Morgunblaðið - 26.03.2020, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 26.03.2020, Qupperneq 31
FRÉTTIR 31Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020 BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Dæmi eru um að fólk sem átti pantað flug til Óslóar í Noregi með Icelandair hafi verið endur- bókað sjálfvirkt í flugvél til Stokkhólms í Svíþjóð, án þess að viðkomandi hafi fyrst verið boðin endurgreiðsla. Breki Karlsson, formaður Neyt- endasamtakanna, segir að einstaklingur sem lenti í þessu hafi leitað til samtakanna, en úr þessu einstaka máli hafi verið leyst í kjölfarið. „Auðvitað mega flugfélögin bjóða upp á svona lausnir, en farþegi á skýlausan rétt á að fá endurgreitt að fullu ef ferð er felld niður og ekki er hægt að koma viðskiptavininum á áfangastað, eins og í þessu tilviki,“ segir Breki og bætir við að ekki sé hægt að bjóða fólki upp á að það sé einfaldlega sent í annað land. Vantar að fólk sé upplýst Breki, sem átti fund með evrópsku neytenda- samtökunum í gærmorgun, segir að svo virðist sem vanti upp á, bæði á Íslandi og í öðrum lönd- um, að fólk sé látið vita um allan rétt sinn. „Í dæminu hér á undan er réttur fólks skýlaus, og það sama á við um pakkaferðir, ef verulegar vanefndir verða. Auðvitað mega viðskiptavinir semja um annað, eins og að fá inneignarnótur, en þá þarf það að vera val hvers og eins, en aldrei val söluaðila.“ Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir í skriflegu svari til Morgun- blaðsins að þessa dagana hafi félagið verið að aðlaga flugáætlun sína frá degi til dags, og ákvarðanir séu teknar í mesta lagi 48 klukku- stundir fram í tímann. „Eins og önnur flugfélög og ferðaþjónustufyrirtæki eru að leggja áherslu á á þessum óvissutímum erum við að hvetja fólk til þess að fresta för frekar en að hætta alfarið við ferðina. Við reynum að endur- bóka farþega eftir bestu getu en þar sem mögu- leikar til endurbókana eru takmarkaðir á næstu dögum og vikum erum við einnig að bjóða viðskiptavinum inneign hjá okkur sem hægt væri að nýta síðar meir. Þetta gefur við- skiptavinum okkar meiri sveigjanleika,“ segir Ásdís Ýr. Hún segir jafnframt að Icelandair fylgi gild- andi reglum hverju sinni varðandi endur- greiðslurétt en í þeim fordæmalausu aðstæðum sem nú eru uppi sé viðbúið að endurgreiðslur geti tekið lengri tíma en venja væri undir eðli- legum kringumstæðum. Wizz býður 120% inneign Spurð að því hvort Icelandair hygðist fara að dæmi ungverska flugfélagsins Wizz air sem færir, þegar flug er fellt niður, sjálfkrafa 120% af upprunalegu fjargjaldi á Wizz-reikning við- komandi sem hægt er að nota í 24 mánuði þar á eftir, eða endurgreiðir 100%, sem tæki þá lengri tíma, segir Ásdís að flugfélög bregðist við stöðunni með ýmsum hætti. „Við fylgjumst með þróun mála og erum stöðugt að skoða hvernig við lögum okkur að þeim aðstæðum sem nú ríkja.“ Breki segir að í óvissuástandi sem nú sé í samfélaginu vilji Neytendasamtökin að ferða- löngum sem komist ekki í ferðir sínar séu boðn- ar inneignarnótur, en á sama tíma vilji félagið að nóturnar séu tryggðar. „Danir fóru þá leið að tryggja allar inneignarnótur hjá ferðaskrif- stofum í landinu. Inneignarnóta er verðlaus pappír ef ferðaskrifstofan fer á hausinn. Til að fólk þiggi inneignarnótu umfram endurgreiðslu þarf að koma til slík ríkisábyrgð að mínu mati.