Morgunblaðið - 29.04.2020, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2020
50 ára Vilborg er Sel-
fyssingur en býr í
Garðabæ. Hún er stúd-
ent frá Fjölbrautaskóla
Suðurlands og er við-
skiptastjóri hjá heild-
versluninni Ásbjörn
Ólafsson ehf.
Maki: Ásmundur Sveinsson, f. 1961,
matreiðslumeistari í Landsbankanum.
Börn: Kristín Björt Sævarsdóttir, f. 1994,
og Benedikt Óli Sævarsson, f. 1996.
Barnabörnin eru orðin þrjú.
Foreldrar: Aðalheiður Jónasdóttir, f.
1945, d. 2012, framhaldsskólakennari á
Selfossi, og Benedikt Jóhannsson, f.
1943, blikksmiður. Hann er búsettur í
Reykjavík.
Vilborg
Benediktsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Forðastu rifrildi um peninga. Þú veist
að þér eru allir vegir færir, þú þarft bara að
byrja á að taka eitt skref … Þú færð góðar
fréttir af vini þínum.
20. apríl - 20. maí
Naut Ástvinir þarfnast þess að þú hlustir vel.
Ekki ana út í framkvæmdir án þess að hafa
hugsað þær til enda. Þú færð undarleg skila-
boð.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Að vera upptekinn er ekki það sama
og að vera afkastamikill. Teldu upp að tíu í dag
áður en þú lætur álit þitt í ljós.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hlustaðu á það sem aðrir hafa að
segja og reyndu að skilja sjónarmið þeirra.
Hamingjan felst í litlu hlutunum í lífinu, göngu-
túr, að lesa góða bók eða elda góðan mat.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert óánægður með að fá ekki til baka
það sem þú hefur lánað. Fólkið sem þú vinnur
með er ekki á sama máli og þú og því verður
þú að kynna mál þitt betur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ást við fyrstu sýn er möguleiki og þú
nýtur þess að daðra við einhvern ókunnugan.
Þér finnst erfitt að eiga við neikvætt fólk sem
nóg er af í kringum þig.
23. sept. - 22. okt.
Vog Kynntu þér vandlega alla málavexti áður
en þú kveður upp skoðun þína. Að lesa og
hlusta á hvetjandi fólk gefur þér mikið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu hrokann ekki ná yfir-
höndinni í samskiptum þínum við aðra. Þú
hugsar hraðar en margir aðrir, nýttu þér það
forskot.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Flas er ekki til fagnaðar og það á
svo sannarlega við um þá aðstöðu sem þú ert
í núna. Nú er kominn tími til að þú breytir til á
heimilinu, aðstæður krefjast þess.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Taktu höndum saman við þá sem
deila framtíðarsýn þinni. Vertu opin/n fyrir
nýjum tækifærum. Þú munt hitta gamlan vin í
dag.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Hæfileikar þínir eru ótvíræðir og
vekja aðdáun annarra og stundum öfund.
Reyndu að sjá það góða í fólki, það breytir svo
miklu.
19. feb. - 20. mars
FiskarBúðu þig undir auknar vinsældir á
næstu vikum. Sýndu aðhald í peningamálum.
Þú verður beðin/n að taka að þér verkefni
sem þú brennur fyrir.
„Áhugamál mín eru númer eitt
fjölskyldan. Líkamsrækt á og hefur
átt stóran sess hjá mér undanfarin
ár. Ég og vinkona mín, Þórunn Þór-
hallsdóttir, tókum okkur til í sept-
ember 1993 og fórum út í göngu kl.
6 að morgni þrisvar í viku og höfum
gert það síðan með fáum undan-
tekningum fram til þessa skrýtna
ástands sem er þessa dagana. Þá
hef ég stundað jóga í 15 ár og hefur
eiginmaður minn komið með undan-
farin ár bæði í gönguna og jóga.
Okkur þykir gaman að ferðast og
höfum gert mikið af því og höfum
gengið West Highland Way og
að hætta vegna aldurs. Sigríður var
í hópi fólks sem stofnaði Klúbbinn
Strók á Suðurlandi sem ætlaður er
fyrir fólk sem á eða hefur átt við
geðræn vandamál að stríða og var
hún fyrsti formaður hans og gegndi
því starfi í fjölda ára. Erfiðasta
verkefnið sem hún segist hafa tek-
ist á við er að elsti sonur þeirra
hjóna, sem var bráðvel gefinn og
gekk vel í námi og íþróttum, ánetj-
aðist fíkniefnum og sú barátta tók á
alla fjölskylduna, ömmu hans og afa
og alla í kringum þau. Hann lést
svo í bruna ásamt vinkonu sinni í
október 2018.
S
igríður Ingibjörg Jens-
dóttir fæddist í Hnífsdal
29. apríl 1950 og ólst þar
upp á Ísafjarðarvegi 4.
Eftir grunnskóla fór hún
í Héraðsskólann á Núpi í Dýrafirði
og svo einn vetur í Verslunarskóla
Íslands. Eftir það gekk hún í Hús-
mæðraskólann Ósk á Ísafirði og út-
skrifaðist hún þaðan vorið 1969.
