Morgunblaðið - 11.04.2020, Blaðsíða 33
Atvinnuauglýsingar 569 1100
Lausar stöður grunnskóla-
kennara í Stóru-Vogaskóla
Stóru-Vogaskóli óskar eftir að ráða grunnskóla-
kennara í eftirfarandi stöður fyrir næsta skólaár:
• Textíl
• Sérkennslu
• Smíði
Stóru-Vogaskóli er 170 barna grunnskóli þar sem
skólastarf er í senn metnaðarfullt og faglegt.
Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta og
velgengni sem endurspeglast í daglegu starfi
í skólanum. Í skólanum er góður starfsandi og
hefur skólinn að skipa öflugu og áhugasömu
starfsfólki.
Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í nálægð
við fjölbreytta náttúru. Stóru-Vogaskóli er Græn-
fánaskóli.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf til kennslu, skal fylgja umsókn
• Kennslureynsla á því stigi sem sótt er um
• Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
• Færni í samvinnu og teymisvinnu
• Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
• Ábyrgð og stundvísi
• Áhugi á að starfa með börnum
Launakjör eru samkvæmt kjarasamning Kennara-
sambands Íslands.
Fyrirspurnir og umsóknir skal senda á póstfangið
skoli@vogar.is fyrir 21. apríl 2020.
Nánari upplýsingar veita Hálfdan Þorsteinsson
skólastjóri og Hilmar Egill Sveinbjörnsson
aðstoðarskólastjóri í síma 440 6250.
Grunnskólakennarar
Lausar eru til umsóknar kennarastöður við Reykja-
hlíðarskóla í Mývatnssveit frá 1. ágúst 2020
Um er að ræða umsjónarkennslu á unglingastigi,
stærðfræði, náttúrufræði og íþróttir.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.skutustadahreppur.is og
http://www.skutustadahreppur.is/skolinn
Yfirþroskaþjálfi
Spennandi og fjölbreytt starf
við Vinnu og virkni
Ás styrktarfélag óskar eftir yfirþroskaþjálfa í 100%
starf í Ás vinnustofu, Ögurhvarfi 6.
Um er að ræða starfsstað með vinnu- og virknitilboð
fyrir fullorðið fólk með fötlun.
Vinnutími er frá 8.00-16.00 virka daga.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Ber ábyrgð á og skipuleggur faglegt starf á vinnu-
svæðum í samvinnu við forstöðumann
• Veitir starfsmönnum faglega ráðgjöf og fræðslu
• Situr í fagteymi vinnu og virkni. Teymið ber ábyrgð á
faglegu starfi, sér til þess að unnið sé eftir ríkjandi
hugmyndafræði og samræmir daglegt skipulag milli
starfsstöðva.
• Vinnur eftir gæðaviðmiðum og lýsingum úr þjónustu-
samningum
• Er staðgengill forstöðumanns í fjarveru hans
Hæfniskröfur:
• B.A. próf í í þroskaþjálfafræðum eða háskólapróf sem
nýtist í starfi
• Þekkingar á sviði þjónustu við fatlað fólk og ríkjandi
hugmyndfræði
• Að minnsta kosti 7 ára starfsreynsla í sambærilegu
starfi
• Góð samskipta- og samstarfsfærni og sjálfstæð
vinnubrögð
• Þarf að geta unnið undir álagi og eiga auðvelt með
að tileinka sér nýjungar
• Tölvufærni í Word, Excel og Power point ásamt góðri
íslensku- og enskukunnáttu
Umsækjandi þarf að taka virkan þátt í innra starfi
félagsins og hafa stefnu þess og góða starfshætti að
leiðarljósi.
Við hvetjum áhugasama karla jafnt sem konur að
sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Halldóra Þ. Jónsdóttir og
Erna Einarsdóttir í síma 414-0500. Atvinnumsókn
ásamt ferilskrá sendist á halla@styrktarfelag.is
Upplýsingar um félagið má finna á heimasíðu þess
www.styrktarfelag.is
Staðan er laus frá 15. maí 2020 eða eftir nánara
samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 16. apríl. 2020.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum
Áss styrktarfélags.
Yfirvélstjóri
Yfirvélstjóri óskast á Klakk ÍS 903, vélarstærð
1.495 kW. Skipið stundar rækjuveiðar og er
gert út frá Ísafjarðarbæ.
Nánari upplýsingar gefur Guðbjartur
Jónsson í síma 698-7520.
Nánari upplýsingar:
Ari Eyberg (ari@intellecta.is)
Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is)
Umsóknarfrestur: 27. apríl 2020
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is
LV hefur þjónað sjóðfélögum sínum frá
1956. Starfsmenn vinna í þágu sjóðfélaga
við uppbyggingu lífeyrisréttinda og
ávöxtun eigna.
Markmið sjóðsins er að vera áhugaverður
vinnustaður, gæta að jafnvægi milli vinnu
og einkalífs og bjóða gott starfsumhverfi
fyrir samhentan hóp til að vinna að
krefjandi verkefnum.
Nánari upplýsingar um LV má finna á:
www.live.is
Með umsókn skal fylgja kynningarbréf þar sem í stuttu og kjarnyrtu máli er gerð grein fyrir kostum umsækjanda sem nýtast í starfi auk ferilskrár. Á síðari stigum þarf
umsækjandi jafnframt að sýna fram á að persónuleg fjármál og önnur fjárhagsleg umsýsla sé flekklaus.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Áhugasamir einstaklingar, af öllum kynjum, eru hvattir til að sækja um.
Sérfræðingur í eignastýringu
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem viðskipta-,
hag-, eða verkfræði
• Reynsla af störfum á fjármálamarkaði
• Hæfni til að greina flókin fjárfestingarverkefni og kynna
þau með skipulögðum hætti
• Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði
• Hæfni í mannlegum samskiptum og fagleg framkoma
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
• Próf í verðbréfaviðskiptum er kostur
Helstu verkefni:
• Virkt samstarf við forstöðumann eignastýringar
og aðra viðkomandi starfsmenn
• Umsýsla eigna sjóðsins, m.a. eftirlit með ávöxtun
og áhættu í eignasafni
• Greining á væntri ávöxtun og áhættu
eignaflokka til skemmri og lengri tíma
• Greining fjárfestingartækifæra
• Samskipti við aðila á fjármálamarkaði
• Skýrslugerð og almenn upplýsingagjöf til
stjórnenda og eftirlitsaðila
Lífeyrissjóður verzlunarmanna óskar eftir að ráða öflugan einstakling til starfa í eignastýringarteymi
sjóðsins. Leitað er að ábyrgum og metnaðarfullum einstaklingi með reynslu af fjármálamarkaði og
mikinn áhuga á eignastýringu. Næsti yfirmaður sérfræðings er forstöðumaður eignastýringar.
Í boði er áhugavert og krefjandi starf við umfangsmikið eignasafn sjóðsins.
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2020