Morgunblaðið - 11.04.2020, Síða 14

Morgunblaðið - 11.04.2020, Síða 14
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Kórónufaraldurinn litarvissulega allt manns lífþessa dagana og ég reynieins og aðrir að gera það besta úr þessu. Ég er í heimavist, sjálfskipaðri sóttkví og þegar ég vakna á hverjum morgni finnst mér þetta ástand mjög óraunverulegt. Maður trúir varla að þetta sé að ger- ast,“ segir Jónína Leósdóttir rithöf- undur sem hélt að hún gæti mögu- lega verið með covid, því hún veiktist illa, var með háan hita og önnur co- vid-einkenni. Hún þurfti því að fara í sýnatöku. „Ég keyrði út í heilsugæslu með 39 stiga hita og rúllaði niður rúðunni og þrír geimfarar komu út til að taka sýni. Þetta var mjög súrrealísk upp- lifun og sem betur fer var ég ekki með covid, en ég finn til með þeim sem greinast jákvæðir, því þetta er dauðans alvara,“ segir Jónína sem sendi nú í vor frá sér fimmtu bókina um Eddu á Birkimelnum, rúmlega sextuga konu sem er mikill töffari og hjálpar til við að leysa glæpamál. „Nú eru allir að lesa mikið svo ég er mjög ánægð með að bókin mín sé nýkomin út. Allar bækurnar mín- ar um Eddu hafa komið út að vori, en fram að því hafði ég alltaf verið með bók fyrir jólin. Mér finnst ég njóta þess betur að senda frá mér bækur að vori og þær fá meira pláss, þær drukkna ekki í bókaflóðinu í desember. Ég sá á nýlegum lista að Edda mín var komin í þriðja sæti yf- ir mest seldu bækurnar í mars. Ég get sannarlega glaðst yfir þeim góðu viðtökum og gott að vita af Eddu stytta fólki stundir nú þegar lands- menn eru í heimavist.“ Fylgdist með í sérríboðum Jónína segist á sínum tíma hafa sest sérstaklega niður til að skapa þessa persónu, hana Eddu. „Ég gerði það til þess að sýna að konur þarf ekki að afskrifa þó þær séu að nálgast eftirlaunaaldur. Það er töggur í okkur ennþá,“ segir Jónína og hlær. Edda er kraftmikil og marg- slungin manneskja, orðheppin og rösk, en alls ekki full- komin, hún fer til dæmis oft fram úr sjálfri sér og lætur stundum orð falla sem betur hefðu verið ósögð. „Edda gerir mis- tök eins og við öll. Hún dansar á línunni milli hjálpsemi og af- skiptasemi, og þess að vera óþolandi og að vera skemmtileg.“ Þegar Jónína er spurð að því hvort sögupersónan Edda eigi fyrirmynd í raunheimum eða hvort eitthvað af henni sjálfri búi í henni, svarar hún því til að Edda sé týpan sem hún sjálf vildi svo gjarnan vera. „Ég vildi að ég væri þessi hressa týpa og drífandi sem Edda er, og alltaf að bjóða öllum í mat, en það er bara ekki ég. Ég byggi Eddu svolítið á konum úr bernsku minni, en ég ólst upp í fjölskylduhúsi þar sem bjuggu ógiftar systur pabba míns og þær ólu mig ekki síður upp en foreldrar mínir. Þær voru mjög hress- ar og voru oft með boð þar sem þær gáfu vin- konum sínum sérrí, kökur og kaffi. Þá fylltist stofan af Edd- um og ég fékk að fylgj- ast með þessum boð- um, þegar konur komu saman og slepptu svolít- ið fram af sér beislinu. Frá þessum fundum hef ég til dæmis dönsku- sletturnar og fleira í fari Eddu. Áherslan hjá mér í Eddubókunum er á per- sónusköpunina og fólkið í sögunni. Ég hef mikinn áhuga á að skrifa um fólk og hvernig það tengist og allt það sem kemur upp í mannlegum samskiptum. Þó í þessum bókum sé ævinlega einhver glæpur framinn, þá vil ég ekki að það flæði blóð um stræti, ég velti mér ekki upp úr ein- hverju mjög ógeðslegu.