Morgunblaðið - 11.04.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.04.2020, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 1. A P R Í L 2 0 2 0 Stofnað 1913  86. tölublað  108. árgangur  verslum á elko.is verum heima og skilafrestur framlengdur til 30. júní RÚSSLANDS- ÆVINTÝRI HJÁ FÍUSÓL EDDA Á BIRKIMELNUM KOMIN ÚT FIMMTA BÓKIN 14LÍKA Á LEIÐ Í SJÓNVARP 42 Aron Þórður Albertsson Ásgeir Ingvarsson Ef svo fer að ferðatakmarkanir verða á flæði fólks til og frá landinu næstu mánuði má ráðgera að meiri- hluti fyrirtækja í ferðaþjónustu neyðist til að skella í lás. Þetta segir Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar (SAF), í samtali við Morg- unblaðið. Að hans sögn er ekki raunhæft að halda tekjulausum fyrirtækjum opnum svo mánuðum eða árum skipti. „Það er alveg ljóst að ef það verða hömlur í eitt eða eitt og hálft ár þá þarf að fá lausnir sem gera fyrirtækjum kleift að vera lok- uð í þann tíma. Það þarf hið minnsta að gera fyrirtækjum kleift að bregð- ast við þeirri sviðsmynd,“ segir Jó- hannes og bætir við að rekstur í slíku ástandi sé til einskis. Ef af verður má reikna með að fjöldi fyrirtækjanna, sem loka þarf tímabundið hið minnsta, hlaupi á þúsundum. Það er jafnframt meiri- hluti fyrirtækja sem starfa á sviði ferðaþjónustu hér á landi. Segir Jó- hannes að kanna verði leiðir sem komi í veg fyrir gjaldþrot um- ræddra fyrirtækja. Gylfi Magnússon, dósent við HÍ, tekur í svipaðan streng og segir að búast megi við að vandi ferðaþjón- ustunnar verði langvarandi. Bendir Gylfi á að viðbúið sé að langan tíma muni taka að fá sambærilegar far- þegatölur og landsmenn áttu að venjast áður en faraldurinn skall á. Fram kom á blaðamannafundi Al- mannavarna í gær að kona úr bak- varðasveit Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða hefði verið handtekin, grunuð um að hafa falsað skjöl um menntun og starfsleyfi sín sem sjúkraliði. Á fundinum kom einnig fram að ein kona hefði látist af völd- um veirunnar. Látnir eru nú 7 tals- ins. MKórónuveiran »2, 4, 19, 22-25 Þúsundum verður lokað  Loka verður meirihluta fyrirtækja í ferðaþjónustu ef takmarkanir vara lengi Morgunblaðið/Eggert Gleðilega páska!  Vigdís Finn- bogadóttir, fyrr- verandi forseti Íslands, segir að Íslendingar verði að takast á við kórónuveiru- faraldurinn af æðruleysi og virðingu fyrir samborgurum okkar. Þannig hafi Íslendingar tekist á við áföll í gegnum aldirnar með hugarfarinu að öll él birti upp um síðir. Vigdís verður níræð á miðvikudaginn og í Sunnudagsmogga er ævi hennar og ferill rakinn í ítarlegu viðtali. Með æðruleysi og virðingu fyrir öðrum Vigdís Finnbogadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.