Morgunblaðið - 11.04.2020, Blaðsíða 27
hamfarir og óveður,
skafla, faraldra og
plágur. Og inn til him-
insins eilífu dýrðar
þegar yfir lýkur og við
getum ekki meir.
Ég fel mig því hon-
um. Um leið og ég hlýði
Víði.
Til hamingju með
sigur lífsins
Til hamingju með að
hafa verið valin í lið
lífsins og fá að spila
með til sigurs. Jafnvel þótt einstaka
viðureignir kunni að tapast munum
við að lokum standa uppi sem sig-
urvegarar. Vegna upprisu Jesú
Krists frá dauðum.
Dauðinn er síðasti óvinurinn sem
að engu verður gjörður. Því lífið hef-
ur og mun sigra.
Guð gefi okkur öllum gleðilega
páska. Sanna upprisuhátíð, þrátt
fyrir allt. Fögnum og gleðjumst yfir
sigri lífsins og lifum í þakklæti.
Hann hefur kallað okkur til góðra
verka. Að standa saman og lifa í
samhjálp, sátt og samlyndi. Í banda-
lagi ástúðar, kærleika og friðar.
Með einlægri kærleiks-, sam-
stöðu- og friðarkveðju.
Lifi lífið!
Nú þegar heims-
byggðin hefur verið
lömuð og veit ekki sitt
rjúkandi ráð hefði það
verið svo gott fyrir
okkur öll að þessum
langa föstudegi, sem
við höfum verið að upp-
lifa undanfarnar vikur,
lyki svo með sigri lífs-
ins á páskunum. Þar
sem við hefðum getað
komið saman og fagn-
að saman yfir sigri lífsins. Það
hefði verið eitthvað svo mikilvægt
og svo táknrænt.
En nú verður staðreyndin önnur
og við þurfum að takast á við þá
breyttu mynd með nýjum og ögr-
andi hætti.
Sjálfur hafði ég tekið að mér og
hlakkaði til að fá að leiða guðsþjón-
ustuna í Fríkirkjunni við Tjörnina
á páskadagsmorgun en af því verð-
ur ekki af augljósum ástæðum.
Ætli ég messi þá bara ekki yfir
böngsunum mínum í staðinn eins
og ég gerði reglulega í stofunni
heima þegar ég var fimm ára?
Aðalmálið er
Aðalmálið er þó að Jesús lifni við
í hjörtum okkar og fái að lifa þar,
alla daga, alla tíð, alla leið.
Hann sem sagði: „Ég er upp-
risan og lífið. Sá sem trúir á mig
mun lifa þótt hann deyi.“ „Ég lifi
og þið munuð lifa.“ „Ekki mun ég
skilja ykkur eftir munaðarlaus.“
„Ég verð með ykkur alla daga, allt
til enda veraldar.“
Hver á annars meiri kærleika en
þann að leggja líf sitt í sölurnar
fyrir vini sína? Hvað þá svo þeir fái
lifað um eilífð?
Fylgjum honum. Hann mun
ekki aðeins fylgja okkur og leiða.
Heldur taka okkur sér í fang og
bera okkur í gegnum dimma dali,
Með lífið
í hjartanu
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn
Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
» Aðalmálið er að Jes-
ús lifni við í hjörtum
okkar og fái að lifa þar
alla daga, alla tíð, alla
leið. Hann sem sagði:
„Ég lifi og þið munuð
lifa.“
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2020
Eftir að áskorendamótinuvar frestað í miðjum klíð-um á dögunum færðistskákin alfarið yfir á net-
ið. Hér á landi eru haldin netmót á
hverjum einasta degi og mikið líf í
tuskunum. Það segir auðvitað tals-
vert um aðlögunarhæfni skák-
arinnar og möguleikar á framsetn-
ingu virðast takmarkalausir.
Vinsælasti vefurinn er án efa chess-
.com og þegar greinarhöfundur leit
þar inn sl. miðvikudag höfðu verið
tefldar í kringum fimm milljónir
skáka þann daginn. Meðlimafjöldinn
nálgast 40 milljónir.
Aðaláhyggjuefni á þessum vett-
vangi snýst um tölvusvindl en hug-
búnaður vefþjónanna er öflugur og
ef upp kemst um svindl er viðkom-
andi umsvifalaust settur í keppnis-
bann.
Við bestu aðstæður á alvarlegri
mótum, t.d. með tímamörkum at-
skáka, eru keppendur hafðir í sama
rými, hver með sína tölvu með inn-
byggða myndavél sem fylgist með
hverri hreyfingu. Þannig voru t.d.
aðstæður þegar Puffins, sterkasta
netskáksveit sem íslenskt lið hefur
getað stillt upp, tók þátt í efstu deild
Pro league fyrir nokkrum miss-
erum. Þar leit dagsins ljós ein
skemmtilegasta viðureign sem
greinarhöfundur hefur teflt á net-
inu, merkilega innihaldsrík miðað
við tímamörkin, 15 2. Franska liðið
sem við mættum var geysisterkt og
ég fékk það hlutverk að mæta Vac-
hier-Lagrave.
