Morgunblaðið - 26.03.2020, Page 39
andi og ein besta útivist sem við
getum stundað allt árið. Að fara í
fjallgöngu er allra meina bót og það
er ekkert sem toppar útsýni af ís-
lenskum fjöllum. Það skiptir eig-
inlega ekki máli hvernig viðrar, það
hefur enginn sagt eftir göngu: ég
hefði ekki átt að fara í göngu í dag
vegna veðurs. Manni líður alltaf vel
eftir göngu,“ segir Edith og er
ákveðin í tali.
Hún segir að fjöllin færi sér jarð-
tengingu, hún finni meiri skýrleika,
upplifi vellíðan og sofi betur eftir
fjallgöngu. „Það er t.d ekkert eins
dásamlegt og að hugleiða úti í ís-
lenskri náttúru, það er svo mikil og
sterk tenging sem maður finnur
fyrir strax því við eigum svo
óspillta náttúru sem er uppfull af
jákvæðri orku. Þess vegna finnst
mér jóga og göngur passa einstak-
lega vel saman. Ástríða mín er að
hjálpa öðrum að sjá ljósið og leiðina
í átt að jafnvægi, vellíðan og innri
friði,“ segir hún og hugsar eitt and-
artak. „Ekki setja lykilinn að ham-
ingjunni í vasann hjá öðrum, því
lykillinn að hamingjunni býr innra
með þér.“
Þurfum að vera hvetjandi
og sýna skilning
Edith hefur vegna menntunar og
starfs síns sem ráðgjafi og jóga-
kennari skoðað mannlegt atferli í
meira en áratug og unnið með fólki
úr öllum víddum samfélagsins. „Sú
reynsla nýtist mér í allri leiðsögn,
við fáum alls konar fólk í ferðir til
okkar í misjöfnu ástandi, bæði and-
lega og líkamlega,“ segir hún. „Við
þurfum að vera hvetjandi, hafa
áhuga á félagslegum samskiptum,
sýna samvinnu í verki og skilning
og hafa áhuga á velferð og heilsu
fólks.“
Edith segir að öll reynsla sé góð,
fyrir lífið sjálft og ekki síður fyrir
starf leiðsögumannsins. „En nám
mitt í sálfræði,“ segir hún, „og í
heilbrigðisvísindum og jógafræðum
hefur gefið mér betri skilning á
hugsun, hegðun og tilfinningum
fólks. Öll ferðalög snúast um mann-
legar tilfinningar og þá er nú gott
að vera með góðan grunn sem get-
ur nýst manni endrum og eins.“
Með náttúruna tengda
í taugakerfið
Þótt Edith sé af mölinni eða mal-
bikinu er hún ekkert sérstaklega
bundin steinsteypunni eða borg-
arlandinu tilfinningalega. Hún fékk
þennan þráð sem tengdi hana beint
í samband við náttúruna og sumar-
ið í sinni tærustu mynd með því að
fá að fara í sveit á sumrin hjá ætt-
ingjum.
„Ég náði strax tengingu við nátt-
úruna sem barn, það var eitthvað
svo heillandi við náttúruöflin og alla
þessa fjallasýn. Ég man eftir frels-
inu sem fylgdi því að fá að vera úti í
náttúrunni allan liðlangan daginn,
hlaupandi um í gúmmítúttum um
grasi vaxin tún, frjáls eins og
fuglinn.“
Spurð um uppáhaldsstaðina kem-
ur svarið snöggt. „Lónsöræfi,
Fjallabak og Langisjór!“ Og svo fer
hún auðvitað næst yfir í þann stað
sem er ekki bara vandlega merktur
á landakortum heldur líka andlega
merktur. „Snæfellsjökull og ná-
grenni eru líka í fremstu röð,“ segir
hún. „Það er einhver óútskýranleg
orka sem kemur frá jöklinum. Ef
maður dvelur í nágrenni við Snæ-
fellsjökul í lengri tíma finnur maður
þessi jákvæðu áhrif frá jöklinum
sem orsaka vellíðan á svo margan
hátt. Enda er stundum talað um að
Snæfellsjökull sé ein af sjö orku-
stöðvum heimsins. Ég hef unnið við
að ganga upp á Snæfellsjökul yfir
sumartímann með ferðamenn og
þvílík vellíðan í þeirri vinnu. Þótt
maður færi upp á jökulinn nokkra
daga í viku var maður ekkert að spá
í það vegna þess að manni leið alltaf
svo vel. Bárður Snæfellsás hugsar
líka vel um sína. Ég gæti örugglega
búið á Arnarstapa miðað við hvað
manni líður vel þar.“
Edith er eins og allir fjallaleið-
sögumenn verndari og talsmaður
íslenskrar náttúru. „Við erum hluti
af henni og ég vona að fólk sé farið
að finna meira fyrir aðdráttarafli
hennar. Það hefur gildi fyrir okkur
mannfólkið að komast í kyrrð og
frið í ósnortna náttúru þar sem
hægt er að njóta án truflana og
sums staðar jafnvel án vélknúinna
ökutækja.“
Aldrei leiðinlegt fólk á fjöllum
„Það er aldrei leiðinlegt fólk á
fjöllum,“ segir Edith spurð hvað
heilli mest við að starfa sem far-
arstjóri. Og svo hlær hún.
