Morgunblaðið - 30.04.2020, Síða 38

Morgunblaðið - 30.04.2020, Síða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2020 ✝ Álfur Ketilssonfæddist á Ytra- Fjalli í Aðaldal 7. október 1939. Hann lést á Dvalarheimili aldraðra Sauðár- króki 20. apríl 2020. Foreldrar hans voru Jóhanna Hólmfríður Björns- dóttir, f. 20.1. 1899. d. 18.12. 1998, og Ketill Indriðason, f. 12.2. 1896, d. 22.9. 1971, búend- ur þar. Systkini: Indriði, f. 4.4. 1934, bóndi á Ytra-Fjalli, Ása, f. 6.11. 1935, húsfreyja og bóndi á Laugalandi í Skjaldfannardal, Birna, f. 11.2. 1938, húsfreyja á Akureyri, Ívar, f. 28.9. 1941. d. 27.2. 1942, og Ívar, f. 5.7. 1943, bóndi á Ytra-Fjalli. Eftir lögboðið barnaskóla- nám, sem á þeim árum var fjór- um sinnum þrír mánuðir í sveit- ánssonar, f. 14.10. 1908, d. 1.8. 2004, búenda í Brennigerði í Borgarsveit. Bróðir hennar Bragi, f. 18.9. 1936, d. 6.4. 1937. Margrét og Álfur gengu í hjóna- band 9.10. 1971 og hefur heimili þeirra lengst af verið í Brenni- gerði síðan. Börn þeirra eru: 1) Stefán, f. 30.5. 1975, maki Guð- rún Jacqueline Hannesdóttir, f. 13.6. 1982. Börn Stefáns eru: Stefán, f. 22.7. 2004, Álfgeir, f. 23.7. 2008, Kristinn, f. 23.7. 2008, Sebastían Snær, f. 8.9. 2016, og Baltasar Bragi, f. 29.5. 2019. Stjúpsonur: Sigurður Páll Pálsson, f. 24.3. 1992. 2) Herdís, f. 26.1. 1977, maki Guðmundur Marinó Ásgrímsson, f. 16.1. 1974, börn Herdísar eru: Mar- grét Ólöf Soka, f. 1.11. 2007, og Elísabet Rut Soka, f. 18.6. 2009. Stjúpbörn: Marín Ósk, f. 10.11. 1998, Júlía Heiður, f. 23.9. 2003, og Ásgrímur, f. 18.3. 2010. Á síðari árum gerðust Álfur og Margrét skógarbændur í Brennigerði. Útförin fer fram í kyrrþey. um, fór hann í Héraðsskólann á Laugum og lauk þaðan gagnfræða- prófi. Síðan fór hann í Samvinnu- skólann á Bifröst og að því námi loknu bauðst hon- um starfsþjálfun hjá SÍS og vann á þess vegum við kaupfélög á Ak- ureyri, Ólafsvík, Hellissandi, Tálknafirði og Sauðárkróki. Þar ílentist hann svo hjá Kaupfélagi Skagfirðinga og vann þar til loka starfsaldurs, lengst af sem skrifstofustjóri. Á Sauðárkróki kynntist hann konuefni sínu, Margréti Stefáns- dóttur í Brennigerði. Hún fædd- ist 25.1. 1942, dóttir Herdísar Ólafsdóttur, f. 10.2. 1911, d. 29.3. 2008, og Stefáns Stef- Megi gæfan þig geyma, megi Guð þér færa sigurlag, megi sól lýsa þína leið, megi ljós þitt skína sérhvern dag. Og bænar bið ég þér, að ávallt geymi þig Guð í hendi sér. (Írsk bæn) Elsku pabbi, ég kveð þig með djúpum söknuði. Margs er að minnast þegar ég lít yfir farinn veg og er þakklæti mér efst í huga. Pabbi var afar vel gerður mað- ur með ríka eðliskosti. Hann var sérstaklega orðvar, prúðmenni, víðlesinn og fróður. Hann var úti- vistar- og ræktunarmaður af lífi og sál. Í Brennigerði hóf hann að gróðursetja, sá fræjum og setti sinn fagurkerasvip á landið og átti ég yndislegan tíma með honum við þessa iðju. Á þessum kyrrð- arstundum í náttúrunni gátum við rætt ýmsa hluti. Hann var góður hlustandi og opinn fyrir sjónar- miðum og afar fær að leiðbeina og koma með góð innlegg. Nærvera