Morgunblaðið - 26.03.2020, Page 42
Páll Óskar hertekur stúdíó K100 í
samkomubanninu og færir lands-
mönnum alvöru Pallaball heim í
stofu. Frábær partý-tónlist, skrítin
tónlist og svo auðvitað lögin hans
Palla saman í einum graut. Siggi
Gunnars verður Palla til halds og
trausts í stúdíóinu.
Eins og beljur að vori
„Ég get lofað því að þegar þetta
er komið og yfirstaðið þá eigum við
eftir að hlaupa út eins og beljur að
vori. Við eigum öll eftir að taka bel-
judansinn. En þangað til verðum
við að vera skapandi og spá í því
hvað við getum gert á meðan. Þetta
Pallaball í beinni er eitthvað sem ég
get gert á meðan,“ sagði Páll Óskar
í samtali við K100.is. Segist Páll
ætla að „dressa sig upp“ nákvæm-
lega eins og hann sé að fara á ball.
„Ég ætla bara að hafa gaman í
stúdíóinu og ætla að spila laugar-
dagslög sem koma mér í gírinn. Ég
passa upp á það að hlustendur séu
að fara að heyra tónlist sem þeir
venjulega heyra aldrei í útvarpi.
Það er aðalpælingin,“ sagði hann.
Spilar „fríkuð“ lög
„Ég er að fara að spila lög sem
eru spiluð meira á djamminu en í
útvarpi. Lög sem eru kannski svo-
lítið „út úr kortinu“ og „fríkuð“.
Sjaldheyrt „stöff“ sem ég gref úr
mínu einkasafni,“ bætti hann við.
„Þetta getur verið mjög
skemmtilegt. Þú ert að fara að fá
stemningu sem þú færð ekki á
hverjum degi í útvarpi.“
rosa@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Páll Óskar með Palla-
ball í beinni á K100
Páll Óskar mun hertaka
stúdíó K100 næsta laug-
ardag og færa lands-
mönnum alvöru Palla-
ball heim í stofu og létta
fólki lundina meðan á
samkomubanni stendur.
Samkomubann Páll Óskar er vanur að
hafa eitthvað fyrir stafni allar helgar en
hefur þurft að hægja á sér líkt og aðrir
skemmtikraftar vegna samkomubannsins.
Fjörið hefst næst-
komandi laugardag, kl
21, í beinni útsend-
ingu í útvarpinu, sjón-
varpinu og á netinu.
Horfðu eða hlustaðu
og fáðu Pallaballið
beint heim í stofu.
Hlustendur geta verið
í beinu sambandi í
síma 571-1111.
Pallaball Páll Óskar
mun skemmta lands-
mönnum á meðan á
samkomubanninu
stendur og halda al-
vöru Pallaball í stúdíói
K100 á laugardag.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020
Þú getur verslað
linsur, gleraugu
með styrk og
margt fleira á
eyesland.is
Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu!
Gleraugun heim!
Eyesland gleraugnaverslun
www.eyesland.is
Gamanleikkonan Edda
Björgvins sló í gegn á opn-
um fyrirlestri sínum Húmor
á óvissutímum sem streymt
var í beinni útsendingu á
þriðjudaginn var í gegnum
Endurmenntun Háskóla Ís-
lands.
Edda ræddi við Loga
Bergmann og Sigga Gunn-
ars í Síðdegisþættinum fyrir
fyrirlesturinn um mikilvægi
þess að halda í húmorinn á
tímum sem þessum þegar
heimurinn stendur frammi
fyrir heimsfaraldri.
„Fólki finnst stundum
pínulítið gert lítið úr ástand-
inu með því að halda
gleðinni og húmornum á
lofti en fyrirsögnin er auð-
vitað að við verðum að gráta
líka. Við verðum að eiga ein-
hvern að sem við getum trú-
að fyrir ótta okkar og kvíða,
af því að þá er allt miklu
léttbærarara,“ sagði Edda.
Næsta skref að skima
eftir ljósinu
„Næsta skref er svo að skima eftir
ljósinu þegar maður er búinn að gefa
sér tíma til að þjást eins og maður
þarf að gera. En maður getur ekki
dvalið þar vegna þess að þá er maður
bara veikur. Það er kjarninn í þessu
með húmorinn.
Sagðist hún vilja hvetja fólk til að
nota húmorinn í hversdagslífinu og fá
það til að reyna að koma auga á það
spaugilega og skondna í ómerkileg-
ustu hlutum en einnig í þeim hrylli-
legu.
Pínum okkur ekki
til að vera hress
„Við getum ekki pínt okkur í að
vera alveg óstjórnlega hress og kát
og glöð af því að við erum svo ofsa-
lega jákvæð, með öllum stórum stöf-
um. En að kveikja á húmorkast-
aranum og sjá hið spaugilega, þótt
það sé ekki nema í 5 mínútur. Að fara
inn á netið og finna eitthvað sem mað-
ur getur hlegið að. Þá er svo mikið
flæði af vellíðunarhormónum; endorf-
íni, dópamíni, oxytósíni og seratóníni
sem styrkja ónæmiskerfið verulega.“
rosa@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Húmoristi Edda Björgvins telur húmor sér-
staklega mikilvægt tól á óvissutímum eins og
heimurinn stendur frammi fyrir núna.
Kveikjum á húm-
orkastaranum
Edda Björgvinsdóttir ræddi á dögunum við Loga
Bergmann og Sigga Gunnars í Síðdegisþættinum um
mikilvægi þess að halda í húmorinn á óvissutímum
en mörgþúsund manns fylgdust með fyrirlestri henn-
ar um málefnið sem streymt var á þriðjudaginn var.