„Þetta er meiriháttar og ótrúlega
þroskandi og gefandi starf. Það er
oft mikið um gleði og hlátur. Maður
kynnist alltaf frábæru fólki alls
staðar úr þjóðfélaginu. Ég segi allt-
af: það er ekki áfangastaðurinn sem
skiptir máli, eða að toppa tindinn,
heldur ferðalagið og fólkið sem
maður kynnist á leiðinni, samveran
og félagsskapurinn.“
Hún segist vera einstaklega
heppin að fá tækifæri til þess að
vinna við áhugamálin sín, ástríðuna,
og sér finnist í rauninni hún aldrei
vera í vinnunni. „En auðvitað er
þetta líka mikil ábyrgð og mikilvæg
ákvarðanataka fyrir hverja ferð.
Það er áríðandi að vera með haus-
inn á réttum stað. Það getur oft
verið vandmeðfarið að snúa við fyrr
en seinna og meta aðstæður rétt.
En við hjá FÍ erum alltaf með ör-
yggið á oddinum.“
Gleymdi gönguskónum
í bænum
Fjallafólk sem fer ótroðnar slóðir
lendir oft í áskorunum sem festast
vandlega í minninu en sú sem Edith
man best eftir gerðist bara við gal-
opið farangursrýmið á langferðabíl.
„Versta martröð leiðsögumanns-
ins er að gleyma gönguskónum
heima þegar haldið er í langferð.
Það hefur gerst einu sinni og mun
bara gerast einu sinni í mínu til-
felli,“ segir hún og skellihlær. „Það
síðasta sem ég segi við alla fyrir
langferð er að tryggja að göngu-
skórnir séu örugglega með í för.“
Edith uppgötvaði nefnilega sjálf,
aðeins átta tímum fyrir brottför í
fimm daga göngu með allt á bakinu
um óbyggðir Íslands, að göngu-
skórnir hefðu orðið eftir í bílskotti í
Reykjavík, í aðeins 455 kílómetra
fjarlægð.
„Nú voru góð ráð dýr, hvernig í
ósköpunum átti ég að redda
þessu?“ segir hún og hlær. „Ekki
gat ég sent hópinn leiðsögumanns-
lausan í fimm daga ferð um óbyggð-
ir Íslands. Ekki gat ég farið bara á
strigaskónum, eða keyrt í bæinn og
til baka, ekkert flug fáanlegt og
engin búð í næsta nágrenni. Ég
trúði eiginlega ekki að þetta væri
að gerast!“
En forsjónin var á bandi Edithar
því frændi hennar var á leiðinni úr
bænum í sömu göngu og var bara
kominn hálfa leið á áfangastað.
Hann var alveg til í að snúa til baka
drjúgan spöl til að mæta bróður
Edithar sem tók að sér að vera
einkabílstjóri Scarpa-skópars lang-
an veg meðfram mestallri suður-
strönd landsins.
Ekki áfangastaðurinn
Ferðalög snúast ekki
um að komast á áfanga-
stað heldur að njóta
ferðalagsins.
Hamingjusöm Hér
er Edith Gunnars-
dóttir í góðum
félagsskap.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Kíktu á hudfegrun.is fyrir nánari upplýsingar.
Húðslípun
Fílapenslar og óhrein húð?
Húðslípun er áhrifarík húðmeðferð sem
hreinsar vel óhreinindi úr ysta lagi húðar og
gerir áferð húðar fallegri og sléttari.
• Vinnur burt unglingabólur
• Hreinsar óhreina húð