Morgunblaðið - 29.04.2020, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 29.04.2020, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2020 Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Æsa Guðbjörg Guðmundsdóttir er 100 ára í dag. Hún fæddist á Egils- stöðum í Villingaholtshreppi 29. apríl 1920 og ólst þar upp á hefð- bundnu sveitaheimili, sú þriðja yngsta í hópi tíu systkina sem öll eru nú látin. Úr þessum systkina- hópi er Æsa önnur til að ná hundr- að ára aldri. Foreldrar hennar voru Guðmundur Ágúst Eiríksson bóndi og Kristín Gísladóttir hús- freyja. „Eins og þess tíma var háttur sótti Æsa Guðbjörg farskóla að Forsæti, Kolsholti og Villingaholti í sömu sveit fram að fermingu, en um aðra menntun var ekki að ræða,“ segir Kristín Gunnarsdóttir, bróðurdóttir afmælisbarnsins. Ógift og barnlaus Æsa flutti með fjölskyldu sinni á Selfoss 1954, er foreldrar hennar brugðu búi á Egilsstöðum, og hef- ur síðan búið á Selfossi. Þar hélt hún heimili með foreldrum sínum, en lengst af með Guðjóni, bróður sínum, en hann lést 2001. Þau Guð- jón bjuggu um árabil í sambýli með Kristínu og hennar fjölskyldu. Síðan 2009 hefur Æsa búið á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum á Selfossi. Æsa er ógift og barnlaus og hef- ur aldrei starfað utan heimilis, að undanskildu því að hafa verið vinnukona á einkaheimilum í Reykjavík nokkra vetur á stríðs- árunum. Kristín segir að áhugamál Æsu hafi að mestu snúist um prjónaskap. „Hún var afkastamikil prjónakona og seldi meðal annars lopapeysur um langt árabil. Eiga margir ættingjar og vinir eftir hana prjónles og prjónaða ullar- sokka.“ Að sögn Kristínar hefur Æsa fram til þessa tíma verið við sæmi- lega heilsu, þótt sjón og heyrn hafi nú nokkuð hrakað. „Hún hefur ávallt verið hæglát í fasi og lengst af stálminnug á liðna tíma, nöfn og afmælisdaga ættingja, vina og samferðamanna sem nú eru flestir horfnir á braut.“ Stálminnug prjónakona frá hefðbundnu sveitaheimili  Æsa Guðbjörg Guðmundsdóttir á Selfossi 100 ára Tímamót Æsa Guðbjörg Guðmundsdóttir á Selfossi er 100 ára í dag. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Til stendur í sumar að bæta og breyta byggingu sem er yfir bæjarrústunum á Stöng í Þjórsárdal. Bærinn þar er talinn hafa farið undir ösku í Heklugosi árið 1104 en var graf- inn upp af forn- leifafræðingum árið 1939. Skáli yf- ir rústirnar var reistur sumarið 1957; lágreist bygging með bárujárnsþaki og timburveggjum sem nú eru farnir að láta verulega á sjá. Burðarvirkið sjálft þarf svo að endurnýja að hluta. Sjáist frá fleiri vinklum „Markmiðið er að vernda minjarnar á Stöng betur gegn veðri og vindum og stuðla að því að fólk geti skoðað þetta frá fleiri vinklum en verið hefur. Þá stendur til að gera ýmsar endur- bætur í nágrenninu, svo sem á göngu- stígum,“ segir Kristín Huld Sigurð- ardóttir, forstjóri Minjastofnunar, í samtali við Morgunblaðið. Framkvæmdir sumarsins verða að setja glært báruplast á burðarvirkið. Jafnframt á að lengja skálann um þrjá metra til austurs, meðal annars til að koma í veg fyrir að vatn flæði þar inn og valdi skemmdum. Þar verður hægt að ganga inn í skálann á útsýnispalli og horfa yfir rústirnar. Mun sólarljóss þar njóta í gegnum glæra þakklæðn- inguna. Lokað verður hins vegar fyrir aðgang inn í rústirnar sjálfar til að forða þeim frá átroðningi og skemmd- um, sem nokkuð hefur borið á. Við vesturhlið skálans verður settur upp annar útsýnispallur þar sem einn- ig verður hægt að horfa yfir rústir bæjarins í gegnum stóra glugga – auk þess að njóta útsýnis yfir Þjórsár- dalinn sjálfan. Ódýrari leið Fyrir nokkrum árum var efnt