Morgunblaðið - 26.03.2020, Blaðsíða 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020
50 ára Kristín er Borg-
nesingur, fædd og upp-
alin í Borgarnesi og
hefur alltaf búið þar.
Hún er með diplóma í
verslunarstjórnun frá
Háskólanum á Bifröst
og lauk námi frá Skrif-
stofu- og tölvuskólanum. Kristín er versl-
unarstjóri Nettó í Borgarnesi.
Maki: Gunnar Viðar Gunnarsson, f. 1969,
sjálfstætt starfandi húsasmiður.
Synir: Bjarki Þór, f. 1991, Birkir Már, f.
1994, og Bjarni Freyr, f. 2001, Gunnars-
synir. Sonardóttir er Emilía Lexí Birkis-
dóttir.
Foreldrar: Ólafur Axelsson, f. 1944,
húsasmiður með eigið fyrirtæki, og
Jóhanna Þórðardóttir, f. 1946, húsmóðir.
Þau eru búsett í Borgarnesi.
Kristín Ólafsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Stilltu þig um að reyna að tengjast
einhverjum sem er alveg ófær um að binda
sig. Allt er gott í hófi, líka líkamsrækt, ekki
keyra þig út þótt þú hafir allan heimsins
tíma.
20. apríl - 20. maí
Naut Einhverjar spurningar kunna að vakna
hjá þér um heilsufar þitt. Maður er manns
gaman. Það er góð hugmynd að hringja í
gamla vini á þessum skrítnu tímum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nýlegar uppákomur á vinnustað
hafa orðið til að ergja þig Ekki snúa sólar-
hringnum við þótt þú getir það með góðu
móti.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Vertu opin/n fyrir breytingatillögum
annarra og hikaðu ekki við að setja fram þín-
ar eigin hugmyndir. Sýndu fólki fram á að þú
átt sama rétt og aðrir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu þér ekki bregða þótt gömul mál
dúkki upp og þú þurfir að eyða tíma í að
koma þeim á hreint. Græddur er geymdur
eyrir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert í skapi til að kynnast nýju fólki
og sjá hvað það leiðir af sér. Ef þú nýtur þess
sem þú ert að gera, líður tíminn einfaldlega á
methraða.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er góð regla að reyna að læra eitt-
hvað nýtt á hverjum degi. Þér er óhætt að
ráðgera stutt ferðalög og frí.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ekki er víst að þú kærir þig um
eitthvað sem þú hefur nýverið eignast og
hélst að þú gætir ekki lifað án. Ekki sóa tím-
anum í nöldur og þras.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ekki láta gagnrýni annarra draga
þig niður í dag. Ræddu fjáröflunarhugmyndir
þínar við aðra og kannaðu viðbrögð þeirra.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Saklaust daður neyðir þig til að
koma fram af einlægni. Vertu opin/n fyrir
hugmynd um nýtt skipulag og breytingar
heima fyrir.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er spenna á milli þín og þíns
heittelskaða. Þér líður vel í fámenni en þú
verður að passa þig á að einangra þig ekki.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þó að hugmynd þinni sé ekki sérlega
vel tekið er ekki þar með sagt að hún sé
vond. Það er ekkert slæmt við það að leiðast
af og til.
Þ
órður Grétar Árnason er
fæddur 26. mars 1950 í
Reykjavík og ólst upp í
Reykjavík, Gnúpverja-
hreppi og á Stokkseyri.
Hann var í sveit í tvö sumur, 1963 og
1964, í Miðfirði á bænum Fosskoti.
„Þar var húsakosturinn torfbær og
voru allir búskaparhætti fornir, allt
slegið með orf og ljá. Þá var farið
einu sinni á ári í kaupstað til að gera
innkaup fyrir árið.“
Þórður gekk í grunnskóla Stokks-
eyrar en var síðan á sjó frá Stokks-
eyri þegar hann var 15 og 16 ára.
Hann hóf nám í húsasmíði hjá Kaup-
félagi Árnesinga (KÁ) haustið 1967
og var í Iðnskólanum á Selfossi.
Hann fékk sveinsbréf 1970 og meist-
arabréf 1973.
