Morgunblaðið - 30.04.2020, Síða 40

Morgunblaðið - 30.04.2020, Síða 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2020 ✝ SigurborgSkjaldberg fæddist í Hafn- arfirði 15. sept- ember 1941. Hún andaðist á Land- spítalanum 16. apríl 2020. For- eldrar Sigurborg- ar voru þau Ólöf Haraldsdóttir, hús- móðir og sauma- kona, f. 10.1. 1923, d. 13.5. 2019, og Nói Skjald- berg Jónsson bílstjóri, f. 7.1. 1920, d. 19.9. 1963. Fósturfaðir Sigurborgar var Magnús Bjarnason járnsmiður, f. 17.7. 1928, d. 9.1. 2019. Albróðir hennar er Garðar Olgeirsson, f. 25.3. 1944. Hann var ætt- leiddur. Sammæðra eru Júlía Magnúsdóttir, f. 27.11. 1946, Guðmunda Sæunn Magn- úsdóttir, f. 11.6. 1948, og Bjarni Magnússon, f. 23.10. 1949. Samfeðra eru Kolbrún Skjaldberg, f. 26.5. 1951, og vinnslu í Íshúsi Hafnarfjarðar. Síðar starfaði hún við ræstingu á leikskóla, verslunarstörf hjá Hagkaupum og sem stuðnings- fulltrúi í Heyrnleysingjaskól- anum og fyrir aldraðra heyrn- leysingja. Hún hafði alla tíð mikinn áhuga á málefnum heyrn- arlausra á Íslandi og tungumáli þeirra, táknmálinu. Hún sat í táknmálsnefnd Félags heyrn- arlausra og hefur alla tíð hald- ið til haga allri þeirri umfjöllun um málefni heyrnarlausra og heyrnarskertra sem birtist í dagblöðum og tímaritum hér á landi. Sigurborg var handa- vinnukona, saumaði föt, hekl- aði og prjónaði mikið á efri ár- um. Sigurborg verður kistulögð og kvödd í dag, 30. apríl 2020, en vegna aðstæðna í þjóðfélag- inu verða aðeins nánustu að- standendur viðstaddir. Minn- ingarathöfn um Sigurborgu verður haldin síðar. Þór Skjaldberg, f. 20.3. 1957. Eiginmaður Sig- urborgar er Bald- ur Snæhólm Ein- arsson, f. 5.7. 1940. Börn þeirra hjóna eru: 1) Katrín Snæ- hólm, f. 13.6. 1963, maki Ólafur Krist- jánsson. Börn: Karen Lind, Sunn- eva Sirrý, Nói Snæhólm og Theodóra Hugrún. 2) Ólöf Snæhólm, f. 5.11. 1964. Börn: Baldur Abraham, Aþena Björg, Askur Ari og Alba Ind- íana. 3) Davíð Snæhólm, f. 30.3. 1984, maki Stella Ingibjörg Gunnarsdóttir. Börn: Natalía Björt Snæhólm og Kristófer Logi Snæhólm. Sigurborg bjó alla tíð í Hafn- arfirði. Hún stundaði nám í Heyrnleysingjaskólanum og í Húsmæðraskólanum á Varma- landi. Hún vann á saumastofu á sínum yngri árum og í fisk- Minningar um mömmu. Nú er elsku mamma horfin á braut úr þessu jarðlífi. Kannski heyrir hún vel núna og skilur allt sem sagt er. Mamma fékk heila- himnubólgu þegar hún var ung- barn sem olli því að hún missti heyrnina að mestu og var því í Málleysingjaskólanum, síðar Heyrnleysingjaskólinn, alla sína skólagöngu. Þar kynntist hún pabba og þau urðu par 1959 og hafa þau gengið saman götuna í nær 61 ár. Mamma var sérstök kona og átti sér stóra drauma. Hana langaði mest að verða flugfreyja og söngkona en þeir draumar urðu aldrei hennar veruleiki. Það er skrítið að sitja hér og kalla fram allar minningarnar núna þegar hún er farin, dáin. Dauð- inn kom og sótti hana okkur öll- um að óvörum, mætti snemma morguns, sveipaði hana huliðs- skikkju og djúpum svefni og um kvöldið kvaddi hún þetta líf. Það var eins og hún hafði allt- af óskað sér; að hún fengi að kveðja þetta líf í svefni án lang- dreginna þjáninga. Og í hjörtum okkar gleðjumst við með henni og þökkum fyrir að hún fékk þá ósk uppfyllta svona fallega