Morgunblaðið - 26.03.2020, Síða 30
30 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
544 5151tímapantanir
Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR
Í LJÓSI AÐSTÆÐNA COVID19
Við hjá Bíljöfur höfum tekið upp nýjar vinnureglur varðandi bifreiðar sem
koma til viðgerða, bæði til að tryggja öryggi starfsmanna og viðskiptavina.
Bifreiðar sprittaðar fyrir og eftir viðgerðir.
Einnig bjóðum við upp á að:
• Fólk borgi reikning með símgreiðslu/millifærslu.
• Bifreið sé sótt heim eða í vinnu til eiganda á höfuðborgarsvæðinu og henni
skilað aftur eftir viðgerð.
Er kominn tími til að fara með bílinn í bifreiðaskoðun?
Við getum séð um það fyrir þig.
Sjá nánara fyrirkomulag á facebooksíðunni okkar
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Eigendur nýrrar skartgripaverslun-
ar á Laugavegi, Prakt Jewellery,
áttu von á því að miðbærinn yrði full-
ur af ferðamönnum opnunardaginn
26. mars. Nú eru göturnar hins veg-
ar nær mannlausar.
Þorbergur Halldórsson, einn eig-
enda verslunarinnar, segir ástandið
óneitanlega sérstakt.
„Við erum í skringilegum aðstæð-
um. Við ætluðum að opna verslunina
á morgun [í dag]. Við verðum að
bregðast við aðstæðunum eins og
þær eru. Það er allt sett á bið í
ófyrirséðan tíma. Það væri einfalt að
segjast ætla að fresta opnuninni í
mánuð eða tvo. Það þýðir hins vegar
ekki neitt,“ segir Þorbergur.
Bjóða eigin hönnun
Hann segir Prakt Jewellery fyrst
og fremst munu bjóða eigin smíð og
hönnun á skartgripum. Eigendurnir
hafi valið að vera ofarlega á Lauga-
veginum með heimamenn og erlenda
ferðamenn í huga.
Þorbergur hóf eigin rekstur árið
1988. Árið 1991 stofnaði hann
verslunina G15 á Skólavörðustíg 15,
sem síðar varð hús 12 Tóna, en hann
gerði það upp á sínum tíma. Síðar
var hann ásamt öðrum með verslanir
á Laugavegi, Smáralind og Kringl-
unni undir merkjum Brilljant ehf.
Seldu þær verslanir líka skartgripi.
Þorbergur, sem hóf starfsferilinn
16 ára í Fjalakettinum, kveðst hafa
séð uppsveiflur og niðursveiflur á
þessum 40 árum. Miðbærinn hafi
verið númer eitt í verslun en staða
hans breyst, ekki síst með opnun
Kringlunnar og síðar Smáralindar.
Húsnæðið yfirverðlagt
Síðustu ár hafi húsnæði verið yfir-
verðlagt í miðborginni, sem og húsa-
leiga, en nú sé verðið hins vegar að
leiðréttast. Leigan sé orðin sam-
bærileg og í Skeifunni og Múlunum.
Með því horfi margir verslunareig-
endur til þess að flytja verslanir í
miðborgina. „Ég hafði og hef enn
tröllatrú á miðbænum. Hann mun
jafna sig og koma upp aftur. Það er
enginn annar miðbær. Úrvinnslan
gæti hins vegar tekið tíma þar til
tímarnir batna. Við hlökkum til
sumarsins og að sjá Íslendinga koma
aftur í miðbæinn,“ segir Þórbergur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á Laugavegi Versluninn Prakt Jewellery mun bjóða upp á skartgripi.
Ætluðu að opna
verslunina í dag
Eigendur Prakt Jewellery bíða og sjá
Landsbréf, sjóðastýringarfyrir-
tæki í eigu Landsbanka Íslands,
skilaði 489 milljóna króna hagnaði
á árinu 2019. Dróst hagnaðurinn
saman um 42% sem var 843,7 millj-
ónir á árinu 2018.