hans var kærleiksrík og gaf mik- inn frið. Hálendið, fjallgöngur og að tjalda úti í náttúrunni var í miklu uppáhaldi hjá honum. Á ferðum okkar um landið var hann óþreyt- andi að fræða okkur um stað- hætti, gróður, fuglalíf og allt sem fyrir augu bar. Þetta eru minn- ingar sem lifa innra með mér. Eitt af áhugamálum pabba var laxveiði. Á hverju sumri var farið á hans heimaslóðir austur í Að- aldal þar sem hann gat sameinað veiðina og í leiðinni ræktað fjöl- skylduböndin sem voru honum mikils virði. Pabbi var skipulagður og störf- um hlaðinn en gaf sér samt alltaf tíma fyrir okkur systkinin. Hann var skemmtilegur og mikill félagi, kenndi okkur marga leiki, tefldi, fór með okkur í gönguferðir og las í bókum fyrir okkur á kvöldin í barnæsku. Í veikindum pabba var já- kvæðni, æðruleysi og innri ró hans aðalsmerki. Nú er hann kominn í dýrðarríki Guðs og líður vel. Mig langar að lokum að þakka öllu starfsfólki á Dvalarheimili aldraðra, deild 5 fyrir frábæra umönnun, kærleika og hlýju og að taka á móti öllum símtölunum frá mér. Á þessum sérstöku tímum er ég full þakklætis fyrir það að hafa fengið að vera hjá honum þegar hann kvaddi. Minning þín er ljós í lífi mínu, þín elskandi dóttir, Herdís Álfsdóttir. Álfur Ketilsson góðmenni er farinn í ferðalagið mikla. Það er honum frelsun og mun hann fá höfðinglegar móttökur í fullu samræmi við hvernig hann lifði á fallegan og óeigingjarnan hátt. „Stórfljótin falla neðanjarðar“ (orðtak Leonardos da Vinci). Eftir sit ég ævinlega þakklátur fyrir allt það sem hann gaf mér, á þeim lista er ekkert sem telja má óvandað að neinu leyti. Það var blessun að vera settur í hendurn- ar á pabba og fjölskyldunni á Brennigerði. Hugurinn reikar og litið er yfir farinn veg, mér er ljóst að und- irliggjandi stefið í lífi pabba er eft- irfarandi þótt sjálfur hefði hann ekki orð á því: Skildu betur við en þú tókst við. Skipti þá engu hvort um menn eða málleysingja væri að ræða, landið okkar eða hver þau verk- efni sem pabbi tók að sér. Aðgát skal höfð í nærveru sálar var speki sem pabbi virti til hins ýtrasta, aðgát var höfð í orðum þótt viðkomandi sál væri hvergi nærri. Slegið var í kringum hreið- ur á túnum og ráðvilltum fýlum bjargað af vegum og svo mætti lengi telja. Þolinmæði, vinnu- og um- hyggjusemi eru góðir kostir fyrir skógræktarmann. Komandi kyn- slóðir munu njóta óeigingjarnra verka pabba á því sviði. Pabbi var mikið náttúrubarn, hann kunni að njóta en hann vildi líka að aðrir nytu, rusl var iðulega tekið upp, hlúð að gróðri og passað hvar stig- ið var niður. Vandvirkni var ávallt viðhöfð og bar allt umhverfi pabba þess merki. Já, ástkær fað- ir minn skildi betur við hlutina en hann kom að þeim. Fróðleik og visku var miðlað á kíminn og skemmtilegan hátt en á sama tíma fylgdi pabbi þeirri lífs- speki að hann hefði tvö eyru (sem voru skemmtilega stór og útstæð) en bara einn munn. Pabbi var fullur af kærleik, sem barn man ég eftir að finna fyrir þéttofnum þráðum ástar, virðingar og kærleiks gagnvart mömmu og okkur systkinunum. Þræðirnir