Morgunblaðið - 29.04.2020, Page 17

Morgunblaðið - 29.04.2020, Page 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2020 Sú fyrirlitning og þórðargleði sem ein- kennir tal margra sem tjá sig um málefni ferðaþjónustunnar er með öllu óskiljanleg. Ég fullyrði að varla er til sá Íslendingur sem ekki hefur notið góðs af vexti ferðaþjónust- unnar á undanförnum árum. Hvort sem það er í bygging- argreinum eða vegna aukinnar eft- irspurnar eftir vörum og þjónustu af beinum völdum ferðamanna eða þeirra sem starfa í greininni, sterks gengis krónunnar vegna gjaldeyr- isinnstreymis sem aukið hefur kaupmátt landsins gagnvart um- heiminum og á án efa stærstan þátt í því að verðbólga hefur haldist í skefjum þrátt fyrir fádæma kaup- hækkanir undanfarinna ára. Ég fullyrði að þessar kauphækkanir frá hruninu 2008 hefðu aldrei komið til ef ekki hefði verið fyrir íslenska ferðaþjónustu og uppbyggingu og vöxt innan hennar. Skarð ferðaþjónustunnar í ís- lenskum efnahag verður ekki fyllt með einhverju „öðru“, það er bara þannig. Það er hægt að dæla pen- ingum í tækniþróunarsjóð, lista- mannalaun og senda fólk í endur- menntun til að læra eitthvað „annað“, hvað sem það á að vera. Þetta eru allt ágætar aðgerðir en þetta ástand gengur engan veginn upp til lengdar, þar sem stór og stækkandi hluti þjóðarinnar er á ríkisframfæri af einhverju tagi, hvort sem það eru þessi ágætu úr- ræði sem ég nefndi hér að framan, sívaxandi hópur á atvinnuleysis- bótum eða opinberir starfsmenn og aðrir sem treysta á ríkisframfærslu, það eina sem mun koma okkur upp úr þessu er að koma ferðaþjónust- unni sem fyrst aftur í gang. Og þá er ég ekki að tala um inn- lendan markað. Það er fjarstæða að halda að innlend eftirspurn muni halda ferðaþjónustunni uppi í sum- ar, hvað þá um lengra tímabil, til þess er markaðurinn einfaldlega ekki nógu stór. 300 þúsund manna þjóðfélag í djúpri kreppu mun ekki koma í stað rúmlega tveggja millj- óna ferðamanna, það gefur auga- leið. Auk þess er vandséð að Íslend- ingar séu að fara að ráða sér leiðsögumenn til að leiðsegja sér um landið eða bílstjóra til að keyra með sig. Það sér það hver heilvita maður að þetta er rugl og firra. Það að sinna innlendum markaði getur plástrað takmarkaðan hluta grein- arinnar en mun aldrei komast ná- lægt því að halda uppi þeim fjöl- mörgu störfum sem ferðaþjónusta við erlenda ferðamenn hefur gert auk þess sem það skilar engum gjaldeyri fyrir þjóðarbúið. Það ætti kannski ekki að koma á óvart að viðbrögð stjórnvalda séu ráðleysisleg enda hefur ferðaþjón- ustan frá upphafi verið pólitískt munaðarlaus, ólíkt öllum öðrum at- vinnugreinum, sem er í sjálfu sér óskiljanlegt þegar um stærstu og mannfrekustu atvinnugrein lands- ins er að ræða. Það er raunar nánast alveg sama til hvaða flokka litið er; sama tóm- lætið eða jafnvel andúð virðist alls staðar vera að finna. Ég man eftir fjármálaráðherranum okkar fyrir nokkrum árum segja „samkeppn- isstaða íslenskrar ferðaþjónustu er það síðasta sem maður hefur áhyggjur af“ og oft má ráða að hag- vöxt undanfarinna ára megi rekja til ráðsnilli ráðamanna fremur en uppgangs ferðaþjónustunnar. Nú í vetur birti Reykjavíkurborg skýrslu um hvað ferðaþjónustan kostar borgina mikið, maður skyldi þá ætla að þungum bagga væri létt af rekstri borgarinnar nú þegar ferða- þjónustunnar nýtur ekki lengur við, sú skýrsla er náttúrlega einn skand- all út í gegn sem er alveg efni í ann- an pistil. Því auðvitað er það þannig að Reykjavíkurborg, ríkið og Íslendingar al- mennt hafa notið góðs af uppgangi þessarar greinar. Ferðaþjón- ustan hefur lagt grunn- inn að góðum lífs- kjörum undanfarinna ára, það sést best á þeim áhrifum sem það hefur nú þegar hún er stopp. En á þessu virðist enginn