Morgunblaðið - 11.04.2020, Síða 43

Morgunblaðið - 11.04.2020, Síða 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2020 Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða Nánar á artasan.is Nærir hárið og styður við hárvöxt Hair Gro inniheldur: • Sink sem stuðlar að eðlilegum hárvexti • Eplakjarna, elftingu og hirsi • Tocotrienol, amínósýrur og bíótín • Procyanidin B2 úr eplum Leikarinn og handritshöfundurinn Larry David kemur leikstjóranum Woody Allen til varnar og segir erf- itt að trúa því að hann hafi gert eitthvað af sér. Vísar hann þar til ásakana ættleiddrar stjúpdóttur Allens, Dylan Farrow, þess efnis að Allen hafi misnotað hana kynferðis- lega árið 1992. David lét þessi um- mæli falla í viðtali við New York Times eftir að hafa lesið nýút- komna ævisögu Allens, Apropos of Nothing. David öðlaðist frægð sem einn af handritshöfundum gamanþáttanna Seinfeld og síðar eigin þátta, Curb Your Enthusiasm, sem hann fór með aðalhlutverkið í. „Já, hún er býsna góð, þetta er frábær bók, mjög fyndin,“ segir David í viðtal- inu og að erfitt sé eftir lesturinn að trúa því að höfundurinn, Allen, hafi gert eitthvað af sér. Bók Allens kom út 23. mars sl. og var það forlagið Arcade sem gaf hana út eftir að annað forlag, Grand Central, hætti við útgáfuna vegna mótmæla starfsmanna og þrýstings frá Ronan Farrow, syni Allens, sem talað hefur máli systur sinnar. Móðir þeirra er Mia Far- row. Allen leikstýrði Larry David í kvikmyndinni Whatever Works sem kom út árið 2009. Efins Larry David segist eiga erfitt með að trúa því að Allen hafi brotið af sér. Larry David kemur Allen til varnar Gunnar Hansson, dagskrár- gerðarmaður og leikari, var beð- inn að mæla með verkum sem njóta má innan veggja heimilisins í samkomubanninu. „Já, það er nú ýmislegt sem ég leita í á svona stundum, til dæmis er ein klassísk bíómynd sem er í sérstöku uppáhaldi hjá mér; This is Spinal Tap. Þetta er líklega skemmtilegasta mynd sem ég hef séð og ég get ekki orðið leiður á henni! Leikin heimild- armynd um breska þunga- rokkshljómsveit sem getur ekki gert neitt rétt en gerir samt einhvern veginn allt svo yndislega rétt. Ég sé allt- af eitthvað nýtt í henni í hvert skipti sem ég horfi. Þetta er yndislegur spuni sem fær 11 af 10 mögulegum! Svo hlusta ég mjög mikið á hlaðvörp ýmiskonar. Þessa dag- ana hef ég verið að hlusta mikið á Conan O’Brian needs a friend, þar sem þessi frábæri sjónvarps- maður og grínari tekur viðtöl við mjög skemmtilega einstaklinga, flestir líka grínarar. Með þessum gestum og aðstoðarfólki Conans, Sonu og Matt og svo auðvitað Conan sjálfum, fara samræðurnar yfirleitt á mjög skemmtilegt flug sem ég baða mig í. Svo verð ég reyndar að minnast á íslensku hlaðvarpsþættina Fílalag, með Bergi Ebba og Snorra Helga, sem ég hef hlustað á í hverri viku frá því þeir byrjuðu. Þeir eru alltaf stórskemmti- legir í sínum fíl- ingi. Að lokum horfi ég talsvert á sjónvarps- þætti. Þar er auðvitað af nógu að taka, en kannski kemur fyrst upp í hugann sú frábæra netflix- þáttaröð Ozark, en það var ein- mitt að koma ný þáttaröð sem ég get ekki beðið eftir að háma í mig. Jason Bateman er einn af mínum uppáhaldsleikurum og hann ekki bara leikur aðal- hlutverkið í þáttunum, heldur leikstýrir nokkrum af þeim og er einn framleiðenda. Þetta eru svakalegir spennuþættir sem maður klárar neglurnar yfir. Stemningin og allir hinir leik- ararnir eru algjörlega fyrsta flokks.