Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.03.2020, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.3. 2020
LESBÓK
ÖRLÖG „Ég þoli ekki að búa á Írlandi. Andlegt heimili
mitt er Bandaríkin. Ég veit að storkurinn minn hefði átt
að setja mig niður í Bandaríkjunum en hann datt í’ða í
Dublin. Þar er ískalt og ömurlegt. Og allt rándýrt. Ég
ann Bandaríkjunum en gæti þó aldrei flutt frá Írlandi.
Ég gæti ekki farið frá barnabörnum mínum og börn-
um,“ segir söngkonan Sinéad O’Connor í samtali við
breska blaðið The Independent. Það eru ekki bara börn-
in fjögur og barnabörnin tvö sem búa á Írlandi, það gera
líka aldraður faðir hennar, systir og þrír bræður. Fyrr-
verandi kærasti O’Connor býr líka í grenndinni með
þrettán ára gamlan son þeirra, auk fjögurra fyrrver-
andi eiginmanna, að sögn blaðsins. Ekki kemur þó fram
hvers vegna hún ætti að vilja vera nálægt þeim.
Storkurinn datt í’ða
Sinéad O’Connor
lenti á röngum stað.
AFP
ÁHRIF Andreas Kisser, gítarleikari brasilíska málm-
bandsins Sepultura, rifjaði í samtali við vefmiðilinn
OrangeAmps.com á dögunum upp hverjir fyrstu
áhrifavaldar hans voru. Í ljósi þess að Sepultura
hefur gegnum tíðina lónað á landamærum
þrass, grúv- og dauðamálms kemur svarið
ugglaust einhverjum á óvart, Kiss og Queen.
„Queen kom til Brasilíu 1981 en mamma
leyfði mér ekki að fara vegna þess að ég var
of ungur. Svo kom Kiss 1983 og það voru
fyrstu tónleikarnir sem ég fór á. Það var
geggjað að sjá þá „live“ á Creatures Of The
Night-túrnum. Það breytti lífi mínu. Þess
vegna er ég hér.“
Andreas Kisser
tók sér ungur
gítar í hönd.
AFP
Day og Hudson í Pillow Talk.
Krúttlegt
koddahjal
KLASSÍK Mögulega hefur mann-
kyn aldrei þurft meira á góðum
kvikmyndum að halda en nú um
stundir. Þannig birti BBC í vikunni
lista á vefsíðu sinni yfir kvikmyndir
sem væru til þess fallnar að láta
fólki líða betur, alltént um stund.
Rómanískar gamanmyndir skora
hátt á þeim lista og í öndvegi hjá
BBC er ein slík frá árinu 1959, Pil-
low Talk með engum öðrum en
Doris Day og Rock Hudson. Í mynd-
inni leika þau nágranna sem deila
af einhverjum ástæðum sömu síma-
línunni. Hudson einokar línuna,
Day til armæðu. En eins og í öllum
almennilegum rómantískum gam-
annyndum dragast söguhetjurnar
fljótt hvor að annarri.
Engum blöðum er um það aðfletta að bandaríska olíu-dramað Dallas er ástsælasti
leikni sjónvarpsþáttur Íslandssög-
unnar. Alltént eru engin önnur
dæmi um að heil þjóð hafi grátið og
gníst tönnum í einum kór eftir að
sjónvarpsþáttur var tekinn af dag-
skrá. Það gerðist eftir að Rík-
isútvarpið fékk skyndilega þá flugu í
höfuðið, eftir að hafa sýnt Dallas við
fordæmalausar vinsældir um langt
árabil, að efnið væri ekki nægilega
„kúltíverað“ fyrir sjálfa bókmennta-
þjóðina og taldi sér skylt að linna
látum. Til allrar hamingju höfðu
bensínstöðvar þessa lands betri
skilning á sálarlífi þjóðarinnar og
hófu útleigu á nýjustu þáttunum á
myndbandsspólum, VHS frekar en
Beta en síðarnefnda kerfið var þá
líklega búið að tapa því stríði. Höfðu
spólurnar skemmri viðkomu í hill-
unum en landnámshæna í tófugreni,
slík var eftirspurnin. Sá leikur gat
aldrei endað nema á einn veg; Rík-
isútvarpið kyngdi stoltinu og hóf á
ný sýningar á Dallas.
Þetta er líklega ekki verri tími en
hver annar til að endurnýja kynnin
við Ewing-fjölskylduna. Joð gamla
Err, Bobby, Sue Ellen, Pamelu og
öll hin sem standa mörgum Íslend-
ingum líklega nær en margir í sjálf-
um frændgarðinum, alltént eftir
annan lið. Hvað sungu Dúkkulís-
urnar um árið og meinuðu það? Ég
vild’ég væri Pamela í Dallas.
Í fræðaheiminum er Dallas skil-
greint sem sápa, ellegar sápuópera,
Beint á skjá
Fjölmiðlar um heim allan keppast þessa dagana
við að benda fólki á leiðir til að dreifa huganum í
faraldrinum sem nú geisar. Sunnudagsblaðið læt-
ur ekki sitt eftir liggja og bendir hér á nokkra sjón-
varpsþætti sem upplagt væri að endursýna.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Systurnar Jessica Tate og Mary Campbell ásamt fjölskyldum sínum í hinni
óborganlegu sápu Löðri. Hvernig skyldu þeir ágætu þættir eldast?
ABC
Í fjötrum en samt ekki. Kunta Kinte á
enga sína líka í sjónvarpssögunni.
Derrick var með ráð undir rifi hverju.
Man einhver sḱírnarnafn hans?
www.securitas.is
SJÁLFVIRK
TALNING
VIÐSKIPTAVINA
Með tengingu við myndlausnir Securitas er
mögulegt að fylgjast sjálfvirkt með fólksfjölda
í tilteknum rýmum í rauntíma. Yfirsýn yfir
fjölda einstaklinga verður skýrari og einfaldar
alla umsjón og sjálfvirkni.
Sjálfvirk talning
Upplýsingar í rauntíma
Sögulegt yfirlit og skýrslur
Auðveldar áætlanir og skipulag
Hafðu samband við ráðgjafa okkar
í síma 580 7000 og kynntu þér sjálfvirka
talningu á www.securitas.is
Kiss er bandið sem kveikti í Kisser