og friðsamlega. Eftir situr þó tóm- leikinn og sorgin. Það er sárt til þess að hugsa að síðustu vikurnar var hún á spítalanum og enginn gat heim- sótt hana. Við trúum því að hún hafi ekki verið ein þessar síðustu stundir, að amma og afi sem kvöddu þennan heim á síðasta ári hafi verið þarna með henni og tekið á móti henni inn í ljósið. Mamma var einstök, sérstök og dugleg. Stolt. Vildi fá að gera allt sjálf og fara allt sjálf. Og hún var hugrökk. Sagði stundum þegar hún stóð frammi fyrir áskorunum sem voru stórar: „Ég alveg köld, ég bara gera það!“ Hún var líka forvitin og lær- dómsfús. Orðaforði hennar var ekki mikill en hún elskaði að skrifa upp orðalista og fá okkur systkinin til að útskýra hvað orð þýddu og hvernig ætti að nota þau. Táknmálið var hennar móður- mál og hún brann fyrir þróun þess og var stöðugt að velta fyrir sér hvernig væri hægt að segja þetta eða hitt á táknmáli og gera tillögur að nýjum táknum. Það hrannast upp minning- arnar um hana mömmu og það væri hægt að skrifa um hana heila bók, reyna að koma í orð þessum einstaka karakter sem hún var og hvernig hún sá lífið á sinn eigin hátt. Um hvernig hún studdi okkur í gegnum allt sem lífið bauð upp á með ráðum og dáð, hreinskiln- um skoðunum og endalausri ást. Hvernig hún umvafði okkur, barnabörnin og barnabarna- börnin sín endalausri hlýju og velvilja og vildi alltaf allt fyrir þau gera. Prjónaði fallegar lopa- peysur á okkur öll, ullarsokka og vettlinga fyrir litlar hendur og fætur, málaði á postulín og gerði keramik og var alltaf með litlar gjafir sem hún gaf endalaust og af mikilli umhyggju. Bakaði pönnukökur, skúffukökur og steikti kótelettur, það mátti eng- inn fara frá henni svangur eða kaldur. Elsku mamma, þú varst klett- ur í lífi okkar allra og þín er sárt saknað. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höfundur ók.) Katrín Snæhólm Baldursdóttir, Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, Davíð Snæhólm Baldursson. Margar af okkar bestu minn- ingum eru tengdar ömmu og afa og heimilinu þeirra. Þar var væntumþykja og umhyggja alls- ráðandi og það fylgdi því ákveðið öryggi að hafa þau með sér í líf- inu, ávallt tilbúin að aðstoða eftir bestu getu. Þegar við systkinin fórum á táknmálsnámskeið átt- uðum við okkur á því hvernig hljóðin sem fylgja táknmálinu veita okkur hlýju og innri ró og fannst okkur það til marks um hversu vel okkur leið á heimilinu þeirra. Við vorum alltaf velkomin, hvort sem var til að fara í mat eða bara ræða málin. Og þótt amma ætti stundum svolítið erf- itt með að skilja okkur og við hana skipti það ekki máli því svo greinilega mátti finna undirliggj- andi umhyggjuna frá henni í gegnum allt. Ef eitthvað bjátaði á eða aðstoðar var þörf mátti alltaf leita til þeirra, orðið nei var ekki til í orðaforðanum þegar kom að okkur barnabörnunum. Amma var amma í tíunda veldi, hún hugsaði fyrir öllu og rúmlega það. Hún lagði sig t.d. fram við að velja afmælis- og jólagjafir og hitti alltaf naglann á höfuðið með þær. Hún átti það til að faðma okkur innilega stuttu fyrir afmælisdag eða jól og í leið- inni laumast til að lesa á fatamið- ann í hálsmálinu til að vera viss um að kaupa rétta stærð. Fráfall ömmu skilur eftir sig stórt skarð og tómarúm í lífi