Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.03.2020, Síða 20
Þessi
skrúbbur
gerir
krafta-
verk. Hægt
er að
kaupa vör-
urnar á
www.lyfja.is
Ertu farin að vinna heima eða ert á degi 13 í
sóttkví? Hefur þú ekki farið úr náttfötunum síð-
an samkomubann var sett? Langar þig helst bara
að liggja uppi í sófa, borða sælgæti eða ertu farin
drekka þér til dægrastyttingar? Eru hendurnar á
þér að skrælna eftir allt handsprittið? Ertu kom-
in með rót því þú hefur ekki komist á hár-
greiðslustofu og eru gelneglurnar dottnar af? Ef
svo er þá er óþarfi að örvænta því hér koma
nokkur góð ráð úr heimi hégómavísindanna.
Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is
Ljósmynd/Colourbox
Þurrar hendur
Ef hendurnar á þér eru að skrælna eftir allt sprittið þarftu
að hlúa að þeim. Þú getur að sjálfsögðu borið á þig handá-
burð en kannski þurfa hendurnar aðeins meira. Ef þú ert
búin að þvo alla húð af höndunum og orðin
aum í naglaböndunum þá þarftu að gefa því
gaum. Bára Hafsteinsdóttir, snyrtifræðingur
hjá Lancôme, segir að best sé að ná sér í skál
og fylla hana af heitu vatni, eins heitu og þú
þolir og setja 2-3 msk. af hárnæringu út í.
„Láttu hendurnar liggja í þessu baði í um
það bil 20 mínútur og þerraðu þær vel, jafnvel
með grófu handklæði og nuddaðu naglaböndin
niður. Það er líka gott að venja sig á að nota
naglabursta og nudda hraustlega yfir nagla-
böndin, til dæmis í hverri sturtuferð. Ef þetta er
gert reglulega verður þú aldrei í vandræðum
með ofvaxin naglabönd, neglurnar vaxa
hraðar og eru heilbrigðari, því að blóðstreymi
verður meira í naglbeðnum. Til að losna við
þurra húð er þjóðráð að nota góðan korna-
skrúbb til dæmis Rose Sugar Scrub og nudda
kröftuglega yfir alla húð, neglur og naglabönd
og gefa sér góðan tíma, líka notalegt að
nudda innan í lófann,“ segir Bára.
Neglur
Konur sem vanið sig hafa á það að fara reglulega í
neglur eiga bágt núna því engin snyrtistofa býður
upp á slíka þjónustu eins og stendur. Hvað get-
ur þú gert ef gelneglurnar eru að detta af?
„Til þess að fjarlægja gelneglur án þess að
skemma þína eigin nögl of mikið að þá mælum
við með að klippa framan af nöglinni varlega og
stytta hana, best er að klippa smá hak á einni
hliðinni og endurtaka svo á hinni þar til hún
losnar af. Ekki klippa beint framan á því þá get-
ur nöglin öll brotnað. Eftir það mælum við með
að nota 180 grit naglaþjöl frá OPI og byrja að pússa
nöglina niður, passa að pússa létt ofan á
og ná sem mesta gelinu af án þess að
pússa of mikið í eigin nögl. Svo er
hægt að skipta yfir í 220-280 grit
þjöl sem er mýkri til þess að ná
restinni á naglplötunni,“ segir Sandra Vilborg Jónsdótir
hjá Artica.
„Svo mælum við með að setja umferð af Miracle Cure
frá Sally Hansen eða Nail Envy-styrkingu frá OPI til þess
að styrkja nöglina. Svo mæli ég með því að nota olíu á
naglaböndin eins og til dæmis Opi Pro Spa Cuticle oil eða
Vitamin E oil frá Sally Hasnen. Nudda vel naglaböndin og
fyrir ofan nöglina þar sem vaxtarvefurinn liggur til að örva
blóðflæðið til naglarinnar.“
Hárið
Við gerð þessarar greinar leitaði
ég til meðlima í lokuðum hóp sem
ég er með á Facebook og heitir
Smartland Tísku- og förðunarráð.
Þar var ein búin að lita á sér hárið
heima og var skyndilega orðin
svarthærð og aðrar deildu hryll-
ingssögum af þessu ástandi. Það
var þó tvennt sem skoraði hæst og
það var þurrsjampóið með
litnum frá label.m og Wow
Root Cover Up. Hið síðar-
nefnda er svolítið eins og
augnskuggi sem fólk ber yfir
gráu hárin í rótinni. Það efni
er til í mörgum litum og ætti
því að henta mörgum. Best
er að bera þessi efni í hárið eftir
förðun svo farðinn klínist ekki í
hárlitinn meðfram hárlínunni.
Láttu sloppinn víkja
Ef þú ert búin að vera í slopp
heima í meira en tvær vikur þá
verður þú að fara úr honum. Það
er ákveðin sjálfsvirðing fólgin í því
að klæða sig í borgaraleg föt eða
allavega sæmilega útlítandi
heimadress til að koma í veg fyrir
að þú myglir endanlega. Fólk
hættir nefnilega ekki að vera
til þótt ástandið sé eins og
það er. Notaðu þetta
tækifæri og bjóddu
sjálfri þér upp á það
besta sem völ er á.
Fæstar okkar myndu
bjóða gestum upp á
skrælnaðar hendur, rót,
nagaðar neglur og sveitt
heimaföt.
Þurrburst-
aðu hend-
urnar og
líkamann.
Naglaolía frá Opi
hjálpar til við að
byggja upp neglurnar.
Þurrsjampó frá
label.m er mikill
bjargvættur. Það
fæst á beautybar.is
og sendir Kringlan
frítt heim.
Naglaolían
frá Sally
Hansen er
góð fyrir naglaböndin.
Fæst á www.lyfja.is
Gott er að bera Mi-
racle Cure frá Sally
Hansen á neglurnar til
að byggja þær upp.
Á meðan neglurnar
eru að jafna sig er
sniðugt að lakka þær
ljósbleikum lit frá Opi.
Wow Root Cover
Up fæst á
www.beautybar.is.
Polo Sport frá Ralph Lauren er með mikið
af fallegum heimafötum. Þau fást í Mathilda í
Kringlunni sem sendir frítt heim þessa dagana.
Hentu myglu-
sveppnum út
Ef þú ert komin
með illa staddar
gelneglur þá getur
þú klippt þær nið-
ur og pússað með
naglafjöl frá Opi.
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.3. 2020
LÍFSSTÍLL
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000
www.itr.is