Morgunblaðið - 30.04.2020, Side 28

Morgunblaðið - 30.04.2020, Side 28
28 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2020 Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 Misty SENDUM FRÍTT UM ALLT LAND ÚT APRÍL FULL BÚÐ AF FLOTTUM VÖRUM Mundu, þú gætir verið á skrá hjá okkur, þá er minna mál að panta. CURVY RACERBACK Bralett 9.850,- Buxur 4.990,- Einnig til í svörtu Stærðir S-XL. XS 30-32 DD-F S 32-34 DD-F M 34-36 DD-F L 36-38 F-G XL 38-40 G-H – hornsteinar fransks lífsstíls – lokuð til að draga úr líkum á uppkipp veiru- smits. „Þjóðin verður að læra að lifa með veirunni,“ sagði Philippe og lagði áherslu á það að landsmenn virtu reglur um félagslega fjarlægð og hreinlætisráðstafanir til að bæla veir- una niður sem engin lyf bitu á enn sem komið væri. Á sama tíma sagði forsætisráðherrann að Frakkland gæti ekki leyft sér að halda um aldur og ævi í landslokunina. Öll skólabörn með grímu Strax þann 11. maí verða vöggu- BAKSVIÐ Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Frakkar munu frá og með 11. maí hefja afléttingu strangra regla sem gripið var til í stríðinu við kórónu- veiruna. Ætla þeir að taka eitt „áhættusamt“ skref í einu og gefa sér minnst fjórar vikur til að koma gang- verki samfélagsins á ferð. Forsætisráðherrann Edouard Philippe segir áformin þó öll með þeim fyrirvara, að ekki þurfi að styrkja og reisa varnarmúra á ný komi til annarrar bylgju veirusmita. Sagði Philippe, er hann gerði þinginu grein fyrir ráðstöfununum, að margir mánuðir mynda líða – jafnvel misseri – uns daglegt líf kæmist í eðlilegt horf. En lífið verður þá ekki eins og áður vegna þeirrar skyldu notenda almenningssamgangna að þurfa að bera andlitsgrímr öllum stundum. Þá hvetti stjórnin fyrirtæki landsins til að bjóða starfsfólki áfram að stunda fjarvinnu heiman frá sér út maí hið minnsta. Áfram verða veitinga- og kaffihús stofur og leikskólar opnuð eftir átta vikna lokun og viku seinna grunnskól- inn, þó aðeins á svæðum þar sem dreg- ið hefur nægilega mikið úr faraldr- inum. Að hámarki mega 15 nemendur vera í skólastofu eða aðeins bekkj- arhelmingur. Beðið verður fram í maí- lok með að taka ákvarðanir um fram- tíð menntaskólanna og hvort þeir bíði alfarið til næsta skólaárs, í haust. Skylt verður nemendum í þessum skólum að bera andlitsgrímu til varnar smiti, en vöggustofurnar verða þó und- anskildar. Verslanir aðrar en matvörubúðir verpa opnaðar meira og minna 11. maí eftir að hafa verið lokaðar frá 17. mars. Á því tímabili hafa landsmenn nánast verið lokaðir inni á heimilum sínum minnst 23 stundir á sólarhring og bannað að vera utandyra í erind- isleysu. Til að koma í veg fyrir hópa- myndun fólks gilda áfram strangar reglur um svonefnda „félagslega fjar- lægð“ milli fólks. „Við verðum að verja íbúana en megum ekki njörva þá það mikið niður að samfélagið hrynji,“ sagði Philippe í þingræðunni, en þingið samþykkti léttingaráætlun stjórnarinnar að lok- inni stuttri umræðu um hana. Fín lína Hann sagði að um línudans væri að ræða. „Minnsta kæruleysi gæti hleypt faraldrinum upp á ný. Að sama skapi kynni landið að sökkva í sæ færum við fram af of mikilli var- færni.