okkar en minning hennar mun alltaf lifa með okkur. Orð geta ekki lýst því hversu mikil áhrif þú hafðir á okkur, elsku amma. Hvíldu í friði. Þín barnabörn Abraham, Aþena, Askur og Alba. Við fráfall Sigurborgar Skjaldberg, ömmu Sirrýjar, rifj- ast upp ótal fagrar minningar. Við erum þakklát fyrir tímann sem Guð gaf okkur með ömmu Sirrý og dýrmætar minningar um samverustundir, bæði í æsku og á fullorðinsárum, sem hlýja og umvefja sorgina. Minnisstæð er ferðin sem við fórum hringinn í kringum landið og utanlands- ferðir sem við nutum saman. Einnig óteljandi kaffibollar sem fólu í sér samræður og sam- skipti sem eru dýrmætari en gull á þessum tíma. Lífsafstaða ömmu einkenndist af gleði sem frá henni streymdi. Það vita allir sem ömmu þekktu að dagarnir hennar voru svo sannarlega ekki alltaf einfaldir eða auðveldir. Fólkinu í kringum sig sýndi hún þó alltaf ást, umhyggju og kær- leika og lagði sig fram um að vera mildandi og græðandi hönd í aðstæðum hvers og eins. Hún stóð með fólkinu sínu og sama hvað einhver af hennar fólki átti að hafa gert rangt þá trúði hún því aldrei. Henni mátti alltaf treysta. Amma og afi báru þann kross allt sitt líf að geta einungis tekið þátt í samfélaginu að hluta til vegna heyrnarskerðingar þeirra. Það fallega við ömmu Sirrý var að hún lét það ekki aftra sér á nokkurn hátt. Amma Sirrý var óþrjótandi brunnur af einlægni, og kærleikur hennar til fólksins síns og þeirra sem á vegi hennar urðu var einstakur. Hún var áhugasöm um fólk og naut þess að fá upplýsingar um hvað dagar síns fólks báru í skauti sér. Hún gleymdi aldrei afmælis- dögum eða merkisdögum í lífi fólksins síns. Það skipti hana máli að fólkið í kringum hana vissi að hún væri að hugsa til þeirra. Amma Sirrý barðist fyrir sínu. Hún var gædd sterkri rétt- lætiskennd en var hógvær gagn- vart sjálfri sér. Hún setti sjálfa sig aldrei í fyrsta sæti. Þrátt fyr- ir það fengu samferðamenn að njóta hennar og upplifa þannig kærleika hennar og umhyggju. Það var gaman að tala við ömmu. Hún sá alltaf spaugilegu hliðarn- ar á lífinu, tilverunni og aðstæð- um og húmor hafði hún mikinn. Brosmild, hugmyndarík og stutt í hlátur. Kenndi að prjóna og sama hversu flækjan var mikil þá var afraksturinn í hennar huga alltaf fullkominn enda ein- faldlega lagaði hún það sem þurfti í prjónaskapnum. Alveg sama hvað á bjátaði þá var hún til staðar, hvar og hve- nær sem var, í hverjum þeim kringumstæðum sem við stóðum frammi fyrir. Ómetanlegt var að geta leitað til hennar. Þannig verða kaffibollarnir og kexið í mjólkinni að græðandi minning- um þegar við stöndum frammi fyrir kveðjustund. Amma var hógvær baráttu- kona. Lét ekki segjast svo glatt en tók rökum. Hún var skemmti- legur og litríkur persónuleiki sem enginn gleymir sem honum fékk að kynnast. Hún hafði gam- an af hjátrúarvangaveltum. T.d. var ekki æskilegt að borða gul- rætur á meðgöngu og að rúlla sér niður brekku var ávísun á garnaflækju. Guð geymi elsku ömmu Sirrý og varðveiti í fullkomnu frelsi himinsins. Sömuleiðis biðjum við Guð að varðveita minningarnar og styrkja okkur hvert og eitt. Karen Lind og Páll Ágúst. Sigurborg Skjaldberg ✝ Kristín Rún-arsdóttir fædd- ist 18. apríl 1966 á Landspítalanum í Reykjavík. