Morgunblaðið - 29.04.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.04.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2020 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Kínversk stjórnvöld sökuðu í gær Bandaríkjamenn og aðra sem gagn- rýnt hafa aðgerðir Kínverja gagn- vart kórónuveirufaraldrinum um að dreifa „hreinum lygum“. Ásakanir Kínverja komu í kjölfar þess að Donald Trump Bandaríkja- forseti gaf til kynna að Bandaríkja- stjórn myndi mögulega sækjast eftir skaðabótum frá Kína vegna þess skaða sem faraldurinn hefði valdið. „Við erum óánægðir vegna þess að við teljum að þetta hefði getað verið kæft í fæðingu og þetta hefði ekki þurft að fara um allan heim,“ sagði Trump á blaðamannafundi sínum í fyrrinótt. Geng Shuang, talsmaður kín- verska utanríkisráðuneytisins, sagði að bandarískir stjórnmálamenn hefðu ítrekað „horft framhjá sann- leikanum“ og að markmið þeirra væri að varpa af sér ábyrgðinni vegna slælegrar frammistöðu sinnar við að stýra faraldrinum heima fyrir. Reiði Kínverja beindist einnig að áströlskum stjórnvöldum, sem hafa kallað eftir óháðri rannsókn á því hvers vegna kórónuveirufaraldurinn varð að heimsfaraldri. Sendiherra Kínverja í Ástralíu brást við þeirri kröfu með því að hóta því að Kína myndi hætta að kaupa ýmsar útflutningsvörur Ástrala í hefndarskyni. Ráðuneytisstjóri ástr- alska utanríkisráðuneytisins kallaði sendiherra Kínverja á teppið til sín til þess að útskýra ummælin. Geng varði ummæli sendiherrans hins vegar og sagði þau hafa beinst að rangfærslum Ástrala sem hefðu vakið „óánægju kínversku þjóðar- innar“ og því valdið hættu á verri samskiptum ríkjanna. „Og hvað er rangt við það?“ spurði Geng, en hann hvatti einnig ríki heims til þess að vinna með Kínverjum í baráttunni gegn kórónuveirunni. Frakkar verða varkárir Frönsk stjórnvöld tilkynntu í gær að þau hygðust leyfa búðum og verslunum að vera opnar frá og með 11. maí næstkomandi. Um leið verða grunnskólar og dagvistarúrræði opnuð í nokkrum skrefum. Edouard Phillipe, forsætisráð- herra Frakka, kynnti tilslakanirnar í gær, en sagði jafnframt að Frökkum yrði gert að vera með andlitsgrímu ef þeir notuðu almenningssamgöng- ur. Sagði Phillipe að stjórnvöld myndu vera varkár þegar hömlum væri aflétt. Stjórnvöld á Spáni kynntu einnig aðgerðir til þess að létta á þeim hömlum sem settar hafa verið á vegna kórónuveirunnar, en þær munu hefjast 9. maí næstkomandi. Í tilkynningu Spánverja kom fram að aðgerðum þeirra yrði aflétt í áföng- um, og yrði síðasti áfanginn í lok júní. Rúmlega 232.000 tilfelli hafa verið skráð á Spáni, sem er hið næst- mesta í heimi. Leyfilegt verður m.a. að opna litl- ar búðir, hótel, veitingahús og trú- félög 9. maí, en með vissum tak- mörkunum þó. Grunnskólar á Spáni verða hins vegar áfram lokaðir fram til september. Hápunkti ekki náð í Rússlandi Vladimír Pútín Rússlandsforseti varaði við því í gær að faraldurinn hefði ekki náð hápunkti sínum í Rússlandi, en stjórnvöld þar eru að íhuga að létta á aðgerðum sínum gegn kórónuveirunni í nokkrum áföngum frá og með 12. maí. Sagði Pútín að Rússum hefði tek- ist að hægja á útbreiðslu kórónuveir- unnar, en að of snemmt væri að hrósa happi. Skipaði hann embætt- ismönnum að setja saman aðgerða- pakka til þess að styðja við efnahag Rússlands. Rúmlega 93.000 tilfelli hafa nú verið staðfest í Rússlandi, fleiri en í Kína, upphafslandi faraldursins. Staðfest dánartilfelli þar eru hins enn sem komið er einungis 867. Tæplega 3,1 milljón manns hefur nú smitast af kórónuveirunni og rúmlega 215.000 dáið af völdum hennar. Saka Bandaríkin um „hreinar lygar“  Kínversk stjórnvöld segja gagnrýni Bandaríkjamanna á aðgerðir