“ Mælt með í samkomubanni Yndisáhorf This is Spinal Tap er sprenghlægileg kvikmynd. Fær 11 stig af 10 mögulegum Spennandi Jason Bateman og Laura Linney leika hjón í Ozark. Gunnar Hansson Conan O’Brien Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Loksins, loksins! segja einhverjir nú þegar fyrsta plata Ljótu hálfvit- anna síðan 2015, Hótel Edda, er komin út. Hljómsveitin er enn skip- uð sömu meðlimum og verið hafa í hljómsveitinni frá byrjun. „Við er- um þessir sömu níu og voru á fyrstu plötunni,“ segir Ármann Guðmundsson, einn hljómsveitar- meðlimanna. Sveitin hefur haldið hópinn að mestu í gegnum árin síð- an hún var sett saman árið 2006. „Það hefur komið fyrir að menn hafa dottið tímabundið út en það er alltaf bara í stuttan tíma.“ Ármann segir hann og aðra með- limi hafa byrjað að vinna að plöt- unni að alvöru í fyrra. „Þá fórum við að hittast. Við búum svolítið dreift um landið þannig við æfum ekki reglulega. Við höfum þann háttinn á að við mælum okkur mót og tökum langa helgi,“ seg- ir Ármann. „Ef menn eru búnir að vera að semja þá mæta menn með það en svo er líka reiknað með að við semjum saman á staðn- um.“ Margir Ljótu hálfvitanna hafa verið í öðrum verkefnum tengdum tónlistinni á meðan hljóm- sveitin hefur verið í dvala. Þar má til dæmis nefna bræðurna Baldur og Snæbjörn Ragnarssyni sem leik- ið hafa með þungarokkshljómsveit- inni Skálmöld um árabil en sú sveit er nú í fríi. „Það er oft erfitt að koma saman prógrammi hjá okkur. Við þurfum að skipuleggja okkur langt fram í tímann til að ákveða tónleika,“ segir Ármann. Mikil keyrsla Hann segir plötuna vera í ætt við það sem komið hefur frá Ljótu hálf- vitunum áður. „Það varð einhvern veginn sú þróun þegar við völdum lögin á plötuna að það er meiri keyrsla á henni, svona samfelld keyrsla. Það er ekkert lag sem er beinlínis rólegt á henni.“ Þá segir Ármann lögin vera stutt og fólk því fljótt að renna í gegnum plötuna. „Hún er ekki nema rétt tæpur hálftími,“ segir hann en tólf lög eru á plötunni. „Það eru mjög pönkuð lög og svo mjög þjóðlaga- skotin lög. Það eru svona tvö meginþemu en líka popplög inn á milli.“ Ákveðið þema er í text- unum líka. „Flestir text- arnir okkar fjalla um fólk sem virkar ekki alveg eins og það ætti að gera af ýmsum ástæðum. Við fjöllum um frestunaráráttu. Drykkjuskapur kemur einnig við sögu en við erum ekki að reyna að draga hann fram í neinum fallegum litum. Ég myndi segja að forvarnargildið væri þó- nokkurt.“ Hótel sem þú vilt ekki gista á Um titil plötunnar segir Ármann það vera einskonar innahússbrand- ara hjá hljómsveitinni. Framan á plötunni er einn meðlima hennar, Eggert Hilmarsson, kallaður Eddi, sem Ármann segir þöglu og sterku týpuna. „Á sviði segir hann yfirleitt ekki mikið en þess á milli er hann okkar fyndnasti maður, það er enginn sem lætur okkur fara jafn mikið að hlæja og hann. Þetta er hótelstjór- inn á Hótel Eddu,“ segir Ármann og tekur fram að ekki sé verið að tala um Edduhótelin. „Þetta er hót- el sem þú vilt sennilega ekki gista á.“ Útgáfutónleikar þurfa að bíða Ljótu hálfvitunum finnst alltaf jafn gaman að koma saman, að sögn Ármanns. „Þetta verður ekki þreytt hjá okkur. Okkur finnst það ekki að minnsta kosti.“ Þeir félagar ætluðu að halda út- gáfutónleika á Græna hattinum um páskana en þeir hafa verið blásnir af eðli málsins samkvæmt. „Við er- um bara að sjá hvernig þetta þróast og bíðum rólegir. Við eigum bókaða tónleika í júlíbyrjun en við sjáum hvort það stendur,“ segir Ármann. „Það veit enginn neitt hvernig þetta fer. Við vonum bara það besta.“ Hann segir viðtökurnar hafa ver- ið góðar. Fólk sé að hlusta og segist ánægt. „Ég hef ekki heyrt neinn halda því fram að þetta sé versta platan okkar allavega. Við höfum bullandi trú á þessu og almenna skoðunin innan bandsins er að þetta sé okkar besta plata.“ Hótel Eddu má nálgast á spotify en einnig er hægt að panta eintak af geisladiski á veraldarvefnum góða. Ljótu hálfvitarnir Hér má sjá alla meðlimi hljómsveitarinnar saman komna. „Okkar besta plata“  Ljótu hálfvit- arnir mættir aftur  Fyrsta plata hópsins í fimm ár Ljósmynd/Dagur Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.