Morgunblaðið - 11.04.2020, Page 38

Morgunblaðið - 11.04.2020, Page 38
38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2020 60 ára Hjalti ólst upp á Seljavöllum í Nesjum og er kartöflubóndi þar. Hann er búfræðingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri. Hjalti er for- maður Búnaðarfélags- ins í Nesjum og formað- ur sóknarnefndar Bjarnaneskirkju. Maki: Birna Jensdóttir, f. 1953, húsfreyja og bóndi á Seljavöllum. Dætur: Halldóra Hjaltadóttir, f. 1985, og Fjóla Dögg Hjaltadóttir, f. 1990. Dóttur- dóttir er Halldóra Inés. Sonur Birnu frá fyrra hjónabandi er Þorbjörn Gíslason, f. 1971, dóttir hans er María. Foreldrar: Egill Jónsson, f. 1930, d. 2008, bóndi á Seljavöllum, búnaðarráðunautur og alþingismaður, og Halldóra Hjaltadóttir, f. 1929, d. 2017, húsfreyja á Seljavöllum. Hjalti Egilsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ekki reyna að ráðskast með aðra í dag. Forgangsröðun er lausnin. Njóttu þess að hjálpa öðrum. Hvíld er góð. 20. apríl - 20. maí  Naut Gerðu náunganum greiða, hann skilar sér margfalt aftur. Góð bók er það sem þú þarft í dag. Ekki setja öll eggin í sömu skál. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Nú er kominn sá tími að þú getur haldið áfram með verk sem hefur legið í láginni í nokkurn tíma. Njóttu þess að hvíla þig eftir vinnutörn. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Heimili og fjölskylda eru megin- viðfangsefni þín í dag. Hafðu nánar gætur á fjármálunum; þar má ekkert út af bregða. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Vinnufélagarnir beita þig þrýstingi til að breyta um verklag, en það er þér á móti skapi. Hugsaðu þig vandlega um áður en þú fjárfestir í einhverju jafnvel þótt þér finnist það nauðsyn. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þér finnst hægt miða með starfs- framann en vertu róleg/ur. Farðu eftir sannfæringu þinni og þá mun þér farnast vel. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú þarf að eiga við fólk með harða skel, en þú getur vel náð til þess ef þú reynir. Reyndu að fækka óþarfa ferðum í búðina. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Verkefnin hrannast upp sem þarf að klára en þér finnst það bara skemmtilegt. Þú þrífst á hraða og spennu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er kominn tími til þess að ágreiningsefni þín og vina þinna verði jöfnuð. Þú ættir að snúa þér að áhugamáli þínu af fullum krafti. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert búinn að ná sambandi við rétta fólkið sem getur látið draum þinn ræt- ast. Að hika er sama og að tapa. Þú hefur of miklar áhyggjur sem skila þér engu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Nú verðurðu að hægja aðeins á þér og gefa þér tíma til þess að fara í gegn- um persónuleg mál sem þola enga bið. Vertu óhrædd/ur við að leita aðstoðar á þeim sviðum sem ekki eru á þínu valdi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú færð tækifæri til að gera hluti sem þú hefur aldrei komið nálægt áður. Komdu auga á skemmtanagildið í öllum að- stæðum. ég væri enn að skipa fólki fyrir: „borðaðu þetta, gistu þarna og farðu þangað“.“ m.a. um Læknadaga, Arctic Circle og Natófundi. Bræður mínir sögðu að ég hefði ekkert skipt um starf, Ó lafía Björk Bjarkadótt- ir er fædd 11. apríl 1950 á Akureyri en flutti suður árið 1954, fyrst í Kópavog og síðan til Reykjavíkur. Hún var í sveit í Fagraskógi við Eyjafjörð hjá Auði Björnsdóttur, frænku sinni, og Magnúsi Stefánssyni á hverju sumri frá 6 til 16 ára ald- urs. Björk gekk í Kársnesskóla, Austurbæjarskóla og Gagnfræða- skóla Austurbæjar. Hún fór síðan í Húsmæðraskólann á Varmalandi í Borgarfirði 1968-1969 og upp úr 1990 í öldungadeild Verzlunar- skóla Íslands og varð stúdent það- an. Hún fór síðan í Háskólann í Reykjavík árið 1998 og útskrif- aðist þaðan með diplóma í við- skiptafræði árið 2000. Björk dvaldi í Svíþjóð 1967-1968 sem au pair hjá Hannesi Hafstein sendiherra, vann hjá Æskulýðs- ráði í Tónabæ 1969-1972 og varð síðan fangavörður. „Ég var beðin um að leysa af í fangageymslu lög- reglunnar í viku árið 1972 og sú vika varð óvart að 26 árum.