teygðu sig þó talsvert lengra og brúuðu kynslóðabilið og gengu til foreldra, eigin jafnt sem tengdra, bræðra og systra, listinn heldur áfram þótt minni upptaln- ingu ljúki. Ég votta systkinum pabba mína innilegustu samúð, sterk tenging var þeirra á milli. Það er gott að alast upp klædd- ur ósýnilegum fötum ofnum úr ofangreindu, þau bæði hlýja manni og snerta. Pabbi kenndi með því að gera og vera. Ég finn til vanmáttar við þessi skrif, mér finnst ég ekki eiga réttu orðin til að draga lífi pabba nógu fallega mynd. Hvatning mín og útgangspunktur er sú að barna- börnin sem hann elskaði innilega munu hafa aðgang að þessum texta til áminningar um það vega- nesti sem afi þeirra hefði gefið þeim í ennþá ríkulegri mæli hefði hann fengið rýmri tíma ásamt betri heilsu síðustu árinn. Hafðu fararheill var kveðja sem Stefán afi notaði gjarnan, þessa kveðju notaði pabbi til að kveðja Dísu ömmu. Hafðu farar- heill elsku pabbi minn, þú ljós af manni. Stefán Álfsson. Margt hafði ég heyrt um þenn- an góða mann hann Álf, því miður kynntist ég honum alltof seint þótt máltækið „betra seint en aldrei“ hafi sjaldan átt betur við. Ég man vel eftir stressinu þeg- ar við fórum fyrst að heimsækja hann og Margréti í Brennigerði um páskana 2017. Það var fljótt að fara því móttökurnar voru meiri en höfðinglegar. Til að sýna þeim að ég væri til einhvers nýtur bauðst ég til að sjá um að elda og var það ágætis hugmynd því Álfur og Margrét sáu fljótt að best væri að hafa mig bak við eldavélina. Í byrjun var ekki létt fyrir mig að hafa bein samskipti við Álf því þær mæðgur voru fljótar að svara fyrir hann. En þegar við höfðum tíma saman sá ég fljótt hvaða mann hann hafði að geyma. Það sem skipti mestu máli var hvernig þau hjónin tóku á móti börnunum mínum, sem fundu strax að þau væru hluti af Brenni- gerðisfjölskyldunni. Ferð sem ég mun seint gleyma er þegar við tókum hann í bíltúr til Hóla, það sem hann vissi um fjöll og firnindi. Það var eins og ég færi 30-40 ár aftur í tímann að hlusta á pabba minn reyna að viska mann til (ekki leiðum að líkjast, þótt ég væri meðtækilegri á seinni árum). Alla þessa ferð hafði Álfur orð- ið og hann nýtti það svo vel að við Herdís, Margrét og Elísabet munum seint gleyma því hvað hann kenndi okkur um staðhætti og söguna allt um kring. Þessa dagana voru hans ferða- lög að mestu að fara á milli Brennigerðis og dvalarheimilisins svo hann naut sín í botn. Þegar komið var að vegamótunum og valið stóð á milli Sauðárkróks og Hofsóss var hann ekki lengi að velja að Hofsós væri betri kostur. Þegar hann var ekki að hugsa um fjölskyldu og vinnu var gróð- ursetning hans áhugamál. Herdís mín tók sig til einn daginn og labbaði á fjallið og tíndi sveppi eins og enginn væri morgundag- urinn. Þegar kom svo að því að matreiða afraksturinn þá sátum við Álfur með henni við eldhús- borðið. Hafði ég orð á því hvort hún vissi hvaða sveppir væru ætir eður ei. Þá tók Álfur sig til og stóð upp óstuddur og náði í bók sem sagði allt um sveppi og rétti mér. Eftir það voru mín afskipti af gæðum sveppa lítil sem engin. Þetta lýsir vel hvernig þessi maður var byggður af vilja og viti. En það sem lýsti honum einna best var áhugi hans á umhverfinu, og sér í lagi skógrækt. Hann vildi að börnin hans hefðu að leiðar- ljósi: „Maður á að skila hlutum betur frá sér en maður kemur að þeim.