Morgunblaðið - 09.04.2020, Blaðsíða 26
DANMÖRK
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Alveg hrikalega langt frá því,“
svaraði Janus Daði Smárason, lands-
liðsmaður í handbolta, aðspurður
hvort honum liði eins og hann hefði
orðið danskur meistari. Janus er
lykilmaður hjá Aalborg, sem var
krýnt danskur meistari á þriðjudag,
þar sem tímabilinu í Danmörku var
aflýst vegna kórónuveirunnar.
„Ég fór á fund með öllu liðinu og
framkvæmdastjóranum og við vor-
um að fagna þessu en þetta var voða-
lega steikt,“ sagði Janus við Morg-
unblaðið en ásamt honum eru Ómar
Ingi Magnússon og aðstoðarþjálf-
arinn Arnór Atlason danskir meist-
arar með Álaborgarliðinu. Liðið var
þegar orðið deildarmeistari, var með
42 stig þegar tveimur umferðum var
ólokið en GOG með 34 stig og Tvis
Holstebro með 33 voru í næstu
tveimur sætum.
Fer til Göppingen í sumar
„Það góða við þetta er að við vor-
um allavega krýndir meistarar og
liðið fær að spila í Meistaradeildinni
á næstu leiktíð. Það er mun skárra
en ef tímabilið hefði verið strikað út.
Ég er hins vegar á förum frá klúbbn-
um svo ég fæ ekki sjálfur að spila í
Meistaradeildinni,“ sagði Janus, en
hann skrifaði undir samning við
þýska liðið Göppingen á síðasta ári
og gengur í raðir félagsins í júlí.
Hann er svekktur yfir að fá ekki að
spila í úrslitakeppninni í Danmörku
einu sinni til viðbótar.
„Ég var orðinn mjög spenntur fyr-
ir úrslitakeppninni en úr því sem
komið var vissi ég að við værum
aldrei að fara að klára keppnina.
Þetta var kannski það besta í stöð-
unni í ljósi þess. Við vorum með
mjög sterkt lið í ár og þetta á að vera
skemmtilegasti tími ársins. Þetta er
auðvitað hundsvekkjandi,“ sagði
Janus.
Þrír stórir titlar með Aalborg
Hann kom til Aalborg sumarið
2017 og á þremur árum varð hann
danskur meistari í tvígang og bik-
armeistari einu sinni. Janus spilaði
ekki síðustu leiki liðsins í deildinni á
leiktíðinni, þar sem hann var hvíldur
fyrir leiki gegn portúgalska liðinu
Porto í Meistaradeildinni, en þeim
var síðan frestað. Sigurvegarinn í
einvíginu mætir Kiel í átta liða úr-
slitum, en svo gæti farið að Aalborg
fari áfram úr einvíginu, án þess að
það verði spilað.
„Ég spilaði ekki einu sinni síðustu
tvo leikina, þar sem það átti að hvíla
mig aðeins fyrir Meistaradeildina.
Við eigum að mæta Porto í byrjun
júní og það er ekki búið að gefa neitt
annað til kynna varðandi það. Ef það
er ekki hægt að spila þá leiki ætlar
EHF að velja lið til að fara áfram,
eins fáránlegt og það hljómar. Ég
held að þeir horfi á peningana og þá
ættum við að fara áfram. Við end-
uðum líka í fjórða sæti í okkar riðli
og Porto í fimmta sæti í sínum riðli.
Það gæti þess vegna endað þannig
að við mættum Kiel í átta liða úrslit-
um í júní. Maður getur spilað það og
svo eiga að vera landsleikir á svip-
uðum tíma og svo verður „final four“
í Meistaradeildinni í ágúst, en þá
verð ég búinn að skipta um lið. Það
er ekki mikið fyrir mig sjálfan að
spila fyrir. Samningurinn minn í
Göppingen tekur gildi 1. júlí og þá
verð ég kominn í nýtt félag,“ sagði
Selfyssingurinn.
Æfir í bílskúr og hleypur
Janus tekur einnig það jákvæða
úr ástandinu, því hann fær sjaldgæft
og kærkomið frí. Mikið álag fylgir
því að vera landsliðsmaður og spila
með atvinnumannaliði sem er í Evr-
ópukeppni. „Það er oftast brjálað að
gera og maður hefur kvartað yfir
miklu álagi í handboltanum. Þá er
oft erfitt að vinna í líkamlegum
styrk. Maður tekur það góða úr
þessu og æfir eins og tittlingur og
vinnur í því að styrkja sig. Ég stefni
á því að fara út aftur sem betri
íþróttamaður,“ sagði Janus, sem
reddar sér í samkomubanninu.