til samkeppni meðal arkitekta um nýja byggingu yfir Stangarbæinn og voru þá miklar hugmyndir uppi. Kostnaðar vegna meðal annars reyndust þær bollaleggingar ekki alls kostar raun- hæfar. Var því ákveðið að leita nýrra og ódýrari leiða eins og nú liggja fyrir. Unnið er að ítarlegri verklýsingu og er gert ráð fyrir að aflað verði tilboða í verkið á næstu vikum. „Sú uppbygging og endurbætur sem nú eru fram undan á Stöng í Þjórsárdal eru mjög spennandi,“ segir Kristófer Arnfjörð Tómasson, sveit- arstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps. „Byggingin sem nú stendur til að reisa yfir rústirnar mun falla vel inn í lands- lagið á þessum slóðum samkvæmt þeim teikningum sem fyrir liggja og sveitarstjórn hefur samþykkt. Í raun er þetta bara breyting á núverandi húsi.“ Dalur í deiglu Uppbygging og efling í Þjórsárdal hefur lengi verið í deiglunni og hefur fjöldi erinda þar að lútandi komið á borð sveitarstjórnar á undanförnum misserum. Áform eru til dæmis uppi um byggingu baðstaðar og hótels und- ir svonefndum Rauðukömbum og til stóð að hefjast þar handa á næstu mánuðum. Þá hefur verið unnið að ýmsum endurbótum í Gjánni skammt fyrir innan Stöng, grónum og djúpum hraundal sem fallegir fossar og lækir falla um. Gjáin var friðlýst í janúar síð- astliðnum sem og þrír fossar í Þjórs- árdal; Hjálparfoss, Háifoss og Granni. Fylgir friðlýsingunni að landvarsla verður á svæðinu og framkvæmdir sem miða að því að gera staðinn að- gengilegan. Endurbyggja á Stangarskálann Skissa Glært plastþak verður sett á burðarvirkið yfir bænum á Stöng og ut- an við hann verða settir upp útsýnispallar þar sem fólk horfir yfir rústirnar. Kristín Huld Sigurðardóttir  Framkvæmdir á Stöng í Þjórsárdal í sumar  Útsýnispallar og sólarljóss mun njóta  Vernd fyrir veðri og vindum  Lokað inn í bæinn sjálfan  Gjáin og fossarnir í dalnum nú friðlýst svæði Morgunblaðið/Sigurður Bogi Stöng Rústirnar voru grafnar úr Hekluvikri árið 1939. Löngu síðar var reistur hinn svipsterki skáli, sem nýtist að hluta við endurbæturnar. IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2020 Ford F-350 Lariat TREMOR Litur: Svartur/ Svartur að innan. Einnig í boði í Star White, Magnetic grey og Blue Jeans. Lariat með Sportpakka, Ultimatepakka og TREMOR-pakka. Innifalið í TREMOR-pakkanum er læst framdríf, 2” upphækkun að framan, 35” dekk, Drive mode stillingar, TREMOR demparar, minni svunta undir framstuðara, spes hækkað loftinntak og öndun á hásingum (framan og aftan) og millikassa. Sem sagt original stórkostlegur OFF ROAD bíll! Og svo auðvitað 2020 breytingin; nýr framendi, 475 hö, 1050 pund tog og 10 gíra sjálfskipting. 2019 RAM Limited 3500 35” Litur: Pearl red/ Svartur að innan. 6,7L Cumm-ins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000 pund. Einn með öllu: RAM box, Aisin sjálfskipt- ing, dual alternators 440 amps, lofpúðafjöðr- un, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki. VERÐ 11.980.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ 2020 GMC Denali Ultimate Litur: Onyx black/ Dark walnut að innan. 2020 GMC Denali, magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleira. VERÐ 12.490.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ 2020 GMC Denali Ultimate Litur: Dark Sky Metallic/ Dark walnut að innan. 2020 GMC Denali , magnaðar breyt- ingar t.d. 10 gíra skipting, auto track milli- kassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleira. VERÐ 12.490.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ Nánar upplýsingar gefur Ingimar í síma 664 8080 eða email ingimar@ib.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.