“ Tryggingar lækkaðar Hann segir að sér finnist það skjóta skökku við að á meðan Danir séu að auka varnir neyt- enda á þessu sviði séu yfirvöld hér á landi að lækka tryggingaskyldu ferðaskrifstofa, eins og gert hafi verið í síðustu viku. „Tryggingar eiga að fara í að endurgreiða neytendum ef allt fer á versta veg, en núna, þegar líklegt er að reyni á þessar tryggingar, eru þær orðnar minni. Þetta þykir okkur skjóta afar skökku við. Við krefj- umst þess að aðgerðir stjórnvalda til að bjarga fyrirtækjum verði ekki á kostnað neytenda.“ Breki segir að sér finnist sjálfsagt að neyt- endur komi til móts við fyrirtækin í landinu með því að þiggja inneignarnótur í stað endur- greiðslu. „Ef allir fara fram á endurgreiðslu, og það verður eins konar áhlaup á fyrirtækin, þá reynist það fyrirtækjum ansi erfitt og ég held að lausafjárstaða flestra fyrirtækja þoli það ekki. Við mælum með að fólk þiggi inneign- arnótur svo lengi sem tryggt er að það verði ekki verr sett eftir á.“ Spurður nánar um fund sinn með evrópsku neytendasamtökunum í gærmorgun, og hvort menn séu að glíma við sömu vandamál um alla Evrópu, segir Breki að ferðamálin séu áber- andi í flestum löndum. „Svo er nokkuð um að kvartað sé undan fyrirtækjum og óprúttnum aðilum sem eru að nýta sér ástandið, og lofa því að vara þeirra sé ráð við farsóttinni. Þá eru víða óhóflegar verðhækkanir á hlutum eins og spritti, grímum og slíku sem tengist veirunni. „Þarna eru menn að nota sér neyðina til að græða peninga.“ Breki segir að Neytendasam- tökin hafi séð dæmi um slíkt hér á landi, þar sem verið sé að gefa í skyn að vara hjálpi til í baráttu gegn kórónuveirunni og drepi hana jafnvel. „Við höfum tilkynnt slíkt til Neytenda- stofu.“ Til Stokkhólms í stað Óslóar  Icelandair endurbókaði viðskiptavin sjálfkrafa í annað land  Skýlaus réttur á endurgreiðslu  Neytendasamtökin styðja inneignarnótur en vilja ríkisábyrgð  Fyrirtæki nýti ekki neyðina Ferðalög Mál er varða niðurfelldar ferðir eru stærsta einstaka mál síðari ára hjá Neytendasamtökunum. 400 hafa kvartað undan 600 ferðum. Nordic Entertainment Group (NENT Group), sem er leiðandi streymisveita á Norðurlöndum, mun hefja Viaplay-streymisþjón- ustu sína á Íslandi 1. apríl. Mán- aðargjald verður 599 krónur. Streymisveitan verður í boði á net- inu, líkt og Netflix, sem margir þekkja. Í boði verður Viaplay-myndefni, -kvikmyndir og -þáttaraðir ásamt barnaefni. Íþróttir í heimsklassa munu bætast við með tímanum. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá NENT Group. Nýjar Hollywoodmyndir Sem dæmi um Viaplay-myndefnið sem í boði verður við opnun eru þáttaraðir eins og Love Me, Those Who Kill og The Art of Living. Af kvikmyndum og sjónvarpsþátta- röðum má nefna Borg vs. McEnroe, Easy Money, Badehotellet og Grey’s Anatomy. Viðskiptavinir geta einnig leigt eða keypt nýjustu Hollywood-myndirnar og norrænar metsölumyndir. Af barnaefni má nefna þekkta þætti eins og Mia’s Magic Play- ground, Hvolpasveitina, Dóru land- könnuð og Svamp Sveinsson. NENT-samsteypan hefur sam- kvæmt tilkynningunni einnig tryggt sér einkaleyfi á Íslandi á sýningu eftirtalinna íþróttaviðburða: Form- úlu 1, fótbolta og handbolta í þýsku atvinnudeildunum, WTA-tennis, Major League-hafnabolta, NASC- AR-kappakstri og hollensku, dönsku og sænsku úrvalsdeild karla í fótbolta. Einnig verður í boði úr- valsdeild kvenna í fótbolta í Frakk- landi, bikardeildin í fótbolta í Frakklandi, CONCACAF-þjóða- keppnin, Suðurameríkubikarinn 2021 og margt fleira. Allt Via- play-myndefni og -barnaefni verður með íslenskum texta eða tali og völdu íþróttaefni verður lýst á ís- lensku. Ný streymisveita í boði á 599 krónur  Viaplay er leiðandi á Norðurlöndum AFP Sport Formúla 1 verður á Viaplay. Áskrifendur eru 1,6 milljónir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.