“ Til að halda sem lengstu bili milli þingmanna í þágu félagslegs aðskilnaðar voru aðeins 75 þeirra af 577 viðstaddir umræðuna, sem sjón- varpað var beint um land allt. Í fyrradag höfðu 23.660 dáið af völdum kórónuveirunnar í Frakk- landi frá 1. mars; 14.810 á sjúkra- húsum og 8.850 á elli- og hjúkr- unarheimilum. Nýsmiti hefur fækkað jafnt og þétt síðustu daga og einnig sjúklingum á gjörgæslu. Sagði Philippe að með því að loka landið af hefði 62.000 manns verið forðað frá dauða á mánuði og þörfin á vistun á gjörgæsludeild verið minnkuð um 100.000 manns. Lok- unin hefur þó bitnað harkalega á efnahag Frakklands með 7,1% met- aukningu atvinnuleysis í mars og áætluðum átta prósenta samdrætti þjóðarframleiðslunnar í ár. Í Evrópu allri voru dauðsföll vegna veirunnar komin í 129.859 manns í fyrradag, þar af 1.520 síðasta sólarhringinn. Opnun kaffi- og veitingahúsa bíður fram til loka maí og einnig verða kvikmyndahús, stór söfn, leik- og tónlistarhús áfram lokuð. Almenn- ingsgarðar verða opnir frá 11. maí á svæðum sem talin verða laus við kór- ónuveiruna. Baðstrendur verða aft- ur á móti lokaðar til 1. júní hið minnsta. Lágmarksþjónusta al- menningssamgangna verður tryggð fyrir þá sem engan kost annan hafa á að komast milli staða. Verður ein- ungis þeim sem bera grímu fyrir vit- um sér heimilt að ferðast með lest- um og strætisvögnum. Andlitsgrímur hafa verið af skorn- um skammti og birgðir verið teknar frá fyrir starfsfólk í fremstu víg- línum stríðsins gegn kórónuveir- unni. Nú er að verða breyting þar á og apótek, tóbaks- og tímaritabúðir og stórmarkaðir að fyllast af grímum fyrir almenning, alls 120 milljónir grímna í fyrstu lotu. Þá verða grím- ur heimsendar með póstinum. Áfram verður boðið upp á skimun fyrir kórónuveirunni og er ætlunin að ná sýnum frá 700.000 manns á viku. Þeir sem greinast jákvæðir verða hnepptir í einangrun og með hjálp snjallsímaapps verður leitað uppi fólk sem viðkomandi voru í tengslum við og það prófað einnig. Messufall verður í Frakklandi til 2. júní hið minnsta, að sögn Phil- ippes. Að hámarki geta 20 manns verið viðstaddir útfarir, og hjóna- vígslur verða áfram óheimilar. Lagt verður að fólki að leggjast ekki í langferðir innanlands. Fótboltabann fram í september Philippe forsætisráðherra sló íþróttakeppni meira og minna út af borðinu fram í september, þar á meðal ókláraða keppni í franska fót- boltanum. Engar samkomur eða há- tíðir verða leyfðar í landinu sem draga til sín 5.000 manns eða fleiri. Til fyrsta september mega að há- marki 10 manns koma saman á ein- um og sama blettinum, hvort sem er á opinberum svæðum eða inni á einkaheimilum. Hópæfingar verða bannaðar og einnig bardagaíþróttir. Edouard Philippe höfðaði til hátt- vísi landa sinna er hann brýndi fyrir þeim að virða boð og bönn til að leggja mætti veiruna að velli . AFP Takmarkaður aðgangur Frá þingfundinum í París. Edouard Philippe er í ræðustóli en takmarkaður aðgangur var að þingsalnum í samræmi við reglur stríðsins gegn kórónuveirunni. Tvísýnt afturhvarf til daglegs lífs  Byrjað verður að slaka á ströngum veiruvarúðarráðstöfunum í Frakklandi eftir rúma viku

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.