Morgunblaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 33
UMRÆÐAN 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2020 SJÓNMÆLINGAR hefjast að nýju 4. maí Tímapantanir í síma 511 5800 SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK Norðausturhorn landsins er afar gjöfult svæði á margan hátt og þegar litið er til landbúnaðar, út- gerðar og ekki síst til ferðaþjón- ustu eru sóknarfæri og tækifæri til nýsköpunar umtalsverð. Engu að síður hefur byggðarþróun á Bakkafirði, Raufarhöfn og Öxar- fjarðarhéraði verið neikvæð á síð- astliðnum 10-15 árum og hafa orð- ið talsverðar breytingar á atvinnuháttum frá því sem áður var. Þrátt fyrir að byggðarlögin séu ólík eiga þau það sameiginlegt að störfum hefur fækkað, búskapur hefur víða lagst af og dregið hefur úr þjónusta við íbúa. Þessi byggð- arlög hafa því öll verið skilgreind sem „Brothættar byggðir“ og fóru eftirfarandi byggðaeflingarverkefni af stað í kjölfarið: Raufarhöfn og framtíðin 2012, Öxarfjörður í sókn á árinu 2016 og nú síðast Betri Bakkafjörður á árinu 2019. Verk- efnið Brothættar byggðir er ein af þeim aðgerðum Byggðaáætlunar sem er ætlað að aðstoða byggð- arlög í erfiðri stöðu. Í verkefninu hafa tekið þátt tólf byggðarlög eða byggðarkjarnar, sem eiga það sameiginlegt að hafa lent í áföllum samhliða breytingum á atvinnu- háttum. Verkefnið hefur haft já- kvæð áhrif á samfélögin og í mörg- um tilfellum orðið til þess að ný störf hafa orðið til og byggðirnar fengið ákveðna endurnýjun. Þá hefur þetta einnig orðið til þess að efla og styðja við nýsköpunar- og frumkvöðlastarf í þessum byggð- arlögum. Þegar á heildina er litið eru fjölmörg verkefni sem styrkt eru eða hafa verið styrkt af Brot- hættum byggðum. Það eitt og sér að íbúar séu að sækja um styrki og nýta allt það fjármagn sem er til ráðstöfunar segir heilmikið, íbú- ar sjá tækifærin, hugsa í lausnum og sækja fram á við þrátt fyrir að talsverðar hindranir séu til staðar. Því er afar mikilvægt að haldið sé áfram að styðja við þessi byggð- arlög með þessum hætti og meira til. Fá landsvæði eru eins vel til þess fallin frá náttúrunnar hendi að stundaður sé blómlegur land- búnaður, öflug ferðaþjónusta og ræktun af ýmsum toga, auk þess að skammt er á gjöful fiskimið. Það þarf því ekki að koma á óvart að svæðið í heild er þekkt fyrir há- gæða matvælaframleiðslu og segja má að það sé ákveðið matarbúr. Þó að talsvert sé um smábátaútgerð, fiskvinnslu og fiskeldi, sláturhús, heimavinnslur og grænmet- isræktun af ýmsum toga eru ansi margar auðlindir og vannýtt tæki- færi til staðar. Mikilvægi þess að efla og bæta innlenda framleiðslu er farið að vega þungt, sérstaklega þegar horft er til kolefnis- og vist- spora. Þessi byggðarlög eru einnig afar vel til þess fallin að „hýsa“ störf án staðsetningar/fjarvinnslu. Á síð- ustu árum hafa orðið miklar fram- farir í tækni og þá ekki síst að- gangur að ljósleiðara og ljósneti. Lagðir hafa verið ljósleiðarar um landið þvert og endilangt, sem ger- ir það að verkum að auðvelt er að vinna ákveðin störf í hinum dreifðu byggðum. Á norðausturhorninu er húsnæði til staðar í flestum þétt- býliskjörnum sem býður upp á góða vinnuaðstöðu fyrir starfs- menn í fjarvinnslu. Þá hlýtur reynsla okkar af COVID-19 að verða til þess að stjórnvöld skoði það af alvöru hvort endurskoða beri þá stefnu að flestar stofnanir ríkisins séu á einum stað, þ.e.a.s. á höfuðborgarsvæðinu. Ferðaþjónustan hefur vaxið mik- ið og til hafa orðið ný störf sem styrkt hafa byggðina. Unnið hefur verið skipulega í markaðssetningu svæðisins með aðkomu stofnana á svæðinu og hins opinbera. Nýlega var kynntur nýr ferðamáti, svo- kölluð Norðurstrandarleið (Arctic Coast Way). Markmiðið með leið- inni er að skapa farveg og sér- stöðu fyrir þá sem vilja halda sig utan alfaraleiðar og það hefur opn- að á ýmsa möguleika þegar kemur að afþreyingu fyrir ferðamenn. Í því sambandi má nefna að þegar þetta er ritað hefur Fram- kvæmdasjóður ferðamannastaða úthlutað aukaframlagi til uppbygg- ingar innviða og komu tveir stórir styrkir í hlut verkefna á Rauf- arhöfn og Bakkafirði. Þetta er afar mikilvægt innlegg í þá viðleitni sem er til staðar í þessum byggð- arlögum og á svæðinu öllu. Sama má segja um aukaúthlutun fjár- muna til frumkvæðisverkefna í Brothættum byggðum á árinu 2020 sem boðuð var fyrir fáum dögum og nýtist Öxarfjarðarhéraði og byggðinni við Bakkaflóa. Þá ber að nefna að samhliða því að Bakkafjörður var tekinn inn í verkefnið Brothættar byggðir var gert samkomulag við stjórnvöld um að byggja upp veginn milli Bakkafjarðar og Þórshafnar. Um er að ræða 27 km malarveg. Með því að klára veginn er komið bund- ið slitlag á veg nr. 85 frá Húsavík til Vopnafjarðar. Þá mun nýr Dettifossvegur einnig verða mikil samgöngubót og styrkja ferðaþjón- ustu svæðisins í heild á árs- grundvelli. Fyrir þá sem hafa áhuga á frumkvöðlastarfi eða nýsköpun er norðausturhornið afar spennandi kostur þar sem tækifærin leynast viða. Tækifæri á norðausturhorninu og verkefnið Brothættar byggðir Eftir Charlottu Englund, Nönnu Steinu Höskuldsdóttur og Ólaf Áka Ragnarsson » Fá landsvæði eru eins vel til þess fallin að stundaður sé landbúnaður, ferða- þjónusta og ræktun af ýmsum toga, auk þess að skammt er á gjöful fiskimið. Charlotta Englund Höfundar eru verkefnisstjórar. lotta@ssne.is Nanna Steina Höskuldsdóttir Ólafur Áki Ragnarsson Atvinna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.