„Bróðir mömmu er með bílskúr og
það eru lóð þar og ég fæ að koma
þegar enginn er. Svo fer maður út að
hlaupa. Þetta er ákveðið púsl,“ sagði
Janus, sem er ánægður með tímann
sinn hjá Aalborg.
„Ég er mjög ánægður með minn
tíma í Danmörku. Mér finnst ég hafa
tekið góð og jákvæð skref til að
verða betri leikmaður. Ég átti mitt
besta tímabil fyrir Aalborg núna og
það var fúlt að fá ekki að klára það
fyrir framan okkar fólk með mínum
liðsfélögum. Þetta er toppklúbbur
og mér leið mjög vel þarna og ég er
þakklátur,“ sagði Janus Daði.
Fögnuðum
en var voða-
lega steikt
Janus Daði Smárason kveður
Danmörku sem meistari Skárra
en ef tímabilið hefði verið strikað út
Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson
Flytur Janus Daði Smárason fer til Göppingen í Þýskalandi í sumar og kveð-
ur Aalborg sem meistari þótt tímabilið í Danmörku hafi verið blásið af.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 2020
9. apríl 1960
Ármann tryggir sér Íslands-
meistaratitil kvenna í hand-
knattleik í þriðja
sinn á fimm ár-
um með því að
sigra KR 11:4 í
síðasta leik
mótsins á Há-
logalandi. Sig-
ríður Lúthers-
dóttir skorar sex marka
Ármenninga í leiknum. FH
tryggir sér meistaratitil karla
með sigri á KR, 22:20, í hrein-
um úrslitaleik.
9. apríl 1966
Ísland vinnur dramatískan
sigur á Dönum, 68:67, í fram-
lengdum leik í Kaupmanna-
höfn og tryggir sér brons-
verðlaunin á
Norðurlandamóti karla í
körfuknattleik. Kolbeinn Páls-
son, 19 ára gamall fyrirliði
liðsins, á stórleik og tryggir
sigurinn með tveimur víta-
skotum. Hann er stigahæstur í
íslenska liðinu með 24 stig en
Gunnar Gunnarsson skorar
18.
9. apríl 1970
Íslenska karlalandsliðið í
körfuknattleik vinnur Norð-
menn örugglega, 86:64, í
fyrsta leik Norðurlandamóts-
ins sem haldið er í Noregi.
Þórir Magnússon skýtur
norska liðið í kaf á lokasprett-
inum og skorar 27 stig alls en
Kristinn Stefánsson skorar 16.
9. apríl 1984
Íslenska kvennalandsliðið í
handknattleik sigrar Frakka,
23:21, í vin-
áttulandsleik í
Laugardals-
höllinni. Guð-
ríður Guðjóns-
dóttir skorar 9
mörk fyrir Ís-
land, Erna
Lúðvíksdóttir og Margrét
Theódórsdóttir 4 hvor.
9. apríl 1991
„Þetta er mikið áfall og segir
mönnum að nú megi lemja
dómara. Mann langar mest til
að hætta þessu en það eru
bara ekki neinir til að taka
við,“ segir Leifur Garðarsson
körfuboltadómari við Morg-
unblaðið. Ástæðan er sú að
Njarðvíkingar fá aðeins
áminningu eftir að stuðnings-
menn liðsins veittust að dóm-
urum að loknum leik liðsins
gegn Keflavík.
9. apríl 2000
Rúnar Alexandersson nær
besta árangri íslensks fim-
leikamanns á
Norð-
urlandamóti
frá upphafi
þegar keppt er
í Helsinki.
Hann vinnur
þrefaldan sig-
ur á mótinu og er Norð-
urlandameistari á bogahesti, á
tvíslá og í fjölþrautinni.
Á ÞESSUM DEGI
José Mourinho, knattspyrnustjóri
Tottenham, hefur viðurkennt að
hafa brotið reglur um umgengni
fólks á meðan kórónuveiran geis-
ar um Bretlandseyjar, og sendi í
gær frá sér yfirlýsingu þar að
lútandi.
