Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.03.2020, Blaðsíða 2
Hvernig tókst til á sunnudaginn að hafa helgistund á
netinu?
Það tókst mjög vel. Helgistundin var send út á messutíma og var svo að-
gengileg á netinu. Það voru 2.200 manns sem horfðu á, sem sýnir okkur
að fólk kann að meta framtakið. Að öllum líkindum munum við halda
þessu áfram eftir að COVID-veiran verður horfin því það er alltaf fólk
sem á ekki heimangengt. Tónlistin var al-
veg frábær; við vorum með einsöngvara úr
kór Lindakirkju, auk þess sungu Regína
Ósk og Svenni. Svo munum við prestarnir
skiptast á að vera með hugvekju og þess má
geta að næst verður messunni líka streymt á
visir.is, auk heimasíðu okkar á á Facebook.
Hvað með sunnudagaskólann?
Í samstarfi við kirkjuna verða þættir fyrir börnin
sem prestarnir Guðni Már Harðarson og Guð-
mundur Karl Brynjarson hafa búið til. Þeir eru núna að semja nýja þætti,
skrifa og taka upp, ásamt Regínu Ósk og Svenna en Þorleifur Einarsson leik-
stýrir.
Hvernig gengur starfið fyrir sig nú á þessum skrítnu tímum?
Nú skiptumst við á að mæta til vinnu svo við lendum ekki öll í sóttkví á sama
tíma. Auk þáttagerðarinnar erum við líka mikið að hringja í eldri borgara og
heyra í þeim hljóðið.
Hvernig er hljóðið í þeim?
Það er alls konar, en allir eru mjög þakklátir fyrir að verið sé að hugsa til
þeirra og fylgjast með þeim.
Hvað myndir þú vilja segja við sóknarbörnin og aðra
landsmenn?
Að þetta sé tímabundið. Þetta varir ekki að eilífu. Og að fólk eigi að fara vel
með sig.
Morgunblaðið/Eggert
DÍS GYLFADÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Hugvekja á
netinu
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.3. 2020
Ég ákvað að hlífa ykkur um stund við kórónuveirunni. Það væri að bera íbakkafullan lækinn að skrifa enn einn pistilinn um þann vágest. En kór-ónuveira eða ekki, öll þurfum við að huga að heilsunni, og kannski nú
sem aldrei fyrr þegar fólk er lokað inni og þarf á hreyfingu og hollustu að
halda.
En það er oft ekkert létt að rata hinn gullna meðalveg. Ég verð að viður-
kenna að ég er orðin heldur ringluð. Úr öllum áttum fæ ég ráð sem eiga að
tryggja það að ég verði hamingjusöm í kjörþyngd. Meira að segja er Facebook
alveg viss um að ég þurfi að missa
nokkur kíló og auglýsir stanslaust
einhverja töframegrunarkúra; og jú
líka nærbuxur fyrir konur eins og
mig sem klárlega eru með þvagleka
sökum aldurs! Mikið að ég þurfi ekki
bara líka fullorðinsbleiur!
En alla vega; þetta glymur í eyrum
alla daga: Hreyfðu þig, en passaðu að
ofkeyra þig ekki. Teldu kaloríur, alls
ekki telja kaloríur. Vigtaðu þig reglu-
lega, alls ekki horfa á vigtina. Taktu
lýsi, alls ekki taka lýsi. Drekktu
smoothies, alls ekki drekka smoot-
hies. Ekki borða fitu, borðaðu endi-
lega fitu. Ekki borða kolvetni, alls
ekki sleppa kolvetnum. Ekki borða á milli mála, endilega nartaðu á milli mála.
Taktu reglulega inn eplaedik. Nei, hörfræolíu, svo gott fyrir húðina. Nei, sí-
trónuvatn á morgnana, nei annars, sítrónuvatn gerir ekkert fyrir þig. Drekktu
marga lítra af vatni á dag, eða alls ekki! Þú gætir sprungið! Taktu prótein í
duftformi, alls ekki taka inn prótein. Taktu vítamín, en alls ekki of mikið, það
skolast bara út. Ekki borða ost, hann er stórhættulegur andskoti. Ekki ætlarðu
að hafa spagettí í matinn? Ertu frá þér? Hvítt hveiti er eitur, og sykur enn
verri. Ekki setja sykur í kökur, settu gervisykur. Gervisykur er óhollur, notaðu
hunang. Hunang telur líka kaloríur. Leyfðu þér eina og eina kökusneið, sýndu
nú staðfestu! Borðaðu baunir í öll mál, baunir eru svo hitaeiningaríkar. Og gas-
myndandi. Borðaðu fisk en alls ekki eldislax og túnfisk. Báðir fullir af vibba. Og
alls ekki búa til rjómasósur, ertu frá þér? Farðu á 8-16, ketó, lágkolvetna, 5-2,
Paleo, Miðjarðarhafskúrinn, borðaðu eitt greip fyrir hverja máltíð. Borðaðu
hvítkál í öll mál. Hættu að borða kjöt, vertu vegan, það er svo geggjað. Ekki
vera of þung, ekki vera of létt, vertu passleg. Elskaðu þig eins og þú ert, auka-
kíló og allt. Þú er alveg fín.
Er það skrítið að maður sé ringlaður stundum?
Ég er hætt að hlusta á allt þetta kjaftæði. Ég veit hvað er hollt og hvað er
óhollt og ætla bara að hlusta á sjálfa mig. Og ég er ekki með þvagleka!
Með þvagleka
í megrun
Pistill
Ásdís
Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’ Facebook auglýsirstanslaust einhverjatöframegrunarkúra; og júlíka nærbuxur fyrir konur
eins og mig sem klárlega
eru með þvagleka sökum
aldurs!
Íris Eiríksdóttir
Nei. Ég starfa ein sjálfstætt við að
þrífa gardínur. Og það er nóg að
gera núna.
SPURNING
DAGSINS
Ert þú að
vinna
heima?
Eggert Snorri Guðmundsson
Nei, ég mæti til vinnu. Ég er í
slökkviliðinu og þar er búið að stúka
allt af og allt tekur nú lengri tíma.
Bryndís Hrönn Kristinsdóttir
Nei, ég mæti til vinnu. Það er búið
að skipta okkur í tvo hópa og ég
vinn annan hvern dag.
Jón Halldór Jónsson
Já. Það gengur mjög vel. Ég vinn
sjálfstætt og þarf lítið að nálgast
fólk.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og
umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Í Lindakirkju verða helgistundir sendar út á netinu. Eins verður sunnu-
dagaskóli starfræktur í formi þátta. Dís Gylfadóttir er ein þriggja presta
Lindakirkju. Upplýsingar má finna á lindakirkja.is og kirkjan.is.
TÆKNI A
FYRIR H
TVINNUMANNSIN
E I
www.alver.is S: 896 4040 LauraStar á Íslandi
LauraStar
er létt og
meðfærilegt og
þú ert fljótari
að strauja en
nokkru sinni
fyrr.
Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður
Við erum hér til að aðstoða þig! --
• Sérsmíðaðir skór
• Skóbreytingar
• Göngugreiningar
• Innleggjasmíði
• Skóviðgerðir
Erum með samning við
sjúkratryggingar Íslands
Tímapantanir í síma 533 1314