Umsýsluþóknun og árangurs-
tengdar þóknanir drógust saman
og námu tæpum 1,4 milljörðum
króna. Stóðu sömu tekjur í rúmum
1,9 milljörðum ári fyrr. Hreinar
fjármunatekjur jukust hins vegar
verulega og stóðu í tæpum 219
milljónum, samanborið við rúmar
89 milljónir árið á undan. Aðrar
tekjur jukust einnig og námu tæp-
um 65 milljónum, samanborið við
tæplega 30 milljónir árið 2018.
Laun og launatengd gjöld námu
tæpum 560 milljónum og jukust
um 30 milljónir milli ára. Annar
rekstrarkostnaður jókst einnig og
stóð í 441 milljón. Jókst hann um
tæpar 52 milljónir. Eignir í stýr-
ingu hjá Landsbréfum voru um
180 milljarðar í árslok 2019 og
höfðu aukist um 25 milljarða milli
ára.
Hagnaður
Landsbréfa
489 milljónir
Minnkaði um 42%
26. mars 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 139.44 140.1 139.77
Sterlingspund 164.02 164.82 164.42
Kanadadalur 96.85 97.41 97.13
Dönsk króna 20.255 20.373 20.314
Norsk króna 12.774 12.85 12.812
Sænsk króna 13.727 13.807 13.767
Svissn. franki 142.99 143.79 143.39
Japanskt jen 1.2598 1.2672 1.2635
SDR 188.83 189.95 189.39
Evra 151.28 152.12 151.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 179.2182
Hrávöruverð
Gull 1599.5 ($/únsa)
Ál 1536.0 ($/tonn) LME
Hráolía 27.72 ($/fatið) Brent
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Seðlabanki Íslands treystir sér ekki í
núverandi ástandi til að gefa út nýja
hagspá. Nýverið lýsti Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri því yfir að hagspá
sem kynnt var í febrúar síðastliðnum
væri úrelt vegna gríðarlegra áhrifa
útbreiðslu kórónuveirunnar um heim
allan.Hins vegar birti bankinn í gær
tvær sviðsmyndir sem hann telur
sennilegt að rætist varðandi þróun
efnahagsmála. Önnur gerir ráð fyrir
2,4% efnahagssamdrætti. Hin gerir
ráð fyrir 4,8% samdrætti. Í febrúar
hafði bankinn gert ráð fyrir 0,8%
hagvexti og í október 2019 var spáin
upp á 1,6% hagvöxt.
„Í báðum sviðsmyndum er reyndar
að ferðamönnum fækkar hér á næstu
mánuðum um 90% frá í fyrra. Mun-
urinn á milli þessara tveggja mynda
er hversu lengi það varir. Í mildari
myndinni bjargast eitthvað af sumr-
inu og það tekur við einhver smávegis
bati á seinni hluta ársins en í þeirri
dekkri varir þetta ástand lengur og
batinn verður hægari,“ sagði Þórar-
inn G. Pétursson, aðalhagfræðingur
bankans, þegar hann kynnti spárnar.
Benti hann á að mildari sviðs-
myndin gerði ráð fyrir 37% fækkun
ferðamanna og 14% samdrætti í
heildarútflutningi milli ára. Fari mál-
in hins vegar á verri veg má gera ráð
fyrir að ferðamönnum fækki um 55%
og að samdrátturinn verði 21%. Þá
sagði Þórarinn einnig mikla óvissu
um þróun heimsmarkaðsverðs á ál-
afurðum. Annars vegar að álverðið
þróaðist í samræmi við framvirk verð
á markaði en í verri myndinni að það
myndi lækka mun frekar og með
svipuðum hætti og hrávöruverð.
Seðlabankinn telur einnig að út-
flutningur sjávarafurða muni raskast
talsvert, einkum vegna vandamála
við afhendingu og dreifingu og minni
eftirspurn vegna lokunar veitinga-
staða erlendis.
