Morgunblaðið - 09.04.2020, Side 12

Morgunblaðið - 09.04.2020, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 2020 Komdu í BÍLÓ! VWPASSAT GTE PREMIUM nýskr. 02/2018, ekinn 20 Þ.km, bensín & rafmagn, sjálfskiptur, leður, glerþak, stafræntmælaborð, dráttarkrókur o.fl.Verð 5.250.000 kr. TILBOÐSVERÐ 4.750.000 kr. Raðnúmer 259884 VW GOLF GTE PANORAMA nýskr. 06/2018, ekinn 21 Þ.km, bensín & rafmagn, sjálfskiptur, glerþak, stafræntmælaborð o.fl. Verð 4.490.000 kr. TILBOÐSVERÐ 3.990.000 kr. Raðnúmer 259865 AUDI A3 E-TRON S-LINE Árg. 2019, ekinn 12 Þ.km, bensín & rafmagn, sjálfskiptur. Drekkhlaðinn aukabúnaði! Verð 4.690.000 kr. Tilboðsverð 4.290.000 kr. Raðnúmer 380709 VWPASSATVARIANT GTE PANORAMA nýskr. 07/2018, ekinn 22 Þ.km, bensín & rafmagn, sjálfskiptur, glerþak, sportsæti, stafræntmælaborð, dráttarkrókur, þakbogar o.fl. Verð 5.150.000 kr. Raðnúmer 250066 VWPASSATVARIANT GTE PANORAMA nýskr. 03/2018, ekinn 28 Þ.km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur, glerþak, sportsæti, 18“ álfelgur, 17“ aukafelgurmeð nýjum dekkjum fylgja. Verð 5.350.000 kr. Raðnúmer 250166 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is – ALLTAF VIÐ SÍMANN 771 8900 – AFSLÁTTUR 500.000 AFSLÁTTUR 500.000 AFSLÁTTUR 400.000 dreifða þátttöku, bæði frá hefð- bundnum viðskiptabönkum og stærri aðilum eins og NIB og EIB. „Þeir lána á mjög samkeppnis- hæfum kjörum til langs tíma.“ Lánað til sjö ára Spurður nánar um kjörin sem lánið fékkst á segir Sveinn að lánað sé til sjö ára og kjörin séu mjög góð. „Vextir eru sögulega lágir í Evrópu og um allan heim. Nú á þessum tím- um sem við erum að fara í gegnum er mikilvægt fyrir Össur að vera vel fjármagnað og styrkja stöðu okkar þannig enn frekar.“ Hann segir að grunnvextir á lán- inu væru í raun neikvæðir í evrum. „Lántökukostnaður banka hefur reyndar almennt hækkað aðeins eft- ir að kórónufaraldurinn fór að geisa, og þá aðallega útaf óvissunni á mörkuðum, en á móti hafa vextir lækkað og eru í algjörum botni núna“. Sveinn segir að Össur finni vel fyrir því hve mikið fjármagn sé í al- þjóðlega fjármálakerfinu. „Við höf- um fundið að það er miklu meiri eftirspurn eftir því að lána okkur peninga en áður. Bæði er það frá tryggingafélögum og bönkum, en einnig eru peningarnir farinn að finna sér farveg framhjá bönkunum, í gegnum skuldabréfaútboð og slíkt. Það er gríðarleg samkeppni um að lána peninga, og sérstaklega þegar vextir eru jafn lágir og þeir eru. Vextir og kjör taka mið af því.“ Spurður nánar um ráðstöfun fjár- munanna segir Sveinn að hluti fjár- ins verði notaður til að fjármagna nýleg kaup Össurar á stoðtækja- framleiðandanum College Park Ind- ustries. „Við vorum að fá samþykki fyrir kaupunum frá samkeppnisyf- irvöldum í Bandaríkjunum. Við klárum þau viðskipti þó ekki að fullu fyrr en faraldurinn fer að réna, sem er hluti af samningnum. Auk þess að láta féð til þeirra kaupa verður það almennt notað til að styðja við vöxt Össurar.“ Ytri og innri vöxtur Össur hefur vaxið með bæði innri og ytri vexti í gegnum tíðina, sam- tals 10% á ári síðustu fimm ár. Seg- ir Sveinn að árlegur innri vöxtur sé 5% og að meðaltali hafi ytri vöxtur einnig verið 5%. „Þetta er góð blanda af heilbrigðum innri og ytri vexti.