Morgunblaðið - 11.04.2020, Page 11

Morgunblaðið - 11.04.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2020 BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S a t h . l o k a ð u m p á s k a n a 9 . - 1 3 . a p r í l v e f v e r s l u n o p i n a l l a n s ó l a h r i n g i n n recast svefnsófi kr. 149.900 vandaðir og góðir svefnsófar frá innovation living denmark - skoðaðu úrvalið á linan.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is NÝVEFVERSLUN www.hjahrafnhildi.is 20%afsláttur af öllumBITTE KAI RANDvörum í vefverslun Skipholti 29b • S. 551 4422 Fylgið okkur á facebook FISLÉTTIR DÚN OG VATTJAKKAR MARGIR LITIR FRÁ KR. 19.900 GLEÐILEGA PÁSKA Opið 12.00-16.00 Frí heimsending Lyfjastofnun hefur veitt undanþágur frá öryggiskröfum lækningatækja fyrir einstaka lækningatæki vegna kórónuveirufaraldursins. Stofnunin hefur heimild til þess að veita undanþágur vegna einstaka tækja ef notkun þeirra er í þágu heilsu- verndar, lýðheilsu og almannaheillar. Almennt er eingöngu heimilt að markaðssetja og nota lækningatæki sem uppfylla öryggiskröfur sem gerðar eru samkvæmt lögum um lækningatæki og reglugerðum sem stoð eiga í lögum. Þá þurfa umboðsaðilar, heildsalar og aðrir sem hyggjast flytja út hlífðar- fatnað fyrir heilbrigðisstarfsfólk til 25. apríl næstkomandi að upplýsa Lyfja- stofnun um útflutninginn. Er þetta hluti af viðbragðsáætun stofunarinnar vegna kórónuveirufaraldursins og byggist á reglugerð sem heilbrigðisráð- hera setti 2. apríl síðastliðinn. Einstaka lækningatæki undanþegin reglum Hlífðarfatnaður Undanþágur veittar. Gísli Gunnarsson, pró- fessor eremitus, lést á heimili sínu þriðjudag- inn 7. apríl síðastlið- inn, 82 ára að aldri. Hann fæddist 19. mars árið 1938 í Reykjavík, sonur hjónanna Málfríðar Gísladóttur og Gunn- ars Jóhannessonar. Gísli lauk MA-prófi í sagnfræði og hag- fræði við Háskólann í Edinborg 1961 og doktorsprófi í hagsögu frá Háskólanum í Lundi 1983. Hann var gagnfræða- skólakennari á árunum 1961-1972, kennari í sagnfræði við Háskóla Íslands frá 1982 og prófessor frá 1997 við sama skóla. Gísli vakti mikla athygli fyrir rannsóknir sín- ar, einkum á sviði hagsögu og liggja eftir hann nokkur rit, þar á meðal Upp er boðið Ísaland. Ein- okunarverslun og íslenskt sam- félag 1602-1787. Gísli bjó yfir sterkri réttlætis- kennd og naut sín vel í rökræðum. Hann var mikill áhugamaður um stjórnmál og starfaði árum saman á vinstri væng stjórnmálanna. Hann fylgdist sér- staklega vel með alþjóðastjórnmálum og var virkur í félag- inu Ísland-Palestína. Hann var enn fremur einn af stofnendum Siðmenntar. Gísli lætur eftir sig eiginkonu, Sigríði Ingileifu Sigurbjörns- dóttur, fv. gjaldkera hjá Reykjavíkurhöfn. Hann lætur auk þess eftir sig þrjár dætur; Birnu, Málfríði og Ingileifu og sex barnabörn. Jarðarförin mun fara fram í kyrrþey með nánustu aðstand- endum. Minningarathöfn verður haldin þegar samkomubanni hefur verið aflétt og verður auglýst síð- ar. Þeir sem vilja minnast hans geta styrkt sjóði Krabbameins- félagsins eða Félag langveikra barna. Andlát Gísli Gunnarsson Atvinna Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Stefnt er að því að hefjast handa fljótlega eftir páska við endurbygg- ingu á garðskála Garðyrkjuskólans á Reykjum í Ölfusi. Í óveðri um síð- ustu helgi urðu allmiklar skemmdir á skálanum, þegar plastplötur fuku af þaki og austurvegg bygging- arinnar svo inn komst snjór og krapi. Framkvæmdum flýtt Lauslega áætlað tjón í óveðrinu var um 5-6 milljónir kr. en hins veg- ar var búið að ákveða að fara í end- urbyggingu alls skálans og áformað var að ráðast í það verkefni í vor- byrjun, segir Guðríður Helgadóttir, starfsmaður á Reykjum. Hjá Framkvæmdasýslu ríkisins hefur því verið ákveðið að í stað bráðabirgða- viðgerðar verði umfangsmeiri framkvæmdum flýtt um nokkrar vikur, enda höfðu fjárveitingar til verkefnisins verið tryggðar á fjár- lögum. Því fer allt í gang innan skamms, enda ekki eftir neinu að bíða ef svo mætti segja. Er reiknað með að verkefnið framundan kosti ríflega 150 millj- ónir króna, en þegar hafa ýmsar endurbætur verið gerðar á húsa- kosti á Reykjum undanfarin tvö til þrjú ár. Þar hefur verið starfræktur garðyrkjuskóli frá árinu 1939, en hann varð hluti af Landbúnaðarhá- skóla Íslands við stofnun hans árið 2005. Margar byggingar á staðnum eru komnar til ára sinna og eru í slæmu ástandi, enda hefur fjármagn til viðhalds þeirra í langan tíma verið mjög takmarkað. Nokkrar úrbætur hafa þó verið gerðar eins og áður var nefnt og ónýt hús rifin, en betur má ef duga skal, að sögn Guðríðar. Margra ára barátta „Að fá peninga til viðhalds- framkvæmda var margra ára bar- átta og töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á húsakosti okkar á undanförnum árum,“ segir Guðríður Helgadóttir. „Garðskálinn, sem er hjartað og sálin hér á Reykjum, hefur hins veg- ar beðið en núna er röðin loksins komin að honum. Verktakinn er tilbúinn og hefst væntanlega handa um varanlegar endurbætur á skál- anum nú síðar í apríl.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Garðyrkjuskólinn Plastplötur fuku og flettust af þaki gróðurskálans sem nú stendur opinn fyrir veðri og vindum. Endurbygging gróður- skála áformuð fljótlega  Endurbætur  150 millj. kr.  Húsin í slæmu ástandi Guðríður Helgadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.