Áhættuálag mun hækka
Benti Þórarinn á að hinn mikli
skellur sem hagkerfið yrði nú fyrir
yki mjög óvissu í fjármálakerfinu og
að ganga mætti út frá því að vaxta-
álag á fyrirtækjalán myndi hækka
um 1 prósentu vegna þess. Seðla-
bankinn gerir ráð fyrir að tímabund-
in lokun fyrirtækja sem nú er komin
fram muni auka atvinnuleysi og
stytta meðalvinnutíma. Þá hægi á
fjölgun fólks á vinnualdri þar sem
innflutningur á erlendu vinnuafli
muni jafnvel stöðvast algjörlega. Þá
hafi vinnutap vegna veikinda og fjar-
veru, t.a.m. vegna sóttkvíar og ein-
angrunar, einnig hafa mikil áhrif. Tel-
ur bankinn að atvinnuleysi geti farið í
6 eða jafnvel 7 prósent. Í tölunum er
tekið tillit til aðgerða ríkisstjórnar-
innar og um ársmeðaltal er að ræða
og því er sennilegt að atvinnuleysið
geti orðið meira á tilteknum tímabil-
um. Þótt sannarlega hafi verið þungt
hljóð í aðalhagfræðingi bankans
vegna þeirra auðnubrigða sem þjóðin
horfir fram á nú nýtti hann einnig
tækifærið til að stappa stálinu í fólk:
„Þótt efnahagshorfur séu dökkar
megum við ekki missa alla von. Þjóð-
arbúskapurinn mun ná sér aftur á
strik þegar þessi óáran gengur yfir og
allar þessar sviðsmyndir sem við höf-
um verið að skoða gera ráð fyrir að
hagvöxtur verði góður aftur strax á
næsta ári.“
Umfangsmikið inngrip
Á fundi sem peningastefnunefnd
Seðlabankans hélt á sunnudag var
bankanum veitt heimild til magn-
bundinnar íhlutunar á markaði. Felur
það í sér að bankinn getur keypt
skuldabréf fyrir allt að 150 milljarða
króna. Ásgeir Jónsson benti á að
þessi ákvörðun hefði verið tekin án
samráðs við fjármála- og efnahags-
ráðuneytið enda væri Seðlabankinn
sjálfstæður í störfum sínum. Hins
vegar ætti bankinn nú þegar samráð
við ráðuneytið og ríkisstjórnina um
útfærslu aðgerða á grundvelli heim-
ildarinnar.
Prentvélarnar ræstar
Seðlabankinn mun að sögn Ásgeirs
prenta nýja peninga til þessara upp-
kaupa, ekki verði nýttir fjármunir úr
forða bankans í því skyni. Þá megi
gera ráð fyrir að heimildinni verði
beitt á þessu ári, enda sé um tíma-
bundinn vanda að etja.
„Kaup seðlabankans eru þá ætluð
til að tryggja framgang peninga-
stefnunnar á markaði, tryggja að
áhættulausir vextir hækki ekki of
mikið og að fyrirtæki og heimili geti
notið lágra vaxta áfram.“
Aðgerðirnar eru til komnar vegna
fyrirhugaðrar og stóraukinnar
skuldabréfaútgáfu ríkisins. „Í ljósi
þess að ríkissjóður Íslands mun þurfa
aukið fjármagn til að standa skil á út-
gjöldum vegna COVID-19-veirunnar
og að einhverju leyti vegna þess að
ríkissjóður hefur veitt gjaldfresti er
fyrirséð að það verður meiri útgáfa.
Við viljum koma í veg fyrir að lang-
tímakrafan hækki verulega því hún
setur í hættu markmið okkar um
slökun peningastefnunnar og margt
fleira.“
Allt að 55% fækkun ferðamanna
Sviðsmyndir Seðlabankans gera ráð fyrir talsverðum samdrætti þjóðarframleiðslunnar Atvinnu-
leysi gæti farið í 7% Magnbundin íhlutun Seðlabankans getur numið allt að 150 milljörðum króna
Ljósmynd/Skjáskot Seðlabanka
SÍ Minni ráðstafanir voru gerðar til smitvarna á fundinum í gær en á fyrri
kynningarfundum Seðlabankans í marsmánuði. Í stað sprittbrúsa höfðu
seðlabankastjóri og aðalhagfræðingur vatnsflöskur sér til handargagns.