“ Minningin lifir, elsku Margrét, Stefán og Herdís. Takk fyrir okkur. Guðmundur Marinó Ásgrímsson. Hér kom engum óvænt kallið, allir falla nú vegir greiðir. Sá, sem áður fór yfir fjallið farinn er nú á hærri leiðir yfir dimma dauðahallið, dagsbrún sér – og aftur heiðir. Létt var honum því lúðurgjallið leikvangur nýr, þar sem úr sér breiðir. (Ketill Indriðason) Álfur bróðir minn hefur nú kvatt þennan heim eftir áralanga baráttu við sjúkdóm sem rændi hann smám saman allri orku og líkamskröftum, en sú var líkn með þraut að hann fékk haldið hugsun sinni og ljúfu lund til loka. Það er margs að minnast og allt að þakka frá samvistum okkar fyrr og síðar, en þær spanna 80 ár. Við systkinin ólumst upp við mikið ástríki og umhyggju for- eldra okkar, sem höfðu mikla trú á gildi bæna og góðra hugsana. Móðir okkar kenndi okkur bænir og las með okkur fyrstu árin og hún kenndi okkur líka að lesa, skrifa og reikna og lagði grunn að öllu frekara námi. Hún bað ekki um hamingju, en að ég yrði góður maður bað hún oft og eflaust hafa systkini mín fengið sömu bænir og er það ekki lykillinn að ham- ingjunni? Og svo að læra að fyr- irgefa – og biðja um fyrirgefn- ingu. Pabbi las oft fyrir okkur öll og fræddi um margt. Við systkin lærðum margt af ljóðum og lausa- vísum af foreldrum okkar og af lestri og var það einn leikur okk- ar, að kveðast á. Var þá ýmist mælt af munni fram, kveðið eða raulað. Þetta var hægt við ýmis störf, t.d. heyskap eða tóvinnu, sem var enn ofurlítil í uppvexti okkar, vefnaður en einkum spuni á vél og var Álfur orðinn liðtækur spunamaður um fermingu og sömuleiðis sláttumaður góður. Mest af skólakostnaði greiddi Álf- ur með sumarvinnu sinni og vann meðal annars eitt sumar hjá Skógrækt ríkisins á Vöglum og glæddist þar skógræktaráhugi, sem hann hafði að heiman. Hann var óþreytandi að liðsinna foreldr- um og systkinum á allan hátt og var svo ætíð. Áhugamál Álfs voru mörg, nefni útivist, óbyggðaferðir, fjall- göngur, laxveiði; áttu þeir Tryggvi Eymundsson vinur hans margar stundir saman við Blöndu og Laxá í Aðaldal. Kærust var honum líklega skógræktin. Skömmu eftir að hann flutti í Brennigerði fékk hann þar grýtt móhorn, girti og hóf trjárækt og er þar orðinn fallegur lundur. Ól upp plöntur og gerði tilraunir. Eftir að búfjárhaldi lauk í Brenni- gerði gerðust þau Margrét skóg- arbændur. Fóru á námskeið og í námsferðir, friðuðu fjallshlíð ofan bæjar og meira land þó og plöntuðu tugþúsundum trjáa af mörgu tagi, sem nú eru að vaxa upp og bera þeim gott vitni með meiru. Fyrir nokkrum árum hitti ég aldraðan Skagfirðing. Er hann vissi að ég væri bróðir Álfs sagði hann: „Þar átt þú góðan bróður.