Myndir af Mourinho þar sem
hann var með Tanguy Ndombele,
leikmann liðsins, á séræfingu í al-
menningsgarðinum Hadley Com-
mon í útjaðri London birtust á
samfélagsmiðlum og ljóst var að
þeir héldu ekki reglur um
tveggja metra fjarlægð.
Viðurkennir að
hafa brotið reglur
AFP
Æfing José Mourinho fór ekki að
reglum í almenningsgarði.
Willum Þór Willumsson og sam-
herjar hans í BATE Borisov þurftu
að sætta sig við 0:1-tap á útivelli
gegn Slavia Mozyr í fyrri leik lið-
anna í undanúrslitum hvítrúss-
neska bikarsins í fótbolta í gær.
Willum var í byrjunarliði BATE og
lék allan leikinn en hann gat ekki
komið í veg fyrir tap, þar sem Yuri
Pantya skoraði sigurmarkið á 11.
mínútu. BATE hefur tapað þremur
af síðustu fjórum leikjum sínum.
Hvítrússneski fótboltinn er sá eini í
Evrópu sem er enn í gangi og það
með áhorfendum.
Willum tapaði í
undanúrslitum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hvíta-Rússland Willum Þór Will-
umsson þurfti að sætta sig við tap.
Einn þekktasti handknattleiksmarkvörður síðari ára,
Arpad Sterbik, hefur tilkynnt að hann leggi skóna á hill-
una þegar yfirstandandi keppnistímabili lýkur. Sterbik,
sem er fertugur að aldri, fæddist í Júgóslavíu árið 1979
en er með þrefalt ríkisfang, serbneskt, ungverskt og
spænskt. Hann hefur leikið fyrir landslið Júgóslavíu,
Serbíu/Svartfjallalands og Spánar.
Síðustu tvö árin hefur Sterbik leikið með ungverska
stórliðinu Veszprém en þar lék hann einnig í þrjú ár
snemma á ferlinum. Hann var samherji Ólafs Stefáns-
sonar hjá sigursælu liði Ciudad Real á Spáni og lék þar í
sjö ár en með Atlético Madrid og Barcelona eftir það og
síðan í fjögur ár með Vardar Skopje. Meistaratitlar með félagsliðum eru 15
talsins og þá hefur hann fjórum sinnum unnið Meistaradeild Evrópu, síðast
2017 með Vardar. Sterbik varð heimsmeistari 2013 og Evrópumeistari
2018 með Spáni og vann áður tvenn bronsverðlaun á HM með Júgóslavíu.
Sigursæll markvörður kveður
Arpad
Sterbik
Engin verkefni verða í sumar fyrir yngri landslið Íslands í
körfuknattleik, en körfuknattleikssamband Evrópu,
FIBA Europe, tilkynnti í dag að öllum mótum þess sem
fram áttu að fara í sumar hefði verið aflýst.
Yngri landslið pilta og stúlkna áttu fyrir höndum
Evrópumót víða um Evrópu í júlí og ágúst en U18 kvenna
átti að fara til Austurríkis, U20 karla til Georgíu, U16
kvenna til Bosníu, U18 karla til Rúmeníu, U20 kvenna til
Ísraels og U16 karla til Slóveníu á tímabilinu frá 3. júlí til
22. ágúst.
Þá hefur smáþjóðakeppni karla og kvenna sem halda
átti í sumar verið aflýst en áfram stendur til að leika til úr-
slita í Evrópumótum félagsliða fullorðinna í haust og þar er stefnt á að spila í
september og október. Þar getur landsliðsmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason
komið við sögu, en lið hans, Zaragoza á Spáni, er komið í 8 liða úrslit
Meistaradeildar FIBA.
Aflýst hjá yngri landsliðum
Tryggvi Snær
Hlinason
Í umfjöllun um árangur íslensku
knattspyrnuliðanna í vetrarmót-
unum í blaðinu í gær féll niður ein
setning þar sem fjallað var um lið
ÍA. Þar átti að standa: Tryggvi
Hrafn Haraldsson var markahæstur
Skagamanna í vetur með níu mörk,
þrjú þeirra í úrslitaleiknum gegn
Breiðabliki, og Steinar Þorsteinsson
kom næstur með fimm mörk.
Tryggvi skoraði
níu mörk fyrir ÍA
LEIÐRÉTT