Morgunblaðið - 26.03.2020, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 26.03.2020, Qupperneq 39
andi og ein besta útivist sem við getum stundað allt árið. Að fara í fjallgöngu er allra meina bót og það er ekkert sem toppar útsýni af ís- lenskum fjöllum. Það skiptir eig- inlega ekki máli hvernig viðrar, það hefur enginn sagt eftir göngu: ég hefði ekki átt að fara í göngu í dag vegna veðurs. Manni líður alltaf vel eftir göngu,“ segir Edith og er ákveðin í tali. Hún segir að fjöllin færi sér jarð- tengingu, hún finni meiri skýrleika, upplifi vellíðan og sofi betur eftir fjallgöngu. „Það er t.d ekkert eins dásamlegt og að hugleiða úti í ís- lenskri náttúru, það er svo mikil og sterk tenging sem maður finnur fyrir strax því við eigum svo óspillta náttúru sem er uppfull af jákvæðri orku. Þess vegna finnst mér jóga og göngur passa einstak- lega vel saman. Ástríða mín er að hjálpa öðrum að sjá ljósið og leiðina í átt að jafnvægi, vellíðan og innri friði,“ segir hún og hugsar eitt and- artak. „Ekki setja lykilinn að ham- ingjunni í vasann hjá öðrum, því lykillinn að hamingjunni býr innra með þér.“ Þurfum að vera hvetjandi og sýna skilning Edith hefur vegna menntunar og starfs síns sem ráðgjafi og jóga- kennari skoðað mannlegt atferli í meira en áratug og unnið með fólki úr öllum víddum samfélagsins. „Sú reynsla nýtist mér í allri leiðsögn, við fáum alls konar fólk í ferðir til okkar í misjöfnu ástandi, bæði and- lega og líkamlega,“ segir hún. „Við þurfum að vera hvetjandi, hafa áhuga á félagslegum samskiptum, sýna samvinnu í verki og skilning og hafa áhuga á velferð og heilsu fólks.“ Edith segir að öll reynsla sé góð, fyrir lífið sjálft og ekki síður fyrir starf leiðsögumannsins. „En nám mitt í sálfræði,“ segir hún, „og í heilbrigðisvísindum og jógafræðum hefur gefið mér betri skilning á hugsun, hegðun og tilfinningum fólks. Öll ferðalög snúast um mann- legar tilfinningar og þá er nú gott að vera með góðan grunn sem get- ur nýst manni endrum og eins.“ Með náttúruna tengda í taugakerfið Þótt Edith sé af mölinni eða mal- bikinu er hún ekkert sérstaklega bundin steinsteypunni eða borg- arlandinu tilfinningalega. Hún fékk þennan þráð sem tengdi hana beint í samband við náttúruna og sumar- ið í sinni tærustu mynd með því að fá að fara í sveit á sumrin hjá ætt- ingjum. „Ég náði strax tengingu við nátt- úruna sem barn, það var eitthvað svo heillandi við náttúruöflin og alla þessa fjallasýn. Ég man eftir frels- inu sem fylgdi því að fá að vera úti í náttúrunni allan liðlangan daginn, hlaupandi um í gúmmítúttum um grasi vaxin tún, frjáls eins og fuglinn.“ Spurð um uppáhaldsstaðina kem- ur svarið snöggt. „Lónsöræfi, Fjallabak og Langisjór!“ Og svo fer hún auðvitað næst yfir í þann stað sem er ekki bara vandlega merktur á landakortum heldur líka andlega merktur. „Snæfellsjökull og ná- grenni eru líka í fremstu röð,“ segir hún. „Það er einhver óútskýranleg orka sem kemur frá jöklinum. Ef maður dvelur í nágrenni við Snæ- fellsjökul í lengri tíma finnur maður þessi jákvæðu áhrif frá jöklinum sem orsaka vellíðan á svo margan hátt. Enda er stundum talað um að Snæfellsjökull sé ein af sjö orku- stöðvum heimsins. Ég hef unnið við að ganga upp á Snæfellsjökul yfir sumartímann með ferðamenn og þvílík vellíðan í þeirri vinnu. Þótt maður færi upp á jökulinn nokkra daga í viku var maður ekkert að spá í það vegna þess að manni leið alltaf svo vel. Bárður Snæfellsás hugsar líka vel um sína. Ég gæti örugglega búið á Arnarstapa miðað við hvað manni líður vel þar.