Morgunblaðið - 26.03.2020, Qupperneq 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2020
Bræðurnir Josh og BennySafdie hafa leikstýrtnokkrum myndum á ferlisínum en vöktu fyrst
meiri háttar athygli með myndinni
Good Time sem kom út árið 2017.
Good Time var dramatísk hasar-
mynd með Robert Pattinson í aðal-
hlutverki og fjallaði um ungan smá-
krimma sem reynir að fá bróður
sinn lausan úr fangelsi og lendir í
ýmsum hremmingum. Myndin vakti
sérstaklega athygli fyrir mjög af-
gerandi stíl. Atburðarásin er ofsa-
fengin og óþægileg, sem er undir-
strikað með hröðum klippingum og
ágengri kvikmyndatöku. Þá er áferð
myndarinnar afar sérstök, hún er
skotin á filmu og litirnir eru æpandi
skarpir, stundum nánast óraunveru-
legir, sem gefur myndinni sýkadel-
ískt yfirbragð.
Þessi höfundareinkenni birtast öll
í nýjustu mynd bræðranna, Uncut
Gems, sem framleidd er af Netflix
og er aðgengileg á streymisveitunni.
Myndin fjallar um útsmogna skart-
gripasalann Howard Ratner, sem
svífst einskis þegar kemur að því að
græða peninga. Hann trúir statt og
stöðugt á þá speki að maður þurfi að
eyða peningum til að græða peninga
sem hefur sökkt honum í ansi djúpa
skuldasúpu sem hann er einhvern
veginn alltaf alveg á leiðinni að
synda upp úr en hefur ekki tekist
það enn. Nú er hann með áætlun.
Hann hefur keypt hnefastóran óslíp-
aðan ópalstein frá Eþíópíu og skráð
hann á uppboð, þar sem hann reikn-
ar með að tífalda fjárfestinguna og
ganga frá borði með milljón dali.
Þegar Demany, samstarfsmaður
Howards sem sér um að trekkja að
vellauðuga viðskiptavini, mætir með
heimsfræga körfuboltamanninn
Kevin Garnett í skartgripabúðina,
stenst Howard ekki mátið og sýnir
honum ópalsteininn. Kevin heillast
af steininum, það er líkt og steinninn
hneppi hann í álög með fegurð sinni,
og hann heimtar að fá að kaupa
hann. Howard þvertekur fyrir það,
steinninn sé skráður á uppboð og
það sé ómögulegt að hrófla við því.
Hann samþykkir þó að „lána“ Kevin
steininn gegn tryggingu. Þegar
kemur að því að endurheimta stein-
inn reynist það, eins og við var að
búast, þrautinni þyngra og upphefst
brjálæðisleg atburðarás sem teygir
anga sína víða.
Stanslaus taugaveiklun
Ímyndaðu þér að þú sitjir við matar-
borð með nokkrum gestum. Þegar
gestgjafinn kemur með matinn á
stóru fati skrikar honum fótur. Allir
gestirnir standa upp í einu í tilraun
til að bjarga gestgjafanum og matn-
um, sem er í þann mund að detta í
gólfið. Allir góla upp yfir sig, tala
hver yfir annan, það sullast úr glös-
um og hnífapör detta í gólfið með
háu glamri. Samt tekst ekki að
bjarga fatinu, maturinn er ónýtur.
Að horfa á Uncut Gems er svolítið
eins og upplifa svona augnablik
stanslaust í tvo klukkutíma. Það er
stórkostlega sterk upplifun og hún
er ekki endilega notaleg.
Handrit myndarinnar er ansi
gott. Aragrúi upplýsinga kemur
fram, sem er stundum ruglandi en
allt skýrist að lokum. Þetta er stöð-
ug keyrsla og persónurnar, sem eru
margar og orðljótar, tala hver ofan í
aðra belg og biðu og það er mikið af-
rek að ná að miðla skýrri frásögn
með þessum hætti. Klippingin og
kvikmyndatakan hlaða upp enn
sturlaðri stemningu og tónlist hins
frábæra Oneothrix Point Never set-
ur síðan punktinn yfir i-ið.
Það er svo ópalsteinninn, óslípaði
eðalsteinninn sem kjarnar inntak
sögunnar. Uncut Gems fjallar um
fólk sem er á einn eða annan hátt
fársjúkt af óskhyggju og græðgi.
Steinninn, með sinni margslungnu
litadýrð, verður táknrænn fyrir
drauminn sem er alltaf utan seil-
ingar, drauminn um auð, völd og
afrek, sem persónunar vaða eld og
brennistein til að öðlast.
Sandler þverstæðan
Adam Sandler leikur aðalhlutverkið
og ber myndina á herðum sér. Hann
er frámunalega góður í þessari
mynd og frammistaða hans hér er
rækileg áminning um að þegar
Sandler drullast til að gera eitthvað
almennilegt þá gerir hann það vel,
undantekningalaust. Þetta hefur
sannast í myndum eins og Punch-
Drunk Love (2002) og The
Mayerowitz Stories (2017). Howard
er margslunginn karakter, hann er
siðlaus og óþolandi en samt á ein-
hvern hátt brjóstumkennanlegur.