“ Fórnarlömb hefndarárása Í öllum bókunum um Eddu hef- ur Jónína tekið fyrir einhver ákveðin samfélagsleg málefni, oftast tvö í hverri bók, og er nýja bókin engin undantekning. Þar fjallar hún m.a. um hefndarglæpi. „Ég tek alltaf eitthvað fyrir sem mig langar að varpa ljósi á og fá fólk til að hugsa um, en þó ekki þannig að ég sé að messa yfir fólki eða skrifa félagsfræðiritgerð. Ég horfi mikið á BBC-sjónvarpsstöðina og þar er mikið fjallað um hefndarglæpi. Þetta fyrirbæri hefur setið í mér frá því ég sá leikrit í London fyrir nokkrum ár- um sem fjallaði um fórnarlömb hefndarárása og þau sem léku voru raunveruleg fórnarlömb sem sýndu þar örin sín. Þetta var mjög áhrifa- mikið og síðan þá hefur verið á stefnuskránni hjá mér að skrifa bók sem fjallar um þessi málefni,“ segir Jónína og bætir við að hin fléttan í nýju bókinni fjalli um unglings- stelpur sem komast í hann krappan vegna þeirrar litlu stjórnar sem fólk getur haft á samfélagsmiðlum. „Ég les mér alltaf mikið til um það sem ég fjalla um. Fyrst fæ ég hugmynd um málefni sem ég vil fjalla um og síðan finn ég leið til að blanda Eddu inn í það.“ Leyfi öðrum að kíkja inn Vettvangur glæpsins sem sagan hverfist um er á Þingvöllum og fær- ast leikar yfir í hús sem ætlað er ein- vörðungu þjóðhöfðingjum og fyrir- mennum. Þetta hús á Þingvöllum er ekki opið almenningi og í ljósi þess að Jónína er maki fyrrverandi for- sætisráðherra er hægt að gera ráð fyrir að hún þekki hvernig er innan- stokks í því húsi og geti fyrir vikið lýst því svo vel sem raun ber vitni. „Mig hefur oft langað til að leyfa einhverjum öðrum að kíkja inn í þetta hús í gegnum persónu í bók. Ég lét það eftir mér núna. Fólk ímyndar sér eflaust að þarna sem boðið er drottningum, kóngum og forsætisráðherrum séu glæsilegir veislusalir, en þetta er fábreyttara en fólk heldur, enda verður Edda fyrir þó nokkrum vonbrigðum.“ Ég lifði á Agöthu Christie Jónína segist halda mikið upp á glæpadrottninguna Agöthu Christie, þar sem Hercule Poirot og Miss Jane Marple leysa morðgátur af sinni alkunnu snilld. „Ég hef lesið allar bækur Agöthu Christie. Þegar ég bjó í Bretlandi þá tók mig tvo tíma að ferðast með lest til vinnu og svo aft- ur tvo tíma að fara heim. Við slíkar aðstæður verður maður að hafa eitt- hvað að lesa og ég lifði á Agöthu Christie. Maður verður að gleyma sér með því að hverfa inn í heim bók- ar í svo löngum lestarferðum og helst þarf það að vera spennandi bók. Þegar ég skapaði Eddu varð mér vissulega hugsað til Miss Marple sem er líka kona sem allir vanmeta af því hún er orðin fullorðin og situr með prjónana.“ Ekki er hægt að sleppa því að spyrja hvort Jónína geti sagt skilið við Eddu eftir þeirra löngu samveru, en hún hefur sagt að bækurnar um Eddu yrðu ekki fleiri en fimm. Fáum við lesendur þá aldrei framar að fylgja Eddu og hennar fólki við að leysa flókin mál, bæði persónuleg og glæpsamleg? „Hún er í hvíld núna. Ég kem ekki með Eddubók á næsta ári. Ég er samt ekki búin að afgreiða hana í eitt skipti fyrir öll, hún er bara að hvíla sig. Ég held hún komi fílefld til baka einn daginn.“ Ennþá er töggur í okkur Jónína skapaði Eddu á Birkimelnum til að sýna að ástæðulaust er að af- skrifa konur þó þær séu að nálgast eftirlauna- aldur. Edda er kraftmik- ill töffari sem leysir margslungin glæpamál. Morgunblaðið/RAX Rithöfundurinn Jónína „Ég vildi svo gjarnan að ég væri þessi hressa týpa og drífandi sem hún Edda er.“ 14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2020 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Nú þegar vorið er svo kalt sem raun ber vitni og víða mikill snjór er áríð- andi að mannfólk hlúi að smáfugl- unum. Þessir litlu fiðruðu vinir okkar sem gleðja okkur með nærveru sinni, flögrandi um svo kátir og syngja inn betri tíð, þeir eiga skilið að við gauk- um að þeim góðgæti. Þeir eru sólgnir í fitu, orkumikinn mat, og nú þegar fólk heldur kyrru fyrir heima er lag að fylgjast með fuglunum utan við heim- ilið og létta þeim lífið með því að gefa þeim mat. Öll fjölskyldan, því börn njóta þess að hugsa um dýr og læra um hegðun þeirra. Kalt vor fyrir smáfuglana Hlúið að fiðr- uðu vinunum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.