Morgunblaðið - 26.03.2020, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 26.03.2020, Qupperneq 36
36 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020 V er mér náðugur, ó Guð, ver mér náð- ugur. Því að hjá þér leitar sál mín hælis, og í skugga vængja þinna vil ég hælis leita uns voðinn er liðinn hjá. (Sl. 57.2) Það var yndislegt að vakna við fugla- söng í morgun. Söngur fuglanna minnir okkur á að það er að koma vor. Ekki beint trúlegt svona þegar litið er til veðurfars og snjóþunga. Í gær komu svo dimm snjóél hér í Reykja- vík að varla sá út úr augum. En svo birti á milli og sólargeisl- arnir brutust í gegn- um sortann. Það getur vel ver- ið að þér líði þannig núna að þú sjáir ein- hvern veginn ekki fram á bjarta tíma. Að þessi covid- „klessa“ sé al- gjörlega að eyði- leggja allt og allt. Það eru svo mörg veik, mörg í sóttkví, mörg sem eru ótta- slegin, bæði um eigin hag og ann- arra. Skyldi langveika barnið mitt ná að forðast smit, amma lifa þetta af? Skyldi ég halda laun- unum mínum, Nonni bróðir halda fyrirtækinu á floti, Sunna frænka ná að útskrifast, íslenskt efna- hagslíf jafna sig, fiskurinn seljast aftur og…? Ég hugsaði með mér hversu skrítið þetta líf væri. Í gær snjór og kuldi. Í dag fuglasöngur. Mér finnst gott að hugsa til þess að þessi blessaða covid-veira er ekki eilíf og líkt og snjórinn mun hún ekki eiga séns í alla okkar góðu sólargeisla sem birtast okkur dag hvern í fólkinu í kring- um okkur. Fólki eins og þér sem geislar af náungakærleika og vekur með okkur hin- um von og bjartsýni. Fólki eins og þér sem ber umhyggju fyrir öðru fólki, sýnir tillits- semi og ábyrgð. Mikið er ég þakklát fyrir það að fá að vakna að morgni, heyra fuglasöng og finna í öllum æðum mínum fyrir þeirri dásamlegu tilfinn- ingu að ég stend aldrei ein. Ég hvíli undir óendanlega stóru vænghafi Guðs, vænghafi sem er byggt upp af elsku og kærleika allra þeirra sem hann hefur skap- að og þar get ég leit- að skjóls hvenær sem er uns birtir að nýju. Hvíldu líka í því að vænghaf Guðs er óendanlega stórt vegna þess að hann elskar þig og elska hans býr í okkur öll- um. Nýttu hana þér og öðrum til blessunar og mundu að það kem- ur alltaf aftur vor í dal. Guð gefi þér góðan dag. Kirkjan til fólksins Ljósmynd/Unsplash, David Watkis Í skugga vængja þinna Hugvekja Guðný Hallgrímsdóttir Höfundur er prestur fatlaðra. gudhall@mi.is Guðný Hallgrímsdóttir Ég er þakklát fyrir það að fá að vakna að morgni, heyra fuglasöng og finna í öllum æðum mínum fyrir þeirri dásamlegu til- finningu að ég stend aldrei ein. MOKKAKÖNNUR SMÁRALIND – KRINGLAN DÚKA.IS Frí heimsending á duka.is Sendum um allt land Í baráttunni við kórónaveiruna hafa tvíveg- is verið settar reglur um svokallað sam- komubann. Fyrst var lagt bann við því að fleiri kæmu saman en hundrað en svo var bannið aukið og nú mega ekki koma saman fleiri en tuttugu. Í bæði skipti var tekið fram, þegar sagt var frá banninu, að það tæki gildi eftir svo og svo skamman tíma. Þarna hefði mátt ætla að öllum yrði aug- ljóst að þörf væri á banninu strax, þótt formleg gildistaka gæti ekki orðið sam- stundis. En þá töldu einhverjir greinilega að ástæðulaust væri að fylgja banninu fyrr en það hefði formlega tekið gildi. Meira að segja lét atvinnuleikhús í borginni sig hafa það að efna til frumsýningar á stóru leik- verki eftir að bannið hafði verið tilkynnt en ekki formlega tekið gildi. Hvernig getur fólki dottið í hug, eftir að bannið hef- ur verið kynnt, að í raun sé ekki þörf fyrir það fyrr en við formlega gildis- töku? Halda menn að veiran lesi Stjórnartíðindi og smiti ekki af fullri alvöru fyrr en bannreglurnar hafa fengið formlega birtingu? Dyggur samkomumaður. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Veiran les ekki Stjórnartíðindi Fáir komast hjá því að upplifa hvern nei- kvæðan atburðinn á fætur öðrum í kjölfar mannskæðu veirunnar frá Kína. Okkur hefur verið talin trú um af talsmönnum hnatt- væðingarinnar að samstarfið við Kína hafi fært heiminum öllum meiri velgengni og velferð en nokkur maður hafi áður kynnst. Sagt er að fá- tækt sé á undanhaldi, þrátt fyrir að sífellt færri einstaklingar eigi meiri hlutdeild í árangri verðmæta- sköpunar en 99% mannkyns. Það er ljóst að ódýrt vinnuafl í Kína sem hvorki fylgir vinnu- né um- hverfislöggjöf Vestur- landa og samningar stórra alþjóðlegra fyrirtækja