Morgunblaðið - 29.04.2020, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 29.04.2020, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2020 www.flugger.is*Tilboðið gildir frá 6.-30. apríl 2020 á meðan birgðir endast á öllum stærðum og gljástigum af áðurnefndum vörum í tilboðinu Langar þig að lakka glugga, húsgögn eða innréttingar? Flügger Interior Fix Primer og Interior High Finish leysir það verkefni með þér. 30% afsláttur út apríl* Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hópuppsögn Icelandair er sú stærsta á öldinni á Íslandi og að lík- indum frá upphafi, segir Karl Sig- urðsson, sérfræðingur hjá Vinnu- málastofnun. Um 2 þúsund manns var sagt upp hjá Icelandair í gær. Karl tók saman, að beiðni Morgunblaðsins, lista yfir fjölmenn- ustu hópuppsagnir á Íslandi frá haustinu 2008. Féllu þá bankarnir og stór hluti hagkerfisins með og kom það ekki síst illa við mannvirkjagerð á þeim tíma. Sagði upp um 900 manns Ístak sagði upp um 900 manns í þremur uppsögnum 2008 og 2009. Að sögn Karls var samtals 2.088 manns sagt upp í mannvirkjagerð haustið 2008 og 749 til viðbótar á árinu 2009, hjá samtals um 50 fyrir- tækjum. Alls 2.840 manns. Þá var sagt upp samtals á sjötta hundrað manns í tveimur hópupp- sögnum hjá Airport Associates 2018 og 2019. Fyrirtækið þjónustar flug- félög á Keflavíkurflugvelli og varð fyrir þungu höggi við fall WOW air. Þá sagði Kaupás upp um 300 manns í tveimur uppsögnum 2008. Uppsagnir hjá bönkunum Sama ár var álíka mörgum sagt upp hjá Landsbankanum. Alls var um 640 manns sagt upp hjá Landsbankanum, Kaupþingi og Glitni árið 2008. Þá var um 170 manns sagt upp hjá SPRON 2009. Af þessari upptalningu má sjá hversu stór hópuppsögn Icelandair í gær telst vera í íslensku samhengi. Til samanburðar misstu 300-400 manns vinnuna þegar stjórnendur WOW air endurskipulögðu rekstur- inn í desember 2018 en við það fækk- aði líka störfum hjá þjónustuaðilum, á borð við Airport Associates. Sam- kvæmt upplýsingum frá Vinnumála- stofnun var þar af um 110 starfs- mönnum sagt upp hjá flugfélaginu. Þá misstu um þúsund manns vinn- una við gjaldþrot WOW air 28. mars í fyrra en það telst ekki hópuppsögn. Um 800 manns sóttu þá um atvinnu- leysisbætur, að sögn Karls. Fall fé- lagsins hafði víðtæk áhrif. Aldrei fleirum verið sagt upp Hópuppsagnir á Íslandi frá 2008* 2008 Fyrirtæki Fjöldi Húsasmiðjan 144 Ísl. aðalverktakar 151 Kaupþing 158 Kaupás 240 68 Landsbanki 298 Icelandair 207 Byggingarfélag Gylfa og Gunnars 164 26 Pósthúsið 129 58 Glitnir 85 100 Klæðning 109 Ístak 300 300 2009 Fyrirtæki Fjöldi Spron 167 Ístak 275 2011 Fyrirtæki Fjöldi Ísl. aðalverktakar 129 40 2016 Fyrirtæki Fjöldi Actavis 105 2017 Fyrirtæki Fjöldi Actavis 80 2018 Fyrirtæki Fjöldi Kornið 120 WOW air 111 Airport Associates 213 2019 Fyrirtæki Fjöldi Arion banki 102 Airport Associates 315 2020 Fyrirtæki Fjöldi Icelandair 2.000 Heimild: Vinnumálastofnun *Stærstu hópuppsagnir frá 2008, þar sem 100 eða fleiri er sagt upp  Hópuppsögn Icelandair nær til fleiri en misstu vinnuna hjá bönkum í hruninu  Tífalt fleiri missa nú vinnuna hjá félaginu en vegna niðurskurðar árið 2008 „Það er stórt skarð höggvið í starfs- mannahópinn en við vonum að þetta vari stutt og við fáum allt fólkið okkar aftur inn,“ segir Vala Ólöf Kristins- dóttir, varaformaður Staff, félags starfsmanna hjá Icelandair. Félagið tilkynnti í gær um upp- sagnir yfir tvö þúsund starfsmanna og segir Vala Ólöf að fólki innan Ice- landair-samstæðunnar sé sorg í hjarta. „Við höfum aldrei gengið í gegnum svona tíma en þetta er auð- vitað fyrst og fremst sorglegt. Það fer alveg gígantísk þekking út úr grúpp- unni við þetta. Þekking sem starfs- fólk hafði öðlast á löngum tíma, sumir á nokkrum áratugum,“ segir hún. Mikil þekking tapast Morgunblaðið/Árni Sæberg Icelandair Yfir 2.000 var sagt upp. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Búið er að aflétta heilmikilli óvissu. Nú geta menn farið að skipuleggja sig miðað við þetta,“ segir Kristófer Oliversson, forstjóri Center hótela og formaður FHG - Fyrirtækja í hót- el- og gistiþjónustu, þegar leitað var álits hans á þriðja aðgerðapakka rík- isstjórnarinnar vegna afleiðinga kór- ónuveirunnar. Segir Kristófer að fyrirtækin hafi ekki getað gripið til neinna ráða vegna þess að ekki hafi verið vitað hvað væri framundan. „Nú getum við brugðist við og farið í nauðsyn- legar aðgerðir og unnið að því að koma fyrirtækjunum í dvala þar til úr rætist.