Morgunblaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRViðskipti |Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2020 Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is Úrval náttúrulegra bætiefna og fóðurs fyrir hunda og ketti. Nánar á dyrabaer.is HOLLUSTA OG HEILBRIGÐI FRÁ Fasteignafélagið Eik skilaði 235 millj- óna króna tapi á fyrsta fjórðungi árs- ins. Er það verulegur viðsnúningur frá sama tímabili í fyrra þegar hagn- aðurinn nam 560 milljónum króna. Það sem litar uppgjörið mjög eru matsbreytingar fjárfestingaeigna sem færðar eru niður um 883 millj- ónir. Á fyrsta fjórðungi síðasta árs voru þær jákvæðar um 323 milljónir. Við matið er m.a. stuðst við núvirt framtíðarsjóðstreymi einstakra eigna og byggist aðferðafræðin á al- þjóðlega reikningsskilastaðlinum IFRS. Rekstrartekjur á fjórðungnum námu 2.135 milljónum og hækkuðu um ríflega 150 milljónir milli ára. Rekstrarkostnaður jókst hins vegar um 28 milljónir og stóð í 809 millj- ónum. Þá drógust hrein fjármagns- gjöld saman og voru 714 milljónir, samanborið við 927 milljónir yfir sama tíma í fyrra. Fjárfestingareignir félagsins eru nú metnar á 95,6 milljarða en voru þrjú hundruð milljónum hærri í bók- unum um áramót. Handbært fé nem- ur 1.853 milljónum og stendur í stað frá upphafi árs. Líkt og áður hefur komið fram hef- ur afkomuspá fyrir árið 2020 verið felld úr gildi vegna ófyrirséðra áhrifa af kórónuveirufaraldrinum. Í tilkynn- ingu í tengslum við uppgjörið segir hins vegar að afkoma ársins muni fyrst og fremst taka mið af því hvern- ig leigutakar félagsins koma undan faraldrinum og hveru fljótt daglegt líf muni komast í eðlilegt horf. Eik segist hafa unnið með leigu- tökum sínum í þessu ástandi, m.a. kostað markaðsefni fyrir fyrirtæki í hótel- og veitingarekstri þar sem fólk er hvatt til að nýta þjónustu þeirra. Þá hafa ekki verið gefnir út leigu- reikningar vegna veltuleigu í apríl. 800 milljóna viðsnúning- ur hjá Eik  Matsbreytingar lita uppgjörið mjög BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Ný könnun sem Alþjóðasamtök flugfélaga (IATA) hefur gert meðal fjármálastjóra aðildarfélaga sinna og yfirmanna fraktflutninga dregur upp mjög dökka mynd af horfunum á alþjóðlegum flugmarkaði á kom- andi mánuðum. Í könnuninni var m.a. spurt út í afkomu flugfélaga á fyrsta fjórðungi þessa árs. 83% svarenda sögðu að hagnaðurinn hefði dregist saman á fjórðungnum og hafa svarendur í könnuninni hlutfallslega ekki verið jafn nei- kvæðir varðandi nýliðinn fjórðung síðan sambærileg könnun var gerð í október 2009. Þegar svarendur eru hins vegar spurðir út í horfurnar framundan kemur fram að 90% þeirra telja að afkoman muni versna á komandi tólf mánuðum. Þá telja 7% svarenda að staðan verði óbreytt en aðeins 3% að hún muni batna. Aldrei fyrr í könnunum IATA hefur útlitið, litið 12 mánuði fram í tímann, verið eins dökkt. Hægur bati í farþegafjölda Með svipuðum hætti eru svörin þegar spurt er út í ætlaða þróun í fjölgun farþega. 84% svarenda fundu fyrir fækkun á fyrsta fjórð- ungi ársins og 83% þeirra telja að staðan muni versna enn á næstu 12 mánuðum. 