Sama ár eignaðist hún sitt fyrsta
barn og ekki varð úr frekara námi
en hugurinn hafði stefnt á hjúkr-
unarnám. Sigríður giftist Bárði
Guðmundssyni 27.12. 1970. Hann
stundaði nám við Tækniskóla Ís-
lands frá 1969-1974 og þann tíma
starfaði Sigríður við ýmis störf en
lengst af sem dagmóðir, einkum þó
á veturna, en fór flest sumur til
Ísafjarðar og vann í fiski í hrað-
frystihúsinu í Hnífsdal. Árið 1978
flytja þau hjón í Hveragerði og á
Selfoss 1982 og hafa búið þar síðan.
Árið 1981 hóf Sigríður störf sem
læknaritari ásamt fleiri störfum hjá
SÁÁ að Sogni í Ölfusi og var þar í
sjö ár.
Árið 1986 ákvað Kvennalistinn á
Selfossi að bjóða fram lista í bæjar-
stjórnarkosningum og var Sigríður
þar í efsta sæti og fékk Kvennalist-
inn einn mann kjörinn. Sigríður var
svo kjörin forseti bæjarstjórnar
fyrsta árið hennar í bæjarstjórn og
svo formaður bæjarráðs árið eftir
og var hún í þessum embættum sitt
hvert árið þau 12 ár sem hún var í
bæjarstjórn. Hún kom að því að
stofna Héraðsnefnd Árnesinga árið
1988 og var kjörin oddviti og for-
maður héraðsráðs á fyrsta fundi
Héraðsnefndarinnar og gegndi
þeim embættum þar til hún hætti
sem bæjarfulltrúi fyrir kosning-
arnar 1998.
Sigríður tók þátt í hinum ýmsu
nefndum og ráðum og var meðal
annars í fulltrúaráði Brunabóta-
félags Íslands, eini kvenmaðurinn
þá. Árið 1989 var hún fengin til að
koma til starfa hjá Brunabótafélagi
Íslands sem þá var búið að ákveða
að sameinaðist Samvinnutrygg-
ingum Íslands og til varð Vátrygg-
ingafélag Íslands, hún starfaði þar
svo í rúm 28 ár eða þar til í október
2017 þegar hún var 67 ára og varð
Great Glen Way í Skotlandi. Ekki
má gleyma mínum heilögu stundum
á laugardagsmorgnum þegar ég fæ
sunnudagskrossgátu Morgunblaðs-
ins, þær stundir er ég búin að eiga í
fjölda ára. Í dag, 70 ára, er ég heil-
brigð, í jafnvægi og mér líður vel.
Ég gæti ekki fengið betri afmæl-
isgjöf.“
Fjölskylda
Eiginmaður Sigríðar er Bárður
Guðmundsson, f. 27.10. 1950, fv.
byggingar- og skipulagsfulltrúi Ár-
borgar, en hann hætti störfum 1.4.
sl. eftir 35 ára starf. Foreldrar hans
voru hjónin Guðmundur Bárðarson,
f. 9.2. 2018, d. 27.6. 1977, vélstjóri
og ökukennari, og Margrét Ingi-
björg Bjarnadóttir, f. 8.8. 1915, d.
3.3. 1963, vefnaðarkennari.
Börn Sigríðar og Bárðar eru 1)
Guðmundur, f. 29.11. 1969, d. 31.10.
2018; 2) Kristjana Hrund, f. 16.11.
1972, enskukennari við Fjölbrauta-
skóla Suðurlands. Eiginmaður:
Guðjón Öfjörð Einarsson. Börn
þeirra eru a) Jóhann Bragi, sam-
býliskona: Rakel Sunna Péturs-
dóttir; b) Anna Sigríður, sambýlis-
maður: Marinó Marinósson; c)
Bárður Ingi og d) Jenný Arna; 3)
Jens Hjörleifur, f. 20.8. 1979, dr. í
eðlisfræði, prófessor við Kon-
unglega tækniháskólann í Stokk-
Sigríður Jensdóttir, fyrrverandi forseti bæjarstjórnar á Selfossi – 70 ára
Með barnabörnunum Sigríður og Bárður ásamt átta af barnabörnunum tíu
árið 2015, en þá voru þau tvö yngstu ekki fædd.
Besta afmælisgjöfin að vera heilbrigð
Börnin Helgi, Kristjana, Guðmundur, Jens og Hlynur árið 2010.
Í pontu Sigríður stýrir fundi hjá
Brunabótafélaginu 1987.
30 ára Hildur Karen
ólst upp í Grafarvogi
en býr í Kópavogi.
Hún er hárgreiðslu-
meistari að mennt
en er í fæðingar-
orlofi.
Maki: Vignir Jóhann-
esson, f. 1990, framkvæmdastjóri
RMK heildverslunar.
Börn: Elísa Ósk Vignisdóttir, f. 2016,
og Aron Freyr Vignisson, f. 2019.
Foreldrar: Guðrún Bryndís Hafsteins-
dóttir, f. 1969, sérfræðingur hjá Hug-
verkastofunni, og Einar Finnur Brynj-
ólfsson, f. 1966, húsgagnasmiður og
vinnur hjá Trésmíði GKS. Þau eru bú-
sett í Norðlingaholti í Reykjavík.
Hildur Karen
Einarsdóttir
Til hamingju með daginn
Kópavogur Aron Freyr Vignisson
fæddist 21. ágúst 2019 kl. 15.25 á
Sjúkrahúsinu á Akranesi. Hann vó
4.570 o g var 51 cm langur. Foreldrar
hans eru Hildur Karen Einarsdóttir og
Vignir Jóhannesson.
Nýr borgari
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í