“ Þetta þurfti ekki að segja mér en vænt þótti mér um vitnisburðinn. Ástvinir Álfs hafa mikils misst og við Valgerður mín vottum Mar- gréti, börnum þeirra, tengda- börnum og barnabörnum innilega hluttekningu. Megi minning Álfs lifa með okkur öllum. Indriði Ketilsson. Bláir eru dalir þínir byggð mín í norðrinu heiður er þinn vorhiminn hljóðar eru nætur þínar létt falla öldurnar að innskerjum hvít eru tröf þeirra. (Hannes Pétursson) Vorkoman er öllum kær. Tákn hennar eru margbreytileg; bjartir dagar, skemmri nætur, þröstur í runna, stelkur í mýri, lóa í túni, öll með lofsöng til lífsins og vorsins. Skógarhríslur brjótast upp úr hel- fjötrum vetrargaddsins, blessuð björkin bognar en brotnar ekki og syngjandi lækir og vötn fagna frelsi. Þöglar eru heiðar þínar byggð mín í norðrinu. Huldur býr í fossgljúfri saumar sólargull í silfurfestar vatnsdropanna. (HP) Hjartkær bróðir minn Álfur Ketilsson var barn vorsins og gró- andans. Það var ekki auður í búi á bernskuheimili okkar en þeim mun meira af ástúð og umhyggju og það var gott að alast upp við nið framanvatnanna og finna ilm- inn úr birkihlíðinni í Fjallshnjúk. Álfur unni og hlúði að gróðri alla ævi eins og svo glögg merki sjást í landi Brennigerðis í Skagafirði þar sem hann bjó meðan kraftar leyfðu ásamt konu sinni Margréti Stefánsdóttur. Við vorum fimm systkinin sem ólumst upp á Fjalli. Einn bróðir dó í frumbernsku. Álfur var næst- yngstur af þeim sem lifðu. Hann var ljúfur og glaðlyndur drengur sem þroskaði með sér einstakt jafnlyndi og prúðmennsku og mælti aldrei æðruorð í veikindum sínum. Honum var gefið mikið sálarþrek. Æskuminningarnar eru allar á einn veg. Þar bar aldrei skugga á. Ástríkur sonur og bróð- ir og með hans aðstoð átti ég þess kost til margra ára að ferðast landshornanna á milli til að kom- ast á æskustöðvarnar með börnin mín og treysta ættarböndin. Því var mér svo mikils virði að hafa möguleika á því seinustu árin þeg- ar parkinsonssjúkdómurinn þrengdi kosti hans jafnt og þétt að dvelja hjá þeim Möggu í Brenni- gerði og rifja upp gamlar gleði- stundir. Seinast kom ég til hans í haust á afmælinu hans og ætlaði að koma í vetur en þá skullu yfir allar breytingarnar í þjóðfélaginu. Bróðir og vinur! Við systkini þín og fjölskyldur okkar óskum þér góðrar ferðar í fegri heima og þökkum óendanlega gæsku og góðsemi. Vottum Möggu þinni sem stóð með þér til æviloka, Stefáni og Herdísi, börnunum ykkar, okkar dýpstu samúð. Sæl verður gleymskan undir grasi þínu byggð mín í norðrinu því sælt er að gleyma í fangi þess maður elskar. (HP) Guð geymi þig. Ása Ketilsdóttir. Það var að byrja að vora á Norðurlandi þegar Álfur Ketils- son kvaddi þetta jarðlíf 20. apríl sl. Brumið byrjað að sjást á trjám og runnum og vottaði fyrir græn- um stráum í varpa. Álfur, sem alla tíð var maður gróðurs og rækt- unar, var kvaddur til þess að „meira að starfa Guðs um geim“ á þeim tíma árs, sem hann unni meira en öðrum; í vori og gró- anda. Honum fylgja óskir um far- arheill og þakkir fyrir líf hans allt og starf. Þegar við samnemendur hans á Bifröst komum þangað haustið 1960 fór ekki hjá því að þessi