Morgunblaðið - 29.04.2020, Side 32

Morgunblaðið - 29.04.2020, Side 32
Boðið verður upp á innlit í listaverkageymslu Gerðar- safns í dag, miðvikudag, kl. 13 í streymisviðburðinum sem nefnist Kúltúr klukkan 13. Um er að ræða vef- útsendingu frá Menningarhúsunum í Kópavogi sem að- gengileg er á facebooksíðu þeirra sem og á stundin.is. Í dag verður sent út frá Gerðarsafni þar sem Halla Oddný Magnúsdóttir lítur í listaverkageymslu Gerðar- safns í fylgd Brynju Sveinsdóttur sýningarstjóra. Rætt verður um valin verk eftir Gerði Helgadóttur, Barböru Árnason og Valgerði Briem. Úr listaverkageymslu Gerðarsafns „Ég er spurð hvernig tilfinningin sé að skora mark og svara því að það sé auðvitað yndislegt. En ég upplifi svipaðar tilfinningar og adrenalínflæði á skurðstof- unni,“ segir danska landsliðskonan Nadia Nadim, ein besta knattspyrnukona heims. Í umfjöllun um Nadim í blaðinu í dag kemur fram að samhliða því að leika með París St. Germain í Frakklandi stundar Nadia nám í skurðlækningum. Er hún komin vel á veg með undir- búning á nýjum starfsferli þegar hún leggur fótbolta- skóna á hilluna. »27 Upplifir svipaðar tilfinningar og adrenalínflæði á skurðstofunni og með þessum bókaskrifum björg- uðust mikilvægar upplýsingar,“ seg- ir hann. „Knattspyrnan er að miklu leyti ímynd Skagans og saga knattspyrn- unnar á Akranesi er samofin þróun knattspyrnunnar á landinu öllu svo skírskotunin nær vel út fyrir Akra- nes,“ heldur Björn Þór áfram. Hann bætir við að mikilvægt sé að vinna skipulega úr heimildum um þessa sögu. „Með framtíðina í huga er mikilvægt að pakka og matreiða þessa sögu í metnaðarfullt sagn- fræðirit.“ Björn Þór sendi bæjarráði Akra- neskaupstaðar erindi vegna málsins með von um stuðning en í afgreiðslu þess kemur fram að það geti ekki orðið við erindinu. Hann segir það vonbrigði en ætlar ekki að leggja ár- ar í bát. „Stjórnarformaður Knatt- spyrnufélags ÍA hefur tekið mjög vel í hugmyndina en félagið getur ekki fjármagnað svona útgáfu og ég verð að leita annarra leiða. Ég finn fyrir miklum áhuga á þessu verki og ætla að finna leið til að bókin verði að veruleika með einum eða öðrum hætti.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Boltinn heldur áfram að rúlla þrátt fyrir kórónuveiru og eftir rúmlega tvö ár eða 26. maí 2022 verður ald- arafmæli knattspyrnunnar á Akra- nesi. Af því tilefni vill Björn Þór Björnsson sagnfræðingur að sagan verði skráð og út komi metnaðarfullt sagnfræðirit á afmælisdaginn. Ársæll Ottó Valdimarsson, afi Björns Þórs, var í stjórn knatt- spyrnudeildar ÍA á árum áður og lengi formaður Kára. Sjálfur æfði Björn Þór fótbolta í yngri flokkum ÍA, hefur verið öflugur stuðnings- maður félagsins og er í hópi þeirra, sem hafa haldið úti sjónvarps- útsendingum frá leikjum undanfarin þrjú ár. Merkileg saga Upphaf knattspyrnunnar á Akra- nesi hefur verið miðað við stofnun Knattspyrnufélagsins Kára, en vissulega voru menn byrjaðir að sparka bolta fyrr á Skaganum og sagt hefur verið að Hallgrímur Jóns- son hafi verið fyrsti fótboltamað- urinn. Björn Þór bendir á að mikið hafi verið tekið saman um söguna og miklar heimildir séu til en mikilvægt sé að þær séu aðgengilegar í einu sagnfræðiriti. „Ég hef hug á að rekja þessa merkilegu sögu með því að safna saman heimildum, hvort sem þær eru í skjalasöfnum, endur- minningum eða fjölmiðlum, kafa of- an í þær og varpa ljósi á gang mála.“ Jón Gunnlaugsson hefur safnað saman tölfræðiupplýsingum um Skagamenn undanfarna áratugi og eru þær aðgengilegar á heimasíðu félagsins. Haraldur Sturlaugsson hefur skráð sögu á bak við fjölda mynda úr starfseminni og verður vinna hans brátt aðgengileg á var- anlegri sýningu í Akraneshöllinni. Björn Þór segir vinnu þeirra ómet- anlega auk þess sem bækurnar Skagamenn skoruðu mörkin eftir Jón, Sigtrygg Sigtryggsson og Sig- urð Sverrisson séu skemmtilegar og áhugaverðar. „Í þeim eru ómetanleg viðtöl við menn sem eru fallnir frá Skagamenn í fót- bolta í hundrað ár  Vill skrifa metnaðarfullt sagnfræðirit um merkilega sögu Knattspyrnusaga Björn Þór Björnsson sagnfræðingur er í viðbragðsstöðu. Heilabrot og skefflfflti/egar Prautir KOMIN i NA:STU VERSLUNOG A EDDA.IS MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 120. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.