“ Spurður um áhrif kórónuveiru- faraldursins á rekstur Össurar seg- ir Sveinn að búist sé við að veiran hafi tímabundið neikvæð áhrif á sölu fyrirtækisins. „Fólk á stærstu mörkuðum okkar er ekki mikið á ferli, að heimsækja stoðtækjafræð- inga sína og fá frá þeim þjónustu. En við teljum að þetta muni ekki hafa áhrif á markaðinn til lengri tíma. Fólk mun áfram þurfa lausnir eins og þær sem við seljum. Við teljum að markaðurinn verði jafn góður og hann var áður, þegar þessu ástandi linnir.“ Össur fær 11 milljarða lán Morgunblaðið/Ómar Stuðningur Nú er mikilvægt fyrir Össur að vera vel fjármagnað.  Notað í nýleg kaup á College Park og til almenns vaxtar  Mikil eftirspurn eftir því að lána Össuri fé  Veiran hefur tímabundið neikvæð áhrif á starfsemina Stoðtæki » College Park er framleiðandi gervifóta og starfar í Banda- ríkjunum. » 140 starfsmenn og árstekjur um 20 milljónir dala. » Afkomuáætlun Össurar er ekki lengur í gildi vegna kór- ónuveirunnar. BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Evrópski fjárfestingarbankinn (e. European Investment Bank) hefur veitt stoðtækjafyrirtækinu Össuri lán upp á 69 milljónir evra, eða tæp- lega 11 milljarða íslenskra króna. Sveinn Sölvason, fjármálastjóri Össurar, segir í samtali við Morgun- blaðið að helstu lánveitendur Össurar hafi lengi verið Danske Bank og Nordea. „Skand- inavískir við- skiptabankar hafa verið helstu bakhjarlar okkar allt frá árinu 2011. En á síð- ustu árum höfum við einnig átt gott samstarf við Norræna fjárfestingar- bankann og Evrópska fjárfestingar- bankann um lánveitingar. Þessir bankar veita lán til fyrirtækja sem eru, eins og í okkar tilfelli, með mikla starfsemi í Evrópu og á Norðurlöndunum, og þeir leggja báðir áherslu á fyrirtæki sem sinna rannsóknum, þróun og tæknistarfi í miklum mæli,“ segir Sveinn. Hann segir að viðræður við bank- ann hafi staðið yfir frá því síðla á síðasta ári. „Svo kláruðum við þessa vinnu endanlega núna á síðustu vikum.“ Hann segir að fjármögnunin sé hluti af fjármögnunarstefnu Össur- ar sem snýr að því að vera með Sveinn Sölvason aftur átt þátt í mikilli sókn lífeyris- sjóða í íbúðalánum síðustu misseri. Lækka um 0,3-0,4% Breytilegir vextir íbúðalána hjá Landsbankanum munu lækka um 0,1%. Fastir óverðtryggðir íbúða- lánavextir lækka um 0,3-0,4% og fast- ir verðtryggðir íbúðalánavextir til 60 mánaða lækka um 0,1%. Þær upplýsingar fengust frá Landsbankanum að eftir lækkunina mundu lægstu fastir vextir óverð- tryggðra íbúðalána til 60 mánaða verða 4,7% en þeir eru nú 5%. Til samanburðar voru þeir 6,1% haustið 2018 og verða því 1,4% lægri en þá fyrsta viðskiptadag eftir páska. Þá verða lægstu föstu vextir óverð- tryggðra íbúðalána til 36 mánaða 4,5% en þeir eru nú 4,9%. Lægri en hjá lífeyrissjóðum Eftir vaxtalækkunina mun Lands- bankinn bjóða lægri vexti af föstum óverðtryggðum vöxtum íbúðalána en Arion banki og Íslandsbanki. Þá verða vextirnir lægri en fastir vextir lífeyrissjóðanna af óverðtryggðum lánum (sjá dæmi á grafinu). Baldur Arnarson baldura@mbl.is Landsbankinn lækkar útlánsvexti næstkomandi