Morgunblaðið - 29.04.2020, Page 15

Morgunblaðið - 29.04.2020, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2020 Þvottur Nú er rétti tíminn til að þvo burt rykið á stígum og götum borgar og bæja. Sumir betur græjaðir en aðrir. Eggert Við Íslendingar telj- um okkur búa í rétt- arríki. Útverðir þess í okkar skipulagi eru stofnanir sem við höf- um komið upp og eiga að tryggja að þetta orð hafi efnislegt inni- hald þegar á það reyn- ir. Þetta eru dóm- stólar. Í refsimálum er það meginhlutverk þeirra að tryggja rétt- aröryggi þeirra borgara sem sök- um eru bornir. Þetta er göfugt hlutverk, þó að stundum kunni það að verða vanþakklátt. Ástæða þess er þá oft sú að margir aðrir borg- arar verða svo uppteknir af hug- lægum persónulegum skoðunum sínum á sakborningnum og brotinu, sem hann var sakaður um, að þeir skeyta ekki um hvernig sakfelling horfi við reglum réttarríkisins. Því miður hefur það gerst að starfandi dómarar virðast líka hafa misst sjónar á framangreindu meg- inhlutverki sínu og þá látið undan meintum vilja úr umhverfinu, sem skeytir ekki um meginreglurnar. Þess vegna vil ég nú reyna að telja upp þýðingarmestu reglurnar sem dómarar þurfa að beita í störfum sínum í sakamálum. Vil ég gerast svo djarfur að beina því til allra þeirra sem fara með dómsvald í landinu og samsinna mér að prenta þessar reglur út og hafa þær við höndina í störfum sínum. Þeir ættu svo að strengja þess heit að sak- fella ekki þá sem fyrir sökum eru hafðir nema hafa áður getað hakað við öll atriðin á listanum. 1. Lagaheimild til refsingar þarf að vera í settum lögum. Efni hennar þarf að vera skýrt og ber að túlka vafa sakborningi í hag. 2. Ekki má dæma sakborning fyrir aðra háttsemi en þá sem í ákæru greinir. 3. Heimfæra þarf háttsemi til laga- ákvæðis af ná- kvæmni. Dómendur hafa ekki heimild til að breyta efn- isþáttum í laga- ákvæðum sakborn- ingum í óhag. 4. Sanna þarf sök. Sönnunarbyrði hvíl- ir á handhafa ákæruvalds. 5. Við meðferð máls á áfrýjunar- stigi þarf að gæta þess að dæma sama mál og dæmt var á neðra dómstigi. Til endurskoðunar eru úrlausnir áfrýjaðs dóms; ekki annað. 6. Sakborningar eiga rétt á að fá óheftan aðgang að gögnum sem aflað hefur verið við rannsókn og meðferð máls. 7. Sakborningar eiga að fá sann- gjarnt tækifæri til að færa fram varnir sínar. 8. Dómarar, sem dæma, verða að hafa hlutlausa stöðu gagnvart sakborningum. Ef dómendur gæta þess að hafa þessar reglur ávallt í heiðri geta þeir verið stoltir af starfi sínu og því verkefni sem þeir þannig sinna af kostgæfni. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » Þeir ættu svo að strengja þess heit að sakfella ekki þá sem fyrir sökum eru hafðir nema hafa áður getað hakað við öll atriðin á listanum. Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er fyrrverandi dómari við Hæstarétt Íslands. Við höndina Góðar og gleðilegar fréttir eru yfirleitt ekki í forgangi hjá fjöl- miðlum. Hið af- brigðilega og neikvæða vekur meiri athygli, ekki aðeins fjölmiðla heldur okkar allra. Slys, náttúruhamfarir, svik, morð og aðrir glæpir eru efniviður í góða fyrirsögn og snarpa og áhrifaríka frétt í sjón- varpi. Frásögn af ungu lífsglöðu fólki sem skarar fram úr í námi og starfi týnist í flóði annarra frétta. Frétt um konu sem ver öllum sínum frítíma og gott betur til að aðstoða þá sem standa höllum fæti kemst ekki í yfirlit yfir helstu fréttir eða á forsíðu dagblaðs. Ef fréttin er á annað borð sögð er hún líkt og til uppfyllingar, ekki síst í gúrkutíð. Þorbjörn Broddason, prófessor emeritus í félagsfræði við HÍ, svar- aði spurningunni um hvað væri frétt á Vísindavefnum árið 2000 og sagði meðal annars: „Nálægir atburðir verða frekar fréttaefni en fjarlægir; ríkar þjóðir verða frekar fréttaefni en fátækar; einstaklingar verða frekar fréttaefni en málefni; neikvæðir atburðir verða frekar fréttaefni en jákvæðir atburðir.