“ Einnig eru hótelmenn ánægðir með fyrirhugaða einföldun reglna um fjárhagslega endurskipu- lagningu fyrirtækja enda sé það al- ger forsenda þess að fyrirtækin komist í skjól. Davíð Torfi Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Íslandshótela, segir að aðgerðirnar hjálpi stjórnendum að taka þær ákvarðanir sem þeir verði að taka. „Maður sér nú aðeins í gegnum skaflinn. Auðvitað er óviss- an ennþá mikil en aðgerðirnar munu nýtast okkur vel til að tryggja rekstrargrundvöll fyrirtækisins.“ Styrmir Þór Bragason, fram- kvæmdastjóri Arctic Adventures, segir að með aðgerðunum fái ferða- þjónustan viðurkenningu. „Þetta sýnir að menn ætla að mæta þörfum atvinnugreinarinnar og reyna eftir fremsta megni að hjálpa fyrirtækj- unum sem eiga síðan að hjálpa sér sjálf,“ segir Styrmir Þór. Miðað við hljóðið í stjórnendum ferðaþjónustufyrirtækja er ljóst að miklar uppsagnir verða um þessi mánaðamót og þau næstu. Þær hlaupa á þúsundum, eða ná jafnvel öðrum tugi þúsunda. Líta má til þess að 35 þúsund starfsmenn eru á hluta- starfaleið ríkisstjórnarinnar, þar af 14 þúsund í ferðatengdum greinum. Tilboð til Íslendinga Íslandshótel reka 17 hótel sem flest eru lokuð. Davíð segir stefnt að því að halda Grand hótel við Sigtún opnu í sumar og 6-7 hótelum á lands- byggðinni. Reiknar hann með að nauðsynlegt verði að segja upp 230 af 570 starfsmönnum. Íslandshótel eru að undirbúa góð tilboð til Íslend- inga um gistingu á hótelum í öllum landshlutum í sumar. Center hótel eru með 300 starfs- menn, alla hjá sjö hótelum á höfuð- borgarsvæðinu. Nú er aðeins Hótel Miðgarður við Hlemm opið, þótt ekkert sé að gera, og verður það eina hótelið sem fyrirtækið ætlar að halda opnu í sumar. Kristófer segir það því miður augljóst að einhverj- um verði sagt upp, en það verði verk- efni miðvikudags og fimmtudags að meta það. Styrmir Þór segir að verið sé að meta stöðuna út frá aðgerðum ríkis- stjórnarinnar. Nú starfa 150 manns hjá fyrirtækinu og hefur þeim fækk- að um helming í vetur, bæði í haust og síðan eftir áramót vegna afleið- inga kórónuveirufaraldursins. Útlit fyrir mikl- ar uppsagnir Morgunblaðið/Ómar Gullfoss Fjöldi manns var alla daga í fyrra við helstu áningarstaði landsins,  Stjórnendur fyrirtækja fagna aðgerðum Formaður Félags íslenskra atvinnu- flugmanna (FÍA) segir að Icelandair hafi gengið heldur lengra í uppsögn- um en hann hélt fyrir fram, að minnsta kosti miðað við fyrirséða flugáætlun. Hann segir að um var- úðarráðstöfun sé að ræða, skorið sé inn að beini og síðan ætli menn að draga uppsagnir til baka. „Ég get sagt það sem svo að starfsmennirnir eru ekki látnir njóta vafans,“ segir Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA. Meðal þeirra rúmlega 2.000 starfsmanna sem Icelandair segir upp nú um mánaðamótin eru tæp- lega 900 flugfreyjur og flugþjónar. Var það upplýst á rafrænum starfs- mannafundi í gær. Fyrirtækið segir upp 421 flugmanni og og 10 til við- bótar missa flugstjórastöðu og fær- ast í sæti aðstoðarflugmanns. Þá verður 13 flugmönnum hjá Air Ice- land Connect sagt upp störfum. Mikið áfall fyrir stéttina „Þetta er gríðarlegt áfall fyrir stéttina. Við áttum von á uppsögnum en ég held að fæstir hafi átt von á þessum fjölda. Eftir standa 35 stöðu- gildi,“ segir Guðlaug Líney Jóhanns- dóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands. Hún segir að félagið muni reyna að styðja við félagsmenn sína. Það sé erfitt á tímum samkomu- banns. Hún segir að margar spurn- ingar brenni á fólki. Í kjarasmningum flugliða eru ákvæði um að fara skuli eftir starfs- aldri í hópuppsögnum. Þeir flug- menn og flugfreyjur sem hæstan starfsaldur hafa verða því áfram við störf. Forystumenn stéttarfélag- anna vonast til að Icelandair muni þurfa á þeim mannskap að halda síð- ar, sem sagt er upp nú. freyr@mbl.is Skorið er inn að beini  Icelandair sagði upp fleira starfsfólki en formenn stétt- arfélaganna áttu von á  900 flugfreyjum sagt upp Fjöldauppsagnir hjá Icelandair

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.