýsingu ASÍ. Bankar,
fjármálastofnanir, lífeyrissjóðir og
leigufélög hafi þegar tilkynnt um
úrræði fyrir heimili sem þurfi aukið
svigrúm við þessar aðstæður.
Kröfuhafar sýni
heimilum sanngirni
og sveigjanleika
Drífa Snædal
Nú finnur þú það
sem þú leitar að
á FINNA.is