Þær skylmingar sem fram fóru
hófust fyrir alvöru í 25. leik, tóku
smá hlé í 42. leik, en síðan kom 48.
leikur svarts, lærdómsríkur um
margt:
Pro league 2018:
Vachier-Lagrave – Helgi Ólafs-
son
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. Bb5 Rc6 4.
0-0 Bd7 5. c3 Rf6 6. He1 a6 7. Bc4
b5 8. Bf1 Bg4 9. a4 b4 10. h3 Bxf3
11. Dxf3 g6 12. d3 Bg7 13. Be3 Rd7
14. Hc1 0-0 15. Rd2 Hb8 16. Dd1 f5
17. exf5 gxf5 18. g3 e5 19. Bg2 Ra5
20. f4 exf4 21. Bxf4 Re5 22. Bd5+
Kh8 23. Rf3 bxc3 24. bxc3 c4?!
Hæpið. Eftir 24. … Rxf3+ 25.
Dxf3 Rb3 er staðan í jafnvægi.
25. dxc4 Rb3 26. Rd4?! Rxa1 27.
Hxa1 Hb2?!
„Vélarnar“ mæla með 26. … Df6
til að svara 27. Re6 með 27. … Hfc8
og hanga á liðsvinningi sínum.
28. Re6 Db6+ 29. c5! dxc5 30.
Rxg7 c4+ 31. Dd4!
Ekki 31. Kh1 Rd3! og svartur
vinnur. Nú eru góð ráð dýr!
31. … Dxd4 32. cxd4 Rd3!
Ekki eins dýr og þér haldið! Mikl-
ar vonir voru nú bundnar við c-
peðið.
33. Bh6
Betra var 33. Rh5.
33. … Hf6! 34. Bxc4!
Með hugmyndinni 34. … Hxh6 35.
Rxf6 og 36. Bxd3.
34. … Rf2! 35. Bc1 Rxh3 36. Kh1
Hc2 37. Bb3 Hc3 38. Rh5 Hfc6
Báðir biskupar hvíts eru í upp-
námi. Hvað skal nú til varnar verða?
39. Bb2! Hxb3 40. d5+ Hxb2 41.
dxc6 Hc2
Liðsafli er aftur jafn. Er c6-peðið
ekki að falla?
42. Hb1!
Nei! Hann hótar máti á b8!
42. … Kg8 43. Hb6 Kf7 44. Hxa6
Kg6!
Vandi hvíts liggur í slæmri stöðu
riddarans og lélegri kóngsstöðu.
45. Rf4+ Rxf4 46. gxf4 Kh5 47.
Hb6 Kg4! 48. Kg1
Ekki 48. a5 Kg3! 49. Hb3+ Kxf4
o.s.frv.
48. … Hc5!
Setur góða bremsu á frípeð hvíts.
49. Kf2 Kxf4 50. a5 Hxa5 51.
Hb4+ Kg5
Í tímahraki beggja var hann að
vonast eftir 51. … Ke5 52. c7 Hc5 53.
Hb5! o.s.frv. en ég hefði samt átt að
leika kónginum til e5 því að í stað 52.
… Hc5 má leika 52. … Ha2+! og síð-
an 53. … Hc2.
52. Hc4 Ha8 53. c7 Hc8 54. Hc6
Kf4 55. Hc4 Ke5 56. Kf3 Kd6 57.
Kf4 Hxc7 58. Hxc7 Kxc7 59. Kxf5
h5 60. Kg5 h4 61. Kxh4
– Jafntefli.
Krókur á móti
bragði – á netinu!
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Chessbase
Harður í horn að taka Vachier-
Lagrave.
Bjarni Einarsson handrita-
fræðingur fæddist 11. apríl
1917 á Seyðisfirði. Foreldrar
hans voru Einar Jónsson og
Stefanía Sigríður Arnórsdóttir.
Bjarni lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1937 og cand.mag.-prófi í ís-
lenskum fræðum frá Háskóla
Íslands 1943.
Með háskólanámi var Bjarni
blaðamaður við Þjóðviljann og
síðan fréttamaður hjá Rík-
isútvarpinu 1945-46. Hann
stundaði síðan fræðistörf og
kennslu. Hann dvaldist í Kaup-
mannahöfn 1946-1958, vann
þar á Árnasafni og gerðist
fyrsti sendikennarinn í íslensk-
um fræðum við Hafnarháskóla.
Frá 1958 til 1965 var hann ís-
lenskukennari við Vélskóla Ís-
lands og 1965-1972 lektor í ís-
lenskum fræðum við
Óslóarháskóla, og þar varði
hann doktorsritgerð sína. Frá
1972 til 1987 var Bjarni hand-
ritasérfræðingur við Stofnun
Árna Magnússonar á Íslandi.
Bjarni vann við fræðistörf
svo að segja til hinsta dags, og
liggja eftir hann fjölmargar út-
gáfur, fræðibækur og ritgerðir.
Eiginkona Bjarna var Sig-
rún Hermannsdóttir hjúkr-
unarfræðingur, f. 1919, d. 2020.
Börn þeirra eru fimm.
Bjarni lést 6.10. 2000.
Merkir Íslendingar
Bjarni
Einarsson
Við erum sérfræðingar
í malbikun
Fasteignir