Morgunblaðið - 26.03.2020, Page 33
FRÉTTIR 33Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020
Silikon dagslinsur
Rakagefandi dagslinsur
Silikon tveggja vikna linsur
Silikon dagslinsur
Silikon mánaðarlinsur Silikon sjónskekkjulinsur
Rakagefandi dagslinsur
Hefðbundnar dagslinsurLinsur sem dökkna í sól
1 pakki 4.100 kr. – 3 pakkar 10.250 kr.
1 pakki 4.100 kr. – 3 pakkar 10.250 kr.
1 pakki 4.100 kr. – 2 pakkar 6.150 kr. Tveggja vikna – 1 pakki 5.800 kr.
1 pakki 3.300 kr. – 2 pakkar 4.950 kr.
1 pakki 3.200 kr. – 3 pakkar 8.000 kr.
1 pakki 2.900 kr. – 3 pakkar 7.250 kr.
1 pakki 2.500 kr.Tveggja vikna – 1 pakki 5.900 kr.
FRÍ HEIMSENDING
Kauptu linsur á
opticalstudio.is
eða pantaðu
í síma 511 5800
NÝTT
Glæpagengi í fátækrahverfum Rio
de Janeiro, stærstu borgar Brasilíu,
hafa hengt upp skilti í hverfunum
síðustu daga þar sem fyrirskipað er
algjört útgöngubann eftir klukkan
átta á kvöldin. Fylgir með loforð
um að hver sá sem finnist á ferli eft-
ir þann tíma muni læra að „virða“
næsta útgöngubann.
Aðgerðin er sögð viðbragð
gengjanna við útbreiðslu kórónu-
veirunnar, en óttast er að hún geti
haft gríðarleg áhrif í fátækrahverf-
unum, þar sem margir búa þétt
saman við lakan kost og hafa ekki
greiðan aðgang að heilbrigðisþjón-
ustu.
Á skiltum gengjanna má einnig
lesa gagnrýni á aðgerðaleysi brasil-
ískra stjórnvalda, og segir meðal
annars að ef ríkisstjórnin hafi ekki
getuna til að leysa málin muni
glæpagengin sjá um það.
Gengin
setja á út-
göngubann
Gagnrýna skort á
aðgerðum stjórnvalda
AFP
Sóttvarnir Fátækrahverfi borgar-
innar eru þéttbyggð og fjölmenn.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti til-
kynnti í ávarpi sínu til rússnesku
þjóðarinnar að allir dagar næstu
viku teldust opinberir frídagar. Þá
yrði að fresta fyrirhugaðri þjóðar-
atkvæðagreiðslu um breytingar á
stjórnarskrá Rússlands, en hún átti
að fara fram 22. apríl.
Breytingarnar sem átti að kjósa
um fela meðal annars í sér heimild
fyrir Pútín til þess að bjóða sig
fram að nýju til forseta í tvö kjör-
tímabil í viðbót eftir að núverandi
tímabili lýkur 2024.
Sjaldgæft er að Pútín ávarpi þjóð
sína í sjónvarpi, en forsetinn kallaði
eftir einingu og samstöðu Rússa
gagnvart kórónuveirufaraldrinum.
Þá væri mikilvægt að sem flestir
héldu sig heima til þess að koma í
veg fyrir frekari útbreiðslu kór-
ónuveirunnar. Rússar hafa ekki
enn sett á útgöngu- eða samkomu-
bann, en hafa í staðinn einangrað
þá sem komið hafa að utan, lokað
skólum og sagt eldra fólki að halda
sig heima.
Opinberar tölur frá Rússlandi
segja að einungis um 658 tilfelli
hafi greinst. Sú tala gæti þó hækk-
að ört á næstunni, en 163 ný tilfelli
uppgötvuðust í gær, hið mesta í far-
aldrinum til þessa í Rússlandi.
Í ávarpi sínu hvatti Pútín Rússa
til þess að aðstoða hver annan og
fylgja þeim fyrirmælum sem heil-
brigðisstarfsfólk og yfirvöld gær.
„Allt það sem gert er nú og verður
gert mun virka, mun hafa áhrif ef
við sýnum samstöðu og skilning á
erfiðleikum núverandi stöðu,“
sagði Pútín.
Frestaði atkvæðagreiðslu
AFP
Pútín Forsetinn heimsótti sjúklinga sem þjást af kórónuveirunni og liggja
nú á sjúkrahúsi í Moskvu á þriðjudaginn. Var allur varinn hafður á.
Pútín ávarpaði Rússa vegna kórónuveirufaraldursins
Saksóknarar í
Tyrklandi gáfu í
gær út ákærur á
hendur 20
manns, sem
grunaðir eru um
aðild að morðinu
á blaðamann-
inum Jamal
Khashoggi árið
2018. Á meðal
hinna ákærðu
eru tveir fyrrum háttsettir ráð-
gjafar Mohammeds bin Salman,
krónprins Sádi-Arabíu.
Khashoggi var myrtur í ræðis-
mannsbústað Sádi-Arabíu í Istanbúl
í október 2018, en hann fór þangað
til að útvega nauðsynleg vottorð
fyrir brúðkaup sitt.
Þar var hann kyrktur og lík hans
skorið í búta af fimmtán manna
teymi sem beið hans. Hafa líkams-
leifar Khashoggis ekki enn fundist.
Stjórnvöld í Sádi-Arabíu segja að
þeir sem myrtu Khashoggi hafi
gert það án heimildar stjórnvalda
og að þeim óafvitandi. Ekki er vitað
hvenær réttarhöld í málum mann-
anna 20 munu hefjast.
20 ákærðir fyrir
morðið á Khashoggi
Jamal
Khashoggi
TYRKLAND