skilningur, ráða má af umræðunni að fólkið sem starfað hef- ur við ferðaþjónustu og byggt upp greinina eigi bara að skammast sín og hoppa upp í eigið rassgat. Mönn- um verður tíðrætt um græðgi og fyrirhyggjuleysi, þetta sé bara eins og með minkabúin, allir hafi bara ætlað að græða og ruðst í það sama og þess vegna sé svona komið núna… Það má á köflum ráða af umræðunni að kórónuveirufarald- urinn sé íslenskri ferðaþjónustu að kenna. Það gefur augaleið að fyrirtæki í þessum geira hafa þurft að fara í fjárfestingar og uppbyggingu. Það er ekki hægt að fara úr því að taka á móti 300 þúsund ferðamönnum í á þriðju milljón ferðamanna á 10 ár- um án þess að það kalli á verulega innviðauppbyggingu. Það hefur ekkert með græðgi eða fyr- irhyggjuleysi að gera, það er heil- brigð skynsemi sem komið hefur öllum efnahag landsins vel und- anfarin 10 ár. Það er algjörlega óþolandi fyrir fólk sem starfað hefur að þessari uppbyggingu að sitja nú undir sleggjudómum og árásum. Fólk sem starfað hefur í greininni hefur margt hvert lagt allt sitt í uppbygg- ingu hennar, allt sitt fé, ómældan tíma árum saman, oftar en ekki langt umfram síminnkandi vinnu- viku almennra launþega. Við eigum betra skilið en að vera skilin eftir í óverðskuldaðri skömm. Það má finna einhverja sem hafa grætt á ferðaþjónustu, þó það nú væri, en stærstur hluti fólks sem rekur fyrirtæki og vinnur í greininni er bara venjulegt fólk sem leggur líf og sál í að veita góða þjónustu og skapa sjálfu sér og landinu gott orð- spor. En af óskiljanlegum ástæðum er ferðaþjónustan eins og óhreinu börnin hennar Evu, ríkisstjórnin sér ástæðu til að veita sérstaka styrki til fyrirtækja sem hefur verið „gert“ að loka tímabundið en ekki ferðaþjónustufyrirtækja. Fólk sem rekur t.d. hárgreiðslustofur og hef- ur getað notað sér 75% hlutabóta- leið ríkisstjórnarinnar þann rúma mánuð sem þurfti að loka, og sér nú fram á veruleg uppgrip þegar aftur verður opnað fyrir bókanir, á kost á sérstökum rekstrarstyrkjum sem er gott og blessað en ferðaþjónustu- fyrirtæki sem hafa nú verið defacto lokuð í tvo mánuði og sjá ekki fram á að geta fengið viðskiptavini til sín vegna aðgerða stjórnvalda um ófyr- irséðan tíma mega éta það sem úti frýs eða í besta falli skuldsetja sig til að borga fastan kostnað og hluta launa. Þetta lýsir betur en flest annað viðhorfinu til ferðaþjónustunnar; það er bara eins og hún sé fyrir. Það er í mínum huga algjörlega óhugsandi að sjá fyrir sér upprisu íslensks efnahagslífs án þess að ferðaþjónustan komi þar sterkt inn, það er bara ekkert „annað“ sem hægt er að grípa úr tóminu og mun skapa þann fjölda starfa og þær gjaldeyristekjur sem þarf. Það þarf að róa að því öllum árum að finna leiðir til að opna landið sem fyrst með sem minnstri áhættu. Það þarf að huga að áhættuminnkandi leiðum, taka varfærnisleg en örugg skref, taka til dæmis á móti lok- uðum hópum (mögulega skimuðum) sem eru saman allan tímann sem þeir eru á landinu í skipulögðum „kontróleruðum“ ferðum þar sem fyllstu sóttvarna er gætt. Sá árang- ur sem hér hefur náðst í að ná tök- um á faraldrinum og ber að fagna og þakka fyrir er góður grunnur til að byggja á og gefur landinu for- skot þegar kemur að því að opna það aftur. En þar til stjórnvöld treysta sér til þess þarf að koma fram við ferðaþjónustuna af sömu virðingu og aðrar atvinnugreinar, það geng- ur ekki að loka þá sem borið hafa uppi nýsköpun og uppbyggingu inn- an ferðaþjónustunnar úti í kuld- anum. Það er til marks um skítlegt eðli að benda á fólk sem er að missa lífs- viðurværi sitt og í sumum tilfellum allt sitt vegna utanaðkomandi óvið- ráðanlegra aðstæðna sem enginn gat séð fyrir og hía á það og segja að það geti kennt sér sjálft um, höf- um það alveg á hreinu að þessi