Morgunblaðið - 26.03.2020, Page 23
23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020
Skógræktin hvetur landsmenn til
að leita huggunar gegn veirufárinu
með því að knúsa tré. „Reynið, og
þið munuð finna,“ segir á vef Skóg-
ræktarinnar, skogur.is.
Þar segir enn fremur: „Á þessum
erfiðu tímum þegar kórónuveiran
hrellir þjóðina, aðskilur fólk og
bælir niður þjóðfélagið erum við
beðin að forðast nánd og snertingu.
Knúsin við annað fólk verða að
bíða. En þá er gott tækifæri til að
upplifa gott knús við tré. Trjáknús
er heilandi og læknandi athöfn.
Gætið þess að knúsa ekki bara
augnablik. Takið utan um tréð og
bíðið þangað til þið farið að finna
hvernig lífsmagnið fer að streyma í
ykkur úr trénu. Þetta virkar,
sannið þið til!“
Á vef Skógræktarinnar hafa ver-
ið birtar myndir af starfsfólki stofn-
unarinnar og aðstandendum við
þessa nytsömu iðju, að knúsa tré.
„Trjáknúsarar allra landa sam-
einist! Knúsum tré og útbreiðum
skóga heimsins á ný. Klæðum
landið!“
Leitið huggunar gegn
veirunni og knúsið tré
Ljósmyndir/Skógræktin
Knús Skemmtilegt framtak hjá Skógræktinni, að benda landsmönnum á að fara út í skóg og knúsa trén.
Mörg fyrirtæki
hafa lagt sitt af
mörkum til að
aðstoða heil-
brigðisstarfsfólk
og aðra í fram-
varðasveit í bar-
áttu við kórónu-
veiruna. Þannig
hefur Ölgerðin
fært öllum
heilsugæslum á
höfuðborgarsvæðinu drykkjar-
vörur. Dominos færði stöðvunum
veglega inneign, ásamt því að gefa
heilbrigðisstarfsfólki góðan afslátt
út aprílmánuð hið minnsta. Hlölla-
bátar buðu öllu starfsfólki Land-
spítala bát að eigin vali. Nings hef-
ur boðið heilbrigðisstarfsfólki 50%
afslátt á úttekt allt að 10 þúsund kr.
gegn framvísun starfsmanna-
skírteina. Þá sendi Valdís starfs-
fólki sýkla- og veirufræðideildar ís
um helgina, svo dæmi séu tekin.
Fyrirtæki dugleg að
gefa heilbrigðis-
starfsfólki afslætti
Heilbrigðisstarfs-
fólk önnum kafið.
Búið er að stofna á Facebook-
vefinn Bangsaleit á höfuðborg-
arsvæðinu, þar sem fólk er hvatt til
að setja bangsa út í glugga hjá sér.
Er þetta hugsað fyrir börn sem far-
ið er með út í göngutúr í hverfinu,
til að viðra þau og aðra fjölskyldu-
meðlimi í miðjum kórónuveiruf-
araldri. Geta þau t.d. talið bangs-
ana á göngu sinni og haft gaman af.
„Það er eitthvað svo fallegt við
þessa bangsaleitarhugmynd og á
tímum þar sem börn hitta ekki mik-
ið vini og stórfjölskyldu þá væri
gaman að auka gleðina í labbi-
túrunum! Setjum bangsa í
gluggann. Endilega bjóðið að vild í
hópinn,“ segir á vefnum.
Setjum bangsa
út í gluggann
Morgunblaðið/Ásdís
Átak Allir að setja bangsa út í glugga!
Öryggismið-
stöðin býður upp
á nýja þjónustu á
höfuðborgar-
svæðinu varð-
andi viðgerðir á
hjálpartækjum
sem lánuð eru út
af Sjúkratrygg-
ingum Íslands.
Öryggismiðstöðin mun nú sækja
hjálpartæki heim til fólks sem þarf
á viðgerðarþjónustu að halda, því
að kostnaðarlausu. Gildir þetta fyr-
ir öll tæki sem lánuð hafa verið út
frá SÍ. Hægt er að hringja í símann
570-2400.
Sækja hjálpartækin
heim til fólks