þriðjudag en eftir lækkunina býður bankinn jafnvel lægri vexti en lífeyrissjóðir. Fram kom í tilkynningu frá bank- anum að vaxtalækkunin tæki einkum mið af nýlegri lækkun bankaskatts. Bankaskattur hefur verið lagður á fjármálafyrirtæki en ekki lífeyris- sjóði. Hefur það átt þátt í að lífeyris- sjóðir hafa getað boðið betri kjör en bankar af íbúðalánum. Það hefur svo Landsbankinn lækkar útlánsvexti  Vextir fastra óverðtryggðra íbúðalána verða lægri en hjá lífeyrissjóðum Lægstu óverðtryggðu vextir íbúðalána Heimildir: Landsbankinn, Aurbjörg.is 4,50% 4,85% 4,95% 5,01% 5,05% 3 ár 3 ár 3 ár 2 ár 3 ár Lands- bankinn Almenni líf. Frjálsi líf. SL líf. Íslands- banki Fastir vextir, % og fjöldi ára í senn ● Í lok marsmánaðar námu eignir Seðlabanka Íslands í gulli tæpum 14,5 milljörðum króna. Samkvæmt tölum bankans, sem ná aftur til ársins 2001, hefur gullforðinn ekki verið metinn jafn hátt í bókum hans frá alda- mótum. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum yfir erlenda stöðu Seðlabank- ans.Verðmæti forðans hefur aukist um rúma 1,3 milljarða frá lokum febr- úarmánaðar en frá áramótum nemur hækkunin 2,7 milljörðum króna. Gullverð hefur hækkað talsvert á síð- ustu mánuðum, mælt í dollurum, og nemur hækkunin síðustu sex mánuði 10,54%. Á síðastliðnum 12 mánuðum nemur hækkunin hins vegar tæpum 28%. Erlendar eignir SÍ námu 947,8 millj- örðum króna í lok marsmánaðar sam- anborið við 855,6 milljarða í lok febr- úarmánaðar. Stærstur hluti þeirra eigna er varðveittur í verðbréfum, eða 722 milljarðar. Seðlar og innstæður stóðu í 175 milljörðum. Gullforði Seðlabankans eykst mjög að verðgildi 9. apríl 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 141.38 142.06 142.69 Sterlingspund 174.77 175.61 175.78 Kanadadalur 99.37 99.95 101.8 Dönsk króna 20.736 20.858 20.8 Norsk króna 13.517 13.597 13.971 Sænsk króna 13.972 14.054 14.208 Svissn. franki 146.4 147.22 146.68 Japanskt jen 1.3019 1.3095 1.3086 SDR 192.94 194.08 194.43 Evra 154.87 155.73 155.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.6599 Hrávöruverð Gull 1652.2 ($/únsa) Ál 1424.5 ($/tonn) LME Hráolía 33.66 ($/fatið) Brent ● Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur ákveðið að leggja til við aðalfund fyrir- tækisins að arðgreiðsla fyrir nýliðið starfsár muni nema 3 milljörðum króna. Áður var gert ráð fyrir að greiðslan myndi nema 1.750 milljónum króna. Samhliða þessari ákvörðun hef- ur stjórn fyrirtækisins ákveðið að auka fjárfestingar sínar á árinu 2020 um tvo milljarða króna. Segir stjórnin að með því vilji fyrirtækið sýna samfélagslega ábyrgð í verki og hafa jákvæð áhrif á samfélagið sem líður nú fyrir áhrif af völdum kórónuveirunnar. Í tilkynningu frá Orkuveitunni segir að auknar fjár- festingar, arðgreiðslan og verri efna- hagshorfur kalli á auknar lántökur fyrirtækisins. Þannig hefur stjórn fé- lagsins ákveðið að auka heimild til skuldabréfa- og víxlaútgáfu eða banka- lána úr 13 milljörðum í 30 milljarða króna á árinu en hluti þeirra lána mun fara til að endurfjármagna eldri lán. Stjórn Orkuveitunnar vill hærri arðgreiðslu STUTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.