Þórður og Vigdís kona hans hófu
búskap á Selfossi 1970 og vann Þórð-
ur hjá KÁ þar til hann hóf eigin at-
vinnurekstur 1975. Hann rak einnig
bílasölu og söluturn á árunum 1986
og 1987. Þórður hefur sinnt við-
haldsvinnu fyrir Selfosskaupstað
sem síðar varð Sveitarfélagið Ár-
borg í yfir 40 ár ásamt annarri vinnu
fyrir fyrirtæki og einstaklinga. „Ég
hef byggt nokkur hús á Selfossi og
flutti hús sem var byggt 1934 frá
Austurvegi í Hrísholt og gerði það
síðan upp. Ég byggði einnig þrjú
einbýlishús í Ólafsvík og skipti um
þak á kirkjunni þar, en mestöll vinn-
an hefur verið viðhaldsvinna fyrir
sveitarfélögin hér á Selfossi.“
Þórður var í Leikfélagi Selfoss á
árunum 1982 til 1990, gjaldkeri og
jafnframt starfandi formaður fyrir
Knattspyrnudeild UMF Selfoss
1984 til 1986. Hann var í aðalstjórn
UMF Selfoss frá 1986 til 1998, þar af
formaður 1996 til 1998. Hann sat í
stjórn Héraðssambands Skarphéð-
ins frá 1986 til 1991 og var um tíma
framkvæmdastjóri. Hann var í
Lionsklúbbi Selfoss um tíma og
gekk í Oddfellow-stúkuna Hástein
nr. 17 árið 2010 og hefur gegnt ýms-
um trúnaðarstörfum þar. Hann hef-
ur setið í sóknarnefnd Selfosskirkju
frá 2014. „Áhugamál mín eru félags-
störfin fyrst og fremst, ég er ekki í
golfi eða neinu slíku.“
Fjölskylda
Eiginkona Þórðar er Vigdís
Hjartardóttir, f. 2.3. 1951, húsmóðir
og starfsmaður á leikskóla. For-
eldrar hennar: Hjónin Hjörtur Leó
Jónsson, f. 26.5. 1918, d. 24.4. 2007,
hreppstjóri og garðyrkjubóndi á
Eyrarbakka, og Sesselja Ásta Er-
lendsdóttir, f. 28.9. 1921, d. 2.4. 2017,
húsfrú og verkakona á Eyrarbakka.
Börn Þórðar og Vigdísar eru 1)
Þórdís Erla Þórðardóttir, f. 15.10.
1970, snyrtifræðingur, búsett á Sel-
fossi. Eiginmaður hennar var Guð-
jón Ægir Sigurjónsson, f. 4.1. 1971,
d. 5.1. 2009. Sambýlismaður Þórdís-
ar er Sigurlaugur Birgir Ólafsson, f.
14.10. 1968, prentsmiður og á hann
tvær dætur. Börn Þórdísar og Guð-
Þórður Grétar Árnason byggingameistari – 70 ára
Stórfjölskyldan Þórður og Vigdís ásamt börnum sínum og barnabörnum. Talið frá vinstri: Vigdís, Þórdís Erla,
Vigdís Halla, Árni Leó, Þórður Grétar, Hjörtur Leó og Harpa Hlíf.
Áhugamálin eru félagsmálin
Fjölskyldan Þórður, Vigdís, Þórdís Erla og Árni Leó.
30 ára Erna ólst upp
í Kópavogi til níu ára
aldurs en flutti þá í
Árbæinn og hefur bú-
ið þar síðan. Hún er
með BS-gráðu frá Há-
skóla Íslands og
meistara gráðu frá
Erasmus Universtity í Rotterdam í Hol-
landi. Erna er aðalhagfræðingur Arion
banka og situr í fagráði Endurmennt-
unar HÍ.
Maki: Guðjón Hlíðkvist Björnsson, f.
1991, tölvunarfræðingur hjá
MainManager.
Foreldrar: Ester Harðardóttir, f. 1965,
vinnur á skrifstofu Bónuss, búsett í
Reykjavík, og Sverrir Einarsson, f. 1959,
útfararstjóri hjá Útfararstofu Íslands,
búsettur í Reykjavík.
Erna Björg Sverrisdóttir
Til hamingju með daginn
Við erum sérfræðingar
í malbikun
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is