“ Edith er eins og allir fjallaleið- sögumenn verndari og talsmaður íslenskrar náttúru. „Við erum hluti af henni og ég vona að fólk sé farið að finna meira fyrir aðdráttarafli hennar. Það hefur gildi fyrir okkur mannfólkið að komast í kyrrð og frið í ósnortna náttúru þar sem hægt er að njóta án truflana og sums staðar jafnvel án vélknúinna ökutækja.“ Aldrei leiðinlegt fólk á fjöllum „Það er aldrei leiðinlegt fólk á fjöllum,“ segir Edith spurð hvað heilli mest við að starfa sem far- arstjóri. Og svo hlær hún. „Þetta er meiriháttar og ótrúlega þroskandi og gefandi starf. Það er oft mikið um gleði og hlátur. Maður kynnist alltaf frábæru fólki alls staðar úr þjóðfélaginu. Ég segi allt- af: það er ekki áfangastaðurinn sem skiptir máli, eða að toppa tindinn, heldur ferðalagið og fólkið sem maður kynnist á leiðinni, samveran og félagsskapurinn.“ Hún segist vera einstaklega heppin að fá tækifæri til þess að vinna við áhugamálin sín, ástríðuna, og sér finnist í rauninni hún aldrei vera í vinnunni. „En auðvitað er þetta líka mikil ábyrgð og mikilvæg ákvarðanataka fyrir hverja ferð. Það er áríðandi að vera með haus- inn á réttum stað. Það getur oft verið vandmeðfarið að snúa við fyrr en seinna og meta aðstæður rétt. En við hjá FÍ erum alltaf með ör- yggið á oddinum.“ Gleymdi gönguskónum í bænum Fjallafólk sem fer ótroðnar slóðir lendir oft í áskorunum sem festast vandlega í minninu en sú sem Edith man best eftir gerðist bara við gal- opið farangursrýmið á langferðabíl. „Versta martröð leiðsögumanns- ins er að gleyma gönguskónum heima þegar haldið er í langferð. Það hefur gerst einu sinni og mun bara gerast einu sinni í mínu til- felli,“ segir hún og skellihlær. „Það síðasta sem ég segi við alla fyrir langferð er að tryggja að göngu- skórnir séu örugglega með í för.“ Edith uppgötvaði nefnilega sjálf, aðeins átta tímum fyrir brottför í fimm daga göngu með allt á bakinu um óbyggðir Íslands, að göngu- skórnir hefðu orðið eftir í bílskotti í Reykjavík, í aðeins 455 kílómetra fjarlægð. „Nú voru góð ráð dýr, hvernig í ósköpunum átti ég að redda þessu?“ segir hún og hlær. „Ekki gat ég sent hópinn leiðsögumanns- lausan í fimm daga ferð um óbyggð- ir Íslands. Ekki gat ég farið bara á strigaskónum, eða keyrt í bæinn og til baka, ekkert flug fáanlegt og engin búð í næsta nágrenni. Ég trúði eiginlega ekki að þetta væri að gerast!“ En forsjónin var á bandi Edithar því frændi hennar var á leiðinni úr bænum í sömu göngu og var bara kominn hálfa leið á áfangastað. Hann var alveg til í að snúa til baka drjúgan spöl til að mæta bróður Edithar sem tók að sér að vera einkabílstjóri Scarpa-skópars lang- an veg meðfram mestallri suður- strönd landsins. Ekki áfangastaðurinn Ferðalög snúast ekki um að komast á áfanga- stað heldur að njóta ferðalagsins. Hamingjusöm Hér er Edith Gunnars- dóttir í góðum félagsskap. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020 Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2 Kíktu á hudfegrun.is fyrir nánari upplýsingar. Húðslípun Fílapenslar og óhrein húð? Húðslípun er áhrifarík húðmeðferð sem hreinsar vel óhreinindi úr ysta lagi húðar og gerir áferð húðar fallegri og sléttari. • Vinnur burt unglingabólur • Hreinsar óhreina húð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.