Morgunblaðið - 11.04.2020, Síða 6
Prestsembætti end-
urvakið í Danmörku
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Embætti sendiráðsprests í Kaup-
mannahöfn hefur verið endur-
vakið, en það var lagt niður í kjöl-
far bankahrunsins 2008.
Auglýst var eftir presti til að
gegna embættinu og bárust fjórar
umsóknir. Þau sóttu um: Séra
Hannes Björnsson, sr. Jóhanna
Magnúsdóttir, sr. Kristinn Jens
Sigurþórsson og sr. Sigfús Krist-
jánsson.
Umsóknir fara nú til þriggja
manna matsnefndar sem metur
hæfni umsækjenda samkvæmt
starfsreglum um val og veitingu
prestsembætta.
Biskup ræður í embætti sér-
þjónustuprests að fenginni niður-
stöðu matsnefndar og tekur prest-
urinn við 1. ágúst 2020. Embættið
er eitt af störfum sérþjónustu-
presta þjóðkirkjunnar og lýtur til-
sjón prófasts Reykjavíkurpró-
fastsdæmis vestra.
Sr. Jónas Gíslason (1926-1998),
síðast vígslubiskup í Skálholti, var
fyrsti prestur
Íslendinga í
Kaupmannahöfn
á vegum ís-
lenska ríkisins/
síðar kirkjunnar
en það var árið
1964.
Séra Þórir
Jökull Þor-
steinsson var
síðast formlegur
prestur Íslendinga með aðsetur í
Kaupmannahöfn en hann er nú
prestur í Noregi (hjá norsku
kirkjunni). Séra Ágúst Einarsson,
prestur Íslendinga í Gautaborg í
Svíþjóð, hefur sinnt söfnuðinum í
Danmörku eftir að embættið þar
var lagt niður.
Presturinn hefur aðsetur í
sendiráði Íslands í Kaupmanna-
höfn. Íslenskar guðsþjónustur eru
að jafnaði einu sinni í mánuði í
Skt. Pauls kirkju og kirkjukaffi í
Jónshúsi á eftir. Kirkjustarfið
liggur nú niðri vegna veirufarald-
ursins.
Eftir bankahrunið var prests-
embættið í London einnig lagt af.
Söfnuðinum þar hefur verið sinnt
af prestum á Íslandi. Engin
ákvörðun liggur fyrir um það
hvort og þá hvenær embættið í
London verður endurvakið.
Var lagt niður í
kjölfar hruns bank-
anna árið 2008
Sr. Þórir Jökull
Þorsteinsson
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2020
UMHVERFISVÆNI
RUSLAPOKINN
Umhverfisvæna ruslapokann má
nálgast í öllum helstu verslunum
Hugsum áður en við hendum!
Umhverfisvæni ruslapokinn er úr maíssterkju
sem brotnar niður á nokkrum vikum án þess
að valda skaða í náttúrunni.
Umhverfisvæni ruslapokinn er með handföngum
og passar vel í ruslatunnur á heimilum eða
sem burðarpoki í verslunum.
Upp hafa komið rökstuddar efa-
semdir um að tilskipun Evrópu-
þingsins og -ráðsins um þjónustu á
innri markaðnum og til vara grein
EES-samningsins um staðfesturétt
eigi við um raforkuframleiðslu.
Því hafa íslensk stjórnvöld ákveð-
ið að fresta fyrirhuguðum lagabreyt-
ingum uns betri vissa verður fengin
fyrir því hvaða þjóðréttarlegu skuld-
bindingar hvíla á íslenska ríkinu að
þessu leyti. Frumvarpið verður því
ekki lagt fyrir á Alþingi á þessum
vetri.
Þetta kemur fram í svari forsætis-
ráðuneytisins við fyrirspurn frá fé-
lagasamtökunum Frjálst land þar
sem spurt var hvort fjárfestar í Evr-
ópusambandinu myndu sitja við
sama borð og íslensk fyrirtæki í al-
mannaeigu við úthlutun nýtingar-
réttar fallvatna og jarðvarma og við
fyrirskipaða reglulega endurnýjun
nýtingar orkuauðlinda, og greint var
frá á Viljanum.
Pólitísk ákvörðun
Samtökin höfðu vísað í þingmála-
skrá yfirstandandi þings, þar sem
boðað var frumvarp til laga um
breytingu á ýmsum lögum er varða
nýtingu orkuauðlinda á opinberu
forræði.
Sigurbjörn Svavarsson hjá
Frjálsu landi segir merkilegt að eftir
að fullbúið frumvarp sé klárt og að
baki séu margra ára bréfaskriftir ís-
lenskra stjórnvalda og hótanir ESA
skuli þó rökstuddar efasemdir vera
það sterkar að málið hafi verið dreg-
ið til baka á síðustu stundu.