sínar vera til að dreifa athyglinni frá þeirra eigin mistökum  Frakkar, Spánverjar og Rússar stefna að því að létta á aðgerðum sínum í maí AFP Veggjakrot Xi Jinping, forseti Kína, og Donald Trump Bandaríkjaforseti stinga hér saman grímuklæddum nefjum á húsvegg í Berlínarborg. Norska lögreglan tilkynnti í gær- morgun að hún hefði handtekið auð- kýfinginn Tom Hagen vegna gruns um að hann hefði myrt eða átt aðild að morði eiginkonu sinnar Anne-- Elisabeth og var Tom ákærður fyrir þau brot síðar um daginn. Ekkert hefur spurst til Anne-Elisabeth síð- an hún hvarf sporlaust af heimili þeirra hjóna í bænum Lorenskog hinn 31. október 2018. Meintir mannræningjar skildu eftir sig lausnargjaldskröfu sem skrifuð var á vondri norsku, þar sem hótað var að Anne-Elisabeth myndi hafa verra af nema þeim yrði greitt andvirði níu milljóna evra í rafmynt sem ekki væri hægt að rekja. Lögreglan átti í samskiptum nokkrum sinnum við meinta mann- ræningja, þar sem þeir hótuðu því meðal annars að taka Anne-Elisa- beth af lífi og birta myndband af upptökunni. Fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögreglan komst hins vegar á þá skoðun í júní síðasta sumar að mann- ránið væri yfirvarp og að Anne-- Elisabeth hefði í raun verið myrt. Verdens Gang greindi frá því í gær eftir handtökuna að um líkt leyti hefðu sjónir lögreglunnar beinst að Tom Hagen sjálfum og sætti hann leynilegri rannsókn vegna þess. Hagen var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í gær og hefur lögreglan ekki útilokað að fleiri verði handteknir vegna málsins. Sam- kvæmt heimildum VG telur lögregl- an miklar líkur á að fleiri séu viðriðn- ir málið. Lögmaður Hagens, Svein Holden, sagði hins vegar að skjól- stæðingur sinn neitaði allri sök. Tommy Brøske, sem stýrt hefur rannsókn lögreglunnar, sagði í gær að leit yrði haldið áfram að líki Anne- Elisabeth og að allt benti til þess að samskipti mannræningjanna við lög- regluna hefðu verið til þess eins að koma henni af réttu spori. Tom Hagen er 164. ríkasti maður Noregs og eru auðæfi hans metin á um 1,9 milljarða norskra króna. Ekki er enn ljóst hvaða þátt lögregl- an telur hann hafa átt í hvarfi Anne- Elisabeth Hagen. sgs@mbl.is Hagen ákærður vegna hvarfsins Anne-Elisabeth Hagen AFP Rannsókn Lögreglumenn gerðu húsleit á heimili Hagen-hjónanna í gær eftir að Tom Hagen hafði verið handtekinn fyrir aðild að morði Anne-Elisabeth. Tom Hagen  Norska lögreglan telur Tom Hagen hafa myrt eða átt aðild að morði eiginkonu sinnar, Anne-Elisabeth  Ekkert hefur spurst til hennar síðan í október 2018 Varnarmálaráðuneyti Bandaríkj- anna, Pentagon, hefur aflétt leynd af þremur myndböndum, sem flug- orustumenn bandaríska sjóhersins tóku, þar sem sjá má svonefnda „fljúgandi furðuhluti“ eða FFH. Myndböndunum þremur hafði áður verið lekið í fjölmiðla vest- anhafs, þar á meðal New York Tim- es, og sagði ráðuneytið að leyndinni væri aflétt nú til að almenningur gæti séð að um raunveruleg mynd- bönd væri að ræða, og um leið væri sannað að ekkert meira lægi að baki því myndefni sem þegar hefði verið lekið. Í tilkynningu ráðuneytisins kom fram að ekki hefði enn tekist að bera kennsl á furðuhlutina sem þar sæjust, en eitt myndbandanna er frá árinu 2004 og hin tvö frá 2015. Harry Reid, fyrrverandi öldunga- deildarþingmaður í Nevadaríki, fagnaði ákvörðun ráðuneytisins, en sagði myndböndin einungis toppinn á ísjakanum af því efni sem hefði verið safnað saman til rannsókna á þessum fyrirbærum. Árið 2017 við- urkenndi Pentagon að það hefði varið miklu fé til rannsókna á FFH, en því verkefni lauk árið 2012. Birta þrjú myndbönd af FFH Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.