Morgunblaðið - 26.03.2020, Qupperneq 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020
V E R S L U N S N O R R A B R A U T 5 6 · 1 0 5 R E Y K J A V Í K · F E L D U R . I S
VERSLUM Á VEFNUM
Á FELDUR.IS bjóðum við viðskiptavinum 15% afslátt af hlýjum
vörum fyrir útiveruna og sendum frítt innanlands.
AFSLÁTTARKÓÐI: FELDUR2020
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Súðvíkingar eru orðnir langeygir
eftir niðurstöðum, svörum, al-
mennri afstöðu og ákvörðunum
opinberra aðila hvað varðar bygg-
ingu kalkþörungaverksmiðju í þorp-
inu. Formlegt ferli nær aftur til
ársins 2014 er viljayfirlýsing Súða-
víkurhrepps og Íslenska kalkþör-
ungafélagsins var undirrituð. Þá
var miðað við að starfsemi gæti haf-
ist 2018. Síðan hefur ferli skipulags
og umsókna verið í gangi og sér
ekki fyrir endann á því. Miðað við
fjögurra ára framkvæmdatíma
hefst framleiðsla ekki fyrr en 2024.
Á fundi í sveitarstjórn í síðustu
viku var Braga Þór Thoroddsen
sveitarstjóra falið að fylgja þessu
máli eftir og reyna að fá afstöðu
stjórnvalda varðandi gang mála.
Súðvíkingar sáu tækifæri í stöðunni
til að ýta málinu áfram er stjórnvöld
boðuðu fyrir nokkru að gripið yrði
til víðtækra aðgerða vegna stöðu og
horfa í efnahagsmálum. Þar var m.a.
ákveðið að kanna áform um fram-
kvæmdir sveitarfélaga í einstökum
landshlutum og hvaða möguleikar
gætu verið á að flýta stærri fram-
kvæmdum í ljósi stöðunnar.
Flókin og tímafrek vinna
Bragi segir að á síðustu árum hafi
fyrirtækið og sveitarfélagið lagt í
flókna og tímafreka undirbúnings-
vinnu og ýmis mál hafi skýrst síð-
ustu mánuði af hálfu Skipulagsstofn-
unar, Umhverfisstofnunar og fleiri
aðila. Nú sé hins vegar óskað eftir
að aðalskipulag sveitarfélagsins
verði ekki endanlega afgreitt, og þá í
annað sinn, fyrr en skipulagsmál
Kalkþörungafélagsins verði af-
greidd. Þá eigi Orkustofnun enn
eftir að gefa Kalþörungafélaginu
leyfi til að vinna þörunga i námum á
botni Ísafjarðardjúps, en Umhverfis-
stofnun hafi fjallað um svipað efni.
Meðal annarra fyrirhugaðra fram-
kvæmda er hafnargerð á nýju
hafnarsvæði innan Langeyrar í
Álftafirði. Bragi Þór segir að Vega-
gerðin og sveitarfélagið komi að
þeim framkvæmdum og sé höfnin
komin á samgönguáætlun. Vinna við
höfnina hefði átt að vera komin af
stað.
Bragi Þór segir að um 200 manns
búi i Súðavíkurhreppi, þar af um
140 í þorpinu í Súðavík að staðaldri.
Gert sé ráð fyrir að um 35 manns
vinni í nýju verksmiðjunni og muni
starfsemin skipta sköpum í sam-
félaginu.
Ekkert öruggt, ekkert í hendi
Bragi er þungorður í garð opin-
berra stofnana og skrifræðis í grein
sem hann skrifaði nýlega á visi.is
og nefnir Umhverfisstofnun og
Skipulagsstofnun sérstaklega. Eftir
sex ára ferli frá því að ákveðið hafi
verið að leggja af stað með verk-
efnið sé ekkert öruggt, ekkert í
hendi. Nokkrar milljónir hafi farið í
verkið, margir fundir og mikil
vinna.
Súðvíkingar vilja ákvarðanir
Langeygir eftir niðurstöðum varðandi kalkþörungaverksmiðju Formlegt
ferli hófst árið 2014 Myndi skipta sköpum fyrir atvinnulíf á svæðinu
Ljósmynd/Bragi Þór Thoroddsen
Vetur Álftafjörður og þorpið í Súðavík. Myndin er tekin í desember en síðan er búið að vera mjög snjóþungt á Súðavík eins og annars staðar á Vestfjörðum.
Fyrirhugað er að stækka friðlandið í
Flatey á Breiðafirði og hefur Um-
hverfisstofnun kynnt þau áform, en
Reykhólahreppur og landeigendur
standa einnig að kynningunni. Frið-
lýsingin miðar að því að varðveita
einkenni og sérstöðu svæðisins, en
austurhluti Flateyjar var friðlýstur
1975 vegna fuglaverndar. Vísinda-
legt gildi svæðisins er metið hátt.
Stækkunin nær yfir austurhluta
eyjarinnar ásamt eyjum og hólmum
sunnan við Flatey. Líffræðileg fjöl-
breytni svæðisins er mikil, en þar er
að finna fjölskrúðugt fuglalíf sem
byggist m.a. á fjölbreyttu fæðufram-
boði, miklum fjörum og takmörkuðu
aðgengi rándýra að svæðinu, segir
m.a í kynningu Umhverfisstofnunar.
aij@mbl.is
Stækkun friðlands í Flatey á Breiðafi rði
Ko
rt
: U
m
hv
er
fi s
st
of
nu
n/
LM
Í
Núverandi mörk friðlands
Tillaga að stækkun
Áform um stækkun
friðlandsins í Flatey
Vegna samkomubanns ganga grein-
ingar á myglusveppum mun hægar
fyrir sig en venjulega og er viðbúið
að biðtími eftir niðurstöðum lengist
nokkuð. Þetta kemur fram á heima-
síðu Náttúrufræðistofnunar.
Stofnunin býður upp á greiningu
á myglusveppum fyrir almenning og
fyrirtæki. Greiningar fara fram á
starfsstöð á Akureyri og er æskilegt
að haft sé samband við sveppafræð-
ing símleiðis áður en sýni er sent til
greiningar. Eins og hjá mörgum
öðrum opinberum stofnunum hefur
afgreiðslu NÍ verið lokað, en svarað
er í síma.
Tafir á greiningum
á myglusveppum