„Líklegra er þó að um pólitíska
ákvörðun sé að ræða, annaðhvort til
að draga málið á langinn og forðast
óþægileg átök um málið svo stuttu
fyrir kosningar, eða, sem ólíklegra
er, að íslensk stjórnvöld hafi tekið
ákvörðun um, eins og Norðmenn, að
standa gegn túlkun ESA og ganga
gegn hugsanlegum dómi EFTA-
dómstólsins síðar. Fróðlegt verður
að fylgjast með framvindu málsins,“
sagði hann í samtali við Viljann.
Fresta frum-
varpi um nýt-
ingu auðlinda
Ráðuneyti svarar Frjálsu landi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Raforka Deilt er bæði hér á landi og
víðar um nýtingu orkuauðlinda.
Blíðskaparveður var sunnanlands á skírdag og margir
nýttu sér aðstæður og tíndu kræklingaskeljar í Hval-
firði. Mikið er af skel við ósa Fossár í firðinum inn-
anverðum og á útfiri voru margir úti á sjávarkambi
með ílát og varð vel til fanga. Þeirra á meðal voru Jens
Bjarnason og Sigríður Ágústsdóttir úr Reykjavík,
Bjarni Gunnar sonur þeirra og Tryggvi Hreinn Gunn-
arsson, vinur hans, sem er lengst til vinstri á myndinni.
„Þetta var skemmileg stund en aðaltilgangurinn var
nú samt sá að komast út í frískt loft nú í samkomubann-
inu,“ segir Jens og bætir við að fjölskyldan verði með
krækling á borðum í kvöld, laugardag, matreiddan eft-
ir kúnstarinnar reglum.
Sú þumalputtaregla gildir að óhætt sé að fara í
kræklingafjöru þegar líðandi er sá mánuður sem hefur
r- í heitinu. Því er enn óhætt reglunni samkvæmt að
safna sér mat með þessum hætti en frá maí til og með
ágúst er ekki ráðlegt að fara í fjöru til mataröflunar
því þá aukast þörungablómi og eiturefni í samræmi við
hærra hitastig sjávar. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Tíndu krækling í Hvalfirði
Ef fresta ætti sektum fyrir notkun
nagladekkja eftir 15. apríl vegna út-
breiðslu kórónuveiru hérlendis þyrfti
að setja sérreglugerð um frestun
vegna utanaðkomandi aðstæðna, að
sögn Árna Friðleifssonar, aðalvarð-
stjóra umferðardeildar lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu.
Morgunblaðið leitaði til hans til að
kanna hvort fresta ætti sektum vegna
nagladekkja svo örtröð yrði ekki á
dekkjaverkstæðum með tilheyrandi
smithættu en notkun nagladekkja er
óheimil frá og með
15. apríl.
„Við erum svo
sum ekkert byrj-
aðir að spá í það,“
sagði Árni.
Veðurfarslegar
aðstæður geta
frestað því að sekt-
að sé vegna nagla-
dekkja en að sögn Árna er það metið
hverju sinni hvenær tímabært sé að
fólk skipti um dekk. „Umferðarlögin
eru alveg við lýði þó að kórónuveiran
sé í gangi. Reglur um hámarkshraða
eru enn gildar og þetta er bara alveg
eins lagabálkur en í þessari reglugerð
er tekið fram að veðurfarslegar
ástæður geti frestað því að sektað sé
fyrir nagladekk.“
Ákvörðun um frestun vegna veð-
urfars hefur ekki verið tekin. Að-
spurður segir Árni um að gera fyrir
þá sem búa á suðvesturhorninu að
drífa sig með bílinn í dekkjaskipti.
ragnhildur@mbl.is
Styttist í að dekkin fari af
Árni Friðleifsson
Íslenska utanríkisþjónustan fagnar
80 ára afmæli í dag. Af því tilefni
hefur Guðni Th. Jóhannesson, for-
seti Íslands, sent utanríkis- og þró-
unarsamvinnuráðherra og starfs-
liði utanríkisþjónustunnar
heillaóskir og þakkir fyrir farsæl
og giftudrjúg störf. Forseti segir í
bréfi sínu að fulltrúar utanríkis-
þjónustunnar hafi frá upphafi sinnt
þörfum Íslands á alþjóðavettvangi
og viðfangsefnin hafi verið fjöl-
þætt.
Guðlaugur Þór hefur þakkað for-
seta hlýjar kveðjur, segir í tilkynn-
ingu frá ráðuneytinu. »18
Utanríkisráðuneytið fær kveðju frá forseta