“ Á síðustu vikum hafa varla aðrar fréttir komist að hjá fjölmiðlum – ekki aðeins hér á landi heldur um allan heim – en frásagnir af Covid-- 19-faraldrinum. Fréttir um fjölda sýktra og látinna eru stöðugt upp- færðar. Myndin sem dregin er upp er dökk. Víða eru sjúkrahús full, skortur er á súrefnisvélum og gríð- arlegt álag er á heilbrigðisstarfs- fólki. Í flestum löndum er sam- komubann og víða útgöngubann. Efnahagslegar þrengingar Slökkt hefur verið á flestum vélum efna- hagslífsins eða þær settar í hægagang til að verjast alvarlegri heilbrigðisógn. Líf og heilsa almennings hef- ur þannig verið sett í forgang en efnahags- leg gæði sett til hliðar. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) reiknar með að samdráttur efna- hagslífs heimsins verði um 3% á þessu ári. Flest lönd heims þurfa að glíma við samdrátt – sum veru- legan. Kanada, Bandaríkin, Þýska- land, Frakkland, Ítalía, Bretland og Japan horfa fram á 5-10% samdrátt á þessu ári. Hér á Íslandi er ástæða til að óttast að samdrátturinn geti orðið meiri. Í Kína verður hag- vöxtur hverfandi í fyrsta skipti í áratugi. Ein afleiðing efnahagssamdráttar er víðtækt atvinnuleysi líkt og við Íslendingar höfum fengið að kynn- ast. Aðrar þjóðir glíma við jafnvel enn alvarlegri stöðu. Hlutabréfamarkaðir hafa verið í frjálsu falli. Lækkun Dow Jones- og FTSE-hlutabréfavísitalna hefur ekki verið meiri á fyrsta ársfjórð- ungi árs frá 1987. Frá lokum mars hafa hlutabréf hins vegar rétt að- eins úr kútnum, eftir umfangs- miklar aðgerðir þjóða heims í pen- inga- og ríkisfjármálum. En lækkunin á árinu er enn mikil. Þeg- ar þetta er skrifað hefur Dow Jones (New York) lækkað um nær 25% frá upphafi árs, FTSE (London) um lið- lega 18% og Nikkei (Tókýó) um 15%. Tugþúsunda milljarða verð- mæti hafa gufað upp. En það eru undantekningar. Verð hlutabréfa í tæknifyrirtækinu Zoom hefur rokið upp eftir því sem fleiri reiða sig á fjarfundabúnað fyrir- tækisins. Hlutabréf fyrirtækisins hafa hækkað um 130% það sem af er árinu. Þeir sem keyptu hlut í Amazon geta einnig unað sáttir við sitt. Bréfin hafa hækkað um 27%. Hluthafar Netflix hafa notið nær 29% hækkunar. Þannig er um verð hlutabréfa í fleiri tækni-, afþrey- ingar- og netverslunarfyrirtækjum. Hið sama verður ekki sagt um fyrirtæki í ferðaþjónustu. Flugfélög um allan heim berjast í bökkum og sum hafa þegar siglt í þrot. Hótel standa auð í helstu stórborgum heims, veitingastaðir eru lokaðir eða hálftómir. Yfir 100 lönd heims hafa gripið til víðtækra ferðatakmarkana í baráttunni við kórónuvírusinn. Enginn treystir sér til að segja fyrir um hvenær ástandið verður eðlilegt. Þeir bjartsýnu segja síðar á árinu en þeir svartsýnu að það taki nokk- ur ár og að þá verði heimurinn gjör- breyttur. Ríkisstjórnir hafa gripið til um- fangsmikilla aðgerða til að aðstoða flugfélög sem berjast í bökkum. Ís- lensk stjórnvöld standa frammi fyr- ir mikilli áskorun við að tryggja lífs- nauðsynlegar flugsamgöngur við önnur lönd. Fáar þjóðir eru háðari flugi en við Íslendingar. Flugvélaframleiðendur eiga einn- ig