“ Hún var í fimmtán ár á lögreglustöð- inni á Hverfisgötu, varð varðstjóri í Hegningarhúsinu á Skólavörðu- stíg 1987 og síðan yfirfangavörður fangelsa á höfuðborgarsvæðinu 1988. Þá voru þrjú fangelsi á höf- uðborgarsvæðinu: kvennafang- elsið, Síðumúlafangelsið og Hegn- ingarhúsið, og um 40 fangaverðir. „Þegar ég byrjaði að taka á móti barnabörnum fyrstu fang- anna minna fannst mér komið nóg og fór í háskólanám. Flóttaleiðin mín úr fangelsinu var því Háskól- inn í Reykjavík. Ég þurfti síðan sumarstarf eins og hin börnin í skólanum og sá auglýst starf í ráðstefnudeild Ferðaskrifstofu Ís- lands og var þar þangað til ég lét af störfum fyrir aldurs sakir um áramótin 2018-2019.“ Björk var verkefnastjóri og sá um ráðstefnur á vegum ferðaskrif- stofunnar, stórar og smáar, en ráðstefnurnar voru frá 10 manns og allt í upp í 2.000. „Við sáum Björk var formaður Fanga- varðafélagsins frá 1976 til 1998, en þegar hún varð yfirfangavörður passaði ekki að vera formaður lengur. Hún sat í stjórn Norræna fangavarðasambandsins 1980-1988 og var fyrsta konan í stjórn þess, og er heiðursfélagi. Björk var í barnaverndarnefnd Mosfellsbæjar í tvö kjörtímabil, eða átta ár, á áttunda áratugnum og var formað- ur seinna kjörtímabilið. Áhugamál Bjarkar eru ferðalög og lestur og sumarbústaðurinn sem er í Oddsholti í Grímsnesi. „Aðaláhugamálið er samt barna- börnin og langömmubarnið.“ Fjölskylda Eiginmaður Bjarkar er Kristján Friðriksson, f. 26.10. 1945, fyrr- verandi verksmiðjustjóri hjá Kornax. Þau eru búsett í Mos- fellsbæ. Foreldrar Kristjáns voru hjónin Friðrik Jóhannsson, f. 28.11. 1913, d. 9.9. 1998, og Sól- veig Þorgilsdóttir, f. 29.8. 1912, d. 8.12. 1965. Börn Bjarkar og Kristjáns eru 1) Kristín Sólveig Kristjánsdóttir, f. 27.9. 1972, læknir í Danmörku. Fyrrverandi maki er Bergsveinn Jóhannesson blikksmiður og börn þeirra eru a) Auður Agla Berg- sveinsdóttir, f. 26.10. 1992, maki hennar er Oliver Storgaard og sonur þeirra er Kristján Noah og b) Jóhannes Tumi Bergsveinsson, f. 6.11. 1999. 2) Bjarki Elías Krist- jánsson, f. 18.9. 1974, tæknilegur þróunarstjóri hjá Capacent, bú- settur í Mosfellsbæ. Maki er Hel- ena Katrín Hjaltadóttir, aðstoð- arskólastjóri í Dalskóla, og börn þeirra eru Lea Björk Bjarkadótt- ir, f. 18.8. 2006, og Ari Kristján Bjarkason, f. 2.1. 2009. Börn Hel- enu og fósturbörn Bjarka eru Andri Ágústsson, f. 8.12. 1997, og Matthildur Birta Sveinsdóttir, f. 13.10. 2001. Dóttir Kristjáns er Sesselja Kristjánsdóttir, f. 4.6. 1970, óperusöngkona, búsett í Reykjavík. Alsystkini Bjarkar eru Stefán Elías Bjarkason, f. 4.4. 1952, fyrr- Björk Bjarkadóttir, fyrrverandi fangavörður og verkefnastjóri – 70 ára Stórfjölskyldan Á sjötugsafmæli Kristjáns fyrir fimm árum. Hélt áfram að skipa fólki fyrir Með langömmubarninu Björk og Kristján Noah í mars síðastliðnum. Systkinin Björk er fyrir miðju myndarinnar sem var tekin 1982. 40 ára Jón Trausti ólst upp á Flateyri til l4 ára aldurs en hefur búið í Vesturbæ Reykjavíkur síðustu árin. Hann er með BA- gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands og er ritstjóri og framkvæmdastjóri Stund- arinnar. Börn: Sólon Snær Traustason, f. 2005, og Vera Traustadóttir, f. 2012. Systkini: Róbert Reynisson, f. 1974, Hrefna Sigríður Reynisdóttir, f. 1977, Símon Örn Reynisson, f. 1988, og Harpa Mjöll Reynisdóttir, f. 1996. Foreldrar: Halldóra Jónsdóttir, f. 1956, félagsliði, búsett í Hveragerði, og Reynir Traustason, f. 1953, ritstjóri Mannlífs, búsettur í Njarðvík. Jón Trausti Reynisson Til hamingju með daginn Reykjavík Halldóra Inés Aguirre fæddist 31. október 2019 kl. 14.24 á Landspít- alanum. Hún vó 3.514 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Fjóla Dögg Hjaltadóttir og Juan Manu- el Aguirre de los Santos. Nýr borgari ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ESTRO Model 3042 L 164 cm Leður ct. 15 Verð 365.000,- L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,- CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.