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu í Hveragerði 15. apríl 2020. Foreldrar Krist- ínar eru Ólöf Páls- dóttir, f. 14. apríl 1937, og Rúnar Hannesson, f. 9. desember 1940. Kristín átti fimm alsystkini. Þar má fyrst telja tvíburabróð- ur hennar, óskírðan, d. 19. apríl 1966, þá komu tvíburasysturnar Anna og Heiða, f. 30. maí 1967, Páll, f. 26. september 1968, og að síðustu Hannes, f. 23. ágúst 1971. Hálfsystkini Kristínar, samfeðra, eru þrjú: Svanhildur Kristín, f. 4. febrúar 1960, Kristinn, f. 23. júlí 1961, d. 20. febrúar 1962, og Birgir Þór, f. 23. janúar 1966. Börn Kristínar eru: 1) Daníel holtsvegi. Hún gerðist síðan landshornaflakkari og flutti suður á Kjalarnes árið 2003. Eftir tveggja ára veru þar færði hún sig um set yfir í blómabæinn Hveragerði. Hún eignaðist tvö yngri börnin sín þar. Í fyrstu einkenndust störf hennar af aðstoð við heim- ilishald og barnagæslu. Hún var tvö sumur í sveit á Syðri- Völlum í Vestur-Húnavatns- sýslu og eitt sumar á Halldórs- stöðum II í Bárðardal, Suður- Þingeyjarsýslu og eitt ár á Sól- vallagötu í hjarta Reykjavíkur. Kristín starfaði um tíma á sjúkrahúsi Húsavíkur. Hún vann nokkur ár við færiband rækjuvinnslunnar á Húsavík. Kristín vann mestan hluta ævi sinnar við verslunarstörf. Hún vann í Nýja kökuhúsinu, Staldr- inu, Nesvali og Hagkaupum í Reykjavík, Shell-sjoppunni og Kaupfélaginu á Húsavík. Í Hveragerði vann hún á N1. Hún tók iðulega að sér skúringar og önnur tilfallandi störf með fullri vinnu. Síðustu árin voru henni erfið þar sem heilsan fór að gefa eftir. Útför hennar fer fram í dag, 30. apríl 2020. Freyr, rafiðnaðar- nemi, f. 26. nóvem- ber 1990. Hann er í sambúð með Bryn- dísi Evu Sigurðar- dóttur leikskóla- liða, f. 16. september 1987. 2) Óskar Steinn, f. 27. nóvember 2006. 3) Ólöf Rún, f. 23. nóvember 2008. Fyrstu fimm árin ólst Kristín, eða Stína, upp í Reykjavík en fjölskyldan flutti til Hafnarfjarðar árið 1971 og síðan til Húsavíkur árið 1978. Kristín bjó mestan hluta ævi sinnar á Húsavík. Hún hleypti heimdraganum og fór tvítug suður. Eftir þriggja ára dvöl þar kom hún aftur í heimahag- ana. Kristín flutti úr foreldra- húsum í blokk í Grundagarði með son á öðru ári. Hún drýgði tekjurnar með því að leigja út herbergi og náði smám saman að safna sér fyrir íbúð á Vall- Elsku Kristín okkar var að upplagi sterk og þrautseig. Hún þurfti að berjast fyrir lífi sínu frá fyrsta andardrætti. Hún var fædd þremur mánuðum fyrir tímann ásamt tvíburabróður sem við þurftum að kveðja nokkrum tímum eftir fæðingu. Í nokkrar vikur var tvísýnt um líf hennar en litli anginn, varla nema 4-5 merkur, hafði betur og kom loks heim til okkar eftir þrjá mánuði á spítala. Kristín þráði ætíð að hafa tvíburabróð- ur sinn sér við hlið. Það jók á sársauka hennar að eignast tví- burasystur sem nutu athyglinn- ar af því að vera tvær á meðan hún var ein. Þroski Kristínar fyrstu árin var aðeins á eftir jafnöldrum en hún svaf alltaf vel og var orkumikil. Fyrstu skrefin tók hún ríflega tveggja ára gömul en hún var fljót að myndast við að tala. Kristín var fjörmikil og ljúf og steig æv- inlega varlega til jarðar. Þegar Kristín byrjaði í skóla var hún í 28 barna bekk og lét lítið fara fyrir sér. Í skólanum lærði hún hljóðlestur en heima fyrir nýtti