Morgunblaðið - 11.04.2020, Side 2

Morgunblaðið - 11.04.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2020 www.kofaroghus.is - sími 553 1545 339.000 kr. Tilboðsverð BREKKA 34 - 9 fm 498.000 kr. Tilboðsverð STAPI - 14,98 fm 389.000 kr. Tilboðsverð NAUST - 14,44 fm 34mm 34mm44mm Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik má finna á vef okkar VORTILBOÐ Á GARÐHÚSUM! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Þó að samkomubann sé ríkjandi í miðjum veirufaraldri mælir ekkert á móti því að skreyta umhverfið í tilefni páskahátíðarinnar, líkt og þessi starfsmaður Reykjavíkurborgar gerði á Lækjartorgi í vikunni. Blómin gleðja augað og minna okkur í leiðinni á páskana og vorkomuna. Morgunblaðið/Eggert Páskablómin sett niður Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Tekjurnar þessa háönnina eru að mestu farnar. Svo gæti farið að fyrir- tækin yrðu tekjulaus fram eftir ári og jafnvel út þetta ár,“ segir Jóhann- es Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), um áhrif kórónuveirunnar á ferða- þjónustuna. Greinin hefur verið í brennidepli undanfarnar vikur, en nú síðast var haft eftir Lilju Al- freðsdóttur, mennta- og menningarmála- ráðherra og vara- formanni Fram- sóknarflokksins, að afar ósennilegt væri að opnast mundi fyrir flæði fólks til og frá landinu fyrr en hægt yrði að bólusetja fólk gegn veirunni. Lét hún ummælin falla í Viðskiptapúlsinum, hlaðvarpi Við- skiptaMoggans, en sérfræðingar telja að bóluefni verði ekki tilbúið fyrr en að ári liðnu. Segir Jóhannes að fari svo að ferðatakmarkanir verði á flæði fólks til og frá landinu næstu mánuði muni fjöldi ferðaþjónustufyrirtækja hér á landi þurfa að horfa til þess að hætta starfsemi. Þá sé ekki raunhæft að halda fyrirtækjum sem eru tekjulaus opnum svo mánuðum eða árum skipti. „Það er alveg ljóst að ef það verða hömlur í eitt eða eitt og hálft ár þá þarf að fá lausnir sem gera fyr- irtækjum kleift að vera lokuð í þann tíma. Það þarf hið minnsta að gera fyrirtækjum kleift að bregðast við þeirri sviðsmynd,“ segir Jóhannes og bætir við að rekstur í slíku ástandi sé til einskis. „Það er óþarfa eyðsla á peningum hjá fyrirtæki sem á ekki von á neinum tekjum. En þetta fer auðvitað eftir stöðu fyrir- tækjanna, staðan er ekki eins alls staðar,“ segir Jóhannes. Nokkur þúsund fyrirtæki hætti Fari svo að loka þurfi meirihluta ferðaþjónustufyrirtækja er um að ræða rekstrarstöðvun nokkur þús- und fyrirtækja. Ef af verður segir Jóhannes að tryggja þurfi að fyrir- tækin verði ekki gjaldþrota. Slíkt geti hægt á viðspyrnunni þegar áhrifa kórónuveirunnar er hætt að gæta. „Þetta fer eftir því hvað ríkið ætlar að gera. Það er betra að tryggja að fyrirtækin verði ekki gjaldþrota og þurfi þannig að byrja upp á nýtt. Við verðum sneggri að snúa efnahagslífinu við ef við höldum fyrirtækjunum gangandi,“ segir Jó- hannes og bendir á að staða fyrir- tækjanna sé misjöfn. Sum geti haldið í einhverja starfsmenn á meðan önn- ur þyrftu að loka alveg tímabundið. Þá segir Jóhannes að setja verði fyrirvara við ummæli fyrrnefnds ráðherra þar sem umrædd sviðs- mynd er ekki opinber stefna ríkis- stjórnarinnar. Þetta sé hins vegar sviðsmynd sem ekki sé hægt að úti- loka þó dökk sé. „Ríkisstjórnin hefur ekki gefið út að það sé opinber stefna hennar að hömlur verði á ferðum fólks til og frá landinu þar til bólu- efni kemur. Það er þó ekki hægt að útiloka að hér verði hömlur í marga mánuði,“ segir Jóhannes og bætir við að bíða þurfi og sjá hvernig við- brögð annarra ríkja verða. „Við bú- um við gríðarlega óvissu og ekki þá endilega af því að við vitum ekki hver okkar viðbrögð verða heldur einnig annarra ríkja. Mér finnst mikilvægt að við séum ekki að gefa slík ummæli út í umheiminn áður en við sjáum betur hvernig ástandið mun þróast,“ segir Jóhannes. 