erfitt. Forstjóri Airbus-flugvéla- framleiðendans hefur lýst því yfir að fyrirtækið blæði – fjármunir brenni upp í taprekstri. Hann hefur varað við víðtækum uppsögnum. Keppinauturinn er í svipaðri stöðu, þótt Boeing hafi einnig lengi glímt við alvarlega erfiðleika vegna galla í MAX-vélum. Eftirspurn eftir olíu hefur hrunið samhliða lömum viðskiptahagkerf- isins. Brent-hráolía hefur ekki verið lægri í 18 ár. Í fyrsta skipti í sög- unni var verð á olíu í Bandaríkj- unum neikvætt – framleiðendur greiddu fyrir að losna við birgðir. Góðar fréttir Mitt í holskeflu vondra frétta af hættulegum faraldri og efnahags- legum þrengingum glittir í jákvæð- ar og hjartnæmar fréttir. Eitthvað segir mér að eftirspurn eftir slíkum fréttum sé að aukast – þorsti okkar eftir hinu uppbyggilega er meiri en áður, kannski vegna þess að hið já- kvæða er næstum orðið afbrigðilegt. Á morgun (30. apríl) fagnar Tom Moore, fyrrverandi kapteinn í breska hernum í síðari heimsstyrj- öldinni, aldarafmæli sínu. Tom ein- setti sér að safna eitt þúsund pund- um til að styrkja breska heilbrigðis- kerfið (NHS) með daglegum göngu- túrum í garðinum sínum. Með því vildi hann þakka heilbrigðisstarfs- fólki fyrir sitt framlag. Með göngu- grindina sér til stuðnings og heið- ursmerki úr stríðinu í barminum hefur Tom labbað hring um garðinn sinn á hverjum degi. Á innan við sól- arhring var hann búinn að ná tak- marki sínu og með heillandi fram- komu og staðföstum vilja fangaði hann hjörtu bresku þjóðarinnar. Þegar þetta er skrifað hefur Tom safnað um 29 milljónum punda – um 5,2 milljörðum króna – til styrktar heilbrigðiskerfinu. Skilaboð Toms til allra þeirra sem eiga erfitt nú um stundir eru einföld: „Sólin mun skína á þig aftur þegar skýin hverfa.“ Hér heima hefur starfsfólk heil- brigðiskerfisins unnið þrekvirki. Og í ljós hefur komið (þvert á stöðugar fréttir á síðustu árum um annað) að íslenska heilbrigðiskerfið er eitt það besta í heiminum. Árangur gjör- gæslumeðferðar við Covid-19 er ekki aðeins betri en vonir stóðu til heldur með því allra besta sem ger- ist í heiminum. Frétt um þetta á mbl.is virðist því miður ekki hafa vakið mikla athygli. Þegar ég var að alast upp var Mogginn, líkt og nú, ómissandi hluti tilverunnar. Baksíðan skipti þar mestu enda lögð undir stærstu inn- lendu fréttirnar. Forsíðan var með erlendum fréttum. Þess vegna las ég Moggann afturábak. Mörg ár eru síðan erlendar fréttir einokuðu for- síðu blaðsins. Innlendar fréttir eru í forgangi. Baksíðan er lögð undir frá- sagnir af fólki, skemmtilegu fólki, ungu og gömlu, lífsglöðu fólki. Í gær var viðtal við Sigrúnu Huldu Jóns- dóttur, skólastjóra Heilsuleikskól- ans Urðarhóls í Kópavogi. Þar er verið að undirbúa komu hænsna og rauðorma. „Við ætlum að nýta líf- rænan úrgang hjá okkur sem fóður fyrir hænur og orma, en skepnurnar gefa okkur í staðinn áburð og egg. Þannig fræðum við börnin um hringrás og sjálfbærni náttúrunn- ar,“ sagði Sigrún Hulda í samtali við Moggann. Myndir af lífsglöðum leik- skólabörnum sem greinilega nutu veðurblíðunnar lífguðu upp á frétt- ina og léttu lund lesandans. Líklega er best að ég taki upp fyrri hætti og lesi Moggann aftur á bak. Eftir Óla Björn Kárason »Eitthvað segir mér að eftirspurn eftir jákvæðum fréttum sé að aukast – kannski vegna þess að hið jákvæða er næstum orðið afbrigðilegt. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Hvar eru góðu fréttirnar?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.