móðir hennar stafa- aðferðina við lestrarþjálfun. Kristín náði fljótt góðum tökum á lestrinum og gekk almennt vel að læra. Hún var listræn og hafði mikla hæfileika í myndlist. Hún kláraði grunnskólapróf en var ekki tilbúin í frekara nám. Hún hafði þó hug á að leggja fyrir sig nám í myndlist en hvarf frá því. Kristín var harðdugleg í vinnu og skynsöm að leggja fyr- ir og safna sér fyrir hinu og þessu. Þegar hún var 24 ára eignaðist hún son sem hún ól fyrst upp hjá okkur í foreldra- húsum á Húsavík en keypti sér síðan fljótlega fasteign. Hún var alltaf í góðum tengslum við okk- ur foreldrana á meðan hún bjó fyrir norðan og við tókum þátt í uppeldinu með henni. Hún flutti síðan suður, þá misstum við meira sambandið við hana, enda langt á milli og mikið að gera hjá henni og langlínusamtöl því oft látin duga. Fljótlega eftir að hún flutti suður, þá um fertugt, varð Kristín móðir í annað sinn og bætti þriðja barninu við tveimur árum síðar. Því fylgdi mikið álag og fljótlega fór að bera á veikindum hjá henni. Hún var heppin að búa í litlu sveitarfélagi, Hveragerðisbæ, sem studdi hana í gegnum erf- iða tíma og erum við þakklát fyrir stuðninginn henni til handa. Vonir okkar um að Kristín væri að ná heilsu á ný voru að glæðast þegar hún var í skyndi kölluð á annað tilveru- stig. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir) Hjartans kveðjur, mamma og pabbi. Kristín systir okkar er fallin frá langt fyrir aldur fram. Það er skrítin tilfinning að eiga eftir að venjast tilhugsuninni um að hún muni ekki aftur taka á móti okkur systrum með sínu ljúfa brosi og kveðja okkur síðan með tár á hvarmi. Já, Kristín var eitt stórt samanrekið tilfinninga- búnt. Á unglingsárunum lifði hún og hrærðist í sagnaheimi ásta og átaka. Hún gleypti í sig Rauðu ástarsögurnar, Sögurnar um Ísfólkið og fleiri bækur þar sem heitar tilfinningar, ástir og svik voru í forgrunni. Við syst- urnar nutum góðs af bókhneigð hennar og gátum gengið í him- inháa bókastaflana. Því miður átti líf systur okkar eftir að líkj- ast fléttum eins og í mörgum af þessum ástarsögum án þess þó að eiga hamingjuríkan endi. Kristín trúði á og treysti fólki til að koma fram af heilindum en varð því miður leiksoppur í eigin lífi sem bar skarðan hlut frá borði. Kristín var heppin að búa í litlu samfélagi þegar hún þurfti á sem mestri hjálp að halda. Það var vel haldið utan um hana og börnin í Hvera- gerðisbæ. Hún náði þó ekki að rífa sig upp úr sársauka sem hafði hreiðrað um sig og hjarta hennar brast að lokum. Við biðj- um fyrir styrk handa börnunum hennar til að ganga í gegnum móðurmissinn og óskum inni- lega eftir því að umhyggja þeirra sem standa þeim næst eigi eftir að fleyta þeim áfram til hamingjuríkra daga. Góða ferð elsku Kristín okk- ar, þínar systur Anna og Heiða. Kristín Rúnarsdóttir GUÐNÝ HALLDÓRSDÓTTIR, fyrrum húsmóðir í Reynihlíð, andaðist þriðjudaginn 28. apríl. Snæbjörn Pétursson Ástkær systir mín og frænka okkar, JÚLÍANA SIGURÐARDÓTTIR, áður Norðurbrún 1, lést á Mánateigi, hjúkrunarheimili Hrafnistu, Laugarási sunnudaginn 26. apríl. Útförin fer fram í kyrrþey vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. Fyrir hönd aðstandenda, Ingunn Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.