230 milljarða velta í fyrra Spurður hvernig viðbrögð fyrir- tækjaeigenda í ferðaþjónustu hafi verið segir Jóhannes að þeim hafi brugðið. „Þetta er gríðarlega svört sviðsmynd. Fólki er því brugðið,“ segir Jóhannes. Heildarkortavelta erlendra ferða- manna hér á landi í fyrra nam ríflega 230 milljörðum króna. Þá eru heild- arútgjöld þeirra hér á landi jafn- framt talsvert meiri. Bendir Jóhann- es á að Íslendingar búi við umtalsvert minni innanlandsmarkað í ferðaþjónustu en önnur lönd. Sök- um smæðar geti ferðalög Íslendinga því ekki vegið upp á móti fækkun ferðamanna. „Markaðurinn innan- lands er mjög mikilvægur en hann kemur aldrei til móts við tekjufall af erlendum ferðamönnum. Það er hvergi í heiminum og að því sögðu þá eru flest lönd með stærri innan- landsmarkað en við,“ segir Jóhannes Þór. Ástandið martröð líkast  Farið gæti svo að loka þyrfti meirihluta fyrirtækja í ferðaþjónustu  Fjöldi fyrirtækjanna hleypur á þúsundum  Líkur á algjöru tekjuleysi fram eftir ári Morgunblaðið/Eggert Hrun Ferðaþjónustan hér á landi er í slæmri stöðu, sem gæti versnað enn meir þegar líður á árið. Engin ákvörðun hefur verið tekin innan ríkisstjórn- arinnar um að ekki verði opnað fyrir flæði fólks til og frá landinu fyrr en hægt verður að bólu- setja gegn kór- ónuveirunni. Þetta kom fram í færslu hjá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköp- unarráðherra, á Facebook í fyrra- dag. Vísaði hún þar í ummæli Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menn- ingarmálaráðherra, í Við- skiptapúlsinum, hlaðvarpi Við- skiptaMoggans. „Þessi ummæli hafa skiljanlega vakið alvarlegar spurningar, ekki síst innan ferðaþjónustunnar þar sem mjög alvarleg staða er uppi nú þegar. Að gefnu tilefni finnst mér mikilvægt að það komi fram að það hefur engin ákvörðun verið tekin um þetta enda yrði slík meiriháttar stefnubreyting alltaf kynnt með formlegum og viðeigandi hætti,“ skrifaði Þórdís en hún svaraði ekki ítrekuðum skilaboðum mbl.is í gær. Ákvörðun yrði kynnt formlega RÍKISSTJÓRNIN HEFUR EKKI TEKIÐ FORMLEGA ÁKVÖRÐUN Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Morgunblaðið kemur næst út þriðjudaginn 14. apríl. Fréttaþjónusta verður um páskana á mbl.is. Hægt er að koma ábendingum um fréttir á netfangið netfrett@mbl.is. Áskrifendaþjónusta er opin í dag, laugardag, frá kl. 8-12. Lokað verður á páskadag og annan í páskum. Símanúmer áskrifendaþjónustunnar er 569-1122 og netfangið askrift@mbl.is. Áskriftar- þjónustan fer svo af stað þriðjudaginn 14. apríl kl. 7. Bóka má dánartilkynn- ingar á mbl.is. Minningar- greinar vegna útfara þriðju- daginn 14. apríl og miðvikudaginn 15. apríl þurfa að hafa borist blaðinu eigi síðar en á hádegi á morgun, páskadag. Fréttaþjónusta mbl.is um páskana Jóhannes Þór Skúlason Samninganefndir ríkisins og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa náð samkomulagi um gerð kjara- samnings og undirrituðu hann á fimmta tímanum í gær. Samninga- nefndirnar hafa fundað stíft síð- ustu daga en samningur hjúkr- unarfræðinga við ríkið hafði verið laus frá því í mars á síðasta ári. Deilunni var vís- að til ríkis- sáttasemjara 21. febrúar síðastlið- inn. Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga, segist ánægð með samninginn og mælir með honum við félagsmenn sína. Hún segir stærstu kjarabætur fé- lagsmanna felast í breytingum á vaktavinnufyrirkomulagi og stytt- ingu vinnuvikunnar hjá þeim hópi, úr 40 stundum niður í 36. Þær breyt- ingar byggjast á samkomulagi svo- kallaðs vaktavinnuhóps ýmissa stéttarfélaga og viðsemjenda þeirra, og hafa nýundirritaðir kjarasamn- ingar BSRB og fleiri stéttarfélaga tekið mið af því. Aðspurð segir Guðbjörg að „launaliðurinn“ hafi lengi verið til umræðu eftir að náðst hafi sam- komulag um ýmsa aðra þætti. Hún vill þó ekki nefna neinar prósentu- hækkanir að svo stöddu. Stefnt er að því að samningurinn verði kynntur félagsmönnum í næstu viku og að því búnu lagður í atkvæðagreiðslu. alexander@mbl.is Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Fundurinn Af samningafundinum sem fram fór í Karphúsinu í gær. Sátt með nýjan samning  Hjúkrunarfræð- ingar sömdu við ríkið Guðbjörg Pálsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.