13% svarenda telja að staðan muni skána yfir fyrrnefnt tímabil. Nálgunarreglur reyna á Fjármálastjórar þeirra flugfélaga sem tóku þátt í könnuninni telja í langflestum tilvikum að farmiða- verð muni lækka á næstu 12 mán- uðum og rímar það við yfirlýsingar manna á borð við Michael O’Leary, forstjóra Ryanair, sem spáir blóð- ugu verðstríði á flugmarkaði þegar opnað verður fyrir fólksflutninga milli landa að nýju. Þá telja þeir einnig að verðlagningin muni lengi haldast lág og að erfitt verði fyrir flugfélög að hækka verð. Það verði einfaldlega nauðsynlegt að bjóða mjög lágt farmiðaverð til að örva markaðinn og hvetja fólk til þess að ferðast að nýju. Hins vegar benda svarendur á að erfitt geti reynst fyrir flugfélög að bjóða nægilega lágt verð, ef áfram verði miðað við fjarlægðarreglur milli fólks. Slíkt geti krafist þess að miðjusæti í vél- um verði ekki seld og þá fellur nýtingarhlutfall í hverri flugferð verulega niður. Langhlaup framundan Í könnun IATA er einnig spurt út í bein áhrif kórónuveirunnar og hversu lengi svarendur telja að markaðurinn muni verða að jafna sig. Aðeins 14% þeirra segja að það muni gerast á næstu 3-6 mánuðum en 57% telja að það muni gerast á næstu 6-12 mánuðum. 18% svar- enda telja að það muni taka eitt til tvö ár og 7% telja að það muni taka lengri tíma. 4% svarenda sögðust vera í algjöru myrkri um það hvernig mál myndu þróast. Ekki hefur komið fram opinber- lega hvað áætlanir Icelandair Group gera ráð fyrir að langan tíma taki að endurreisa flugþjón- ustu til og frá landinu. Stór flug- félög sem beint hafa vélum sínum inn á markaðinn hér hafa hins veg- ar dregið skýra línu í sandinn. Þeg- ar SAS sagði upp 5.000 starfsmönn- um í vikunni kom fram hjá stjórnendum félagsins að það myndi „taka einhver ár“ að ná fyrri tíðni. Svipaða sögu er að segja af Norwegian Air Shuttle sem hefur aðeins sjö vélar af nærri 170 í virkri þjónustu. Samkvæmt upplýsingum frá félaginu byggist grunnspá fé- lagsins á því að flotastýringin verði með óbreyttu sniði fram til apríl- mánaðar 2021. Telja tólf mánaða eyði- merkurgöngu í kortunum AFP Flugflotinn Langflestar farþegaþotur heimsins standa verkefnalausar á flugvöllum vítt og breitt. Alls óvíst er hve- nær þörf verður fyrir þessar vélar að nýju en sennilega mun taka nokkurn tíma að ræsa hreyfla þeirra á nýjan leik.  Flugrekendur og flugvélaframleiðendur lítt bjartsýnir á komandi mánuði Sala Krónunnar jókst um 13% á fyrsta fjórðungi ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Svipaða sögu má segja af umsvifum Elko þar sem söluaukningin nam 12,8%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Festi, móðurfélagi verslananna. Þar kemur einnig fram að N1 hafi orðið fyrir þungu höggi vegna útbreiðslu kór- ónuveirunnar, ferðaþjónusta hafi lagst af, samkomubann hafi haft veruleg áhrif og þá hafi lækkandi ol- íuverð einnig leikið félagið grátt. Þrátt fyrir hinar miklu sviptingar nam hagnaður Festar 52,7 milljón- um króna og jókst um eina milljón frá sama tímabili í fyrra. Framlegð af vörusölu nam 4,3 milljörðum sam- anborið við 4,2 milljarða í fyrra. Reksturinn kostar meira Rekstrarkostnaður nam hins veg- ar 3,3 milljörðum og jókst um nærri fjögur hundruð milljónir milli ára. Munar þar mest um rekstrarkostnað fasteigna sem jókst um tæpar 53 milljónir, sölu- og markaðskostnað sem jókst um ríflega 51 milljón og það sem skilgreint er sem sam- skiptakostnaður (e. communication expenses) sem hækkaði um 43 millj- ónir miðað við sama tímabil í fyrra. Í lok fjórðungsins námu heildareignir Festar 80,7 milljörðum króna og höfðu lækkað um 540 milljónir frá áramótum og hefur gengið nokkuð á lausafé fyrirtækisins á tímabilinu. Skuldir Festar námu 52,4 milljörð- um í lok fjórðungsins og höfðu lækk- að um 150 milljónir frá áramótum. Eigið fé stóð því í 28,3 milljörðum og hafði lækkað um 394 milljónir á síð- ustu þremur mánuðum. Morgunblaðið/Sigurður Bogi N1 Eldsneytismarkaðurinn hefur ekki farið varhluta af ástandinu. Hagnaður Festar 52,7 milljónir  N1 verður fyrir mestum áhrifum af kórónuveirunni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.