Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.03.2020, Side 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.03.2020, Side 10
Helgi Jóhannesson, lögfræðingur, er einn af þeim sem smitaðist í gönguskíðaferð. „Ég hef verið veikur síðan aðfaranótt miðvikudags fyrir rúmri viku og ákvað strax að fara í einangrun. Ég fékk svo staðfestingu á laugardagsmorgni. Ég er búinn að vera mjög slappur og með öll ein- kennin, þó að ég hafi ekki verið með háan hita. Við erum þrjú hér í einangrun; konan mín er smituð líka en sonurinn er einkennalaus. Þetta er auðvitað hundleiðinlegt og aðallega vegna þess hversu slappur og óupplagður ég hef verið. Ég hef ekki getað horft á sjónvarp eða lesið bók; ég móki bara,“ segir hann. „Ég hlakka til að losna við flensueinkennin og geta bara látið mér leiðast. Svo er ekki einu sinni gaman að liggja og éta sælgæti því ég er búinn að missa allt bragðskyn. En auðvitað eru margir verr á sig komnir.“ Fólkið sem er heima Yfir tíu þúsund Íslendingar halda sig alfarið heima þessa dagana. Sumir hafa greinst með kórónu- veiruna og eru í einangrun, aðrir eru í sóttkví vegna umgengni við smitaða og enn aðrir fara sjálfviljugir í sóttkví til að forðast smit. Ljósmyndari fór á stúfana og heimsótti fólkið sem er heima. Texti og ljósmyndir: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is N ú þegar þessi orð eru rituð lítur út fyrir að þriðjungur heimsins sé innilokaður heima hjá sér. Víða um heim eru útgöngubönn og annars staðar ströng samkomubönn, eins og hérlendis. Allt er það gert til þess að hægja á smiti hinnar alræmdu kórónuveiru sem fer nú eins og eldur í sinu um heimsbyggðina. Það bættist heldur betur í hóp þeirra innilokuðu í vikunni þegar allir Indverjar voru settir í útgöngubann, 1,3 milljarðar manna. Um allan heim eru götur auðar og verslun og túrismi er að leggjast af. Undarlegt er til þess að hugsa að heimurinn haldi í sér andanum um stund og bíði af sér storminn. Og þá er hvergi betra að vera heldur en heima. Veiran fer ekki í manngreinarálit og getum við öll átt von á því að annaðhvort smitast sjálf eða lenda í sóttkví. Tölur smitaðra hækka dag frá degi og sífellt fleiri þurfa að sæta einangrun eða sóttkví í tvær vikur. Inni- vera tekur á; ekki síst fyrir þá sem veikjast. Heilu fjölskyldurnar eru nú lokaðar inni og þurfa að reyna að halda einhvers konar rútínu, en ekki síður þurfa þær að halda í gleðina og húmorinn. Með myndavél að vopni, búinni afar langri aðdráttarlinsu, var bankað upp á hjá þessu fólki, þó ekki í bókstaflegri merkingu því tveggja metra reglan var virt. Fólkið sem blaðamaður heimsótti tók inniverunni með stóískri ró þótt það hlakkaði til að losna. Það kom í dyragættir eða glugga og var myndað úr fjarlægð. Síðar sló blaðamaður á þráðinn og aldrei þessu vant svöruðu allir við fyrstu hringingu. Eða eins og Árelía orðaði það: „Fólk er svo hrikalega glatt að heyra í einhverjum! Það er eintóm hamingja að taka símann!“ Sara Dögg Svanhildardóttir, bæj- arfulltrúi Garðabæjarlistans, veit ekki hvar hún smitaðist af kórónuveirunni. „Ég ákvað að taka þátt í úrtaki hjá Kára. Það kom mér mjög á óvart þegar ég fékk símtal tveimur dögum seinna að ég væri með kórónuveiruna. Það hafði ekki hvarflað að mér því ég hafði ekki verið innan um neinn sem hafði smitast. Ég hef ekki hugmynd hvar ég fékk þetta. Ég var ekki í útlöndum en ég fór á gönguskíðanámskeið á Ísafirði en á þeim tíma var það skilgreint sem hreint svæði. En þar voru hundrað konur saman komnar og ég veit um alla vega fjórar sem eru smitaðar,“ segir Sara sem er heima í einangrun og kona hennar í sóttkví. Sara segir að mjög margir hafi þurft að fara í sóttkví eftir að hún greindist. „Það var mjög skrítin tilfinning; eins konar sektarkennd. Þetta voru ekki bara vinir og fjölskylda heldur líka smiðir sem voru að vinna hér heima,“ segir hún. „Einangrunin gengur fáránlega vel, enn þá. Strax á þriðja degi fannst manni skrítið að sjá myndir af fólki sem var einhvers staðar saman; að það væri ekki að taka þessu nógu alvarlega. Maður verður mjög sjálfhverfur,“ segir hún og hlær. „En ég er heppin með það að ég er ekki lasin; bara verið með kvefskít. Svo er brjálað að gera í vinnunni. Ég og konan mín hittumst ekkert yfir daginn; erum báðar að vinna hvor í sínu herberginu og svo kallar hún annað slagið: „matur!“ Og þá setjumst við hvor við sinn endann á eldhúsborðinu.“ KÓRÓNUVEIRAN 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.3. 2020

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.