við Kommúnistaflokkinn liggja að baki tilfærslu á framleiðslu og fjár- magni frá Vesturlöndum til Kína. Ekkert sýnir raunverulegt eðli og hörmulegar afleiðingar hnatt- væðingarinnar í einni hendingu jafn vel og smit kórónuveirunnar um gjörvallan heim. Ef getgátur um lífefnavopn í höndum Kínverja eru á rökum reistar er um stærsta glæp gegn mannkyni á okkar tím- um að ræða. Ef um stórslys í vís- indastofu BSL-4 í Wuhan er að ræða á að loka þeirri stofnun um- svifalaust og banna allar slíkar í heiminum. Ef um sóðaskap við slátrun villtra dýra á matarmörk- uðum er að ræða á umsvifalaust að loka þeim og ekki opna fyrr en hreinlæti er tryggt. Miðað við framgang kommún- ískra yfirvalda í baráttunni gegn veirunni, þar sem dyrum fjölbýlis- húsa var lokað og læst svo fólk kæmist ekki út og njósnamynda- vélum komið fyrir á heimilum fólks, þá má setja fram þá spurningu hvers vegna sömu yfirvöld sýna ekki sama valdboð við lok- un BSL-4 vísindastof- unnar og útrýmingu á sóðaskap matvæla- markaða. Kommún- istaflokkurinn segir hins vegar að sigur hafi unnist á veirunni þökk sé frábærri flokksforystu og hug- myndafræði sósíal- ismans. Hvernig tókst Kín- verjum að hefta út- breiðslu veirunnar án bóluefnis? Á meðan Vesturlönd fara hvert á fætur öðru í fósturstöðu við fyrstu kynni af þess- um ósýnilega óvini, framleiðslan stöðvast í hverri greininni á fæt- ur annarri og verð- bréfamarkaðir eru í frjálsu falli, þá birtast núna myndir af Kínverjum sem snúa aftur til starfa og skólanáms. Kínverska veiran beinir kastljósi á Akkillesarhæl hnattvæðingar- innar sem benda má á með nokkr- um dæmum: Hætta er á skorti á fúkkalyfjum og 91 annarri venjulegri lyfjateg- und vegna þess að efni í lyfin eða lyfin sjálf eru framleidd í Kína og ekki lengur fáanleg. Stórfyrirtækið Scania lokar verksmiðjum í Evrópu því ekki er hægt að framleiða vörubíla og strætisvagna vegna skorts á hlut- um frá Kína. Einstök ríki hafa vikið frá fyrir- byggjandi viðbúnaði við faraldra, stríð og sjálfbæra matvælakeðju vegna hnattvæðingarinnar. Sem dæmi má nefna að árið 1993 voru 4.300 rúm aðgengileg á gjörgæslu með öndunarvélum í Svíþjóð. Núna þegar þörfin er stærst eru rúmin orðin færri en 600. Í kjölfar kórónuveirunnar hefur ESB sýnt sig vera haldlaust í sam- starfi þjóðríkja gegn óvininum og ógnar lokun landamæra flutninga- flæði nauðsynja á milli landa. Sví- þjóð, sem er 50% háð matarinn- flutningi vegna landbúnaðarstefnu ESB, horfir nú fram á matvæla- og vöruskort ef marka má neyðarköll skipafélaga um stöðvanir skipa- ferða til landsins. 90% alls varn- ings koma með skipum til Svíþjóð- ar. Matarflutningur á bílum er einnig í hættu ef bílstjórar smitast. Hnattvæðingin hefur gert Kommúnistaflokki Kína kleift að vaxa í styrkleika og virðist flokk- urinn hafa örlög heimsins í hönd- um sér. Verðmætasköpun frjálsra ríkja er orðin háð samningum við Kommúnistaflokkinn fyrir velgengi sína. Sú gagnrýni sem nú heyrist víða að frá hinum frjálsa heimi á þöggun kínverskra yfirvalda í byrj- un útbrots veirunnar á allan rétt á sér og ættu Kínverja að taka hana til alvarlegrar íhugunar. Í staðinn bregðast kommúnistar við af fullri hörku og saka gagnrýnendur um rasisma og ofsóknir gegn gula stofninum. Donald Trump Banda- ríkjaforseti benti réttilega á að ekki væri hægt að halda slíku fram, því sannleikurinn væri sá að veiran átti upptök sín í Kína. Jón Ásgeir Jóhannesson, sem leiddi stærsta fjármálahrun Ís- landssögunnar, virðist smápeð í samanburði við fjármálajöfra og talsmenn hnattvæðingarinnar ásamt skjólstæðingum þeirra í kín- verska kommúnistaflokknum. Hug- myndafræði hnattvæðingarinnar rýfur öll tengsl við hagsmuni íbúa einstakra ríkja og er full af fjand- semi í garð þeirra sem vilja gæta sjálfbærni í lífsafkomu og virða sjálfsákvörðunarrétt þjóða. Hnattvæðingin lofaði okkur vel- ferð í orði en skilur eftir sig hel- ferð á borði. Íslendingar ættu að taka málið til alvarlegrar íhugunar svo þjóðin eignist kost á því að hefja leiðréttingarferli eftir næstu alþingiskosningar. Velferð í orði – helferð á borði Eftir Gústaf Adolf Skúlason »Hnattvæð- ingin hefur gert Kommún- istaflokki Kína kleift að vaxa í styrkleika og virðist flokkur- inn hafa örlög heimsins í hönd- um sér. Gústaf Adolf Skúlason Höfundur er fv. ritari Evrópska smáfyrirtækjabandalagsins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.