veirufaraldur er ekki íslenskri ferðaþjónustu að kenna. Okkur væri hollast að horfast í augu við það að íslenskt samfélag á ferðaþjónustunni margt að þakka, djúpir vasar ríkisins væru ekki svona djúpir og tilbúnir að takast á við faraldurinn sem hefur geisað ef ekki hefði verið fyrir ferðaþjón- ustuna undanfarin 10 ár. En djúpir vasar tæmast eins og aðrir og því fyrr sem ferðaþjónustan getur farið að fylla þá aftur af gjaldeyristekjum því fyrr komust við upp úr þessu og getum haldið áfram að stytta vinnu- vikuna, hækka laun og vonandi – þegar allir eru búnir að koma sér aftur værðarlega fyrir – horft hvert framan í annað án þess að það framkalli þörf til að smána fólk og vanvirða. Djúpir vasar tæmast líka Eftir Sigrúnu Elsu Smáradóttur » Það ætti kannski ekki að koma á óvart að viðbrögð stjórnvalda séu ráðleysisleg enda hefur ferðaþjónustan frá upphafi verið póli- tískt munaðarlaus, ólíkt öllum öðrum atvinnu- greinum. Sigrún Elsa Smáradóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Iceland Exclusive Travels. Við sem erum hlynnt inngöngu Ís- lands í Evrópusam- bandið, fylgjandi nið- urfellingu tolla og aukinni samkeppni á matvörumarkaði höf- um lengi þurft að sitja undir því að óprúttnir aðilar reyna að mála okkur upp sem óvini bændastéttarinnar og landbúnaðar á Íslandi. Mér þykir sú retórík andstæðinga Evrópusam- bandsins orðin ákaflega þreytt, ekki síst þar sem fátt er jafn fjarri sanni. Evrópusambandið býr að yf- irgripsmiklu styrkjakerfi, ekki síst á sviði landbúnaðar, en stór hluti af fjármagni sambandsins fer í land- búnaðartengda styrki. Evrópusam- bandið styrkir svokallaðan heim- skautalandbúnað sérstaklega, en það er allur landbúnaður á svæðum norðan við 62° breiddargráðu, en þess má einmitt geta að Vest- mannaeyjar eru á 63° breidd- argráðu og því allt Ísland á heim- skautalandbúnaðarsvæði. Þeir stjórnmálamenn sem eru á móti inngöngu Íslands í Evrópu- sambandið vilja neita íslenskum bændum um aðgang að þessu styrkjakerfi. Niðurfelling tolla og aukin sam- keppni á matvörumarkaði með auknum innflutningi landbúnaðar- afurða er neytendum til hagsbóta, um það verður ekki deilt. Ég skil hins vegar vel að sumum kunni að finnast það hljóma fjandsamlegt gagnvart íslenskum bændum, enda ýmsir reynt að mála það þannig upp vegna þess að þeir, einhverra hluta vegna, sjá hag sinn í því að ala á ótta við bæði frjálsa samkeppni og Evrópusamstarf. Raunin er allt önnur. Gæðavörur þola sam- keppni og íslenskar landbúnaðarafurðir eru þar í efsta flokki. Þrátt fyrir það er ýmislegt sem hægt er að bæta, en frjáls samkeppni hvetur framleiðendur einmitt til þess að leggja aukinn metnað í sína framleiðslu og auka gæði sinnar vöru. Hún hvetur til nýsköp- unar og frumkvöðla- starfsemi, öllum til hagsbóta. Við sem viljum frjálsan innflutning á landbúnaðarafurðum höfum trú á íslenskum landbúnaði, treystum íslenskum bændum til þess að standa af sér samkeppni og gott betur en það. Stjórnmálamenn sem eru á móti frjálsum innflutningi á landbúnaðar- afurðum og aukinni samkeppni á matvörumarkaði afhjúpa einfaldlega með því eigin efasemdir um gæði ís- lenskra landbúnaðarafurða. Þeir eru hræddir við erlenda samkeppni vegna þess að þeir hafa ekki trú á íslenskum landbúnaði. Þeir eru því ekki eingöngu óvinir íslenskra neyt- enda, þeir eru óvinir íslenskra bænda og þeir eru óvinir íslensks landbúnaðar. Óvinir íslensks landbúnaðar Eftir Starra Reynisson Starri Reynisson »Hinir raunverulegu óvinir íslensks land- búnaðar eru þeir sem hafa ekki trú á sam- keppnishæfni hans og vilja meina bændum að- gengi að styrkjakerfi ESB. Höfundur er forseti Uppreisnar, ung- liðahreyfingar Viðreisnar. starrir@gmail.com Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.