Hann er ekki bara óslípaður dem-
antur, hann er óheflaður grjóthnull-
ungur sem þyrfti að höggva í marga
hluta til að finna eitthvað verðmætt.
Áhorfandinn hefur því gríðarlega
blendnar tilfinningar í hans garð.
Ég hef gríðarlega blendnar til-
finningar í garð Adams Sandler.
Sem gagnrýnandi og kvikmynda-
áhugakona á mjög margar bíómynd-
ir af öllu tagi. Þær eru ekki allar
góðar en mér þykir alls ekki hræði-
legt horfa á lélegar myndir, mér
leiðist það ekkert endilega. Það er
hins vegar ein tegund bíómynda
sem ég kann illa við og það eru
myndir sem gerðar eru af engum
heilindum.
Braskbíó (e. exploitation cinema)
getur verið gert af miklum heil-
indum. Bjánalegar gamanmyndir og
hrottalegar limlestingamyndir geta
verið stórkostlegar en þá skiptir
máli að fólkið sem stendur að baki
þeim geri myndina út frá réttu
ástæðunum, hafi í það minnsta snefil
af þrá til að miðla sögu, hreyfa við
fólki eða skemmta því.
Þegar það sést á öllu að enginn í
framleiðsluteyminu var að reyna að
gera gott stöff, bara söluvænlegt
stöff, þegar mynd er búin til í þeim
eina tilgangi að plata fólk til kaupa
miða, er mér misboðið. Adam Sand-
ler hefur byggt veldi sitt á þess hátt-
ar kvikmyndagerð. Hann fjölda-
framleiðir grínmyndir og stjörnu-
ferjur (e. star vehicles) hjá
framleiðslufyrirtæki sínu Happy
Madison, sem eru gjarnan gerðar
fyrir örfáa tugi milljóna og hala inn
hundruð milljóna. Happy Madison
gerir endrum og sinnum sæmilega
fyndnar og sniðugar myndir en
flestar eru þær svívirðilega lélegar.
Þess vegna er Adam Sandler hár-
rétti maðurinn í hlutverk Howards,
hann er snjall og hæfileikaríkur en
hann er í líka útsmoginn aurapúki,
og myndin fjallar einmitt um það
hvernig fólk gerir viðurstyggilega
hluti í nafni græðginnar.
Með öndina í hálsinum
Uncut Gems er svakaleg þeysireið,
svo svakaleg að rétt er að vara við-
kvæma við áhorfi. Ekki af því að hún
sé svo óhugnanleg eða ofbeldisfull
(sem hún reyndar er), hún er fyrst
og fremst bara svo rosalega tauga-
trekkjandi að maður er með öndina í
hálsinum allan tímann. Með þessari
mynd stimpla Safdie-bræðurnir sig
enn frekar inn sem einhverjir
áhugaverðustu kvikmyndagerðar-
menn samtímans.
Spennuþrungin Að horfa á kvikmyndina Uncut Gems er sterk upplifun og langt frá því að vera notaleg.
Netflix
Uncut Gems bbbbm
Leikstjórn: Josh og Benny Safdie.
Handrit: Ronald Bronstein, Josh og
Benny Safdie. Kvikmyndataka: Darius
Khonji. Klipping: Ronald Bronstein og
Benny Safdie. Aðalhlutverk: Adam
Sandler, LaKeith Stanfield, Kevin Gar-
nett, Julia Fox, Idina Menzel.
Bandaríkin, 2019. 135 mín.
BRYNJA
HJÁLMSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Margt er glysið í mangarans búð
Tónlistarmaðurinn Manu Dibango
frá Kamerún, ein skærasta stjarna
dægurtónlistar Afríku síðustu ára-
tugi, lést á sjúkrahúsi í París á
þriðjudag, 86 ára að aldri.
Covid-19--sjúkdómurinn varð hon-
um að aldurtila.
Dibango varð þekktur fyrir ein-
staka blöndu djass, fönks og hefð-
bundinnar tónlistar frá vesturhluta
Afríku. Hann var fæddur í Kamer-
ún en gekk í gagnfræðaskóla í
Frakklandi þar sem hann lærði líka
á píanó, víbrafón og saxófón sem
varð hans aðalhljóðfæri. Hann rifj-
aði upp síðar að hans helstu hetjur
á þeim árum í Frakklandi voru hör-
undsdökkir hnefaleikakappar eða
bandarískir djassmenn sem hann
samsamaði sig með.
Dibango vakti fyrst athygli sem
liðsmaður Afrika Jazz-sveitarinnar,
sem lék víða um Evrópu en síðar
fór hann að koma fram undir eigin
nafni og semja tónlist þar sem hann
blandaði evrópskum og afrískum
áhrifum saman með einstökum
hætti. Hann lék mikið og víða opin-
berlega og átti í samstarfi við lista-
menn á borð Hugh Masekela, Fela
Kuti og Herbie Hancock. Þá hafa
rapparar eins og Busta Rhymes og
Chemical Brothers unnið með lög
hans.
AFP
Vinsæll Manu Dibango á tónleikum í Abidjan fyrir tveimur árum.
Veiran varð Manu
Dibango að aldurtila
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Ertu klár fyrir
veturinn?
Við hreinsum úlpur, dúnúlpur,
kápur og frakka