svarthærði og sviphreini piltur úr Þingeyjarsýslu vekti strax athygli okkar skólasystkina og fljótlega kom í ljós að honum hafði verið meira andlegu atgervi úthlutað af forsjóninni en meðalmanni. Bæði skólasystkinum og kennurum varð fljótt ljóst að ekki hafði hann einungis hlotið bæði góðar gáfur og námshæfileika í vöggugjöf, heldur bjó hann yfir meiri fé- lagsþroska en algengt var með tvítugt fólk á þessum tíma. Vafa- laust hefur þar bæði verið upplagi og kynfestu að þakka, en einnig sérlega góðu uppeldi og rómaðri heimilismenningu suðurþing- eyskra sveita. Það kom því eiginlega af sjálfu sér að Álfur varð sjálfkjörinn og sjálfsagður foringi okkar árgangs og seinna allra nemenda skólans. Hefur sú staða mála haldist síðan. Síðar lágu leiðir okkar Álfs saman í starfi hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, þar sem hann hóf störf sem daglegur endurskoð- andi haustið 1964. Yfirmenn fyrir- tækisins kunnu vel að meta vand- virkni hans, rökhyggju og iðjusemi og fljótlega tók hann við sem skrifstofustjóri. Varð þetta starfsvettvangur Álfs þar til hann fór á eftirlaun 67 ára gamall. Tók þá við nýr kafli í lífi hans, en þau hjón höfðu árum saman undirbúið að koma á fót skógræktarbúi á föðurleifð Margrétar, eiginkonu Álfs. En svo fór þó, að sá tími sem þeim gafst til að vinna saman að þessu verkefni varð skemmri en flestir hugðu. Var þetta því sorg- legra, sem allir sem til þekktu höfðu vænst þess að hann fengi mörg og góð elliár til að sinna hugðarefnum sínum, því hann var alla tíð mjög vel á sig kominn lík- amlega; grannholda, léttur í spori og mikill göngu- og þrekmaður til allra athafna sem hreyfingar kröfðust. Þess utan var hann mik- ill reglumaður, neytti hvorki áfengis né tóbaks og hófsmaður í öllu sínu lífi. Svo sem nærri má geta var Álf- ur oft kvaddur til ábyrgðarstarfa í hinum ýmsu félagsmálum og varð þar í hvívetna hinn gagnsamasti sínu samfélagi. Enda þótti mörg- um að hann væri til þess fallinn að takast einnig á hendur meiri ábyrgðarstörf á sviði síns fyrir- tækis, en hann fékkst þó ekki til þess. Mun þó mjög hafa verið að honum lagt af bæði félagsstjórn KS og einnig samstarfsfólki að taka að sér stjórn félagsins þegar kaupfélagsstjórinn þáverandi, Helgi R. Traustason, varð bráð- kvaddur í árslok 1981. Að leiðarlokum er Álfi þakkað- ur félagsskapur og vinátta síðast- liðin sextíu ár. Þar hefur ekki skugga á borið. Eiginkonu hans, börnum og þeirra fjölskyldum er vottuð innileg samúð. Guðbrandur Þ. Guðbrandsson. Úti í þessum undrageim æðri máttur dulinn er. Einhver hefur einhvers staðar allt í hendi sér. (Birgir Marinósson) Vinur okkar Álfur Ketilsson kvaddi þetta jarðlíf 20. apríl sl. Erfiðum veikindum lauk rétt áður en vorið og gróandinn flæddi um jörðina sem hann unni og hafði unnið fyrir. Við kynntumst í Sam- vinnuskólanum á Bifröst og sung- um þar samvinnusönginn um sáð- manninn, við sungum líka „Vertu Álfur Ketilsson Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minn- ing@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.