Morgunblaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 16
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hús Hjálpræðishersins við Suður- landsbraut, nýi Herkastalinn, er að taka á sig mynd. Hann er klæddur að utan með plötum, með fjórum mismunandi rauðum litum og af mis- munandi stærðum. Setur húsið þannig svip á umhverfið. „Framkvæmdirnar ganga ljóm- andi vel,“ segir Ingvi Kristinn Skjaldarson, flokksforingi í Hjálp- ræðishernum í Reykjavík. Iðnaðar- menn eru komnir vel á veg með að klæða húsið að utan, byrjað er á dúklagningu, að klæða loft og vinna í innréttingum. Úti um allt hús eru iðnaðarmenn að störfum. Einhverjir smiðir þurftu að fara í einangrun vegna kórónuveirunnar en faraldurinn hefur þó ekki tafið framkvæmdir að ráði. Ingvi segir þó að aðeins lengri tíma taki að fá nauð- synlegt efni til framkvæmdarinnar. Á að standa í hundrað ár Ingvi segir að lagt hafi verið upp með að byggja vandað hús. Það eigi að standa í hundrað ár og vísar til þess að Herkastalinn við Kirkju- stræti var notaður í meira en öld. „Þetta breytir öllu fyrir okkur,“ segir Ingvi um breytinguna þegar starfsemin kemst í nýja húsið. Húsið er 1.500 fermetrar að stærð og að hluta til á tveimur hæðum. Þar verður stór samkomusalur, kirkja trúfélagsins, og fleiri salir fyrir margskonar hópastarf og kaffihús fyrir gesti og gangandi. Þar verður aðstaða til að sinna jaðarsettum hóp- um og fata- og nytjamarkaðurinn Hertex fær aðstöðu. Þá verða þar skrifstofur, meðal annars aðal- skrifstofa fyrir Ísland og Færeyjar og Hjálpræðisherinn í Reykjavík. Ekki verður gistirými, eins og í gamla Herkastalanum, enda bendir Ingvi á að nóg sé af hótelum og gisti- húsum í Reykjavík. Stefnt er að opnunarsamkomu sunnudaginn 13. september en hús- næðið á að vera tilbúið nokkru fyrr. „Við erum byrjuð að pakka niður,“ segir Ingvi og hlakkar til að komast úr bráðabirgðahúsnæðinu í Mjódd. Morgunblaðið/Eggert Nýi Herkastalinn Fjölbreytt starfsemi Hjálpræðishersins verður í nýja húsinu á Suðurlandsbraut 72-74. Breytir miklu fyrir starf- semi Hjálpræðishersins  Herkastalinn setur svip á umhverfið við Suðurlandsbraut 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2020 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. hefur í hyggju að koma upp brennsluofni á urðunarstaðnum á Strönd í Rangár- þingi ytra fyrir dýrahræ og aðrar dýraleifar frá sveitarfélögum og einkaaðilum á Suðurlandi. Afkasta- geta ofnsins verður allt að 4.000 tonn á ári. Áformin eru til kynningar hjá Skipulagsstofnun. Í matskynningu kemur fram að undanfarin ár hafi dýrahræ á Suðurlandi farið til brennslu í Kölku í Reykjanesbæ eða til urðunar í Álfsnesi. Með ákvörðun stjórnar Sorpu bs. um að hætta að taka við úrgangi frá Suðurlandi til urðunar í Álfsnesi og með breyttum áherslum hjá Kölku sé ljóst að þess- ar förgunarleiðir séu ekki lengur fyr- ir hendi. Aukinheldur uppfylli urðun dýrahræja ekki þær kröfur sem gerðar eru í lögum og reglugerðum. Lausn á bráðum vanda „Fyrirhuguð uppsetning á brennsluofni á Strönd er liður í lausn á þeim bráða vanda sem skapast hef- ur af þessum sökum,“ segir í mat- skynningunni. Brennsluofninn sem um ræðir kemur frá framleiðandanum Incin- er8 í Bretlandi. Sami framleiðandi hefur selt minni brennsluofna til sláturleyfishafa á Íslandi. Ofninn er vottaður af stjórnvöldum í Bretlandi til staðfestingar á því að hann upp- fylli öll skilyrði reglugerðar Evrópu- sambandsins um eyðingu. Hámarksafköst brennsluofnsins eru um 700 kg/klst. og hægt er að hlaða í hann allt að 2.000 kg af dýra- hræjum fyrir hverja brennslulotu. Brennslan í ofninum á sér stað við allt að 850°C hita og við það breytist lífræna efnið í ösku, útblástur og hita. Askan sem myndast er að mestu gerð úr ólífrænum hluta úr- gangsins og endar annaðhvort sem harðir kögglar eða duft. Magn ösk- unnar svarar til um 3% af heildar- massa úrgangsins. Öskunni verður fargað í samræmi við lög um með- höndlun úrgangs. Mögulegt er að nýta hitann sem frá ofninum kemur með einum eða öðrum hætti, m.a. til rafmagnsfram- leiðslu. Olía er notuð til að halda uppi hita í brennslunni og er gert ráð fyrir að olíunotkunin nemi u.þ.b. 50 l/ klst.á þeim tímum sem brennsla er í gangi Tillögu að matsáætlun er að finna á vef Skipulagsstofnunar. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram at- hugasemdir. Athugasemdir skulu berast eigi síðar en 8. maí 2020. Dýrahræ af Suðurlandi brennd í ofni  Ekki lengur mögulegt að senda hræin til förgunar hjá Kölku eða Sorpu Morgunblaðið/Styrmir Kári Álfsnes Sorpa mun framvegis ekki taka við úrgangi frá Suðurlandi. Ríkiseignir og Minjavernd hafa und- irritað samstarfssamning um að hefja fyrsta áfanga við endurgerð Hegningarhússins við Skólavörðu- stíg. Húsið var reist árið 1872 en síð- ustu fangarnir yfirgáfu það í maílok 2016. Húsið er friðað samkvæmt lögum um menningarminjar og mikilvægt að viðgerð hússins taki mið af upp- runalegri gerð þess, bæði hvað efn- isval og handverk varðar, segir í frétt á vef Stjórnarráðsins. Framkvæmdir munu hefjast strax í sumar og eru þær gerðar á grund- velli sérstaks fjárfestingarátaks á vegum stjórnvalda til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu með arðbær- um fjárfestingum sem auka eftir- spurn eftir vinnuafli. Samið var um það að Minjavernd fengi 342 millj- ónir til verksins. Unnið verður að viðgerðum á ytra byrði hússins og nánasta umhverfi á grundvelli fyrirliggjandi kostnaðar- áætlunar. Endurgerð að innan mun jafnframt miðast við að húsið verði opið almenningi og að starfsemi í húsinu geti staðið undir rekstri þess og öðrum kostnaði sem af eigninni stafar til framtíðar. Minjavernd hefur starfað frá 1984 og hefur staðið fyrir endurbyggingu gamalla húsa víða. sisi@mbl.is Morgunblaðið/RAX Skólavörðustígur Hegningarhúsið var byggt 1872 og starfrækt til 2016. Hegningarhúsið verður endurgert  Minjavernd greiddar 342 milljónir ESTRO Model 3042 L 164 cm Leður ct. 15 Verð 365.000,- L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.